Þjóðviljinn - 12.05.1978, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 12.05.1978, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. mal 1978. íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: Umsjón: Stefán Kristjánsson Tvö glæsimörk og KR vann Reykjavíkurmeistararnir byrjuðu með sigri gegn Fylki Reykjavikurmeistararnir úr KR byrjuðu keppnina i 2. deild vel i gærkvöldi. Þeirléku þá gegn hinu unga liði Fylki úr Arbænum og lauk leiknum með sigri KR 2:0. Staðan í leikhléi var 0:0. Leik- urinn var lélegur og oft á tiðum var ekki leikin knattspyrna heldur aðeins sparkað út i loftið. Það er kannski ekki nema von að leikmenn liðanna hafi ekki get- að sýnt sinar bestu hliðar þvi veðrið var ekki upp á það besta. Skitakuldi var og hávaðarok og setti rokið greinileg mörk á leik- inn þrátt fyrir að þvi hefði ekki tekist að skora mark. KR-ingar voru óheppnir að ná ekki forustu strax i fyrri hálfleik þvi að þá var Sverrir Herberts- son að komast i gott færi i vitateig Fylkis er einn varnarmanna þeirra hindraði hann ólöglega og vitaspyrna var dæmd. Spyrnuna tók Ottó Guðmundsson og lenti skot hans i stöng. Eins og áður sagði lauk fyrri hálfleik án þess að mark væri skorað. Siðari hálfleikur var mun betur leikinn þó að ekki sé hægt að tala um góða knattspyrnu. En þó sáust oft mjög góðir kaflar og voru þeir i flestum tilfellum eign KR-inga. Það fór lika svo að siðari hálf- leikur var ekki orðinn nema 10 minútna gamall þegar fyrsta mark leiksins kom. 'Stefán Sigurðsson gaf þá góðan bolta fyrir mark Fylkis og þar var Sverrir Herbertsson á réttum stað og honum tókst að skjóta viðstöðulaust i markið. Glæsilegt mark og staðan 1:0. Eftir markið hresstust KR-ingar nokkuð en ekkert bólaði á leikmönnum Fylkis. Og i' lokin Norðanmenn harðlr í hom að taka Skólameistaramót Blak- sambands islands lauk um siðustu helgi með mikilli úrslitakeppni í nýja I- þróttahúsinu að Laugum/ S-Þingeyjarsýslu. Til úrslita i framhaldsskóla- keppninni léku lið Menntaskólans á Akureyri, sigurvegarar siðasta árs og lið Iþróttakennaraskólans. Var leikur þessara liða æsispenn- andi og er þá vægt til orða tekið. Iþróttakennaraskólinn vann fyrstu hrinuna 15:8 en i annarri hrinu náðu menntskælingar á Akureyri að jafna metin 15:12. Siðasta hrinan var þvi látin skera úr umsigurvegara. Varhún jöfn lengst framan af en undir lokin sigu Norðanmenn fram úr og sigruðu með 15 skellum gegn 12. Vörðu þeir þvi titil sinn frá fyrra ári. 3. sætið hrepptu mennta- skólanemar i Hamrahlíð. t keppni kvenpeningsins varð keppnin ekki siður hörð og spenn- andi. Til úrslita léku stúlkur úr Menntaskólanum á Akureyri og lið Gagnfræðaskóla Húsavikur. Sigruðu Akureyrarstúlkurnar með 15:11 og 17:15. Má af þessum úrslitum marka að blak sé i mikF um uppgangi fyrir norðan. t 3. sæti komu stúlkur úr Mennta- skóla Kópavogs. Einnig var keppt til úrslita i grunnskólamótinu. Var þar ekki jafn hart barist þvi Héraðsskólinn á Laugum skaut öllum öðrum skólum ref fyrir rass og sigraði með yfirburðum. Vighólaskóli frá Kópavogi varð i 2. sæti og 3. sætið kom i hlut Flúðaskóla frá Árnes- sýslu. t Stúlknaflokki sigraði Gagn- fræðaskóli Húsavikur þriðja árið i röð. Vighólaskóli varð annar og i 3. sæti kom Hagaskóli i Reykja- vik. Þvi miður hafa ekki borist myndir af sigurvegurum keppn- innar en þær verða birtar við fyrsta tækifæri. var aðeins eitt lið á vellinum. Siðara mark KR var einnig mjög glæsilegt. Þá gaf Vilhelm Fredriksen vel fyrir markið og Stefán Sigurðsson kom aðvifandi oghamraði hann knöttinn i mark- ið. Glæsilegt skallamark ogstaðan orðin 2:0 og sigurinn var KR. SK. Badminton: Island og Færeyjar leika í Þórshöfn tslenska iandsliðið i badminton mun um helgina leika landsleik við Færeyinga i badminton. Þetta er i f jórða sinn sem þessar þjóðir leika saman en samskipti þjóðanna hófust árið 1975. Siðan hefur verið leikið á hverju ári. Fyrst var leikið hér heima I Laugardalshöllinni 1975 og sið- an hefur verið skipt frá ári til árs um keppnisslað. Keppt er um farandbikar sem gefinn var af Föroya FiskasÖlu, en um hann er keppti fimm ár. Leiknir verða Sleikir alls, 3 einliðaleikir og 2 tviiiðaleikir. Þátttakendur fyrir íslands hönd hafa verið valdir og eru þeir eftirtaldir: Jóhann Kjartansson, Harald- ur Korneliusson, Steinar Peter- sen, Sigurður Kolbeinsson og Sigfús Æ. Arnason. Fararstjóri er Rafn Viggósson formaður BSl. Leikir á Melavelli Knaltspyrnusamband íslands hefur i samráði við vallarstjóra ákveðið að allir leikir Reykja- vfkurliðanna i 2. deild i mak mánuði fari fram á Melavellin um. Er þetta að sjálfsögðu gert til að hlifa Laugardalsvöllunum tyeimur en að þessu sinni hafa þeir ekki komið sem best undan vetri. 