Þjóðviljinn - 15.04.1978, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 15.04.1978, Qupperneq 15
Laugardagur 15. aprll 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 „Brú” i stað „Bridge” Landsliðskeppni lýkur I dag verður framhaldið i Hamraborg 1, Kópavogi, lands- liðskeppni BSl og lýkur henni á morgun. Ollum er frjálst að fylgjast með. Keppt er bæði i karla- og unglingaflokki. Keppni i kvennaflokki er lokið (eða á lokastigi), og hafa þær stöllur Halla Bergþórsdóttir, Kristjana Steingrimsdóttir, Esther Jakobsdóttir og Ragna Ólafs- dóttir þegar tryggt sér sigur i innbyrðis keppni við aðrar kvennasveitir. Til hamingju með þann árangur.... Úrslit i Reykjanes- móti í tvímenning Um siðustu helgi var h'áð Reykjavikurmót i tvim., með þátttöku 20 para. Aður höfðu 37 þreytt með sér i undanrás. Einnig gaf mót þetta rétt til þátttöku i ísl.móti i tvimenning. Reykjanés á rétt á 10 pörum i ár inn á íslandsmót. tJrslit i mótinu: 1. Jón t>. Hilmarsson — Oddur HjaltasonBAK 607stig. 2. Helgi Jóhannsson — Þorgeir Eyjólfsson 596stig. 3. Vilhjálmur Sigurðsson — Sigurður Vilhjálmss. 595stig. 4. Bjarni Pétursson — Halldór Helgason 586 s tig. 5. Björn Eysteinsson — Magniís Jóhannsson 561stig. 6. Sigurður Sverrisson — SkUli Einarsson 549 stig. 7. Sigurbjörn Jónsson — Sigurður Margeirsson 544stig. 8. Sævar Magnússon — Hörður Þórarinsson 535stig. 9. Ármann J. Lárusson — Gunnlaugur Sigurgeirsson 531 stig. 10. Friðþjóftir Einarsson — Halldór Einarsson 531 stig. 11. Jón Andrésson — Garðar Þórðarson 515stig. 12. Alfreð Alfreðsson — EinarJónsson 511 stig. Spilað var i Stapa, Njarðvik. Keppnisstjórar voruþeir Ólafur Lárusson og Sigurjón Tryggva- son. Spiluð voru 3 spil milli para og voru spil fyrirfram gefin. Frá BR Aðalsveitakeppni bridge- félagsins hófst sl. miðvikudag. AðeinserkepptiM.fl. Úrsliti 1. umferð: Hjalti Eliasson — Olafur Haukur Ólafsson: 17-3 Guðmundur T. Gislason — Jón Hjaltason: 12-8 Stefán Guðjohnsen — SigurðurB. Þorsteinsson: 12-8 Steingrimur Jónasson — EirikurHelgason: 11-9 Ekki er spilað næsta miðviku- dag, sem er slðasti dagur vetr- ar. Frá Ásunum Á mánudaginn hófsthjá félag- inu Butler-tvimenningskeppni með þátttöku 24 para. Keppnin er 4 kvölda og er staða efstu para, að loknu Lkv. þessi: 1. Einar Þorfinnsson — Sigtrvggur Sigurðsson 61stig 2. Hjörleifur Jakombsson — Þorlákur Jónsson 40stig. 3. Jakob Möller — Guðmundur Sveinsson 35 stig. 4. Jón Baldursson — Sævar Þorbjörnsson 26stig. 5. Georg Sverrisson — Karl Adólf sson 20 stig. 6. Vigfús Pálsson — Þorfinnur Karlsson I9stig. ' Keijpni verður haldið áfram n.k. mánudag. Frá Breiðholti Barometer er hafinn hjá félaginu, og mun taka yfir 4 kvöld. Staðan að loknum 3 set- um, er þessi: 1. Sigriður Rögnvaldsdóttir — Vigfús Pálsson 40 stig. 2. Finnbogi Guðmarsson — SigurbjörnÁrmannsson 26stig. 3. Guðbjörg Jóelsdóttir — Guðmundur Pálsson 16 stig. 4. Baldur Baldursson — Gunnar Kjartansson 14 stig. Keppni verðu framhaldið nk. þriðjudag. Frá TBK Þá er lotóð Barometerskeppni félagsins. tlrslit urðu þessi (10 efstu pör): 1. Þórhallur Þórsteinsson — Sveinn Sigurgeirsson 161 stig. 2. Dóra Friðleifsdóttir — Sigriður Ottósdóttir 112stig. 3. Bragi Jónsson — Dagbjartur Grimsson lOOstig. 