Þjóðviljinn - 12.05.1978, Side 4

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. mal 1978. DIOBVIUINN Málgagn sósialisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Berg- mann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein- ar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla auglýs- ingar: Siðumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. Að „styrkja” fyrirtœkin Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið meirihluta sínum í Reykjavík um margra áratuga skeið. I síðustu kosning- um 1974 hefði stærsti andstöðuf lokkur Sjálfstæðisf lokks- ins í borgarstjórn jpurft að bæta við sig 80-90% atkvæða til þess að fella meirihlutann f rá völdum. Þá hlaut Sjálf- stæðisflokkurinn 9 menn kjörna í borgarstjórn Reykja- víkur þar sem sitja alls 15 menn. Ástæðurnar til þess að Sjálfstæðisf lokkurinn hlaut svo mikið fylgi 1974 eru margar. í fyrsta lagi þær að hann lagði áherslu á það í kosningabaráttunni þá að kjósendur ættu sérstaklega að refsa vinstristjórnarflokkunum. í öðru lagi lagði Sjálfstæðisflokkurinn áherslu á að tekist væri á um herstöðvamálið, allir herstöðvasinnar yrðu að sameinast um Sjálfstæðisflokkinn því honum væri ein- um treystandi til þess að gæta hagsmuna hernámssinna. Þessi áróður hafði nærri þurrkað einn minnihlutaf lokk- anna, hernámsf lokk, út úr borgarstjórn Reykjavíkur. En í þriðja lagi vann Sjálfstæðisflokkurinn kosningasigur sinn 1974 vegna þess að hann hafði þá sem jafnan fyrr og enn í dag mjög sterka áróðursaðstöðu. Þessa áróðurs- aðstöðu, margfaldan blaðakost á við andstæðingana, hefur Sjálfstæðisflokkurinn notað til þess að telja almenningi trú um að flokkurinn væri félagshyggju- flokkur í raun, en ekki flokkur einkagróðans og einka- atvinnurekenda. Forystumenn Sjálfstæðisf lokksins breiddu grænan hjúp yfir raunverulegt pólitískt eðli sitt og hrópuðu bylting, bylting. Og sjá: Galdrabragðið heppnaðist og skilaði Sjáífstæðisflokknum þúsundum atkvæða umfram það sem hann hefur áður fengið. ( kosningabaráttunni í ár hefur komið fram að forystumenn Sjálfstæðisflokksins sýnast öruggir um meirihluta sinn. Þeir telja nú ekki þörf á því að breiða yfir spillingarbúk sinn blæju hinnar grænu byltingar, þeir eru ekkert feimnir við að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. Reyndar er með orðskrúði og blekking- arvaðli reyntað fela tilganginn, en uppkemst um strák- inn Tuma við vandlegan yfirlestur þeirra texta sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins láta frá sér fara. Hreinskilnastur í þessum efnum er borgarstjórinn í Reykjavík, Birgir ísleifur Gunnarsson. Hann segir i grein sem birtist í AAorgunblaðinu um síðustu helgi að atvinnumálin séu meginviðfangsef nið um þessar mund- ir, en Reykjavík hefur sem kunnugt er dregist aftur úr atvinnuþróun undanfarinna ára. Birgir (sleifur segir enn fremur að stefna Sjálfstæðisf lokksins sé meðal ann- ars fólgin ? því ,,að styrkja" einkaframtakið. Þessi hreinskilnislega játning borgarstjórans í Reykjavik sýn- ir stef nu Sjálfstæðisf lokksins í höf uðstað landsins sem í leifturljósi. Tilgangur flokksins er sá að hygla einka- gróðanum, tryggja fyrirtækjunum ,,aðstöðu" við vægu verði, auka þannig gróða þeirra og ef la f lokkssjóð Sjálf- stæðisflokksins. Ármannsfellsdæmið er ákaflega glögg heimild um þetta: Sjálfstæðisf lokkurinn byggði sér hús og leitað var til fyrirtækja um gjafir til