Þjóðviljinn - 21.05.1978, Side 13
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. mal 1978
Hinn 8. mars sl. átti Lúðrasveit verkalýðsins 25
ára afmæli. Eins og kemur fram i viðtali við Jón
Múla Ámason, einn af stofnendum sveitarinnar,
var þörfin fyrir slika lúðrasveit orðin brýn, þegar
hún var stofnuð. Þá fékkst ekki lúðrasveit til að
leika fyrir göngu verkalýðsfélaganna 1. mai, ár
hvert, vegna þess að ihaldið keypti upp þær sveitir
sem til voru i bænum þennan dag. Allt frá stofnun
sveitarinnar hefur hún þvi gegnt mikilvægu hlut-
verki í menningarlegu tilliti hjá verkalýðshreyfing-
unni i landinu. I tilefni afmælisins og þess stóra
verkefnis sem sveitin nú glimir við fara hér á eftir
viðtöl við þá Torfa Antonsson, formann sveitarinn-
ar og Jón Múla Árnason, einn af stofnendum hennar
og aðalmönnum allt frá 8. mars 1953.
Lúðra
sveit
verka-
lýðsins
25 furii
„Einn morgun i byrjun mars,
fyrir 25 árum, var ég aö koma
noröur Bergstaöastrætið, og þar
sem ég kerm aö Skólavöröustign-
um, sé ég hvar þrlr vinir minir
standa fyrir utan Tugthúsiö. O,
hver andskotinn, hefur nú allt
komist upp, hugsaöi ég, á nú aö
fara aö setja þá inn? En þaö var
nú eitthvaö annaö. Þarna voru
saman komnir Haraldur
Guömundsson, prentari og
tónlistarmaöur, Jón Ingólfsson
málari og Páll Bjarnason, prent-
ari á Þjóöviljanum. Þeir eru þá
aö ræöa um þaö, aö til skammar
sé að verkalýöshreyfingin skuli
ekki eiga lúörasveit, til aö blása
fyrir göngunni 1. mai, og aö
stofna eigi slika hljómsveit. Þaö
mun hafa veriö Stefán ögmunds-
son prentari, sem fyrstur haföi
orö á því aö nauðsynlegt væri aö
stofna slika sveit, og einhver
undirbúningur fyrir stofnfund
haföi fariö fram. Nema hvaö þeir
þremenningar sögöu mér að
koma ástofnfundinn.égman ekki
hvort hann átti að halda þá strax
þarna um kvöldiö, eöa hvort þaö
var næsta sunnudag. Og ég geröi
það og var þvi einn af stofnendum
Lúörasveitar verkalýösins.”
Það var JónMúli Arnason, sem
hér segir frá, en hann hefur verið
einn af aöal-mönnum Lúðra-
Byrjudum að æfa Nallannog
Roðann á stofnfundinum
sveitar verkalýðsins i þau 25 ár,
sem liðin eru siðan sveitin var
stofnuö. Við báðum Jón að segja
okkur frá stofnun sveitarinnar og
störfum hennar.
,,Þá um tima hafði gengið illa
að fá lúörasveit til að ganga fyrir
1. mai göngunni vegna þess að
Ihaldiðkeypti alltaf upp þær tvær
lúðrasveitir sem til vorui bænum,
til að leika á fundi ihaldsfélagsins
Óðins til dýrðar auðvaldinu þenn-
an dag. Þörfin var þvi brýn fyrir
Lúðrasveit verkalýðsins. Jæja,
nú kom að stofnfundi. Hann var
haldinn að Grettisgötu 64 og voru
stofnfélagar 14. Þeir voru:
Guömundur H. Norödahl
Báröur Jóhannesson
Haraldur Guömundsson
Jón Múli Arnason
Ingvar Bjarnason
Páll Bjarnason
Þórólfur Danlelsson
Jón Sveinsson
Sigursveinn D. Kristinsson
Þóröur N. Þorfinnsson
Jón G. Haraldsson
Gisli Halldórsson
Guðmundur Haraldsson v
BragiSkarphéöinsson '
Ég átti kornett og mér hafði
verið sagt að koma meö það á
stofnfundinn, sem ég og gerði.
