Þjóðviljinn - 16.04.1978, Qupperneq 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. apríl 1978
UMSJÓN:
Kristin
sm ólafsdóttir
Aagot V.
óskarsdóttir
Jóhanna V.
Þórhallsdóttir
Laugardaginn 8. apríl
var framkvæmdur gjörn-
ingurinn (performance)
Spriklverk í Gallerí
Suðurgöfu 7. Að honum
sfóðu Friðrik Þ. Friðriks-
son og Steingrímur E.
Kristmundsson, en
siðastliðnar tvær vikur
hefur staðið yfir sýning
þeirra félaga í galleríinu.
1 flutningi verksins tóku þátt
auk þeirra, 4 lifandi silungar og
5hljómlistarmenn: Eggert Þor-
leifsson, klarinett, flauta: Ei-
rikur Baldursson, selló: Jón
Sigurpálsson, kontrabassi: Jó-
hanna Þórhallsdóttir og Aagot
Oskarsdóttir, raddir, öndun og
tréspil. Gjörningurinn var fest-
ur á filmu af Garðari Guð-
mundssyni og Þorgeir Pálsson
sá um hljóðupptöku.
Framvinda gjörningsins fólst
i þvi, að silungarnir voru færðir
úr vatninu og látnir á mismun-
andi hljóðgjafa, svo sem
trommu og rafmagnsgitar. Þeir
sprikluöu og framkölluðu þar
með hljóð, sem hljómlistar-
mennirnir spunnu út frá. Þess
má geta að silungunum var
sleppt.
Myndirnar sýna skúlptúrinn
sem út úr gjörningnum kom, en
þær ásamt hljóðverkinu getur
fólk séð og heyrt i Galleri Suður-
götu 7 i dag, en sýningu Stein-
grims og Friðriks lýkur i kvöld
klukkan 10.