Þjóðviljinn - 18.05.1978, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 18. mai 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Sýning íNorræna húsinu:
í minningu
Jóns Engilberts
j kvöld, fimmtudaginn
18jnaí, verður opnuð í Nor-
ræna húsinu sýning á lit-
krítarmyndum og teikn-
ingum ýmiskonar ef tir Jón
Engilberts. Þetta er minn-
ingarsýning, en Jón hefði
orðið sjötugur 23. maí.
Sýningin er opin til mánaða -
móta. A henni eru um 120 verk.
Jón Reykdal hefur annast val
myndanna ásamt með Þóði Hall
og Ólafi Kvaran.
Við höfum, sagði Jón Reykdal,
tekið saman myndir allt frá þvi
um 1925, frá námsárunum i Höfn
og Osló, og fylgt Jóni Engilberts
svo eftir allar götur siðan. Lit-
Frá uppsetningu sýningarinnar.
kritarmyndir ganga eins og
rauður þráður gegnum sýning-
una, en Jón lét eftir sig mikinn
fjölda af þeim og hafa fæstar ver-
ið sýndar. Þær eru frá 1937 þær
elstu og þær yngstu frá 1968.
Þessar myndir eru i flokkum
margar; hér höfum við flokk eró-
tiskra mynda, þar sem skækjur af
ýmsum tegundum eru dregnar
fram, þarna er svo flokkur
mynda um trúarlegt.efnij þriðja
stað höfum við seriu um Þor-
geirsbola, yngstu myndirnar eru
svo ljóðrænar afstraktfantasiur.
Sýningunni högum við þannig,
að við brjótum upp litkritar-
myndirnar með stærri myndum
af ýmsum tegundum. Á einum
vegg höfum við með tilurðar-sögu
myndskreytinga við þjóöhátiðar-
útgáfu á verkum Jónasar Hall-
grimssonar — fyrst pensilteikn-
ingu, þá útfærslu i kol og siðan
endanlega útfærslu sem prentað
var eftir. Aðrar stærri myndir eru
módelteikningar Jóns .frá náms-
árunum hans, drög að málverk-
um (t.d. málverkinu Vorgleði
sem er i Búnaðarbankanum). Hér
er og stór kröfugöngumynd frá
kreppuárunum, en Jón gerði þá
þó nokkuð af pólitiskum myndum
sem m.a. voru notaðar á bæk-
linga og timarit hinna róttækustu.
Dagbækur og rissbækur höfum
við i borðum.
Við köllum þetta samt ekki
yfirlitssýningu; þetta eru brot af
þvi helsta sem eftir Jón liggur og
ekki er grafik eða málverk. Fé -
lagið íslensk grafik kemur við
sögu þessarar sýningar og að-
stoðar við að koma henni upp.
Það var Jón Engilberts sem
stofnaði félagiðlslenska grafik á
sinum tima, og þegar það var
endurreist 1969 var hann gerður
að heiðursfélaga þess.
áb
Kosningaskrifstofa
í Vesturbænum
Þór Vigfússon sést hér leiðbeina
unglingum við útburð á aukablaði
Þjóðviljans um efnahags- og at-
vinnumál. Myndin er tekin á
kosningaskrifstofu Vesturbæjar-
deildar Alþýðubandalagsins i
Reykjavik, en hún var opnuð að
Brekkustig 1 iaugardaginn fyrir
hvitasunnu.
Ljm. Leifur
Formaður Vesturbæjardeildar,
Baldur Geirsson, gefur Þór Vig-
fússyni góð ráð á kosningaskrif-
stofu hverfisins.
Ljm. Leifur
Tvær myndanna á sýningunni.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Hver hefur stefnan verid?
Hvert ber að stefna?
Verkalýðs- og atvinnumál í Hafnarfirði
Fundur verður niðri í Gúttó í kvöld, fimmtudaginn
Stuttar framsögur flytja:
Albert Kristjánsson verkamaður:
Barátta verkalýðshreyfingarinnar frá stríðslokum
Guðfinna Halldóra Friðriksdóttir verkamaður:
Tengsl forystu verkalýðshreyfingar og félags-
manna.
Guðmundur Bjarnleifsson járnsmiður: Fram-
leiðslusamvinnufélög.
Þorbjörg Samúelsdóttir verkakona: Fiskiðnaður í
Hafnarf irði.
Strax að loknum framsöguræðum verður skipt í
starfshópa. Umræðust jórar verða: Björn
Guðmundsson trésmiður, Bragi V. Björnsson skip-
stjóri, Harpa Bragadóttir húsmóðir og Kristín
Guðmundsdóttir starfsmaður FSV.
Fundarstjóri verður Gunnlauqur R. Jónsson.
Harpa Kristin
Takid þátt í ad móta stefnuna
Albert
Guðfinna
Guðmundur Þorbjörg Björn
Bragi
TILKYNNING tU fbúa
Breiðholti
Stofnsett hefur verið heilsugæslustöð i Breiðholti. Þjónustusvæði
stöðvarinnar (heilsugæslusvæði) nær til Fella- og Hólahverfa, þ.e.
Breiðholts III.
Heilsugæslustöðin er til húsa að Asparfelli 12,2. hæð.
Fyrst um sinn verður aðeins unnt að veita hluta af ibúum hverfisins al-
menna læknisþjónustu og heilsuvernd á vegum stöðvarinnar, en þar
munu i byrjun starfa tveir læknar.
Þeir ibúar i Breiðholti III, sem óska að sækja læknisþjónustu til
stöðvarinnar, þurfa að koma þangað til skráningar og hafa meðferðis
persónuskilriki. Fyrstu þrjá dagana verða eingöngu skráðir þeir ibúar
hverfisins sem ekki hafa heimilislækni, og njóta þeir þvi forgangs.
Skráning hefst mánudaginn 22. mai og verður opið kl. 10—12 og 13.30—
15 til 31. mai.
Læknar stöðvarinnar hefja störf 1. júni.
Tekið verður á móti timapöntunum i sima 75100.
Reykjavik, 17. mai 1978.
Heilbriðismálaráð Reykjavíkurborgar
Borgarlæknirinn i Reykjavik
Sjúkrasamlag Reykjavikur