4. Ragnar Óskarsson — Sigurður Ámundason 91stig. 5. Gunnlaugur Kristjánsson — Sigurður Sigfússon 71stig. 6. Ingólfur Böðvarsson — GuðjónOttósson 68stig. 7. Zophonias Benediktsson — Baldur Asgeirsson 68stig. 8. Ingvar Hauksson — ■ OrwellUtley 66stig. 9. Gestur Jónsson — Sigtryggur Sigurðsson 66 stig. Sl. fimmtudag var spiluð parakeppni. Einnig var frjálst kvöld fyrir alla þá er ekki „gátu” náð sér i dömu, hvar sem næst verður? I dag heyja TBK-menn keppni við Skagamenn, fyrir vestan. Frá Bardstr.félaginu Siðasta umferð i sveitakeppni félagsins var spiluð sl. mánudag og urðu úrslit þessi: sveit Guðbjarts vann Agústu 16-4 sveit Ragnars vann Guðmund 11-9 sveit Sigurðar vann Baldur 15-5 sveit Helga vann Gisla 13-7 Urslit urðu þvi þau, aö sveit Ragnars Þorsteinssonar sigr- aði, en hún hlaut 118 stig. I sveitinni eru auk Ragnars, Egg- ert Th. Kjartansson, Finnbogi Finnbogason, Þórarinn Þórarinsson (Árnason?). 2) sveit Helga Einarssonar 110 stig. 3) sveit Sigurðar Kristjánssonar 103stig 4) sveit Baldurs Guðmundssonar 94stig. 5) sveit Guðbjartar Egilssonar 88 stig 6) sveit Gisla Benjaminssonar76 stig. Félagið endar vetrarstarfið með2 kvölda einmenning og er fullbókað i hann. Keppni hefst á slaginu 19.45. Frá Bridgefélagi Kópavogs Eftir 17 umferðir i Baro- meter tvim enningskeppni félagins, er staða efstu para þessi: 1. Jón Páll Sigurjónss. — Guðbr. Sigurbergsson 253stig. 2. Guðmundur Pálsson — Sigmundur Stefánsson 203stig. 3. Asmundur Pálsson — óli Már Guðmundsson 140stig. 5. Friðjón Margeirsson — Valdimar Sveinsson 133stig. 5. Bjarni Pétursson — Sævin Bjarnason 130stig. Bestum árangri næst-siöasta kvöld náðu: Sigurður Vilhjálms=on — Runólfur Pálsson 79stig. Gumundur Pálsson — Sigmundur Stefánsson 77 stig. Vilhjálmur Jónsson — Borgþór Pétursson 74stig. Keppnisstjóri er Vilhjálmur Sigurðsson. Keppni var fram haldið 'sl. fimmtudag. Frá bridgefélagi Hafnarfjaröar Nú er ólokið einu kvöldi (3 umf.) I barometertvimennings- keppni fél., og tekur nú að teygj- ast á liðinu. Staða efstu manna fyrir lokasprettinn á mánudag: 1. Arni —Sævar U99stig. 2. Björn—Magnús 1164stig. 3. Kristján —Ólafur 1123stig. 4. Hörður — Þorsteinn 1112 stig. 5. Bjarni — Þorgeir 1105 stig. 6.Albert—Sigurður 1095 stig. Mtóalskor 1008 stig. Siðasta spilakvöld náðu þeir Hörður og Þorsteinn bestum árangri eða 77 stigum yfir meðal (þeir fóru i ranga átt fyrsta kvöldið...). Þeir Björn og Magnús voru einnig stórstigir með 58 st. yfir meðalskor. Laugardaginn 15. april verður spilað við Selfyssinga i 32. sinn. Þangað til annað kemur I ljós, verða menn að trúa þvi, að hér sé um að ræða elstu og allavega virðulegustu bæjakeppni i bridge á tslandi. Spilað er á Sel- fossi. Frá bridgefélagi kvenna Lokið er parakeppni félags- ins, hinni árlegu,og var keppni óvenju jöfn i ár. úrslit urðu þessi: 1. Halla Bergþórsdóttir — Jó- hann Jónsson 622 stig 2. Alda Hansen— Georg Olafs- son 618 stig 3. Steinunn Snorradóttir — Agnar Jörgensson 589 stig 4. ósk Kristjánsdóttir — Dag- bjartur Grlmsson 589 stig 5. Guðriður G'uðmundsdóttir — Sveinn Helgason 585 stig 6. Sigrún ólafsdóttir — Magnús Oddsson 582 stig 7. Unnur Jónsdóttir — Þórður Eliasson 581 stig 8. Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigvaldi Þorsteinsson 574 stig. 9. Erla Eyjólfsdóttir — Gunnar Þorkelsson 574 stig 10. Esther Jakobsdóttir — Guðmundur Pétursson 567 stig Næsta keppni félagsins er hraðsveitakeppni. Formaður félagsins, frú Ingunn Hoffmann i sima 17987, mun veita allar upplýsingar um mót þetta. Frá Akureyri Nýlokið er hinni árlegu THULE-tvimenningskeppni fé- lagsins, en Sana hf, gefur verð- launin i hana. Úrslit urðu þessi: 1. Mikhael Jónsson — Alfreð Pálsson 296 stig 2. Ármann Helgason — Jóhann Helgason 274 stig 3. Páll Jónsson — Þórarinn Jónsson 268 stig 4. Disa Pétursdóttir — Soffia GuðmundsdótUr 260 stig 5. Gissur Jónsson — Þorvaldur (pálsson 251 stig 6. Jón Stefánsson — Hörður Steinbergsson 251 stig. 7. Gylfi Þórhallsson — Pétur Guðjónsson 248 stig 8. Gunnar Sólnes — Ragnar Steinbergsson 248 stig meöalskor 240 stig Næsta mót félagsins er Board-a-match-keppni, til minningar um Halldór Helga- son fv. bankastjóra, og einn af frammámönnum félagsins. Keppnisform þetta innleiddi Guðmundur Kr. Sigurðsson, hinn góðkunni stjórnandi, hjá félaginu I fyrra. Frá Selfossi Úrslit i meistarakeppni sveita, sem lauk 6/4. 1. Sveit Jónasar Magnússonar 108 stig 2. Sveit Vilhjálms Þ. Pálsson- ar 101 stig 3. Sveit Sigurðar S. Sigurðssonar 72 stig 4. Sveit Arnar Vigfússonar 60 stig 5. Sveit OlafsGuðmundssonar 47 stig 6. Sveit Brynjólfs Gestssonar 32 stig Sveit Jónasar skipa auk hans, Kristmann Guðmundsson, Þórður Sigurðsson og Kristján Jónsson og Sigurður Sighvats- son. SÞ Hugleiðing Sú vakning er risin enn á ný, hvortekki sé timabærtað leggja til hliðar notkun á orðinu „bridge”, sem i sjálfu sér er ákaflega illmeðfært i, okkar máli og taka upp þess i stað orð- ið ,,brú”. Þetta er engin ný bóla, og hefur lengi verið að velkjast um i fólki. Orðið ,,bridge”er að visu alþjóðlegt f-;rjrbæri og allir kannast við það, sem á annað borð kæra sig um. En það er hitt, að merking orðsins hæfir einmittþvi hlutverki sem þvi er ætlað að þjóna. Aldrei þessu vant.. Orðið „brú” i stað „bridge”, þvi ekki það? Þættinum væri ánægja i að frétta skoðanir manna um þetta mál, þvi að sjálfsögðu stefnum við öll að betra þjóðfélagi, is- lensku þjóðfélagi. Benedikt Sigurösson sextugur Það er kannski rétt, sem sumir segja, að áratuga afmælin séu ektó merkilegri en önnur afmæli og jafnvel að afmælisdagar séu ekki merkilegri en aðrir dagar. Það er þó óneitanlega merkisat- burður, þegar merkismaður er i heiminn borinn, og það er nú einu sinni venja að minnast þess helst á áratuga fresti. Þvi get ég nú ekki alveg orða bundist, þegar vinur minn og félagi fyllir 6. tug ævi sinnar, en hann hefur nærri helming minnar ævi veriö minn nánasti samstarfsmaður og félagi allra vandalausra manna. Benedikt er fæddur að Hofteigi á Jökuldal 14. april 1918. Foreldr- ar hans voru bændafólk, sem átti ættir sinar helst að rekja til Fljótsdalshéraðs og Þingeyjar- sýslu. Um skeið bjuggu foreldrar hans á Aðalbóli 1 Hrafnkelsdal. Ungur mun hann hafa misst föður sinn, en eitthvað mun ekkjan hafa búiðeftir lát manns sins. Eins og margir námfúsir austfirðingar settist Benedikt i Eiðaskóla og lauk þaðan nami 1936. En hugur- inn stefndi til meira náms og 19 ára gamall bregður hann sér til Danmerkur og stundar i tvö ár nám við Den Internationale Hpj- skole i Helsingjaeyri. Aðalnáms- greinar danska, enska og þýska. Hann er fjölhæfur tungumála- maður og hefur nokkuð fengist við þýðingar einkum Ur ensku, hann hefur enda mjög gott vald á islensku máli, en það gefur auga leið, að það er ekki siður þörf á að hafa vald á þvi máli, sem þýtt er á, en hinu sem þýtt er af. Eftir Danmerkurveruna gerð ist Benedikt kennari i heima- sveit sinni, en fer næst I Kennara- skóla íslands og lauk kennara- prófi eftir einn vetui; 1943. Slðan hefur hann oft sótt kennaranám- skeið til að halda við menntun sinni og auka við hana. Arið 1944 réðist Benedikt að Barnaskóla Siglufjarðar og hefur starfað þar siðan. Þar vorum við Benedikt samstarfsmenn um þrjá áratugi. Það er skemmst frá að segja, að sem kennarihefur Benedikt verið 1. flokks starfsmaður. Þar kemur til traust alhliða