Þjóðviljinn - 26.04.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.04.1978, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN Miðvikudagur 26. apríl 1978—43. árg. 85. tbl. Dagsverkföll Iðju Tíl að knýja fram samningaviðræður óskum okkar um samningavidrædur hefur ekki verið ansad, segir Guömundur Þ. Jónsson vara- formaöur Idju „Þcgar við sögðum upp kaup- liðurn kjarasamninganna i vetur, óskuðum við cftir samningavið- rjcðum við iðnrekentlur. Þessari ósk okkar liefur ekki cinu sinni verið svarað, hvað þá meira og þau clagsverkföll, 3., 5., og 8., mai nk. sem þegar hafa verið ákveðin, eru gerð fyrst og fremst til aö knýja iðnrekendur til samnings- viðræðna”, sagði Guðmundur Þ. Jónsson, varaformaður iðju, fél. verksmiðjufólks i Reykjavik. Sem kunnugt er, samþykkti fjölmennur félagsfundur í Iðju, með yfirgnæfandi meirihluta verkfallsheimild til handa stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins i fyrradag. iðnrekenda og raunar oftar, hafa þeirhaldið þvi fram að þeir væru tilbúnir tilaðgreiða iðnverkafólki mun hærri laun en það hefur núna, ef þeir fengju leiðréttingu á einu og öðru, en okkur þykja þessar yfirlýsingar heldur létt- vægar og bera keim af sýndar- mennsku, þegar þeir nú leita að greiða umsamin laun, hvað þa meira. Og i stað þess að hækka kaupið, eins og þeir hafa marg talað um að nauðsynlegt væri að gera, hafa þeir nú lækkað það og neita s vo að tala við okkur” sagði Guðmundur Þ.Jónsson. '—S.dór Jökull lést í gær Jökull Jakobsson lést seint i gærdag á Borgarspltalanum. Banamein hans var kransæða- stilla. Hann var 44 ára, fæddur 14. september 1933 á Norðfiröi, sonur hjónanna dr. Jakobs Jónssonar og Þóru Einars- dóttur. Jökull var lagður inn á Borgarspitalann sl. föstudag tii rannsóknar og fékk þann úr- skurð á mánudag að hann væri með kransæöastiflu. Jökuls Jakobssonar veröur fyrst og fremst minnst sem eins mikilvirkasta og vinsælasta leikritaskálds samtimans. En eins og fieiri isienskir höfundar steig hann sin fyrstu spor á rit- höfundaferlinum sem skáld- sagnahöfundur. Hann var að- eins 17 ára að aldri er fyrsta skáldsaga hans, Tæmdur bikar, kom út árið 1951. Siðan rekur hver skáldsagan aöra, Ormar ’56, Fjallið '58 og Dyr standa opnar ’60. Hann gaf einnig út smásagnasafnið Næturheim- sókn og fyrir rúmu ári kom frá hans hendi ný skáldsaga: Feil- nóta i fimmtu sinfóniunni. i leikhúsunum var frumraun hans Pókok, sem Leikfélag Beykjavikur frumsýndi Ieikárið ’60—61. Meö Hart i bak ’63 i Iðnó sló Jökull i gegn sem leik- ritaskáld svo um munaði. Siðan hélt LR áfram að frumsýna verk eftir Jökul, Sjóleiðina til Bagdad '65, Sumarið ’37 ’68 og Dóminó '72. Leikfélag Akureyrar frum- sýndi Klukkustrengi ’73 og Þjóðleikhúsið tók verkið til sýningar sama ár. Leikárið ’73 — 74 er Kertalog frumsýnt i Þjóðleikhúsinu og leikárið ’75 —76 var Heröergi 213 fært upp á sama stað. Skömmu áður en Jökull lést haföi hann iokið við leikritið Sonur skóarans og dóttir bakar- ans og var kominn að utan til þess að