1. deildariiðin munu þó leika á Laugardalsvelli, þeim efri og fer fyrsti leikurinn á hon- um fram á þriðjudagskvöldið. Þá leika nýliðar Þróttar við ts- landsmeistara 1A. LAUSAR STÖÐUR Stöður tveggja skattendurskoðenda við Skattstofu Suðurlandsumdæmis, Hellu, eru lausar til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist skattstjóra Suðurlandsumdæmis fyrir 15. júni næstkomandi. Fjármálaráðuneytið. LAUGARDAGUR 13. MAÍ Neistahátíð 1 Tjamarbúð Húsið opnað kl. 13:30. Samfelld dagskrá, ávarp, söngur ljóð, tónlist, kvikmynda- sýning og myndlistarsýning. Fram koma: Birna Þórðardóttir, Pétur Pálsson, Birgir Svan, Vernharður Linnet, Sólveig Hauks- dóttir, Gunnar H. Jónsson, Pétur Hraunfjörð, Pjetur Hafstein, Tolli og Guðbergur Bergsson. Stutt kynning: Samtök herstöðvaandstæðinga, rauðsokkahreyfingin, baráttuhreyfing gegn heimsvaldastefnu, Fylkingin. Sigfús Daðason afhendir leirgrisinn fyrir „besta” leirburð ársins. Hátiðin heldur áfram um kvöldið m.a. kynnir Einar Már punk-rokk. Islandsmeistaratitillinn í skák: Einvigi Helga og Hauks hefst á morgun Einvigi þeirra Hauks Angantýssonar og Helga ólafs- sonar uni íslandsmeistaratitilinn i skák hefst laugardaginn 13. mai n.k. kl. 14:0«, og fer það fram að Að forða þingheimi frá stórslysi Athugasemd Lesendur Þjóðviljans eru málvöndunarmenn og er það vel. Fátt er blaðamönnum nauðsyn- legra en skammir þegar þeir beita islensku máli á jafn rangan hátt og undirrituð gerði i fyrir- sögn á forsiðu I gær: ,,Stórslysi forðað”. Frá hverju var slysinu forðað? spurðu þeir sem i mig hringdu vegna þessa, og er það eðlilegt. Rétt er að sjálfsögðu að and- staða Vilborgar Harðardóttur og þingmanna Alþýðubandalagsins forðaði þingheimi frá því stórslysi að afnema vinnuslysa- tryggingar landsmanna og afhenda þær einkaaðilum þ.e. tryggingafélögunum. Þessi saga sýnir okkur að unnt er að forðast slys með nógu öflugri samstöðu þingmanna og verkalýðshreyfingarinnar gegn þessari rikisstjórn. —AI. Laugavegi 71 i höfuðstöðvum Skáksambandsins. Svo sem kunnugt er urðu þeir Haukur og Helgi efstir og jafnir i landsliðsflokki á skákþingi tslands sem fram fór um pásk- ana, hlutu báðir 8 vinninga af 11 mögulegum. Munu þeir þvi heyja sin á milli 4 skáka einvlgi um sæmdarheitið Skákmeistari tslands 1978 og réttinn til að taka þátt i svæðamóti heimsmeistara- keppninnar i haust. Verði þeir jafnir, munu þeir tefla 2 skákir til viðbótar, verði enn jafnt mun hlutkesti látið ráða. Haukur Angantýsson, varð Islandsmeistari 1976, en Helgi Ólafsson hefur ekki áður hreppt þennan eftirsótta titil, þó oft hafi legið nærri. misfarist Upplýsingar sem hafa fengist úr tveimur leiðöngrum haf- r a n n s ó k n a r s k i p s i n s Ar n a Friðrikssonar benda til að loðnu- klak hafi misfarist að verulegu leyti að þessu sinni, sagði Hjálm- ar Vilhjálmsson fiskifræðingur i samtali við Þjóðviljann I gær. I ágúst I sumar verða tekin fjöldasýnishorná útbreiðslu seiða eins og gert hefur verið undanfar- in 8 ár og þá koma endanlegar niðurstöður fram. Uppistaðan I loðnuaflanum hverju sinni er Fyrstaskákin verðurtefld, eins og áður segir, laugardaginn 13. maf kl. 14:00, önnur skákin, mánudaginn (2 I hvitasunnu) á sama tima. Þriðja skákin, þriðju- daginn 16. mai kl. 19.00 og fjórða fimmtudaginn 18. mai kl. 19.00. • Samtimis munu þeir Ágúst Karlsson (14 ára) og Þröstur Þórsson (12 ára) þreyta einvigi um íslandsmeistaratitilinn i drengjaflokki, en þeir urðu efstir og jafnir af 52 keppendum i sinum flokki um páskana, með 8 vinn- inga af 9. • Aðstaða er á mótsstað fyrir um 100 áhorfendur og er aðgöngu- miðaverði i hóf stillt. venjulega 2 árgangar og er loðnu- klakið hefur mistekist að þessu sinni getur það sagt til sin i veiðinni eftir 3—4 ár og ef til vill verður þá að gripa til einhverra takmarkana. Loðnan verður kynþroska 3—4 ára, hrygnir og deyr slðan. Þess vegna er tilgangslaust að geyma eitthvað af veiðinni tii næstu ára. Siðan Islendingar hófu loðnuveið- ar af krafti hefur loðnuklak alltaf tekist með ágætum. Loðnuklak virðist hafa —GFr.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.