Þjóðviljinn - 12.05.1978, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. mal 1978.
Fyrirspurn til Vilmundar Gylfasonar og annarra forystumanna Alþýöuflokksins:
Ég undirritaður get ekki lengur
orða bundist eftir allan þann vað-
al og jakaburð af vitleysum sem
þú hefur látið frá þér fara undan-
farið i blöðum svo sem Dagblað-
inu og viðar um hús það sem
byggt var fyrir málgagn okkar
vinnandi fólks, Þjóðviljann, að
Siðumúla 6 hér i fæðingarborg
minni Heykjavik og sem ég und-
irritaður lagði til i sjálfboðavinnu
mikla vinnu ásamt mörgum öðr-
um úr ýmsum stéttum þjóðfé-
lagsins.
Hvað hefur
orðið af eign-
Vonarstræti 3
unum í Reykjavík?
Held ég að þar sé á engan hall-
að þótt ég lýsi þvi yfir hér og nú
að fáir eða enginn hafi lagt þar
harðar að sér i þeim efnum en
Ólafur Jónsson framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins. Svo
frábært var hans framlag til
byggingar þessa húss að með ein-
dæmum má telja ásamt fjölda
manna úr mörgum stéttum þjóð-
félagsins sem ekki verður frekar
rakið hér. Nema hvað það vakti
aðdáun mina að gamall verka-
maður sem bjóþarna skammt frá
byggingarstað lét sig sjaldan
vanta við að leggja hönd á plóg-
inn. Þakka ég honum hér með
hoilustu hans við málgagn hinnar
vinnandi alþýðu, Þjóðviljann.
Ennfremur vil ég geta gamals
manns noðan af Akureyri sem
lagði þarna hönd að verki. Þessi
aldni verkamaður sagðist ekki
geta hugsaðsérþaðað koma hér i
bæinn án þess að sjá hvernig mið-
aði við byggingu Þjóðviljahúss-
ins.
Þannig var hugur gamla
mannsins þarna norðan frá
Akureyri til þessa margnefnda
húss okkar sem þú sér svo mikl-
um ofsjónum yfir og reynir að
ófrægja á alla iund s jálfum þér og
flokksnefnu þeirri sem þú tilheyr-
ir svona að nafninu til og ennþá
kennir sig við alþýðuna til ævar-
andi skammar. Ef þetta er nú
orðið að aðalkosningamáli
Alþýðuflokksins i hönd farandi
kosningum þá segi ég nú bara
eins og gamall bóndi sem ég var
hjá á sinni tið þegar ég var ungl-
ingur i sveit á sumrin, I Bjargar-
koti i Fljótshlið: ,,Ja, soddan þvi-
likt og annað eins”.
Ég sem þessar linur rita var al-
inn upp eða tekin i fóstur sem
kallað er hjá foreldrum móður
Eftir Árna
Jóhannsson
verkamann
minnar, Sigfúsi Jónssyni frá
Vatnsnesi við Keflavik og konu
hans Sigriði Jónsdóttur frá
Skeljabrekku i Borgarfirði. Ólst
ég þar upp i sárri fátækt og
miklu atvinnuleysi kreppuár-
anna fyrir siðustu heimsstyrj-
öld. Þessi nú látnu heiðurs-
hjón máttu ekki vamm sitt
vita i neinu, en aldrei voru þau
svo fátæk man ég, eftir að ég
komst til vits og ára að þau létu
það ekki eftir sér að kaupa
blaðiðsem þúviltnúólmurleggja
niður og fótum troða fyrir fullt og
allt, enda voru þau bæði fýlgjend-
ur jafnaðarstefnunnar eins og
hún var boðuð i þá tið af ritstjóra
blaðsins á þeim kreppu- og
atvinnuleysistimum hinum eld-
heita baráttumanni á sinni tið
Ólafi Friðrikssyni.
Nú er öldin önnur, nú er þetta
blað ekki lengur gefið ú t af fátæku
og allslausu verkafólki kreppuár-
anna. Sei sei nei, nú eru það bila-
braskarar og allskonar Dropadót
annað. Þar hæfir skel kjafti eins
og sagt er stundum Vilmundur
Gylfason.
Eins og ég hef nefnt hér að
framan ólst ég upp hjá móðurafa
minum Sigfúsi Jónssyni frá
Vatnsnesi við Keflavik. Hannvar
orðinn gamail maður þegar hér
er komið sögu sem hér skal greint
frá. Hann fórdageftirdag til þess
að vinna i s jálfboðavinnu i grunni
þeim sem nú hefur risið húsið er
nefnt hefur verið i höfuðið á
alþýðunni, Alþýðuhúsið h/f
Hverfisgötu 8-10 Reykjavfk. Ég
man það enn þann dag i dag hvað
fósturafi minn var oftþreyttur að
afloknu dagsverki i þessum
grunni sem ekkert var annað en
grjóthörð klöpp eins og margir
eldri Reykvikingar muna vel sem
Laugavegur 61 og 63
Vitastigur 8.
Hverfisgata 8-10
komnir eru yfir miðjan aldur og
eldri.
Og nú vil ég leggja fyrir þig
eina samviskuspurningu svona i
lokin, Vilmundur Gylfason rann-
sóknarblaðamaður með meiru:
HVAR ER ÞETTA FRAMLAG
FOSTURAFA MINS SIGFOSAR
JÓNSSONAR NIÐUR KOMIÐ í
DAG?
Hefur þvi kannski verið stolið
eða einhver frelsisins-, jafnréttis-
ins- eða bræðralagsmaðurinn i
flokknum sem ennþá kennir sig
við alþýðu þessa lands tekið það
sér til handargagns, svo sem hús-
eignir þær sem verkalýðshreyf-
ingin átö einnig á sinni tið, Iðnó
við Tjörnina, Alþýðubrauðgerð-
arhúsið Laugavegi 61-63 og Vita-
stig 8?
•
Vænti ég þess að lokum að þú
svarir þessu skýrt og skilmerki-
lega og án allra undanbragða
herra rannsóknarblaðamaður.
NB. Vilmundur Gylfason.
Gjörasvo vel að upplýsa undirrit-
aðan um hvaða menn eða félög
eiga eftirtaldar eignir i dag:
No. 1: Alþýðuhúsið Hverfisgötu
8-10.
No . 2: Alþýðuhúsið Iðnó við
Vonarstræti 3.
No. 3: Alþýðubrauðgerðarhús-
ið Laugavegi 61.
No. 4: Hornhúsið á Vitastig og
Laugavegi 63.
No. 5: Húsið sem Alþýðuprent-
smiðjan er til húsa i, að Vitastig 8.
yötugjörasvo vel að nefna mér
fjölda hluthafa i þessum eignum.
Einnig fasteignamat þessara
eigna eins og það er i dag.
Með stéttarkveðju.
Arni Jón Jóhannsson
verkamaðuri Dagsbrún.