Þjóðviljinn - 12.05.1978, Síða 3

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Síða 3
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Danir móðga Frakka 11/5 — Franska utanrikis- ráðuneytift krafði i dag danska ambassadorinn i Paris skýringa á ummælum K.B. Andersens, utanrikis- ráöherra Danmerkur við- vikjandi dvöl franskra her- sveita i Afriku. Andersen, sem eins og stendur er for- maöur ráðherraráös Efna- hagsbandalags Evrópu, sagði á þingi EBE aö allar utanaðkomandi hersveitir ættu að yfirgefa Afriku, og eins þótt þær hefðu komiö þangað fyrir beiðni stjórnar- vaida i Afrikurikjum. Frakkland hefur hersveitir og hernaðarráðgjafa i Djibúti, Sjad, Máritaniu, Senegal og fleiri Afrikurikj- um, sem áður voru nýlendur þess. Hersveitir þessar berjast með Sjad-stjórn gegn uppreisnarmönnum þar I landi og með stjórn Mári- taniu gegn Polisario, sjálf- stæöishreyfingu ibúa Vestur- Sahara. Ummæli Andersens munu tilkomin af þvi, að hann liti svo á að erfitt sé fyrir Vestur-Evrópuriki að krefjast brottfarar kúbanskra og sovéskra her- manna og hernaðarráðgjafa úr Afriku meðan Vesturlönd hafa þar hersveitir sjálf. Þetta er í annað sinn á skömmum tima að kastast i kekki með Dönum og Frökk- um út af ummælum ráða- manna fyrrnefndu þjóðar- innar. Fyrir frönsku þing- kosningarnar i mars reiddist Giscard d’Estaing Frakk- landsforseti mjög ummælum Ankers Jörgensens, for- sætisráðherra Danmerkur, sem Giscard túlkaði sem stuöning við Mitterrand, leiðtoga Sósialistaflokksins i Frakklandi, og þar með ihlutun i frönsk innanrikis- mál. Öeirdir í íran 11/5 Miklar óeirðir urðu I suðurborg Teheran, höfuð- borg trans, í dag, einkum i námunda við basarinn þar. Segja yfirvöld að lögregla hafi dreift þar mörgum þús- undum mótmælafólks með táragasi. Fjöldafundir hóf- ust I borgarhlutanum eftir að klerkar nokkrir höfðu flutt ræður I stærstu mosk- unni þar. Tékkóslóvakia: 8. flugránið síðan 1970 11/5 — Tékkóslóvösk stjórnarvöld kröfðust þess i dag að Vestur-Þjóöverjár framseldu tvo menn, sem i gærkvöldi tóku á vald sitt tékkóslóvaska farþegaflug- véf I innaniandsflugi og neyddu flugmennina til þess að Ienda á flugvellinum við Frankfurt. Flugræningjarn - ir hafa beðist hælis fyrir sig I Vestur-Þýskalandi, svo og fyrir konu annars þeirra og tvö börn þeirra. Þetta er áttunda tékkó- slóvaska flugvélin, sem flug- ræningjar hafa snúið til Vestur-Þýskalands siðan 1970. Hafa þessir atburðir orðið til þess að auka spennu milli rikjanna. Ölfklegt er talið að Vestur- Þjóðverjar muni framselja flugræningjana, og er trúlegt aö þeim veröi stefnt fyrir rétt i Vestur-Þýskalandi. Flugvélin, sem var með 40 farþega og sex manna áhöfn, er þegar farin til Prag. Arafat i hópi skæruiiða við Litani-ljót ARAFAT: Hardneitar vopnahléi 11/5 — Orðið vopnahlé fyrirfinnst ekki i orðaforöa palestinsku bylt- ingarinnar”, sagði Jasser Arafat, leiðtogi aðalsamtaka Palestinu- manna (PLO), við fréttamenn i Abú Dabi við Persafóann I dag. Sagði Arafat að skæruliðar PLO hefðu ekki samþykkt vopnahlé við Israela i Suður-Libanon sam- fara komu friðargæsluliðs Sam- einuðu þjóðanna þangað. Arafat sagðist hafa sagt Wald- heim,framkvæmdastjóra S.