Þjóðviljinn - 15.04.1978, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. aprll 1978
Húsnæöismái i Reykjavik hafa
nokkuð verið til umræðu undan-
farið, vegna fyrirhugaörar stofn-
unar leigjendasamtaka.
Bent hefur veriö á að allt of litið
framboð er á leiguhúsnæði I borg-
inni og að milli 20 og 30 tilboð ber-
ast I hverja iitla íbúð, sem augíýst
er til leigu.
Þessi þröngi markaður veldur
þvi að menn yfirbjúða hver ann-
an til þess að fá húsnæði, og 2ja
herbcrgja fbúöir eru leigðar á 40-
50 þúsundir krúna á mánuði. Auk
þess er fyrirframgreiðsla i hálft
eða eitt ár orðin föst regla á leigu-
markaðnum.
Ibúðir i Reykjavik eru nú ná-
lægt 30.000. Ef þær kannanir sem
gerðar hafa verið standast, má
reikna með að um 7000 ibúöir séu
leigðar út i borginni.
Stærsti leigusalinn
Reykjavikurborg er stærsti
leigusalinn en borgarsjúður á nú
789 ibúðir.sem leigðar eru út við
vægu verði, sem jafngildir fjúrð-
ungi þess sem menn veröa að
greiða á frjálsum markaði. Þar
að auki hefur Reykjavikurborg 93
ibúöir á leigu og endurleigir þær.
Leigjendur sem búa i slikum
framleiguibúðum borga hærri
leigu en þeir sem eru i borgarhús-
næði, en þó munu nokkrir þeirra
njóta styrkja frá Félagsmála-
stofnuninni ef fjölskylduaðstæður
eða fjármál eru slæm.
Alls hefur Reykjavlkurborg þvi
910 leiguibúðir á sinum snærum,
en 1. desember s.l. voru riflega
800 manns á biðlistum eftir leigu-
húsnæði hjá Félagsmálastofnun
Rcykjavikurborgar.
Ljóst er af þessum tölum, að
borgin getur hvergi nærri annað
eftirspurn fólks eftir ódýru leigu-
húsnæði og það eina,sem Félags-
málastofnun getur gert fyrir fólk,
er að auglýsa fyrir það eða lána
peninga til greiðslu á fyrir-
framleigu.
Gamalt og nýtt
tbúðum sem borgarsjóður á má
skipta i tvennt. Annars vegar er
um að ræða ibúðir sem reistar
hafa verið nýlega og standa eiga
til frambúðar, en hins vegar hús,
sem eiga að hverfa og borgin hef-
ur keypt vegna þess að þau
standa i vegi fyrir skipulagi.
tbúðirnar, sem standa eiga til
frambúðar, eru 668 talsins og er
hluti þeirra leigður til ákveöinna
þjóðfélagshópa, svo sem ellilif-
eyrisþega, einstæðra mæöra eða
öryrkja.
Ibúðir, sem eiga að hverfa, eru
I2ltalsins. Þær eiga þaö flestar
sammerkt að vera gamlar og að
litlu eða engu hefur verið kostað
til viðhalds þeirra á undanförnum
árum.
Þörfin fyrir húsnæði hefur hins
vegar veriö svo mikil að þessi hús
hafa ekki verið rifin og þvi hafa
þau fengið að grotna niður i ró og
næði ef ibúarnir sinna ekki við-
haldi þeirra.
Heilsuspillandi
húsnæði
A undanförnum áratugum hef:
ur miklu af heilsuspillandi
húsnæði verið ýtrýmt i borginni.
Nægir þar að minna á niðurrif
braggakampanna, Pólanna,
Höfðaborgarinnar og fleira.
Heilsuspillandi húsnæði fyrir-
finnst þú enn i borgarlandinu, og
þvi miður er Reykjavikurborg
eigandi og leigusali sliks
húsnæðis i sumum tilfellum, en
endurleigjandi i öðrum.
Eftirlit með heilsuspillandi
húsnæði er i höndum borgar-
læknisembættisins i Reykjavik og
heilbrigðisráðs Reykjavikur-
borgar.
Árið 1977 var allt lélegt
húsnæði, sem borgin á eða
húsnæði sem hún framleigir.skoö-
aö af þessum aðilum.
1. Reykjavikurb. á og leigir út
a.m.k. 88 ibúðir sem eru lélegar
eða slæmar og 6 slæm ibúðarher-
bergi.
2. Um helmingur þess
húsnæðis, sem Reykjavikurborg
framleigir, er lélegt eða slæmt.
