Þjóðviljinn - 23.04.1978, Page 23
Sunnudagur 23. april 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
/
kompan
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
Hafsteinn Freyr Sverrisson, 9 ára, flytur Brynhildi Hall kvæfti á
tiunda afmælisdegi hennar.
Afmælisljóö
Brynhildur Hall átti af-
mæli 12. apríl/ þá var hún
tíu ára. Brynhildur er í
þriðja bekk í Austurbæj-
arskóla. Kennarinn henn-
ar heitir Nína Magnús-
dóttir.
Það er alltaf gert dá-
litið stáss með þann sem
á afmæli. Kennarinn ósk-
ar afmælisbarninu til
hamingju með handa-
bandi og bekkjarsystkin-
in syngja: ,,Hann eða hún
á afmæli i dag!" Allt eftir
því hvort á við. En hún
Brynhildur fékk fallegri
afmælisóskir en gengur
og gerist. Bekkjarbróðir
hennar Hafsteinn Freyr
Sverrisson, sem ennþá er
ekki orðinn tíu ára, fiutti
henni Ijóð sem hann hafði
ort í tilefni dagsins. Ljóð-
ið hafði hann skrifað
snoturlega á blað sem
hengt var upp á korktöfl-
una í stof unni. Þau leyfðu
Kompunni að birta Ijóðið.
Það er með eiginhandar-
skrift Hafsteins Freys.
Nýlega heimsótti Pétur
Gunnarsson Austur-
bæjarskóla og las úr
verkum sínum fyrir 6., 7.,
8., og 9. bekki.
Fyrst las hann nokkur
Ijóð, þá valda kafla úr
Punktur punktur komma
strik og loks úr handriti.
Það var upphafskafli
nýrrar skáldsögu sem er
væntanleg í haust og er
beint framhald af
Punktur punktur komma
strik.
Krakkarnir fögnuðu
Pétri innilega og það ríkti
mikil kátína undir lestr-
inum, því brandararnir
hittu í mark, samt fylgdi
alvara gamninu og auð-
sjáanlega rataði Pétur
rétta leið inn að hjarta*
unglinganna.
Unnur Brown lærði Fétri vönd af rauöum rósum frá 6. bekkingum
Ej yrkja víl nú lítii Ijói
umtíu ára íljóá
I )ennan heim þaá horió var
einn bjartan apríldaj
þá sólin skein og fug lar sungu
vorsinsgleáibra^.
Og mærin óx og óafnaii
Uns tiún hjá Ninu hafnaái.
far miklum fródJeik safnaái
oc) dvaldi i góáum fagnaái.
Brynkildur heitir hiS nnæta sprund
er flutt hef ég Ijóá' miít léttyr í lund.
Megi framt/áin fiér kiamingju faera
mín kaera.
Nina MagnúsdóUir kennari. Börnin sitt hvoru megin viö hana eru Einar Páll Tómasson og Ingibjörg
Lilia Halldórsdóttir
Krakkar úr 6. og 7. bekkjum Austurbæjarskóla hlusta á Pétur Gunnarsson lesa úr verkum sinum
SKÁLD í HEIMSÓKN