hússins. Ármannsfell gaf eina miljón í Sjálfstæðishúsið í Bolholti, en fékk í staðinn eina eftirsóttustu lóð borgarinnar á ein- um þeirra staða sem merktir voru grænir á kosninga- kortum borgarstjórnarihaldsins 1974. Þannig fóru sam- an hagsmunir — einkafyrirtækisins og flokkshagsmunir Sjálfstæðisflokksins. Almenningur í Reykjavík borgar brúsann, það er hann sem „styrkir" fyrirtækin í borg- inni. Yfirlýsing borgarstjórans um „styrki" handa fyr- irtækjunum jafngildir því yfirlýsingu um skattlagningu á borgarbúana almennt. Það er þakkarvert að borgarstjórinn skuli hafa haft einurð til að lýsa því yfir að hann ætlaði að „styrkja" fyrirtækin í borginni. Yfirlýsingin gæti haft þau áhrif að borgarstjórnaríhaldið tapaði níunda borgarfulltrúan- um i kosningunum í vor. Það er nefnilega hætt við því að ekki séu allir Reykvíkingar þeirrar skoðunar að fjár- muni þeirra eigi að nota til þess að „styrkja" fyrirtækin fremur en að bæta hag fólksins. Atvinnustarfsemina þarf að efla, en það verður að gera á félagslegum forsendum. —s. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK u0 i>( I « Al.l.t Í.ANli pr.GAR I'i M (, LVm I MORlU NBI.AOfM Á myndinnf eru: Birgír ísl. Gunnarsson. Ólafur B. Thors, Albert Guðmundsson. Davíö Otídsson, Magnús L. Sveínsson, Páll Gíalason. Markús örn Antonsson, Elín Pálmadóttir, Sigurjón Á. Fíeidsted. Ragnar Júltusson, Hílmar Goölaugsson, Bessí Jóhannsdóttir. (vantar á myndina). Margrét S. Efnarsdóttlr, Svelnn Björnsson, Hulda Valtýsdóttlr, Stgríður Ásgeirsdóttír, (vantar á myndina), Sveinn Björnsson, Valgard Briem. Við erum reiðubúin Víö erum (rambjóöendur SjálfstæÖistlokksins í borgarstjórnarkosningunum 28. ma( n.k. og skipum 18 fyrstu sætin á framboöslístanum. / Vtö höfum flest átt sæti í borgarstjórnarffokkj Sjálfstæöismanna. Sameiginlegt áhugamál okkar er aó vinna málefnum Reykvíkinga þaó gagn, sem við megum. Við tefjum opiö stjórnmáfastarf. sem byggist á sterkum tengslum kjósenda og kjörínna fuiltrúa þeirra mjög mlkilvægt. Þvf erum viö reiöubúín Ul viðræöna um málefni Revkiavtkur. Þau eru reiðubúin Eins og kunnugt er stendur nií yfir deila um þaö hvort Sjálf- stæðisflokkurinn geti tapaö borgarstjórnarkosningunum i Reykjavik eöa ekki. Sjálfstæðis- menn með Birgi tsleif i broddi fylkingar grátbæna kjósendur um að trúa þvi að meirihluti þeirrasé I hættu. Eins og góðum áróðursmönnum sæmir hætta þeir ekki fyrr en þeir eru teknir að trúa eigin áróðursbrögðum. Dæmi um þaö er þessi hagan- lega samsetning á auglýsingum i Morgunblaðinu i gær. Engu likara er en að blaðið sé að aug- lýsa það að eftir borgarstjórn- arkosningarnar vanti borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins at- vinnu og að þeir verði á lausu fyrir atvinnurekendur sem vantar fólk. Og að sjálfsögðu eru þau reiðubúin öíl með tölu. A tvinnurekendur hundsa Geir A engan hátt tekur Vinnuveit- endasamband Islands I ályktun- um aðalfundar sins undir þá á- bendingu Geirs Hallgrimsson- ar, forsætisráðherra, að rikis- stjórnin sé reiðubúin til þess að breyta bráðabirgðalögunum um helmingun verðlagsbóta á laun ef aðilar vinnumarkaðarins geti komið sér saman um hvernig eigi að hækka lágu launin án þess að það leiði til almennra launahækkana í landinu. Enda varla svaravert miðað við fyrri afstöðu atvinnurekenda. Þeir hafa nefnilega klifað á þvi að þeir vilji ekkert gera fyrr en rikisstjórnin hafi mótað tillögur um hvernighækka