Þjóðviljinn - 21.05.1978, Blaðsíða 5
Sunnudagur 21. mal 1S78 WÓÐVILJINN — StÐA 5
Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi:
Hvert ber ad stefna í atvinnu-
málum Revkvíkinga
Fyrir síðustu borgar-
stjórnar kosningar voru
starfsmenn borgarinnar
önnum kafnir við að teikna
fallegt kort fyrir borgar-
stjórann til að nota í
kosningabaráttunni. Þau
voru mest i grænum lit,
enda átti að halda græna
byltingu. En það sáust líka
blá strik og þau táknuðu
stíga með allskonar nöfn-
um. Það voru göngustígar,
hjólreiðastigar og reiðstíg-
Tvær slæmar staðreyndir komu
strax i ljós. Hlutur borgarinnar i
undirstöðugreinum atvinnulifsins
fer rýrnandi og tekjur Reykvik-
inga eru minni en tekjur fólks i
nágrannabyggðunum. Að þessu
upplýstu tóku embættismennirnir
að gera sér og öðrum grein fyrir
þvi hver væri meginvandinn i at-
vinnulifi borgarinnar Og þeir
settu nokkúr atriði niður á blað.
Fyrst settu þeir þessi orð á blað-
ið:
„Kynslóðaskipti eiga mikinn
þátt i hægari vexti, stöðnun, eða
hnignun gróinna fyrirtækja i
' ' i
ar og um sum strikin var
sagt að þau þýddu stíga
sem sérstaklega væru ætl-
aðir til útivistar og hress-
ingar. En allt er þetta liðin
saga og fyrir þessar
kosningar vildi borgar-
stjórinn fjalla um alvöru-
mál, og þvi sátu embættis-
menn i fyrrasumar og tóku
saman skýrslu um at-
vinnulifið i borginni.
borginni. bau eru flest i einkaeign
og sú skoðun er rikjandi, að
eignarinnar verði ekki notið
nema i starfi við hana. Eigendur
og erfingjar þykja þvi oft standa i
vegi fyrir ráðningu hæfra starfs-
manna og viðhald fasteigna situr
fyrir áhættusömum rekstri og
nauðsynlegri endurnýjun búnað-
ar.” (bls. 9.)
Siðan spurðu þeir menn sem
taldir voru sérstaklega kunnugir i
sjávarútvegi og iðnaði og fengu
Tveir andófsmenn dæmdir
í Sovét
19/5 — Tveir georgiskir félagar
Helsinki-hópsins voru dæmdir til
nauðungarvinnu og útlegðar til
afskekktra svæða aðeins sólar-
hring eftir að stofnandi hópsins,
JúriOrlof,hlautsamskonardóm i
Moskvu. Georgiumennirnir tveir,
rithöfúndurað nafni Sviad Gam-
sakhúrdia og Merab Kostava,
tónlistarfræðingur, hlutu þó væg-
ari dóma en Orlof, eða þriggja
ára nauðungarvinnu og tveggja
ára útlegðardóm. Réttarhöldin
yfir þeim fóru fram i Tíflis,
höfuðborg Georgiu. beir voru
eins og Orlof ákærðir fyrir æsing-
ar og áróður gegn rikinu.
Gamsakhúrdia er sonur eins
vinsælusta rithöfundar Georgiu og
hefur látiðtilsin taka i þjóðernis-
baráttu landa sinna. Nýlega kom
til mikilla mótmælaaðgerða 1
Tiflis vegna þess, aö i uppkasti að
nýrri stjórnarskrá fyrir sovétlýð-
veldi þetta vantaði tryggingu fyr-
ir þvi að georgiska héldi áfram
stöðu sinni sem opinbert mál.
Mótmælaaðgerðir þessar munu
hafa orðið til þess að þegar
endanlega var gengið frá
stjórnarskránni, hélt georgiskan
þar að fullu stöðu sinni sem opin-
bert tungumál. Hið sama varð of-
an á i hinum Kákasus-lýðveldun-
um tveimur, Armeniu og Aser-
bædsjan.