Framleiguibúðir eru alls 93, þar
af 10 einstaklingsibúðir meö
eldhúsi og 25 einstaklingsher-
bergi. 16 af þessum herbergjum
eru slæm eða léleg, 36 ibúðanna
eru slæmar eða lélegar.
Að sögn Agústs Isfjörð hjá
húsnæðisdeild Félagsmálastofn-
unar hefur stofnunin ekki tekið
húsnæöi i framleigu siðan i fyrra-
vor.
Félagsmálastofnunin vinnur
nú að skýrslu um endurbætur sem
gerðar hafa verið á þeim ibúðum,
sem aö framan greinir, siöan
skoðunin var framkvæmd.
bannaöar. Engin þeirra er I eigu
eða á vegum borgarinnar. Þegar
ibúðarbann er sett á er venjulega
um að ræöa bann við þvi, að
húsnæðið verði leigt á nýjan leik
eftir að ibúar sem fyrir eru i
A undanförnum árum hefur heilsuspillandi og slæmu húsnæbi verið útrýmt I borginni. Hér sést hvar
veriö var að rifa Meiabraggann, við Hjarðarhaga.
Skammarleg einkunn
Samtals voru skoðaðar 111 ,
ibúðir i eigu borgarinnar, og við
flokkun var þeim skipt i fernt. 12
reyndust gúðar, 11 sæmilegar, 64
lélegar og 24 slæmar.
Þá voru skoðuö 15 ibúðarher-
bergi, sem eru i eigu borgarinnar.
1 reyndist gott, 8 sæmileg og 6
slæm.
Skoðuð voru 16 ibúðarherbergi,
sem Félagsmálastofnun hefur á
leigu og endurleigir. 4 reyndust
léleg og 12 slæm.
46 ibúðir, sem Félagsmála-
stofnun framleigir, voru skoðaöar.
2 reyndust gúðar, 8 sæmilegar, 14
lélegar og 22 slæmar.
Þessi könnun heilbrigðis-
eftirlitsins leiddi þvi eftirfarandi I
ljós:
65 bannaðar íbúðir
og búið í 35 þeirra
I Reykjavik hafa 65 ibúðir verið
ibúðinni eru fluttir út. Ekki er þvi
gerð krafa til þess að húsnæðið
verði rýmt, og þvf er enn nokkuð
af þesspm 65 bönnuðu ibúðum i
leigu.
Vélar og áhöld
Tilboð óskast i vélar Hraunsteypunnar i
Hafnarfirði, nánar tiltekið: 2 vélar fyrir
plötu- og steinagerð, helluvél, hrærivél,
gjallkvörn — fjögurra valsa, gufuketil,
mót og plötur fyrir framleiðsluna.
Tækin verða sýnd þriðjudaginn 18. april.
Upplýsingar verða veittar á staðnum og á
skrifstofu bæjarverkfræðings. Heimilt er
að bjóða i einstaka vélar eða allan véla-
kostinn. Tilboðum skal skila eigi siðar en
kl. 14 miðvikudaginn 19. april á skrifstofu
Bæjarverkfræðings, Strandgötu 6.
Bæjarverkfræðingur.
Happdrætti SVFI
hleypt af stokkum
Slysavarnafélag Islands er 50
ára á þessu ári. Þeirra timamúta
verður minnst með ýmsum hætti,
m.a. verður haldin scrstök lands-
ráðstefna nú 28. april n.k. sem
130—140 manns inunu sækja.
Slysavarnafélagið boðaði
blaðamenn á sinn fúnd nú i vik-
unni til að kynna happdrætti
félagsins, sem nú er verið að
hleypa af stokkunum. Dregið
verður 17. júni, og aðalvinningur-
inn er glæsileg bifreið af gerðinni
Chevrolet Malibu 78. Aukþess eru
9 Binatone sjúnvarpsspil f vinn-
inga.
Happdrættismiðarnir kosta 500
krónur og verða þeir seldir á
strætum og torgum borgarinnar
næstu vikurnar.
Mest allt starf Slysavarna-
félagsins er unnið i sjálfboða-
vinnu, og svo er einnig með sölu
happdrættismiðanna, sem stakk-
klæddir björgunarsveitarmenn
munu annast.
Engu að siður kostar starf
Slysavarnafélagsins mikið fé og
sala happdrættismiöa hefur á
undanförnum árum borið uppi
stóran hlut af þeim kostnaði.
