Þjóðviljinn - 16.04.1978, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 16.04.1978, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. aprfl 1978 Árnessýsla metin til Austurstrætis- gildis kostaði 1648 biljónir króna. Skv. fasteignamati 1977 eru nú 19 lóöir viö Austurstræti — alls 11.419 ferm. Þessar lóöir eru metnar á 2.051.356.000 krónur án mannvirkja sem á þeim standa. Að meöaltali kostar hver fermetri 179.644 kr. Til samanburðar má geta þess að öll Arnessýsla sem er eitt frjó- samasta og mest ræktaöa hérað landsins er um 881.000 hektarar. Allt þetta land — að undanskild- um þéttbýliskjörnunum þar — er metið á svipaða upphæð og þessi eini malarhektari við Austur- stræti eða á 2.084.623.000 kr. Ef hlunnindi sýslunnar eru tekin með bætast viö 579.757.000 kr. Aö meðaltali kostar hver fermetri lands i Arnessýslu um 24 aura. Ef brugðið er dálitið á leik og öll Arnessýsla umreiknuð til Austur- strætismatsins kostaði hún 1648 bifjórtir króna (1.648.663.640.000.000 kr.) Væri hins vegar hektarinn á mölinni viö Austurstræti umreiknaður skv. Arnessýslumati kostaði hann skitnar litlar 2740 krónur eöa þar um bil. Ef farið er upp i Bankastræti eru 11 lóðir þar, að stærð 5288 ferm. metnar á 835.139.000 kr. og er meðalverð á fermetra 157.931 kr. Viö Laugaveg eru 175 lóöir að stærð 106.693 ferm. og eru þær metnar á 4.057.782.000 kr. og er meðalverð á fermetra skv. þessu 37.845 kr, þar. Aliar lóðir i þéttbýli i Arnes- sýslu, þ.e.a.s. á Selfossi, Eyra- bakka, Stokkseyri, i Hveragerði og Þorlákshöfn eru metnar sam- tals á 3.306.748.00 kr. eða snöggt- um lægra en lóðirnar við Lauga- veg einan. Þessskal getið aö fasteignamat 1977 hvilir á grunni þess allsherj- armats sem fram fór árið 1970 og einn af þeim þáttum sem lágu til Rúmur hektari lands í A ustur- strœti: Lóðir við Austurstræti — alls rúmur hektari lands — eru í fasteignamati 1977 metnar á rúma tvo miljaröa króna eða álíka hátt og aII- ar jarðir Árnessýslu til samans sem er einhver stærsta og búsældarlegasta sýsla landsins. Þar er nú búið á um 570 býlum og ræktað land gifurlega stórt. Hið háa fasteignamat á litlum skika í miðbæ Reykjavíkur gefur örlitla hug- mynd um braskið sem þar fer fram og ræður þróun hans. Tími er kominn til að stöðva þetta brask sem er einungis á kostnað almennings auk þess sem það virðir engin menningarverð- mæti. Aðeins lóðirnar við þessa stuttu götu eru metnar á rúma 2 miljarða. Það eru þvl ekki neinir smáfjármunir sem fara milli vasa þegar sala fer fram á þessum lóðum. (Ljósm.: eik) Metínn á 2 miljarda kr. grundvallar þvi var söluverð landa og lóða eins og það hafði veriðgefið upp opinberlega næstu ár á undan. Frjálst brask hefur ráðið örlögum húsanna og mótað heildarsvip miðborgar- innar Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá þvi að hann var stofnaður árið 1929 haft hreinan meirihluta i borgarstjórn Reykjavikur. Hann hefur alla tið fyrst og fremst verið hagsmunatæki kaupsýslumanna. F'rjálst brask hefur ráöið örlögum húsanna og mótað heildarsvip miðborgarinnar. Þess vegna er hún nú orðin svo sundurtætt og óaðlaðandi. Nýjasta dæmið um hvernig heilu húsaþyrpingunum er fórnað á altari peningahyggjunnar er nýleg samþykkt i borgarstjórn á deiliskipulagi á litlu svæöi austan Aðalstrætis. Ösvifinn kaupmaður að nafni Ragnar Þórðarson gengur á það lag sem meirihluti borgarstjórnar hefur mótaö að stór hluti gömlu miðbæjarkvos- arinnar sé kallaöur fram- kvæmdasvæði og fær þvi fram- gengt að gert er þetta deiliskipu- lag sem gerir ráö fyrir stórfelld- asta niöurrifi gamalla timbur- Eitt hinna 570 býla sem nú er búið á f Arnessýslu: Oddgeirshólar I Flóa. Hversu tnikið ræktað land skyldi vera i allri sýslunni? (Ljósm.: S.dór)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.