Þjóðviljinn - 18.05.1978, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 18.05.1978, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 18. mai 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 „ liðnir eru frá endalokum siðari heimsstyrjaldar. NU þekkist það ekki lengur á Islandi, að menn samþykki á mannfundum að svipta stjórnmálalega andstæð- inga sina kjörgengi og kosninga- rétti, þó þeir verði fyrir áfalli sjúkdóms og þurfi að leita félags- legrar aðstoðar. Þetta þekktist fram á fjórða tug þessarar aldar og var beitt. En það skal viður- kennt, að þá var lika andstaða komin gegn þessu innan allra islenskra stjórnmálaflokka, sem leiddi til afnáms þessa með lög- um. Miðað við það félagslega ástand sem rikti á Islandi fyrir svo sem fjörutiu og sjö árum þá getur islenskt þjóðfélag i' dag sjálfsagt kallast velferðarþjóðfé- lag. En ef við berum hinsvegar saman þróun lifskjara verkalýðs á íslandi við þróun lifskjara verkalýðs i nálægum löndum sem okkur eru skyldust að uppruna og menningu ogmiðum við Hmabilið frá striðslokum, þá læðist sá grunur að manni, aö islensk verkalýðsstétt séekki ennþá orð- inn fullgildur þegn i hinu islenska „velferðarþjóðfélagi”, og á ég þá að sjálfsögðu fyrst og fremst við launakj ör og atvinnuöryggi. Þetta kemur hvað skýrast i ljós þegar umsamin laun hinna lægst launuðu i okkar „velferðarþjóð- félagi” eru skert með lögum frá Alþingi, af mönnum sem viður- kenna að ekki sé hægt að lifa af þeim launum sem verið er að skerða. Þetta er siðlaust athæfi og engum alþingismanni samboð- ið sem telur sig eiga þangað erindi til setu. En þetta er ófagurt vitni þess hvernig jafnvel ágætir menn sem einstaklingar eru gjörsamlega blindir fyrir þvi, að láta misvitra flokksforingja leiða sig til að samþykkja lagaákvæði, sem skerða heiður þeirra sjálfra sem alþingismanna. Að skerða laun hinna lægst launuðu i islensku „velferðar- þjóðfélagi” með lagasetningu, það hefur sett blett á heiður Alþingis sem nauðsyn ber til að fjarlægður verði svo fljótt sem kostur er. Slikt slys má aldrei aft- ur henda Alþingi, sem er okkar elsta þjóðarstofnun. Að skerða laun hinna lægst launuðu, sem óumdeilanlegt er að ekki geta lif- að af átta stunda vinnudegi, það er rökleysa sem aldrei getur leyst neinn þjóðfélagslegan vanda, en hinsvegar aukið hann, eins og þeir menn áttu að vita sem að samþykktinni stóðu. í upphafi skal endinn skoða. Þaðer i eðli hverrar lifveru að berjast fyrir lifi sinu svo lengi sem kostur er. Slik lagasetning Alþingis sem að framan greinir, hún hlaut þvi óhjákvæmilega að kalla á anctevar þeirra sem á var ráðist, en höföu engu að miðla. Og andsvarið er komið: Útflutnings- bann á allar vörur frá flestum út-; flutningshöfnum landsins, þar til atvinnurekendur hafa bætt fyrir afglöp Alþingis með nýjum kaup- samningum, sem bæta hinum lægst launuðu kjaraskerðinguna. Hér hefur verið stofnað til óvit- urlegra athafna af meirihluta þeirra mannasemá Alþingi sitja, þviþeir áttuaðveraþaðupplýstir i þjóðfélagsmálum, að þeir vissu að kjaraskerðing hinna lægstlaun uðu gat undir engum kringum- stæðum verið þoluð af verkalýðs- samtökunum. Andsvar gegn kjaraskerðingu var óhjákvæmi- legt. En hvað segja atvinnurek- endur i landinu um það rikisvald sem stofnar til slikra vandræða i islenskum atvinnurekstri sem nú blasa við? Ætla þeir að taka mál- ið i eigin hendur og semja sig út úr vandanum sem misvitrir stjórnmálaforingjar hafa sett þá i? En það hlýtur að vera leið skynseminnar i málinu, að það verði gert. Fólkið i útflutningsframleiðsl- unni og aðrir slikir láglaunahópai; þeir þola enga kjaraskerðingu, laun þeirra eru svo lág fyrir. Það beinlinis skaðar útflutningsfram- leiðsluna f járhagslega þegar laun þessa fólks eru skert, þvi með óánægðu starfsfólki verður ekki æskilegum árangri náð i fram- leiðslu. Vanti peninga, þá verður aðtaka þá þar sem þeir eru til og ekki veldur þjóðhagslegum skaða þó þeir séu teknir. Allt annað er óráð. Svanhildur óladóttir, Steinþóra Einarsdóttir og Pétur Gunnarsson. Bókasafn Vöku á Siglufíröi Gjöf frá Gunnari heitnum Jóhanns - syni og Steinþóru Einarsdóttur phyTÍS snyrtivörurnar verða _ sifellt vinsælli. phyrís er húðsnyrting og hörundsfegrun • með hjálp blóma og jurtaseyða phyrris f yrir viðkvæma húð phyrris fyrir a||ar • húðgerðir Fæst í helstu snyrtivöruversl- unum og apótekum. Hinn 1. mai sl. var félagsheim- ili verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði formlega tekið i notkun, og við það tækifæri var bókasafn félagsins opnað, en það er gjöf frá þeim hjónum Gunnari heitnum Jóhannssyni alþm., sem lengi var einn þekktasti forustumaður verkamannafélagsins Þróttar á Siglufirði, og konu hans, Stein- þóru Einarsdóttur. 