Þjóðviljinn - 23.04.1978, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 23.04.1978, Qupperneq 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVlLJINN Sunnudagur 23. april 1978 Þorkell hf. Hafnarfirði auglýsir Þar sem ég er að hefja framleiðslu á öryggisneti fyrir vinnupalla og vegna hinna tiðu slysa á þeim, þætti mér vænt um ef verktakar er við slikar fram- kvæmdir fást hefðu samband við mig sem fyrst i sima 51465 og ræddu við mig um til- högun slikra neta. Efnið er fyrirliggjandi frá Marco, sem er með landsþekkta gæða- vöru. Ég bið einnig verkamannafélagið Dagsbrún að hafa samband við mig vegna þessa. Markús B. Þorgeirsson skipstjóri Frá Mýrarhúsaskóla Innritun nýrra nemenda fer fram dagana 24. til 26. april kl. 9-12. Þeir sem flytja úr skólahverfinu á komandi sumri eru vinsamlega beðnir að tilkynna það á sama tima. Skólastjóri LYFIATÆKNA- SKÓLI ÍSLANDS auglýsir inntöku nema til þriggja ára náms við skólann. Lágmarksinntökuskilyrði eru gagnfræða- próf eða hliðstæð próf. Umsóknir um skólavist skal senda skóla- stjóra Lyfjatæknaskóla Islands, Suðurlandsbraut 6, 105 Reykjavik, fyrir 27. júni, 1978. Umsókninni skal fylgja: 1. Staðfest afrit af prófskirteini. 2. Almennt læknisvottorð. 3. Vottorð samkv. 37. grein lyfsölulaga (berklaskoðun). 4. Sakavottorð. 5. Meðmæli (vinnuveitenda og/eða skóla- stjóra). 21. april, 1978, Skólastjóri. BRÚÐULEIKHÚS (Marionetten) ALBRECHT ROSER sýnir „GÚSTAF OG FÉLAGA HANS” SUNNUDAGINN 23.4.’78 kl. 20.00 i samkomusal Hagaskólans við Hagatorg. Miðasala hefst kl. 18.00. > Miðar á kr. 1200 við innganginn. Aldurstakmark 15 ár. Sýningin er ekki háð neinni tungumála- kunnáttu. Á vegum Goethe-stofnunarinnar Þýska bókasafnsins og Unima á íslandi Mávahlið 23, R. Nemenda- leikhúsið sýnir i Lindarbæ, leikritið SLÚÐRIÐ eftir Flosa Ólafsson. I kvöld kl. 20:30 Mánudag kl. 20.30 Miðasala i Lindarbæ kl. 17- 20:30 sýningardagana og 17-19 aðra daga, Simi: 2 19 71 ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ i.KiKFRiAcaa as ítKYKIAVlKUR REFIRNIU i kvöld kl. 20.30 fimmtudag kl. 20.30 SKAI.D-RÓSA Þriðjudag kl. 20.30 Föstudag kl. 20.30 SAUMASTOFAN Miðvikudag kl. 20.30 Fjórar sýningar eftir. SKJALDHAMRAR Laugardag kl. 20.30 Þrjár sýningar eftir Miðasala i Iðnó kl. 14-20.-30 Simi 16620 ÞJÓDLEIKHÚSID LAUGARDAGUR, SUNNU- DAGUR/ MANUDAGUR 2. sýning i kvöld kl. 20 Rauð aðgangskort gilda 3. sýning fimmtudag kl. 20 KATA EKKJAN þriðjudag kl. 20 STALIN ER EKKI HÉR miðvikudag kl. 20 Fáar sýningar eftir Litla sviðið: FÖKEN MARGRÉT þriðjudag kl. 20.30 Fáar sýningar eftir. Miðasaia 13.15 — 20. Simi 1-1200. Munid alþjóðlegt hjálparstarf Rauða krossins RAUÐI KROSS ÍSLANDS Til hvers hlæjum við? Fátt gera menn oftar en hlæja. En ástæöurnar fyrir því að við hlæjum eru ekki allar góðkynjaðar. Enda muna allir fyrirbæri eins og hæðnis- hlátur, fyrirlitningarhlátur og hroll- vekjandi hlátur. Vitanlega hlæjum við að þar til ætluðum sög- um. Einhverskonar ósamræmi er algengt hryggjarstykki i gamanmálum. Eitthvað sem ekki passar saman. Bandariskt kirkjublaö birtir stóra fyrirsögn rétt fyrir jól: „Drengur fæddur i Betlehem. Við óskum guði til ham- ingju. Við óskum Mariu til hamingju. Við ósk- um Jósef til hamingju”. Mönnum finnst þetta kyndug þula, einhverjum stekkur bros. En þegar blaðið New Yorker birtir þessa úrklippu i „rósagarði” sinum og bætir við: „Eiginlega höfðum við vonast eftir stelpu”, þá fyrst getur æsingur færst i leikinn. Það er mjög i sama dúr að við hlæjum yfir þvi, að atburðir taka allt aðra rás en við bú- umst við. Dæmi — gömul saga frá dögum Lúð- viks 14. Frakkakonungs: Greifi einn kemur inn i dyngju konu sinnar og finnur hana i örmum erkibiskupsins. Hann gengur sallarólegur út að glugga og tekur að blessa mannfjöldann á götunni fyrir utan. — Hvað ertu eiginlega að gera? segir kona hans flemtri slegin. — Herra biskupinn er að gegna minum skyldum, svarar greifinn, það er þá ekki nema rétt að ég gegni hans i staðinn. Þetta er allt gott og blessað. En þvi miður hafa margir vitrir menn orðið til þess að benda á þá staðreynd, að hlátur okkar stafar einatt af þvi, að við finnum ekki til samúðar. Við hlæjum að þeim sem stigur á bananahýði og rennur á rassinn. Við hlæjum að glópsku og mistökum, með það bak við eyrað að við séum greindari eða úrræðabetri en þeir sem við sjá- um lenda i vandræðum ýmislegum eöa heyr- um sagt frá. Hlátur er og einatt bundinn árás- arhneigð og valdderringi einhverskonar — samanber iskalda hlátra,hæðni og fyrirlitning- ar, sem við rekumst á i ýmsu samhengi. En hlátur getur einnig sýnt skapstyrk: hann er tæki til að berjast við eigin ótta og annarra. Maðurinn sem fer til læknis á mánudegi, heyr- ir að hann sé haldinn hættulegu krabbameini og segir aðeins: „Er það nú byrjun á viku!” — hann gerir meira en að frysta samúð læknis, hann er að berjast við þá angist sem steðjar aft honum sjálfum. Og sannast sagna er þaö ótrú- legt hve iðnir menn hafa verift aft brynja sig gegn ótíftindum meö gamni — og er þaft gam- an stundum næsta grátt. 1 frægri bók sinni um gyðingasögur minnir Salcia Lanzman á það„ að ekki einu sinni fjöldamorö nasista gátui komið i veg fyrir að Gyðingar gerðu um sig nýjar sögur. Ein hin skuggalegasta er sögð I fangabúftum og er svona: — Hittumst siðar f búöarglugga, vinur. Þú sem grænsápa, en ég sem ilmsápa.....

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.