Þjóðviljinn - 16.04.1978, Page 17
Sunnudagur 16. aprn 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 17
Astarsaga
hnefaleikara
Sagt er að Sylvester
Stallone hafi skrifað hand-
ritið að „ Rocky" á þremur
dögum, og því get ég vel
trúað. Það getur varla tek-
ið lengri tíma að safna
saman handfylli af göml-
um klisjum og sjóða úr
þeim reyfara á borð við
þann sem Tónabíó hefur
sýnt fyrir f ullu húsi síðan á
páskum.
Vinsældir myndarinnar virðast
byggjast fyrst og fremst á leik
Sylvesters Stallone i titilhlutverk-
inu. Rocky er ósköp mislukkaður
töffari i byrjun myndarinnar, býr
einn i hrörlegri ibúð i fátæklegu
hverfi og hefur ofan af fyrir sér
með þriðjaflokks hnefaleikum og
með þvi að innheimta peninga af
skuldunautum okurlánara og
mafiuforingja. Gefið er i skyn að
innheimtuaðferðirnar séu stund-
um hrottalegar, en það eina sem
við fáum að sjá af sliku virðist
vera undantekning frá reglunni:
Rocky neitar að fingurbrjóta
skuldunautinn á þeim forsendum
að þá geti manngreyið misst
vinnuna. Semsagt: þetta er góður
gæi. Hann er bara i vinnu hjá
Mafiunni af þvi hann er Itali og
það tilheyrir. Margt fleira er okk-
ur sýnt til þess að við sannfær-
umst um góðmennsku hetjunnar.
Eitt hlálegas'ta atriðið er þegar
hann fer að prédika um holla lifn-
aðarhætti yfir 12 ára pæju sem er
farin að hanga á götuhornum og
drekka brennivin og klæmast.
Rocky er umhugað um framtið
æskunnar i landinu. Klisja númer
eitt: góðhjartaður smábófi, sem
ekki hefur fengið tækifæri til að
komast áfram i lifinu.
Aðalefni myndarinnar er það,
að heimsmeistarinn i hnefaleik-
um (þungavigt), Apollo Creed, er
i vandræðum með mótleikara, sá
eini sem þorir I hann er forfallað-
ur. Apollo fær hugmynd: hann
ætlar að halda upp á 200 ára af-
Þursaflokkurinn, frá vinstri, Rúnar H. Vilbergsson, Tómas
Tómasson, Egill ólafsson, Asgeir óskarsson og Þórður Arnason.
(Ljósm.: AI.)
Hinn íslenski
Þursaflokkur
Hornauga leit nýlega
hinn nýstofnaöa Þursa-
flokk á hljómleikum í
félagsstof nun stúdenta.
Hann skipa Ásgeir Oskars-
son sem leikur á trommur,
Egill sem talar, syngur,
spilar á kassagítar og fl.
Rúnar Vilbergsson á fagott
og pákur, Tómas Tómas-
son á rafmagnsbassa og
Þórður Árnason raf-
magnsgitar.
Fyrri hluti prógrammsins voru
útsetningar á gömlum islenskum
þjóðlögum (með tilheyrandi
kjaftasögum) sem flest eru úr
safni Bjarna borsteinssonar.
Þetta var skemmtileg hugmynd
og piltunum tókst mjög vel að
koma þjóðlagastemningunni til
skila. Fagottið með sinum hlýja
tón, átti þar ekki hvað minnstan
þátt. Einnig náðu þeir sterkum
áhrifum með t.d. pákum, segul-
bandi og harmónikku. Að öðrum
ólöstuðum á Rúnar Vilbergsson
heiðurskilið fyrirsinn smekklega
hljóðfæraleik. Einnig er ástæða
til að hrósa Agli Ólafssyni fyrir
ágæta túlkun. Það sem helst
mætti gagnrýna i þjóðlagapró-
grammi þeirra félaga var ofnotk-
un ABABAB-formsins, sem öll
lögin voru færð i.Lögin sjálf voru
flutt i sinum upprunalega bún-
ingi (A) og erindin skýrt afmörk-
uð með rokkviðlögum (B).
Siðari hluta hljómleikanna
fluttu þeir Þursar eitt Spilverks-
lag, eitt lag eftir Megas og Egil og
þrjú frumsamin lög. Þessi hluti er
ekki eins eftirminnilegur og sá
fyrri og var i heildina fremur lit-
laus. Þó standa uppúr einstaka
ágætis samspilskaflar. Hljóð-
færaleikur hvers og eins fékk litið
að njóta sin og verkaði flokkurinn
helst til mikið sem Egill Ólafsson
og undirleikarar.
