Þjóðviljinn - 23.04.1978, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 23.04.1978, Qupperneq 7
Sunnudagur 23. april 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Anna Moffo til íslands t tilefni af tuttugu ára afmæli Fulbright-stofnunarinnar á ís- landi hefur Fulbright-nefndin i samvinnu við Háskóla tslands af- ráðið að efna til tvennra tónleika i Ileykjavik á hausti komanda þar sem hin heimsfræga sópransöng- kona Anna Moffo kemur fram. Að sögn Franks Ponzis, for- manns Fulbright-nefndar, og Guðlaugs Þorvaldssonar háskóla- rekstors verða umræddir tónleik- ar, haldnir i Háskólabiói fimmtu- daginn 26. október kl. 20.30 og sunnudaginn 29. október kl. 14.30. Snemma á listamannsferli sin- um hlaut Anna Muffo Fulbright- styrk til söngnáms á ttaliu. ís- lendingum er hún vel kunn fyrir söng sinn af hljómplötum i Rikis- útvarpinu og fyrir hlutverk sitt i óperunni ,,La Traviata” eftir Verdi, sem sýnd var i sjónvarpinu ekki alls fyrir löngu. Þar söng hún hlutverk Violettu, eitt af höfuð- hlutverkum hinnar vinsælu óperu. Eftir hverju fara bóka- kaupendur? Af augljósum ástæðim er lögð mikil áhersla á að finna sem skýrust svör við þeirri spurningu sem hér að ofan er til greind: eftir hverju fara bókakaupendur i vali sinu? Að þessu sinni skulum við minnastá nýlegar hugmyndir um Vestur-Þjóðverja. Þrettán prós- ent þeirra sembækur kaupa fara eftir umsögnum i blöðum og ellefu prósent eftir lista yfir met- sölubækur. Enn i dag eru það ráð vina og kunningja sem skipta mestu fyrir bókaval — þriðji hver kaupandi lætur þau ráða mestu. Hitt er svo annað mál, að 29% landsmanna segjast alls ekki kaupa bækur. Og 37% þeirra sem spurðir voru telja að kiljur séu ekki „fullgild- ar” bækur á við þær sem inn- bundnar eru.___________ Félagsfræðin og hóruhúsið í Perú Félagsfræði er tiskugrein eins og allir vita, en höfuðvandi henn- ar reyndar sá, að verkefni hennar eru gjörsamlega óþrjótandi. Bandariskur öldungardeildar- þingmaður William Proxmire, sem hefur kosið sér það hlutverk, að halda uppi skothrið á rikis- stjórnina fyrir óskynsamlegar fjárveitingar, taldi sig á dögunum heldur betur hafa komist i feitt. Hann rakst á það, að nokkrir bandariskir félagsfræðingar heföu fengið um 100 þúsund doll- ara styrk til að rannsaka félags- leg samskipti i hóruhúsi einu i Perú. Það var hin bandariska Geð- heilsustofnun sem veitti styrk þennan. Vorsólin hefur komið upp i eldhúsinu undanfarið, en nú er sumarsólin farin að koma upp frammi á gangi. Bráðum sest hún ekki fyrr en innidstofu, og þá verðum við að færa sjónvarpið út i hitt hornið. Þar var Art Blakely að tromma um sumar- mál, og þegar sveiflan fór i gang i blús—marsinum munaði minnstu að ég hringdi i banka- stjórann, sem spurði mig i haust: Hvernig viltu útskýra þessa sveiflu, sem þú ert alltaf að tala um? — Ég var næstum búinn að segja: Boy, if you don’t know by now, don’t mix with it — en hafðu vit á að draga andann djúpt og spekingslega, og fjalla i stuttu máli um hryn og áhersiur, seinkun um sekúndubrot — eða öfugt — og allt byggðist þetta á leikni manna sem kynnu fag sitt til hlitar — gott ef ég minntist ekki lika á hönnun laglinu. — Hafðu hann til sex mánaða —, sagði bankastjórinn. Hann kunni nefnilega sitt fag ekki siður en lánþeginn og Blakey. Til hvers eru þessar sjoppur? Kunningi minn — óvitlaus maður — hafði hugboð um leikni mina i æðri fjármálúm. Hann settist hjá mér i kaffinu og sagði: Mig langar svo til að eignast bil fyrir vorið. — Þá er að kaupa hann, sagði ég. — Ég á ekki eyri, — sagði hann, — ég er opinber starfsmaður. — Þá er að slá peninga, sagði ég. — Hvernig? — Fara i bankann maður, sagði ég, — til hvers heldurðu að þessar sjoppur séu? Það sagði Einar Benediktsson skáld þegar dóttur hans langaði i pianó. —■ Jæja, sagði skáldið þetta, — sagði kunningi minn og brá fyrir votum gljáa i öðru auganu, þvi að hann er ljóð- elskur maður. Svo birti yfir honum og hann sagði: Kenndu mér að taka vixil. — Komdu i morguntónleikana þegar sinfóniurnar og madrigalarnir byrja klukkan ellefu — mér gefst klassisk músik best i high finance.Og hafðu með þér blað og blýant og þrjá fjóra vixla: Sérfræðiaðstoð Joachim von Quantz- fór i gang klukkan 11.oo og siðan hófst kennslan. — Best er að byrja. á þvi að fá sér fallegan frakka og gráan hatt og ekki sakar að láta hanska fylgja með, — mega gjarnan vera gulir skinnglófar. Svo ferðu eld- snemma i fyrramálið og lætur einkaritara bankastjórans skrá þig á biðstofunni. Þegar