A blaðamannafundinum kom
fram að félagið hefur byggt og á
nú 98 skýli viðsvegar um landið,
ýmist meðfram ströndum þess
eða uppi á heiðum. 25 þessara
skýla eru einnig miðstöðvar
björgunarsveitanna, þar er bún-
aður þeirra geymdur og fundir
haldnir.
1 skýlunum eru öryggistæki og
neyðarmatur, og sagði forseti
félagsins, Gunnar Friðriksson, að
nokkuðheföiboriðá þvi, aðferða-
langar gengju illa um skýlin og
kvörtuðu jafnvel yfir matnum.
Skýlin hafa aldrei verið ætluð
sem ókeypis hótel fyrir skemmti-
ferðamenn, sagði Gunnar, heldur
sem neyðarskýli
1 skýlunum eru öryggistæki og
neyðarmatur, og sagði forí ->ti
félagsins, GunnarFriðriksson, að
nokkuöhefðiboriðá þvi, aðferða-
langar gengju illa um skýlin og
kvörtuðu jafnvel yfir matnum.
Skýlin hafa aldrei verið ætluð
sem ókeypis hótel fyrir skemmti-
ferðamenn, sagði Gunnar, heldur
sem neyðarskýli fyrir fóik i vond-
um veðrum. Bygging og búnaður
skýianna kostar mikið fé, og það
er von okkar að fóik taki björg-
unarsveitamönnum vel og styöji
starf félagsins með þvi að kaupa
af þeim happdrættismiða.
Afdrif þessara 65 ibúða eru
eftirfarandi:
117 tilfellum er um breytt afnot
að ræða, húsnæðinu hefur verið
breytt i. geymslur eða annað. 8
ibúðir eru auðar. 5 hafa verið
rifnar. Eigendur búa I 3 ibúðum
og við þvi er ekkert að gera.
Sömu ibúar eru.1 14 ibúðum og i
18 tilfellum hafa fbúðirnar verið
endurleigðar, þ.e. bann
heilbrigðiseftirlitsins hefur verið
virt að vettugi.
Þessum 18 ibúðareigendum var
gert skylt að gefa skýringu fyrir
15. mars s.l., og er nú unnið að
úrvinnslu svara, sem borist hafa.
Þórhallur Halldórsson
framkvæmdastjóri heilbrigðis-
málaráðs sagði i samtali við
Þjóðviljann að innan skamms
yrði ljóst hvort eigendurnir hefðu
gert lagfæringar á húsnæðinu eða
ekki, og mun Þjúðviljinn birta
nöfn þeirra, sem leigja út
úibúðarhæft húsnæði, þegar Ijúst
er hverjir hafa brotið bann
eftirlitsins.
—AI.
Barre
leitar
til Kín-
verja
Biður að líkindum
um efnahagsaðstoð
13/4— Mohamed Siad Barre, for-
seti Súmalflands, lagði i dag af
stað tíl Peking f opinbera hcim-
sökn, að iikinduni til þess að fá
hjálp Kinvcrja til endurreisnar
efnahag og her landsms, sem
hvorltveggja er mjög illa farið
eftir hrakfarirnar i Ogaden-stríð-
inu. Talið er að Barre muni fyrst
og fremst fara fram á efnahags-
aðstoð frá Kinverjum. Heimsúkn-
in þykir benda til þess að Súmalir
hyggist nálgast Kina á alþjúða-
vettvangi, en kinverska stjúrnin
fordæmdi Kúbu og Sovétríkin
harðlega fyrir stuðning þeirra við
Eþiúpiu.
Bæði Sovétrikin og Bandarikin
hafa á liðnum árum stigiö
i vænginn við Sómali.
Sovétrikin leituðust
við að koma á bandalagi Eþi-
ópa og Sómala, sér hliðhollu,
en er það brást sviptu þau Sómali
stuðningi og snerust á sveif með
Eþi'ópiustjórn. Bandarikin hafa
fyrir sitt leyti veitt Sómölum vil-
yröi fyrir stuðningi i þeim til-
gangi að andæfa áhrifum Sovét-
rikjanna á austurhorni Afriku.
Talsverð ólga virðist nú vera i
Sómalílandi og óánægja með
Barre forseta, sem sumir kenna
um hrakfarirnar fyrir Kúbönum
og Eþiópum i Ogaden. Fyrir að-
eins fimm dögum gerðu nokkrir
ungir liðsforingjar uppreisn gegn
forsetanum, en hún var bæld nið-
ur.
Reykjavíkurborg
og húsnæðismálin