þ., að PLO myndi aldrei samþykkja samþykkt Sameinuðu þjóðanna um hlutverk friðargæsluliðsins i Líbanon. Palestinsku skæru- liðarnir væru i Libanon sam- kvæmt samkomulagi við libönsk stjórnarvöld og hefðu Sameinuðu þjóðirnar engan rétt til þess að blanda sér I það. Arafat sagði ennfremur, að friðargæslusveit- unum væri i raun ætlað að fylgj- ast með brottför Israelshers úr Libanon og mynda þar öryggis- belti fyrir tsrael. Kína-Soyétríkin: Atök við Ussúri Styrkjum kosningasókn Alþýðubandalagsins! Kosninga- happdrætti Glæsilegir ferda- og bókavinningar Sala miða i kosningahapp- drætti Alþýðubandalagsins er hafin á kosningaskrifstofum flokksins um allt land. 1 Reykjavik að Grettisgötu 3 Sími: 17 500. Verð hvers miða er kr. 1000. Dregið veröur 30. júní. Alþýðubandalagsfélög um allt land munu senda út miða til félagsmanna næstu daga. Stuðningsfólk Alþýðu- bandalagsins er beðið um að gera skil sem allra fyrst og efla kosningastarfið meö framlögum Vinningar 1. Ferð til Kina. kr. 400.000 2. Orlofsferð fyrir tvo til Búlgariu kr. 300.000 3. 14 daga ferð um írland kr. 130.000 4. 14 daga ferð um írland kr. 130.000 5. Sólarlandaferð fyrir tvo kr.300.000 6. Orlofsferð fyrir tvo til Júgóslaviu kr. 300.000 Kinaferðer aðalvinningurinn I kosningahappdrætti. Chengs- den-hofið (pagóðan) sem hér sést á myndinni er eitt vegleg- asta dæmið ummargrahæða hof i Kína. 7. Skáldverk Halldórs Laxness: kr. 160.000 8. Ritverk Þórbergs Þórðarsonar kr. 60.000 9. Skútuöldin eftir Gils Guðmundsson. kr. 40.000 10. Ritverk að eigin vali kr. 40.000 EFLUM KOSNINGASJÓÐINN! 11/5 — Kinversk stjórnarvöld héldu þvi fram i dag að sovéskir herflokkar hefðu farið inn á kín- verskt land fyrir tveimur dögum, skotið á fólk og sært nokkra menn. Þetta er fyrsti meiriháttar áreksturinn, sem tilkynnt er um á landamærum Mansjúriu og Austur-SIberiu siöan 1969. Segja Kinverjar að sovésk þyrla, 18 bát- ar og 30 hermenn hafi farið inn á kinverskt land og framið þar hryðjuverk. Utanrikisráðuneyti Kina hefur mótmælt þessu harðlega við sovéska ambassadorinn i Peking. Að sögn Kinverja átti atburður þessi sér stað við ússúri-fljót á austurmörkum Heilúngkíang- fylkis, sem nær yfir norðurhluta Mansjúriu, ekki alllangt þar frá sem árekstrarnir urðu 1969. Kina gerir kröfu til nokkur þús- und ferkilómetra svæðis á norð- austurmörkum Heilúngkiang. Kina réði þessum héruðum — og raunar miklu stærra svæði — áð- ur fyrr eða gerði að minnsta kosti tilkall til þeirra, en Rússakeisari fékk þau með samningum við Kina 1858 og 1860. Þá var Kina veikt fyrir og munu Rússar hafa neytt aflsmunar til að fá þessa samninga i gegn. Af hliðstæðum ástæðum gerði Kina, eftir að kommúnistar komust þar til valda, landakröfur á hendur Búrma og Indlandi og fékk sinu Fálldin segir ekki af sér 11/5 — Thorbjörn Falldin, forsætisráðherra Sviþjóðar, lýsti þvi yfir i dag að hann hyggðist ekki segja af sér þvi embætti. Fálldin hafði áður gefið i skyn að hann hefði af- sögn i hyggju, vegna þess að hann tapaði meiðyrðamáli gegn sósíaldemókratablað- inu Aftonbladet og margs- konar vandræða annarra sem að honum hafa steðjað. framgengt, gagnvart Indverjum með vopnavaldi. Samningaumleitanir um þessa landamæradeilu Sovétmanna og Kinverja voru teknar upp á ný fyrir skömmu eftir langt hlé. Sovétmenn hafa ekkert látið frá sér heyra um þessa siðustu at- burði ennþá. Auglýsið í Þjóðviljanum BREYTING Hinn 9. maí tók nýr aðili i London að sér afgreiðslu á vörum til flutn- ings með vélum Flugfélags íslands og Loftleiða: ítalska flugfélagið Alitalia.Cargo Terminal,Cargo Village,London Heathrow. Farmsöludeild okkar veitir allar nánari upplýsingar í síma 84822. íSLAMDSC L0FmiBM »ifrakt

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.