Fleiri menn komu með hljóöfæri
sin á fundinn, og ég man að viö
byrjuðumstraxað æfa Roðannog
Nallann.—
Fyrsta verkefnið
Auðvitað vantaði okkur mörg
hljóðfæri, sér i lagi þau stærri og
dýrarúog var verið að fá þau að
láni. Einhverra hluta vegna tókst
okkur ekki að koma saman
prógrammi til að blása I göngunni
1. mai 1953, en fyrstu opinberu
tónleikarnir okkar voru 5. mai
1953 á „Þjóðarráöstefnu gegn her
I landi”, sem haldin var i
Mjólkurstöðinni.og þar var einnig
Söngfélag verkalýðssamtakanna
undir stjórn Sigursveins D.
Kristinssonar. Siðan hefur Lúðra-
sveit verkalýðsins leikið fyrir
göngu 1. maiIReykjavik áhverju
ári.
Fyrsti stjórnandi sveitarinnar
var Haraldur Guðmundsson og
hann var þaö allt þar til hann álp-
aðist austur á Norðfjörð til að
endurreisa tónlistalif Aust-
firöinga. Þegar Haraldur fór
austur var leitað til Sigursveins
D. Kristinssonar og hann munaði
ekkert um að bæta einni hljóm-
sveit á sig i viðbót og geröist
stjórnandi. Ekki minni maöur en
Jón Asgeirsson tónskáld tók svo
viö stjórnun af Sigursveini, en
Jón hafði veriö valdhornleikari
sveitarinnar um skeið. Jón var
frábær stjórnandi og barði þá,
sem spiluðu falskt i kröfugöng-
um. En Jón Asgeirsson lék á
valdhorn af meiri hst en flestir
aðrir menrvog þótt Jón sé afburða
gott tónskáld, var hann enn þá
betri valdhornleikari. Þegar Jón
Asgeirsson hætti sem stjórnandi
tók við nafni hans Jónsson og
stjórnaði við afar erfiðar aðstæð-
ur. Æft var þá I bílskúr aö
Tjarnargötu 20. í þá daga var lff i
pólitikinni og Heimdellingar
gerðu hvaö eftir annaö árásir á
skúrinn, sem og húsið sjálft að
Tjarnargötu 20. Þar á loftinu
vörðust svo félagar i Æskulýðs-
fylkingunni þessum grimmilegu
árásum. Þegar Jón Jónsson
hætti, tók Björn Guðjónsson við
stjórn og siðan ólafur L.
Kristjánsson, sem stjórnaði
sveitinni i 12 ár og er ný-hættur.
Og nú hefur verið ráðinn ungur
stjórnandi, Ellert Karlsson. Ég er
hinsvegar hættur að blása, hætti
þegar ég varð fimmtugur, enda
taldi ég mig þá hafa náð þeim
árangri, semnæstlþessulifi.
Marseruðum inná
ASí-þing
Þú spyrð um peninga. Fyrst i
staö fengum við enga styrki og
áttum ekki eyri. Það var ekki fyrr
en við marseruðum inná þing ASÍ
og blésum þar við setningu, að
ASl ákvað að veita okkur sva
litinnstyrk. Eins tókum við okkur
til og lékum jólasálma á Austur-
velli á Þorláksmessu, beint fyrir
framan Borgarskrifstofurnar, og
kannski þess vegna tókst okkur
að kria fáeina aura útúr borgar-
stjórnarihaldinu. Siðan komu svo
styrkir frá einstökum verkalýðs-
félögum og greiöslur fyrir að
spila.
Kvöldvökurnar
hjá KRON
Fljótlega eftir að sveitin fór aö
starfa, var gerður samningur við
starfsmannafélag KRON um aö
haldnar skyldu kvöldvökur. þar
sem viðskemmtumogblésum, en
kór Verkalýðsins söng undir
stjórn Sigursveins. Þessar kvöld-
vökur voru haldnar tvisvar í
mánuði um veturinn; kvöld-
vökurnar voru haldnar i' tvö ár,
gerðu stormandi lukku og voru
vel sóttar. Við lékum svo,eins og
ég sagði áðan, 1. maí ár hvert, á
sumardaginn fyrsta, 17. júni og
við önnur slik hátiðleg tækifæri.
Ég man það til að mynda, að 17.
júni' 1954, á 10 ára afmæli
lýðveldisins, léku allar þrjár
lúðrasveitirnar i Reykjavik á
Austurvelli undir stjórn dr. Páls
ísólfssonar. Þetta voru sannkall-
aðir hátiðartónleikar. Eins fórum
við snemma i tónleikaferðir,
fórum suður með sjó og austur
fyrir fjall og blésum af hjartans
lyst.