Við mótmælaaðgerðirnar i
Tiflis var sagt að ungt mótmæla-
fólk hefði krafist þess að
Gamsakhúrdia yrði látinn laus.
staðfest að, „Fjárfesting i hús-
eignum situr tiðum fyrir eðlileg-
um rekstrarmarkmiðum i smá-
iðnaði.” (bls. 11).
bótt ekki komi annað til en
þetta mat embættismannanna á
einkarekstrinum i Reykjavik má
vera ljóst að i framtiðinni getum
við ekki byggt afkomuöryggi
borgarbúa á einkaf vrirtækjum
einvörðungu. Tii þess eru þau ein-
faldlega of falivölt.
En einmitt það vill Sjálfstæðis-
flokkurinn að gert sé. Hann notar
gamla góöa slagorðið um aö
framtak einstakiinganna eigi að
vera grundvöllur atvinnulifsins i
Reykjavik og að borgin eigi ekki
að gerast þátttakandi i atvinnu-
rekstri nema „slikt sé beinlinis
talið bráðnauðsynlegt”. svo ég
vitni þráðbeint i stefnuplaggið
þeirra. bað læðist þó sýnilega að
þeim einhver grunur um að
grundvöllurinn þeirra sé ekki of
traustur.
Við sósialistar viljum hinsveg-
ar leggja nýjan grunn. Og það
veröur að sjálfsögðu rúm fyrir
einkafyrirtæki á þeim grunni við
hlið annarra fyrirtækja. Við vilj-
um að hlutverk borgarstjórnar sé
að hafa forystu og frumkvæði að
stofnun fyrirtækja og hún á að
tryggja stöðugleika þeirra. 1
þessu felst engan veginn að allur
almenningur eigi að vera fram-
takslaus hópur sem biður eftir að
borgarstjórn komi og segi: Hér
átt þú að vinna! betta átt þú að
gera. Siður enn svo. bað þarf
dugnað og framtak einstaklinga
til þess að byggja upp atvinnulif,
sem þjónar þvi markmiði að gera
rétt allra manna til vinnu og
sómasamlegra launa að grund-
vallarstaðreynd i samféiagi okk-
ar. Framtak og dugnaður þarf
ekki endilega að beinast að þvi
einu að búa til einkafyrirtæki til
þess að græða á.
Við leggjum áherslu á beina
þátttöku almennings i uppbygg-
ingu og stjórn fyrirtækja. bar er
brautin þegar rudd með stofnun
framleiðslusamvinnufélaga þar
sem allir starfsmenn eru jafn-
framtfélagarog eigendur og taka
á beinan hátt ákvörðun um launa-
greiðslur og rekstur fýrirtækis-
ins. bað er eftirtektarvert að
Framsóknarmenn báru fram til-
lögu þar sem sérstaklega var
mælt með þessu rekstrarformi,
en féllust svo á breytingatillögu
frá Sjálfstæðismönnum þar sem
orðið framleiðslusamvinnufélag
var strikað út.
Framtak fólksins getur einnig
fundið farveg i samstarfsnefnd- .
um i fyrirtækjum og i starfs-
mannaraðum sem taka þátt I
stjórn stofnana. Starfsmannaráð
sjúkrahúsa hafa t.d. gefist vel.
Samstillum kraftana og
þaö framtak sem i okkur
býr til að leggja nýjan
traustan grunn undir at-
vinnulífið f borginni okkar.
Adda Bára Sigfúsdóttir
SIMCA 1100 er einn duglegasti litli fimm
fólksbíllinn á landinu, sem eyðir 7,56 1. á 100 1
SIMCA 1100 kernst vegi sem vegleysur, enda
framhjóladrifinn bíll, búinn öryggispönnum
undir vél, gírkassa og benzíngeymi og er u.þ.b. 2
undir lægsta punkt.
Þetta er bíllinn sem þú ert að leita að, ekki satt?
Hafið samband við okkur strax í dag.
SIMCA1100
' ''' ' c>.
Armúla 36 - 84366
Sölumenn Chrysler-sal 83330/83454,
_________
Alla dagavikunnar
Alla daga vikunnar kemur Flugfrakt
að austan og vestan.
Að morgni næsta vinnudags
eru pappírarnir tilbúnir.
Sem sagt: Með Flugfrakt alla daga
vikunnar.
frakt
FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR
LSLANDS •‘-‘-ivin
Sunnuda
Mánudaj Þriðjuda: —ék Miðvikui Fimmtuc Föstui Laugardagur j
;j| i Wr