fylgjast með æfingum á verkinu. Forsýningar verða á þvi á ListahátiöI júni en það verður frumsýnt i Þjóðleikhús- inu i haust. i útvarpi og sjónvarpi hafa verið flutt fjölmörg verk eftir Jökul. Mörg þeirra svo og leik- verkin hafa fariö viða um lönd. Jökull var kunnur af þáttagerö i útvarpi og lagöi einnig stund á blaöamennsku. Starfsævi hans var stutt, en hann kom miklu i verk. —ekh. Guðmundur Þ.Jónsson Guðmundur sagði að enn helði ekki verið tekin ákvörðun um frekari aðgerðir. Fyrst væri að sjá hvort þessi 3ja daga verkföll værinógtilað fá iðnrekendur að samningaborðinu. Ef þetta dygði ekki til þess, yrði að gripa til harðari aðgerða. ,,Á tveimur siðustu ársþingum Ágreiningur í 1. mai-nefnd: íhaldið gekk út í gær fundaði l.mainefnd um ávarp i tilefni af l.mai — hátiðar- höldunum. Þá geröist það að Kristján Haraldsson frá Múrara- félagi Reykjavikur gekk af fundi nefndarinnar á þeirri forsendu aö augljóst væri að ekki næðist sam- komulag um ávarpið. Kristvin Kristinsson formaður nefndarinnar sagði i samtali við Þjóðviljann i gær að hann teldi ekki rétt að greina frá þeim atrið- um sem ágreiningurinn var um fyrr en búið væri að undirrita ávarpið en það verður væntan- lega gert i dag,-1 l.mai nefnd sitja Kristvin Kristinsson formaður frá Dagsbrún, Þorbjörn Guðmundsson frá Trésmiðafél- aginu, Guðmundur Bjarnleif- sson frá Járnsmiðafélaginu, Skjöldur Þorgrimsson frá Sjó- m a n n a f él a g in u , Ragna Bergmann frá Framsókn og hinn brottgengni Kristján Haralds- son frá Múrarafélaginu. Þesss skal að lokum getið að undanfarið hefur starfað 3ja manna nefnd til að reyna að sam- ræma drög að ávarpinu og voru i henni Kristvin,_ Kristján og örlygur Geirsson frá BSRB. —GFr Skuttogarinn Hrönn RE 10 liggur ónotaöur: Rauðanúpsmenn hafa ekki talað við okkur sagöi Þórhallur Helgason hjá Hraöfrysti- stöðinni h.f. Vegna skemmdanna á togaran- um Rauðanúpi er fyrirsjáanlegt að skipið verður frá veiðum i nokkra mánuði og voru menn frá útgerða rfélaginu scndir til Reykjavikur fyrir siðustu helgi til að reyna að fá skip i staðinn til að firra atvinnuleysi á Raufarhöfn. Nú vill svo til, að togarinn Hrönn RE 10, eign Hraðfrysti- stöðvarinar h.f. hefur legið ónot- aður I Reykjavikurhöfn siðan um áramót. Við jnntum Þórhall Helgason hjá Hraðfrystistöðinni h.f. eftir þvi hvort Rauðanúps- menn gætu fengið Hrönn RE leigða. ,,Ja,viðerum alla vega tilbúnir til viðræðna við þá um það mál, en þeir hafa ekkertleitað til okk- ar. Togarinnhefur legiðhér i höfn um nokkurn tima vegna rekstrar- skip á leigu f fáeina mánuði til að fyrra atvinnuleysi á Raufarhöfn. Hrönn RE er smiðuði Póllandi, 740 lestir að stærð. —S.dór Skuttogarinn Hrönn RE 10 örðugleika og við erum meira en tilbúnir til viðræðna við Rauða- núpsmenn”, sagði Þórhallur. Hann benti hinsvegar á að Rauðinúpur væri af minni gerð skuttogara, en Hrönn af stærri geröinm. Þvi gæti verið að skipið hentaði Raufarhafnarmönnum verr en Rauðinúpur. Það þarf fleiri menn á stærri skipin og skiptakjörin eru