Þjóðviljinn - 21.05.1978, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 21.05.1978, Blaðsíða 22
22 SÍQA — Þ.JÖÐVILJINN Sunnudagur 21. mai 1978 BLAÐBERAR óskast í eftirtaiin hverfi: Austurborg: Rauðilækur Seltjarnarnes: Skólabraut Kópavogur: Austur- og Vesturbær Afleysingafólk óskast um lengri og skemmri tíma, viðsvegar um borgina. Vinsamlegast itrekið eldri umsóknir DMDmJM Afgreiðsla Síðumúia 6, simi 8 13 33 SJUKRALIÐAR Landakotsspitali óskar eftir sjúkraliðum i fast starf frá 1. júni eða siðar og einnig i sumarafleysingar 1. júni eða siðar. Hjúkrunarfræðingar óskast i sumaraf- leysingar. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri i sima 19600. T ónlist akennar ar Tónlistakennari óskast að Tónskóla Nes- kaupsstaðacaðal kennslugrein pianó,upp- lýsingar gefa skólastjóri i sima 7540 og skólafulltrúi i sima 7613 REIKNISTOFA BANKANNA óskar að ráða starfsmann til tölvustjórn- ar. í starfinu felst m.a. stjórn á einni af stærstu tölvum landsins ásamt móttöku og frágangi verkefna. Við sækjumst eftir áhugasömum starfs- manni með stúdentspróf, verslunarpróf eða tilsvarandi menntun. Starf þetta er unnið á vöktum. Skrifleg umsókn sendist Reiknistofu Bankanna, Digranesvegi 5, Kópavogi, fyr- ir 26. mai n.k. Tækjastjórar Viljum ráða nokkra tækjastjóra. Upplýs-. ingar á skrifstofu vorri, Lækjargötu 12 Reykjavik, mánudaginn22. mai kl. 15—17. Einnig alla vinnudaga á skrifstofu félags- ins á Keflavikurflugvelli. íslenskir aðalverktakar s.i. Keflavikurflugvelli Nemenda- leikhúsið sýnir i Lindarbæ, leikritið SLÚÐRIÐ eftir Flosa Ólafsson 1 kvöld kl. 20:30 Næst síðasta sinn Mánudag 22. mál kl. 20:30 Siðasta sinn Miðasala i Lindarbæ kl. 17—20:30 sýningardagana og 17—19 aðra daga. Simi: 2 19 71. Eisenstein Framhald af bls. 15 verðan grikk. Hann hafði ætlað að gera létta gamanmynd um vandamál gamla og nýja timans i sveitunum, en þegar gerð mynd- arinnar komst á lokastig var á- standið þannig að slik efnismeð- ferð virtist allsendis óviðeigandi. Eisenstein gerði einhverjar breytingar á myndinni og hún var frumsýnd i nóvember 1929 undir nafninu Gamalt og nýtt (Staroje i novoje), en áhorfendur tóku henni kuldalega. Með timanum breytt- istþað viðhorf og myndin er nú yf irleitt talin hafa ýmislegt til brunns að berai Hún er þó kannski aðallega merkileg fyrir þá sök, að i henni notar Eisen- stein i fyrsta sinn einstakling sem aðalpersónu. Hann segir sögu fá- tækrar bóndakonu og er hún ekki leikin af leikkonu, heldur raun- verulegri sveitakonu. Annað merkilegt við þessa mynd er, að hún er ekki byggð á sögulegu efni einsog fyrri myndir Eisensteins, heldur gerist hún i samtimanum. Of stór fyrir rammann Hér er ekki unnt að gera skil neinu af þvi sem siðar gerðist á ferli Eisensteins: ferð hans til USA og Mexico, heimkomunni til Sovétrikjanna og árekstrum hans við skrifræðiskerfi Stalins. Kvik- myndirnar sem hann lauk við, auk þeirra sem þegar hafa verið nefndar, eru: Alexander Néfski (1938) og fvan grimmi I og II (1943—1946). Ein mynda hans, Bjesjin Lug, var bönnuð og eyði- lögð, en hefur verið endurreist úr afgangsbútum sem varðveist höfðu. Jafnvel enn sorglegri voru afdrif Mexico-myndarinnar sem Eisenstein hafði lagt i svo mikla vinnu og sköpunargleði — hún varð aldrei fullkláruð, en hefur nokkrum sinnum verið tekin til handargangs og notuð sem uppi- staða i myndir annarra kvik- myndastjóra. Ævi Eisensteins minnir að ÞJÓÐLEIKHÚSIL KATA EKKJAN 1 kvöld kl. 20 Fimmtudag kl. 20 LAUGARDAGUR, SUNNUDAGUR, MANUDAG- UR Miðvikudag kl. 20 Litla sviðið: MÆÐUR OG SYNIR í kvöld kl. 20.30 FRÖKEN MARGRÉT Þriðjudag kl. 20.30 Uppselt Miðasala 13.15—20. Slmi 1- 1200. LÍTkFRlAC (REYKfTWlKUR SKALD-RÓSA 1 kvöld. Uppselt. 