Margir snillingar
Það hafa margir tónlistarsnill-
ingar hafið feril sinn i Lúðrasveit
verkalýðsins. Ég get nefnt Lárus
Sveinsson, 1. trompetleikara hjá
Sinfóniuhljómsveitinni I dag.
Þegar hann kom til Reykjavikur
frá Neskaupstað, þar sem hann
hafði lært að blása i trompet hjá
Haraldi Guömundssyni, kom
hann i LV og lék meö okkur. Ég
get nefnt þá Stephensensbræður,
Kristiánog Stefán, sem báðir eru
toppmenn i Sinfónfuhljómsveit-
inni idag:' nú, Jón Asgeirsson
skáld, sem lærði að skrifa fyrir
hljómsveit meöan hann stjórnaöi
LV. Eða þá Jón Hjaltason
trompetleikara, sem nú blæs 2.
trompet hjá Sinfóníunni. Þá skal
frægan telja Bjarna Guðmunds-
son, besta túbuleikara I heimi. Til
þess að verða góður blásari, þarf
maður að æfa sig á hver jum degi
einn til tvo tlma bara til að halda
vörunum I þjálfun, en sex til átta
tima, ætli maður að verða góður
blásari. Ég man það vel, þegar ég
átti heima I næsta húsi við MIR
salinn, þar sem sveitin æfði lengi,
þá sofnaði ég á hverju einasta
kvöldi viö túbuleik Bjarna
Guðmundssonar. Hann sat þar
einn og æfði sig á hverju kvöldi,
enda er hann stórkostlegur túbu-
leikari.
Eldhugar
Vissulega vorum við allir
einlægir verkalýðssinnar og
eldhugar i þeim málum, en þó
hygg ég að meiru hafi um ráðið
löngunin til að blása á lúðra, að
við störfuðum i sveitinni.
Framhald á 22. siöu.
Elíert Kriitjánnon, hinn nýl •tjórnandi iveitar- Menn eru á ðHum aldrl I svelttnnl.
Lúðrai veit verkalýðilni að afingu I hlnu nýja húinæðl ■Inu að 8kdlatdnl I.
innar
■
*. Y
191 i ■ 1
jr mH ' * H i i s ■ y* SÆm,
| " l -"'fj
Sunnudagur 21. mai 1978 ÞJOÐVILJINN — StDA 13!
„Þetta er afmælisár og þvl fer
vel á þvl að takast á við stærri
verkefni en gengur og gerist,
enda má segja að okkar biði
stórverkefni I sumar”, sagði
Torfi Antonsson, formaður
stjórnar Lúðrasveitar verka-
lýðsins er við ræddum við hann
stundarkorn fýrir skömmu.
„Síðustu helgina I júni verður
Menningar og fræðslusamband
alþýðu með ráðstefnu og
Norrænt mót i Vestmanna-
eyjum og þar mun LV koma
fram og leika ásamt lúörasveit-
inni i Vestmannaeyjum. Og i
vetur höfum við verið að æfa
upp alveg nýtt prógram fyrir
þessa hljómleika, byrjuðum 2.
mars sl. og höfum æft stíft sið-
an. Við vorum stjórnandalausir
i vetur, eftir að Olafur L.
Kristinsson hætti eftir 12 ára
starf, en nú höfum við ráðið
ungan stjórnanda, Ellert Karls-
son, sem byrjaði með okkur i
Torfi Antonsson, formaöur
Lúðrasveitar verkalýðsins
Rætt við Torfa
Antonsson,
formann
stjómar
Lúðrasveitar
verkalýðsins
Stórverkefni
framundan
mars. Vissulega er timinn
naumur, en við vonum að okkur
takist að koma fram með
skemmtilegt prógram á hljóm-
leikunum I Eyjum. Þetta
prógram, sem við höfum veriö
að æfa upp er af léttara taginu,
m.a. nokkur popplög”.
Mikill áhugi
—Nú þarf fjölda hljóðfæra i
svona lúðrasveit, eiga menn
sjálfir hljóðfærin?
„Sumir eru með sin eigin
hljóðfæri, en þau stærri og dýr-
ari á sveitin sjálf. Við erum nú
með 25 manna sveit og það er
engin leið að ætla mönnum að
leggja til sjálfir öll þau hljóð-
færi, sem þarf. Þá höfum við
einnig fest kaup á eigin húsnæði
að Skúlatúni 6 I Reykjavik og
höfum þar aðstöðu til æfinga.