óhagstæðari. Sjálfsagt erþetta alvegrétt, en hér er um það að ræða að taka Góður afli fyrir austan og vestan Aflabrögö hafa verið mjög mis- jöfn undanfarið. A Austfjörðum og Suðausturlandi hafa þau verið ágæt. Afli togaranna hefur verið góður vikum saman fyrir austan Jand, og sömuleiðis hafa togar- arnir á Vestfjarðamiðum afláð vel undanfarna daga. Hinsvegar hefur verið ördeyða á miðunum við sunnan- og vestanvert landiö, og litill afli borist á landi ver- stöðvunt á Suðurnesjum og allt vestur til Stykkishólms. Framhald á 14. siðu Sérstakur skattur á bændur: Yfir 500 þús. krónur á meðalsauðfjárbú á ári Framkvæmdanefnd fram- leiðsluráðs landbúnaðarins hef- ur nýlega ákvcðið að leggja á sérstakt útflutningsgjald af dilkakjöti. Gjald þctta ntun nema 70 krónum á hvert kg. af diikakjöti eða um 1000 krónum á mcðaldilk. Þetta gjald þýöir að bóndi með meðalsauöf járbú fær á sig álögur en nema um 500-900 þús. krónur á ári. ’> Þessar upplýsingar komu fram á Alþingi i gær er Ragnar Arnalds kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og gerði þetta mál að umtalsefni. Sagði Ragnar að með þessu gjaldi væri verið að kippa undan afkomu stórs hóps sauðfjárbúa. Þá hefði fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs tjáð honum að ekki væri aðeins þörf á þessari gjaldtöku, heldur yrði að leggja á aukið gjald siðar. Ragnar benti á að ástæðan fyrir þessu gjaldi væri mikill samdráttur i neyslu innanlands á landbúnaðarvörum, ér hefði leitt til meiri útflutnings. Utflutningsbætur rikissjóös myndu hins vegar ekki duga á þessu ári vegna þessa aukna út- flutnings og þvi væri verið að leggja sérstakt gjald á bændur. Samdráttinn i neyslu mætti rekja til minnkandi kaupmáttar launa, minnkandi niður- greiðslna og hækkandi sölu- skatts. Með þvi að tryggja neysluaukningu mætti komast hjá þessu gjaldi. Halldór E.Sigurðsson, land- búnaðarráðherra, mótmælti þvi að hér væri um eiginlega gjald- töku að ræða. Sagði hann að með þessu væri verið að tryggja að jöfnuður verði milli slátursleyfishafa ef útflutnings- bætur rikissjóðs myndu ekki duga á þessu ári. Þegar þetta er skrifað höfðu. auk Ragnars og landbúnaðar- ráðherra, Páll Pétursson. Stefán Jónsson og lngi Tryggvason tekið til máls. 3ja daga verkföll Iðju Verkföll þau, sem Iðja fél. verksmiöjufólks i Reykjavlk hcfur boðað til 3., 5., og 8. mai n.k. verða sem hér seg- Miðvikudagur 3. mai 1978: Vefjariönaður - spuni, vefn- aður, veiðarfæragerö Prjónaiðnaður — Fatafram- ieiðsla. Tjöld — svefnpokar — segla- gerð. Skinna og leöuriðnaður. Þvottahús og efnalaugar. Föstudagur 5. maí 1978: Matvælaiðnaður Kexgerð — kökugerð^ Sælgætis- og efnagerö. Kaffi og smjörlikisfram- leiðsla. ölgerðir og gosdrykkjaverk- smiðjur. Mánudagur 8. maí 1978: Tréiðnaður — Pappirsiönað- ur og prentun. Kemiskur iðnaður — Gler og steinefnaiðnaður. Málmsmiði — Smíöi og við- gerð rafmagnstækja. Plastiðnaður — Myndiðn — Burstagerð. Silfursmiði — Bólstrun — Innrömmun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.