Þjóðviljinn - 21.05.1978, Blaðsíða 23
Sunnudagur 21. mai 1978 ÞJOÐVILJINN — StÐA 23
KONGURINN
Einu sinni var kóngur,
sem var voða ríkur. Allt
fólkið var fátækt. Kóng-
urinn átti hænsni, en han-
inn hélt alltaf söngskóla á
morgnana, svo kóngurinn
gat ekki sofið út. Hann
seldi hænsnin fyrir kálfa,
en kálfarnir héldu bara
dansskóla. Þeir hoppuðu í
stíunni. Enn gat kóngur-
inn ekki sof ið út á morgn-
ana. Þá lét kóngurinn
slátra kálfunum.
Einn dag fékk kóngur-
inn voða vont kvef. Þá
kom álfur. Hann var með
jurt. Hann sagðt kóngin-
um að þefa af jurtinni.
Þá sofnaði kóngur. Hann
svaf í tvo daga, en dó svo.
Fékk þá fátæka fólkið
peningana.
Helga María
Jóhannesdóttir, 9 ára,
Krákuvör, Flatey.
Mir*'
Ljóð um
kind
Kindin mín, kindin mín
komdu hingað til mín.
Ég skal gef a þér hey
og vera góð við þig.
Hanna Júlía
Hafsteinsdóttir, 8 ára,
Flatey
Tveir krakkar
sendu svör —
Þau fá bæði bók
frá Kompunni
Strákur í Kópavogi og
stelpa í Ameríku réðu
myndagátuna. Hann heit-
ir Ari Konráðsson, 9 ára,
Kastalagerði 5, en hún
heitir Sigrún Jónbjarnar-
dóttir. Hér er bréfið frá
henni:
Kæra Kompa!
Ég sendi þér svarið við
myndagetrauninni sem
kom í Þjóðviljanum 16.
apríl. Svarið er: Hr. bak-
ari Grímur Arason
Húsavik.
Ég er 9 ára og heiti
Sigrún. Ég á lítinn
bróður. Hann er tveggja
ára og heitir Páll. Við
erum í Mississippi í
Bandaríkjunum í borg
sem heitir Hattiesburg.
Pabbi minn er í skóla hér.
Ég er líka í skóla hér. Það
er skemmtilegt í skólan-
um. Kennarinn minn
heitir Mrs. Bennett. Það
er skemmtilegt hér. Þetta
er annað árið mitt hérna.
Það er komið sumar hér.
Það er oftast 30 stiga hiti
og stundum ennþá heit-
ara, 40 stiga hiti.
Ég vona að þetta bréf
komi ekki of seint.
BLESS
Sigrún Jónbjarnardóttir
Southern Station
Box 1835
Hattiesburg Mississippi
39401
U.S.A.
mmn
Ó, litli f uglinn minn,
þú flýgur lágt
en þú flýgur fínt
i hringi kringum mig,
Hildigunnur
Jóhannesdóttir,
5 ára,
Krákuvör, Flatey.
Lausn myndagátu
^ 7 ' V f
Einu sinni fyrir langa
löngu bjuggu f átæk
bóndahjón. Þau áttu einn
strák sem var f imm ára.
Einn dag spurði hann
mömmu sína hvort hann
mætti f ara út að leika sér
við Snata, og mamma
hans sagði: „Já, ef þú
passar þig vel að detta
ekki í ána."
Og strákurínn fór út.
En um leið og hann kom
út sá hann risastóran
fugl. Og strákurinn flýtti
sér heim. Og þar sagðí
hann alla söguna. Pabb-
inn sagði að þetta hefði
verið örn og flýtti sér út
með byssuna og skaut
örnínn. Og eftir það er
engin hætta fyrjr örnum.
Okkur datt í hug að senda þér sýnis-
horn af því sem við höf um gert í skól-
anum, ef þú vildir nota það í Kompuna
þína.
Skólanum er að Ijúka og vorverkin
að byrja. Það ætla allir að vera dug-
legir að vinna og hjálpa til í sumar.
Nóg er að gera i sauðburði, grásleppu,
leitum (tína æðardún), eggjatínslu og
heyskap. Vonandi fáum við líka að
skreppa í Hvallátur, Skáleyjar og
Svefneyjar til þess að heimsækja
frændfólk og vini.
Með bestu kveðjum
Krakkarnir í
Flateyjarskóla
(Yngri deild)
Káöning á myndgátu eftir Bjarna Gunnarsson, 12 ára, sem birtist i
siðasta blaöi er: MAÐURINN ER SKALD 1RÉYKJAVÍK.
(Höfundurinn gleymdi að skrifa
nafnið sitt. bað væri gaman að
fá frá honum annað bréf með
nafninu undir)
komp&m
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
í FLATEY ER
NÓG AÐ GERA