menntun, árvekni og ósérhlifni i starfi og heppileg skapgerð, sem allt eru fremstu kostir kennara. I þau 29 ár, sem ég átti að heita yfirmaður hans fullyrði ég, . að aldrei hafi borið skugga á okkar samvinnu i skólanum. Þótt sama mætti reyndar segja um annað af þvi ágæta fólki, sem ég starfaði með við Barnaskóla Siglufjarðar, þá höguðu atvikin þvi þannig að samvinna okkar Benedikts varð nánari og fjöl- þættari en við flesta hina. Arin 1947—1948 reistum við sameigin- legt ibúðarhús, og siðan höfum við verið sambýlismenn þessi þrjátiu ár. Iþvi húsi hafa reyndar veriö lengst af þrjár ibúðir og allt sambýlisfólkið reynst hið besta, en sambýlið við Benedikt og fjölskyldu hans hefur bæði verið lengst og nánast. Um það má sannarlega segja, að á betra verði ekki kosið. Má þar jafnt þakka húsbóndanum og hans ágætu eiginkonu Hólmfriði Magnúsdóttur sildarmatstjóra. Þau eiga fimm börn, sem öll eru vel gerð og bera foreldrum sinum gott vitni. En er þó ógetið þess þáttar i lif i Benedikts, sem kannski lýsir hon- um best. Og það vill svo til, að þar höfum við einnig verið samstarfs- menn, þótt minn hlutur hafi verið þar ólikt smærri en hans. And- stæðingar okkar sósialista þykjast ekki skilja og skilja kannski ekki, hvernig flokkur okkar getur klofið þá fjárhags- örðugleika, sem fylgir þvi að halda uppi starfseminni, og ber okkur oft á brýn, að þar séu ann- arleg öfl að verki. En það eru einmitt menn eins og Benedikt, sem hafa gert og gera þetta kleift. Menn sem alltaf eru reiðubúnir að leggja fram störf og jafnvel fjármuni fyrir málefnið án þess að ætlast til annarra launa, en að þoka málunum eitthvað i áttina. Ég held að engum sé gert rangt til, þótt ég segi, að siðan ég kom til Siglufjarðar, hefur enginn lagt þar meira af mörkum en Benedikt. Sú fátæklega blaðaút- gáfa, sem við höfum haldið uppi við mjög örðugan fjárhag, hefði varla verið möguleg, ef hann hefði ekki lagt þar fram sina krafta endurgjaldslaust lengst og mest allra. En störf Benedikts i þágu flokksins voru ekki bundin við það eitt. Þaö var sama hvort rita þurfti stjórnmálagrein 1 Mjölni eða taka múrskeið i hönd til að vinna að endurbótum á húsi flokksins, alltaf var hann jafn fús til verka fyrir málefnið. Enda hefur hann gegnt ótal trúnaðar- störfum fyrir flokkinn og aldrei skorast undan. Og þó langar mig að nefna hér eitt dæmi. Ég man ekki til, að það hafi komið nema einu sinni fyrir, að Benedikt hafi reiðst mér, svo að hann léti það i ljós. En tilefnið var það, að ég barðist fyrir þvi, að hann tæki öruggt sæti á lista flokksins til bæjarstjórnarkosninga i stað annars manns, sem ég var ekki jafn ánægður með. Ég varð að visu að láta i minni pokann þá og Benedikt fór ekki i bæjarstjórn i það sinn. En við næstu kosningar lét hann þó undan þrábeiðni félaga sinna og sat siðan I bæjar- stjórn i tvö kjörtimabil. Þar vann hann sér enn aukið traust félaga sinna og virðingu andstæðinga. En nú var hann ófáanlegur til að sitja þar lengur og lagði eindregið til að yngri menn tækju við og studdi að kosningu þeirra með ráðum og dáð. Benedikt hefur nefnilega einn galla. Hann er óþarflega hlé- drægur. Að lokum vil ég svo senda Benedikt ogfjölskyldu hans verð- skuldaðar þakkir fyrir öll árin, sem við höfum átt samleið, og árna þeim allra heilla. Ennfrem- ur vil ég óska þess að samvera okkar og samstarf megi vara sem lengst. Hlöðver Sigurðsson. Grein þessi átti að birtast 1 blaðinu i gær, en komst ekki að norðani tæka tið.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.