skuli lægstu launin. Þeirra kenning er sú að þeir þoli engar launahækkanir yfir höfuð, en gefr rikisstjórnin grænt ljós á þær verði hún lika að bæta atvinnurekendum skell- inn meðdúsum. Nú segir Geir Hallgrimsson hinsvegar að ef atvinnurekend- ur og launafólk geti komið sér saman um leið til þess að hækka lægstu launin standi ekki á rik- isstjórninni að tryggja slika kjarabót. Atvinnurekendur og samtök launafólks komu sér saman um kjarasamninga og vinnufrið fyrir tæpu ári. Rikisstjórnin rauf það samkomulag með lagaboði. Með þvi rauf hún vinnufriðinn og storkaði verka- lýðshreyfingunni. Og nú eiga atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin að leysa vandann fyrir rfkisstjórnina. Geir Hallgrimsson nánast grát- biður um að hann verði veiddur upp úr eigin feni eins og flugan úr súpunni. Atvinnurekendur neita hinsvegar blákalt að koma með nokkrar tillögur til þess að draga Geir i land og heimta að rikisstjórnin leysi hnútinn svo þeir eigi hönk upp i bakið á henni. Aðalgeir stöðvaði viðtalið I maraþonútvarpsviðtali i_ kvöldfréttum útvarps i fyrra. kvöld lagði forsætisráðherrann út textann. Af hálfu fréttastofu útvarps var ætlunin að ræða við ráðherrann strax að lokinni ræðu hans hjá Vinnuveiténd- asambandinu sl. miðvikudag. Björn Bjarnason, skrifstofu- stjóri forsætisráðuneytisins, stundum nefndur Aðal-Geir, stöðvaði það viðtal, og krafðist þess að það yrði tekið daginn eftir þegar ráðherrann væri bú- inn að undirbúa sig. Fréttamaður útvarps gerði margitrekaðar tilraunir til þess aðfá spurningum sinum svarað, en ráðherrann las i 15 minútur upp skrifaðan texta, i rauninni heila ræðu. Ágætt dæmi úr ræðunni er þetta: Fréttamaður: En sé nú hægt að bæta nú á einhvern hátt kjör þeirra sem lægst hafa launin ef atvinnurekendur og verkalýðs- samtök koma sér saman. Hversvegna var það þá ekki hægt fyrr, hafa forsendur eitt- hvaðbreyst frá þvi sem var fyrr i vetur? Forsætisráðherra: Hér er auðvitað um það að ræða að hinir lægstlaunuðu séu það fáir og vegi i heild það létt i útgjöld- um i atvinnurekstri, eins og til dæmis i frystihúsarekstri að hvort tveggja sé hægt að gera i senn að tryggja hinum lægst launuðu frekari verðbætur cn núgildandi lög gera en ofþyngi þó ekki frystihúsarekstri eða öðrum slikum atvinnurekstri i auknum rekstrarútgjöldum. Geir Loddaraleikur Annað dæmi um það hve for- sætisráðherrann er vel heima i fræðunum er sú skoðun hans, að miða eigi breytingar á kaupi og kjörum launafólks i landinu við þjóðhagsvisitölu. Hann vill kasta núverandi visitölukerfi fyrir róða og taka upp visitölu hagvaxtaraukningar. Greini- lega hefur ráðherrann gleymt að ráðfæra sig við helsta bar- áttumann Sjálfstæðismanna i verkalýðshreyfingunni Björn Þórhallsson, form. Landssam- bands verslunarmanna. Hann upplýsti það í sjónvarpinu á dögunum að hefðu verðbætur á laun verið greiddar i samræmi við þjóðhagsvisitölu á siðustu mánuðum hefðu þær orðið hærri en ef sólstöðusamningarnir væru I fullu gildi. Björn Sé þetta rétt er Geir Hall- grimsson með annarri hendinni að skerða verðlagsbætur sól- stöðusamninganna um leið og hann vill rétta launafólki með hinni hendinni meiri verðlags- bætur en þeir samningar fela i sér. Og hve.r á svo að trúa slik- um loddaraleik? Ráðamenn þjóðannnar hafa bjargfasta trú á þvi að landinn sé ekki skyni gæddur nema i meðallagi. —EKH

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.