röðin kemur að þér tekurðu hattinn og hanskana i vinstri hönd og gengur útskeifur — ekki inn- skeifur — á eftir einkaritar- anum inn i helgidóminn. Banka- stjórinn heilsar þér með handa- bandi og býður þér sæti, og um leið og þú þakkar leggurðu hattinn á vinstra horn mahoniskrifborðsins, á kollinn, og leggur siðan hanskana ofan i silkifóðrið og lætur að minnsta kosti annan sveigjast yfir hatt- barðið — ekki þó fingurna, heldur úlnliðs-hneppsluna, — það er mjög áriðandi. Siðan sestu brosandi, og þú mátt alls ekki taka upp vixilin fyrr en bankastjórinn spyr: Eruð þér með blaðið? Nemandinri skrif- aði allt vandlega i minnisbók sina, og siðan ræddum við auka- atriði, framlengingar, afborg- anir og vexti meðan Madrigala- kórinn i Collegium Musicum lýraði af nokkrum ka'ntötum eftir Erich Kunztl von Hupfel- back. Svo hófst hádegisútvarp með klukkuslætti og allur friður úti. Reglurnar brotnar Það var liðið á næsta dag þegar tilvonandi fjármálaséni og bileigandi birtist á ný, — og heldur framlágur. — Hvernig gekk? — Hann stundi og þurrkaði svitadropana af efri vör: Ég þurfti að biða svo lengi og það var svo margt fólk sem ég þekkti ekki og þungt loft á biðstofunni að ég var alveg kominn i kerfi þegar röðin kom að mér. — Og hvað svo ? — Ég gleymdi hattinum og hönsk- unum i gluggakistunni. — Og hvað svo ? — Ég var búinn að taka upp vixilinn og var með hann i höndunum þegar ég skakklappaðist inn til banka- stjórans. — Og hvað svo? — Hann leit iIHlega á mig og spurði hvað ég vildi. — Og hvað svo? — Mér brá svo að ég prumpaði. — Inni hjá banka- stjóranum? — Já — Hvað sagði hann? — Hér er enga peninga að fá, verið þér sælir. Kunningi minn settist við skrifborðið mitt og seig fram á jazzþáttinn með andlitið i greipum sér. — Jæjakallinn, — þú hefur sem sagt brotið allar höfuðreglur bankaviðskipta. — Já,sagði hann og stundi ofan i trommusett Arts Blakeys á Jazz Messengers albúminu. Svo herti hann upp hugann, rétti úr sér og sagði: En mér er það svo sem andskotans eitt, — ég held bara áfram að fara i strætó, og svo fer ég i rútunni norður i júni og verð heima hjá mömmu i sumarfriinu, — ég er hvort sem er ekkert sérstaklega skotinn i stúlkunni. Ég kveikti mér i einum londondokks og virti fyrir mér þennan billausa elskhuga sem búinn var að glata ástinni. Svo varð löng og itarleg þögn. Það kann að verða einhver bið á þvi að þú eignist innistæðu i Finans- banken, sagði ég að lokum, — að maður tali nú ekki um banka- reikning i Sviss. — Ég á 42oo krónur á bók i Alþýðu- bankanum, sagði hann. — Taktu þær út strax, þetta passar fyrir einni flösku af svartadauða. — Það er búið að loka, sagði hann. — O— ætli þeir reyni ekki að opna enn einu sinni i fyrra- málið, — vertu við dyrnar og þaðan er stutt i Lindargöturikið og hallar undan fæti. — Já, sagði fyrrverandi nemandi minn i hagfræði og starði brostnum augum á Esjuna, — það er sennilega skynsamlegast úr þvi sem komið er, — kannski tek ég strætó á Hverfisgötunni og fer i skemmtiferð inn i Laugarásriki. — Domine defende nos contra hos motores bos, hugsaði ég, en sagði ekki neitt. Meinleg örlög — og þó. Svona geta örlög manna orðið meinleg i viðskiftaheiminum i vetrarskammdeginu, og hafa þónokkrir farið næstum eins illa út úr þvi og kunningi minn, — eins og segir tiðum frá i blöð- um og Útvarpi. En nú er sumarsólin farin að verma röndótta tjaldskýlið á svölunum minum, og þar ætla ég að hugsa málið næstu daga. Gott er þá að hafa The Clipper, flauelshúfuna bláu á kollinum. Og þegar óleysanleg vandamál steðja að tek ég ofan og les skrautletrið á silkifóðrinu : Domine dirige nos — Dunn o. Co. — Great Britain. Dunn-bræður urðu ódauðlegir i Islandssögunni á árunum fyrir strið, þegar upplýst var áiAlþingi að þeir hefðu aðalat- vinnu af hattagerð fyrir Thors- arana, — enda hafa hinir siðar- nefndu ævinlega kunnað sig i bönkum, ekki siður en Dunn- bræðurhjá Drottni. Sumir segja að hattur Júels J. Júels hafi verið af þessari gerö, og má lesa um leikni hans i fjármálum á frægum bókum, — hafa fáir verið sleipari. Og um daginn sá ég alveg Ijómandi fallega ljós- gula glófa i herraverslun niðri i Aðalstræti. Mér skilst að ungur glæsilegur bankastjóri verði i afleysingum á vissum stað i borginni næstu vikur. — svo er Jazzvakning búin að bjóða mér á Niels Henning örsted Peder- sen konsertinn i Háskólabió annað kvöld og upp á þetta allt óska ég lesendum Blaðsins Okk- ar Gleðilegs Sumars. JMA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.