Já, það er mikill áhugi og ein-
hugur I félögum um þessar
mundir, öðru vis i væri ekki hægt
að æfa upp það prógram, sem
við erum með, á þessum stutta
tima.
Alltaf einhver verkefni
—Hvernig er með verkefni
fyrir svona lúðrasveit, hefur
hún alltaf verkefniaö keppa aö?
„Já, það má segja það. Við
leikum alltaf fyrir göngunni 1.
mai i Reykjavik. Eins leikum
við á 17. júni, á sumardaginn
fyrsta. Segja má aö þetta séu
föst verkefni. Nú, i fyrra fórum
viö I hljómleikaferð til Noregs,
þar sem við komum fram,
ásamt Samkór Trésmiðafél.
Reykjavikur, á samnorrænu
tónlistarmótialþýðu. Við vorum
þarna 100 íslendingar á 5900
manna móti. Lúðrasveit verka-
lýðsins er einnig fengin til aö
leika við sérstök tækifæri hjá
hinum ýmsu verkalýðsfélögum
og nú í kringum tvennar kosn-
ingar veröum við án efa beðnir
að leika. Þannig að við veröum
alltaf að hafa tilbúið prógram,
viö getum verið beönir að leika
fyrirvaralaust.
—Hvernig er meö fjármála-
hlið svona fyrirtækis?
„Við fáum styrk frá riki og
borg, ekki háan að visu en það
munar um hverja krónu I basl-
inu. Eins fáum við svo styrk frá
ASI og MFA svo og frá einstök-
um verkalýðsfélögum og fyrir
þau verkalýðsfélög.sem styrkja
okkur, leikum við endurgjalds-
laust. Þessir styrkir nema sam-
tals á milli 800 þúsunda og einn-
ar miljónar króna.
— Og dugar það ykkur?
,,Nei, þvi miöur, það dugar
fyrir ljósi og hita I æfingahús-
næðinu. Þess sem á vantar
verðum viö aö afla sjálfir, með-
fram þvi að æfa og leika á
hljómleikum”, sagði Torfi
Antonsson.
Núverandi stjórn LV er þannig
skipuö:
Torfi Antonsson, formaður
Atli Magnússon, varaformaöur
Jón Gunnar Bergþórsson, gjald-
keri
Magnús Guðmundsson, ritari
Siguröur Haraldsson, áhalda-
vörður.
—S.dór.
Músíkkljóniö í LV
Þegar Jón Múli Arnason hætti
að blása með Lúðrasveit verka-
lýðsins orti hann rimu, sem
hann nefndi — Músikkljónið i
LV —. Þessi rima hefur áður
birst i Þjóðviljanunven við hæfi
er að endurbirta hana i tilefni
af 25 ára afmæli sveitarinnar.
Músíkkljónið i L.V.
Göngu skrúð tók glaöur ail
gæji prúður þátt i
Braga trúðarbýsna snjall
blés sinn lúður hátt I
Hjóm I sveitum sóló oft
söng meðteitum körlum,
óma skeytumléttá loft
löngum þeytir snjöilum
Listum tóna tryggðir batt
trompet þjónar Gyðju
músikkljónið marsaglatt
meður sóna iðju
Hornikærudillardátt
dýrum færum skrýddur,
C-ið tæra hittir hátt
halur æru prýddur
grund á smára blóminblá
blikna og sáran harma
Göngu i kröfu gekk um bæ
gerði ei töf á henni
skelfing öfugsnúnum æ
olU göfugmenni
Sveit I verka lúðra lýðs
Ijóðin sterkuóma
kjara i héLkju stormum striðs
stendur merkið sóma
ihald glóru glúpnar laust
gliðna bjórar helsis
þá hin óra ramma raust
rymur kóra frelsis
Ileldur gæjinn hátt þá bar
höfuðdægilega
1. mai hann fremstur var
og fretaði ægiiega
Hug á sjón og frækinn fer
fram að þjóna henni
mjög á Fróni af mönnum ber
Múla Jón þar kenni.
JMA.
Berg af múrum málið hlær
músikk flúrað rósum
silfur dúrum sveiflar kær
seggur fúriósum
Fanden dregur feikn i vold
furðulega siyngur
einnig þegar mjúkan moU
meður trega syngur
Freyjum tára flýtur þá
flóð um brár og hvarma