Textar við lög Þursanna voru
heldur óburðugir. Einn saman-
soðinn úr ýmsum þekktum
kvæðum, þar sem Óli Skans er
meðal sögupersóna, annar um
Jón Sólnes. Sá þriðji er hugleiðing
um nútimann:
Nútiminn er trunta
með tóman kindarhaus
Hjartaö, það er hrimað
þvi hcilinn gengur laus.
En truntan hún er Trigger
með taglið aftaná
Mamma má ég skoða,
inamma má ég sjá.
Þursaflokkurinn hóf æfingar á
dagskrá sinni i lok janúar og æfðu
þeir i hálfan mánuð áður en þeir
komu fyrst fram. Þeir hafa troöið
upp i ýmsum skólum og samkom-
um, svo sem fundi herstöðvar-
andstæðinga 30. mars s.l.
avó, kól, jvþ.
■
fcsfefes
ROCKV
• Eldhröð pappírsfærsla (11 lín
• Eldhröð prentun
• Leyfilegt er að draga
pappírinn upp með hendinni
• Bæði Ijósaborð og strimill
(mod 2251)
• Stórir og skýrir stafir
• Fullkomin kommusetning
GISLI I JOHNSEN
Vesturgata 45 Reykjavtk
sími 27477
mæli Bandarikjanna með þvi að
gefa einhverjum óþekktum
hnefaleikara tækifæritil aö keppa
við sig um heimsmeistaratitilinn.
Rocky verður fyrir valinu vegna
þess að Apollo list vel á nafnið
sem hann hefur tekið sér: ttalski
folinn. Það hefur auglýsinga-
gildi. Apollo Creed á móti ttalska
folanum. Og var það ekki Itali
sem fann Ameriku? — spyr hann.
Tilvalið að minnast 200 ára af-
mælisins með þvi að láta ttala og
blökkumann slást. Rocky tekur
tilboðið alvarlega og ákveður að
þetta sé stóra tækifærið hans til
að sýna heiminum að hann sé
eitthvað annað og meira en
venjulegur gaur úr fátækra-
hverfi. Hann tekur til við að
þjálfa sig af ofurkappi, meðal
annars með þvi að lemja kjöt-
skrokka sundur og saman i frysti-
klefa þar sem vinur hans vinnur.
Loks rennur stóra stundin upp.
Hnefaleikahringurinn hefur verið
skreyttur með tilliti til 200 ára af-
mælisins, stjörnur og rendur út-
um allt. Apollo hinn svarti ekur i
salinná gervi Georgs Washington
með silfurmeyjar sér til halds og
trausts. Undir þessu gervi er
hann i öðru: gervi Sáms frænda.
Þessi auglýsingastarfsemi vekur
mikinn fögnuö áhorfenda. Rocky
er hinsvegar fremur litið spenn-
andi, á hann er aðeins saumuð ein
auglýsing, og hún er frá kjöt-
kaupmanninum sem átti frysti-
klefann góða. Bardaginn hefst.
Apollo tekst ekki að afgreiða
Rocky i þremur lotum einsog
hann hafði ætlað sér, heldur þvæl-
ist strákurinn fyrir honum og er
uppistandandi eftir fimmtándu
lotuna. Heimsmeistarinn heldur
samt i titilinn.
Samhliða þessu öllusaman ger-
ist að sjálfsögðu önnur saga og
fléttast inni eftir þörfum. Það er
ástarsaga. Rocky er skotinn i
sys'tur vinar sins. Hún vinnur i
gæludýrabúð og er feimin. Rocky
læknar hana af feimninni með
einum kossi — þá er hún orðin fal-
leg, gáfuð og góð, öllum að óvör-
um. Hnefaleikaatriðið mikla end-
ar á þvi að Rocky æpir nafn sinn-
ar heittelskuðu út yfir salinn og er
svo umhugað að fá hana til sin að
hann heyrir ekki einusinni niður-
stöður dómaranna um leikinn,
sem hafði þó nær riðið honum að
fullu. Og sjá, hún kemur skokk-
andi til hans gegnum þvöguna og
þau fallast i faðma. Endir.
Þessi hlægilega vitlausi sögu-
þráður er að sjálfsögðu skreyttur
með ýmsu góðgæti. Myndin er
mjög vel tekin og klippt, rennur
áfram snurðulaust án þess að á-
horfandinn þurfi nokkurntima aö
leggja það á sig að hugsa um eitt
eða neitt. Mörg atriðanna eru
fyndin, einsog t.d. skautaferðin
góða, eða þegar Rocky tekur upp
dauðadrukkinn náunga sem ligg-
ur úti fyrir krá, fer með hann inn
á krána, hendir honum þar niður
við hlið annars álika drukkins og
Framhald á 22. siðu