1 safninu eru um 2000 bindi, auk ýmissa skjala og gagna, sem snerta sögu verka- iýðssam takanna. Heiðursgestir Vöku við þetta tækifæri voru frú Steinþóra, Pét- ur sonur þeirra Gunnars og kona hans, Svanhildur Öladóttir. Kolbeinn Friðbjarnarson, for- maður Vöku flutti aðalræðuna við þetta tækifæri og þakkaði hina veglegu gjöf, en ennig töluðu Stefán Jónsson alþm., sem var gestur Vöku og Eggert Theodórsson. Gerðu þeir einkum að umtalsefni líf og starf þeirra Steinþóru og Gunnars á Siglu- firði. I lok samkvæmis þessa, sem fjöldi bæjarbúa sótti til að heiðra gestina og þiggja góðar veitingar, hélt frú Steinþóra skörulegt á- varp, sem hinn besti rómur var gerður að. Hún er nú 87 ára að Gestur 1 bókasafninu. aldri, en er ern og hress svo undrumsætir, þrátt fyrir þennan háa aldur. Vinnustödvun hjáFordog Saab-Scania: Mesta verkfall Brasilíu í áratug 16/5 — 9000 verkamenn við bif- reiðaverksmiðjur auðhringanna Ford og Saab-Scania skammt frá Sao Paulo i Brasiliu eru i verkfalli og krefjast 15—20% launahækk- unar. Er þetta mesta verkfallið þar i landi i tiu ár, enda bannar einræðisstjórn hershöfðingjanna þar verkföll og má aðeins gera þau með leyfi verkamálaráðu- neytisins, sem að sjálfsögðu er ekki auðfengið. Ford er bandariskur eins og al- þjóð veit og Saab-Scania eitt af mestu stórfyrirtækjum Sviþjóð- ar. Lengi hefur verið mikið um það að auðhringar þróaðra kapi- taliskra landa f járfesti i hálfþró- uðum rikjum þriðja heimsins, vegna þess að laun eru þar lág og verkföll bönnuð. Verksmiðjur þær tvær sem hér um ræðir, eru i útborg um 20 kilómetra frá Sao Paulo, og eru i þeirri útborg flest ar mestu bilaverksmiðjur Brasil- iu, þar á meðal útibú frá vestur- þýsku fyrirtækjunum Volkswag- en og Mercedes-Benz. Verkfall- ið hófst á föstudaginn og i verk smiðju Saab-Scania. Ferdamálaráö íslands Opin feröamálaráðstefna Ferðamálaráð islands hefur á- kveðið að boða til Ferðamálaráð- stefnu, sem hefst á Hótel Esjr föstudaginn 26. mai, kl. 9.00 f.h., en verður slitið kl. 17.00 laugar- daginn 27. mai. — Dagskrá ráðstefnunnar er ekki endanlega ákveðin, en fyrir- komulag verður með svipuðum hætti og á fyrri ráðstefnum, þannig að fyrri fundardaginn verða flutt erindi, siðan skipa menn sér i starfsnefndir, sem skila áliti og tillögum til umræðna og ályktana á ráðstefnunni. — Það er von Ferðamálaráðs Islands að Ferðamálaráðstefnan 1978 verði vel sótt og marki spor i framtiðarskipan ferðamanna- þjónustunnar i landinu fyrir is- lenska og erlenda ferðamenn. Ráðstefnan er opin öllum sem á- huga hafa á ferðamálum. Það eru vinsamleg tilmæli að þátttaka i ráðstefnunni verði til kynnt sem fyrst til skrifstofu Ferðamálaráðs Islands, Lauga- vegi 3, simi 27488. Sovésk kvikmyndagerð Dr. Simjon l. Freilikh prófessor, fulltrúi Sambands sovéskra kvikmyndagerðarmanna, f lytur fyrirlestur um sovéska kvikmyndagerð í AAíR-salnum, Laugavegi 178 í kvöld, fimmtudaginn 18. maí kl. 20.30. Aðgangur öllum heimill. stjórn AAÍR LAUSSTAÐA Laus er til umsóknar staða læknis við heilsugæslustöð á Blönduósi. Staðan veit- ist frá 1. október 1978 til jafnlegndar næsta ár. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 10. júni 1978 ásamt upplýsingum um fyrri störf. Heilbrigðis- og trýggingamálaráðuneytið 11. mai 1978 Auglýsmg Framboðslistum til alþingiskosninga i Reykjaneskjördæmi, ber að skila til for- manns, yfirkjörstjórnar Guðjóns Stein- grimssonar, hæstaréttarlögmanns, öldu- slóð 44, Hafnarfirði, eigi siðar en miðviku- daginn 24. þ.m. kl. 24. Yfirkjörstjórn, kemur saman i réttarsal bæjarfógetaembættisins, Strandgötu 31, Hafnarfirði, fimmtudaginn 25. þ.m. kl. 17, ásamt umboðsmönnum framboðslista. Hafnarfirði, 12. mai 1978. Yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis Guðjón Steingrimsson, Björn Ingvarsson, Tómas Tómasson, Þormóður Pálsson, Jón Grétar Sigurðsson Blikkiðjan Ásgarði 7, Garöabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiöi. Gerum föst verðtilboö SÍMI53468 LAUSSTAÐA Embætti skattstjórans i Reykjavik, er laust til umsóknar. Umsóknir sendist fjár- málaráðuneytinu fyrir 7. júni næstkom- andi. Fjármálaráðuneytið, 10. mai 1978.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.