50. sýn. fimmtudag. Uppselt. Föstudag. Uppselt. VALMUINN SPRINGUR ÚT ANÓTTUNNI 3. sýn. þriðjudag. Uppselt. Rauð kort gilda. 4. sýn. miðvikudag. Uppselt. Blá kort gilda. 5. sýn. laugardag kl. 20,30. Gul kort gilda. Miðasala i Iðnó kl. 14-20,30. sumu leyti á æví Majakofskis. 3áðir voru þeir synir byltingar- innar, og báðir voru þeir of stórir i list sinni, tilfinningum og skap- gerð, til að falla inn i þann þrönga ramma sem settur var um list- sköpun i Sovétríkjunum á timum Stalíns. Byrjuöu Framhald af bls 8. Sannleikurinn er nefnilega sá, að fátt er skemmtilegraen að blása I lúðrasveit þegar vel gengur og sveitin er góð. Hjá okkur eins og öðrum lúðrasveitum voru sveiflur iþessu. Stundum varsveitin mjög góð, stundum miðlungi, og þeir timar komu að illa gekk. Ég man eftir lúðrasveitamóti vestur á ísafirði, þar sem lék 330 manna lúðrasveit, með 36 trompeta; þá var gaman að blása, það var alveg stórkostlegt. Þetta skilur kannski enginn, nema sá sem verið hefur i lúðrasveit. Nú hefur enginn tima Til þess að halda uppisæmilegu prógrammi, þarf lúðrasveit að æfa minnst tvisvar i viku, 4 til 5 tima I senn. Þvi miður virðast alltof fáirhafatima til sliksidag. Menn hafa yfirleitt ekki tima til að sinna neinu félagslifi nú til dags. Og fyrir bragðið verða lúðrasveitirnar ekkieins góðar og unnt væri, ef þeir, sem reynsluna hafa, héldu áfram. Nú eru sveitirnar að mestum hluta skip- aðar ungum skólastrákum, sem ánægju hafa af að blása i lúðra. Þeir hafa, sem eðlilegt er, ekki náð eins langt á blásarabrautinni og þeir sem eldri eru og reyndari. Og fyrir utan það, að sveitin þarf að æfa 10 tlma i viku, þarf hver einstaklingur að æfa einn til tvo tima á dag, bara til að halda vörunum i lagi. Ef svo lúðrasveit ætlar að koma upp einhver ju sér- stöku prógrammi, verður að æfa enn meira. Það kostar þvi tima að sinna þessum málum, en ánægjan er slik að það er vel þess virði. S.dór Einlægar þakkir öllum þeim nær og fjær, sem minntust með virðingu og djúpri samúð eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa Guðmundar Löve framkvæmdastjóra öryrkjabandalags islands. „Miskunn, friður og kærleiki margfaldist yður tii handa”. (Júd.1.2.) Rannveig Löve börn, tengdabörn og barnabörn. PÓST- OG SlMAMÁLA STOFNUNIN Verkfrœðingur STAÐA VERKFRÆÐINGS hjá tæknideild er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 25. mai n.k. Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild. TILKYNNING til íbúa i Breiðholti III Stofnsett hefur verið heilsugæslustöð i Breiðholti. Þjónustusvæði stöðvarinnar (heilsugæslusvæði) nær til Fella- og Hólahverfa, þ.e. Breiðholts III. Heilsugæslustöðin er til húsa að Asparfelli 12, 2. hæð, gengið inn um suðurdyr. Fyrst um sinn verður aðeins unnt að veita hluta af ibúum hverfisins almenna læknisþjónustu og heilsuvernd á vegum stöðvar- innar, en þar munu i byrjun starfa tveir læknar. Þeir ibúar i Breiðholti III, sem óska að sækja læknisþjónustu til stöðv- arinnar, þurfa að koma þangað til skráningar og hafa meðferðis sjúkrasamlagsskirteini. Fyrstu þrjá dagana verða eingöngu skráðir þeir ibúar hverfisins sem ekki hafa heimilislækni, og njóta þeir þvi for- gangs. Skráning hefst mánudaginn 22. mai og verður opið kl. 10—12 og 13.30—15 til 31. mai. Læknar stöðvarinnar hefja störf 1. júni. Tekið verður á móti timapöntunum i sima 75100. Reykjavik, 17. mai 1978. Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar Borgarlæknirinn i Reykjavik Sjúkrasamlag Reykjavikur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.