Þjóðviljinn - 03.06.1978, Síða 2

Þjóðviljinn - 03.06.1978, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. júni 1978 t dag, Iaugardag, veröur Listahátið sett aö Kjarvalsstöö- um hl. 14.00. Lúörahljömsveit Keykjavikur leikur undir stjórn Brian Charlie, og síöan veröur Listahátiöin formlega sett. Siö- an mun Jóhann G. Jóhannsson leika Ragtime á pianó, og þá mun yfirlitssýning á verkum Errós opnuö. Sföar um daginn veröur ýmis- legtá dagskránni. FlM-salurinn mun opna sýningu á málverkum Kristjáns Daviðssonar kl. 16.00 að Laugarnesvegi 112. Klukku- tima siðar, eða kl. 17.00 verður opnuð sýning á vatnslitamynd- um eftir Vigdisi Kristjánsdóttur i bókasafni Norræna hússins. Myndirnar eru af islenskum jurtum og blómum. Á sama tima verður opnuð önnur sýning i kjallara hússins og er það sýn- ing á málverkum og grafik- myndum eftir hjónin Seppo •Mattinen og Helle-Vibeke Erichsen. Þá verður opnuð sýning i Bogasal Þjóðminjasafnsins á frönskum myndvefnaði og lista- verkum, sem tengd eru mynd- vefnaöi. Um kvöldið kl. 21.00 verða svo jasstónleikar Oscar Peterson trio eða réttara sagt duo, þvi Joe Pass gitarleikari forfallast vegna veikinda. Niels Henning örsted Petersen leikur á bassa og munu hann og Oscar leika á viö þrjá að sögn pianist- ans. —IM Vigdls Kristjánsdóttir opnar sýningu i dag i Norræna húsinu. Sýnir hún vatnsiitamyndir af is- lenskum jurtum og blómum. Strokkvartett Kaup- mannahafnar heldur tónleika annað kvöld Haldnir veröa tónleikar Stokkvartetts Kaup- mannahafnar i Norræna húsinu á sunnudagskvöld kl. 20.30. A efnisskránni verður eftirfarandi: Strok- kvartett nr. 19 í C-dúr eftir W.A. Mozart/ Kaupmanna- hafnarkvartett (1977-78) eftir Þorkel Sigurbjörns- son verður frumfluttur og þá strokkvartett nr. 13 i a- moll eftir Franz Schubert. Það var árið 1957 að fjórir hljóðfæraleikarar úr ,,Kgl. Kap- elle”, Hljómsveit Konunglega leikhússins i Kaupmannahöfn, tóku sig saman og stofnuðu Strok- kvartett Kaupmannahafnar. Þessir hljóðfæraleikarar voru fiðluleikararnir Tutter Givskov og Mogens Lylolph, Mogens Bruun vióluleikari og Asger Lund Christiansen sellóleikari. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir i Kaup- mannahöfn sama ár, og var þeim ákaflega vel tekið. Kvartettinn hélt siðan tónleika um alla Dan- mörku og voru undirtektir hvar- vetna mjög góðar. Arið 1959 fór kvartettinn i fyrstu tónleikaferðina út fyrir landsteinana, og lék i Hamborg og Berlin við mikinn orðstir. Siðan hefur kvartettinn árlega fari i tónleikaferðir um Þýska- land. Auk þess hefur kvartettinn leikið i Noregi og Sviþjóð, Hol- landi, Belgíu, Sviss, Bretlandi og Israel. 1964 fór hann i fyrstu tónleikaferðina til Ameriku, ferðaðist um þver og endilöng Bandarikin og Kanada i ellefu vikur, og lauk ferðinni með tónleikum i Carnegie Hall. Árið 1966 fór kvartettinn aftur til Bandarikjanna i sjö vikna tón- leikaferð, og að henni lokinni léku listamennirnir inn á niu hljóm- plötur fyrir VOX-fyrirtækið i New York verk eftir Sibelius, Grieg, Carl Nielsen, Holmboe, Berwald, Gade og fíeiri tónskáld frá Noröurlöndum. Strokkvartett Kaupmanna- hafnar hefurleikið á margri lista- hátiöinni i Evrópu, meðal annars á Berliner Festtage 1967, Beet- hoven-hátiðinni i Bonn 1967 og 1974, og á Luzern Festspiele ’69. Strokkvartettinn hefur yfir 125 tónverk á verkefnaskránni. Þar á meðal eru verk sigildra tón- skálda, Haydns og Beethovens, — og kvartettinn kýs sér oft verk eftir landa sina: Gade, Hart- mann, Nielsen og siðast en ekki sist Vagn Holmboe, en lista- mennirnir telja hann i hópi fremstu tónskálda vorra tima. Vagn Holmboe hefur tileinkað Strokkvartett Kaupmannahafnar fjóra kvartetta og hefur Strok- kvartettinn lokið við að leika tólf kvartetta hans inn á hljomplötur. Þá hefur Strokkvartett Kaupmannahafnar einnig lagt mikia rækt við danska tónlist frá árunum 1800-1880, sem oftast er kölluð Gullöldin. Þannig hafa listamennirnir dregið fram i dagsljósið frábæra kvartetta eftir Niels W. Gade, Hartmann, Horneman, Kuhlau og fleiri en mörg þessara verka voru aðeins til i handriti. Kvartettinn hefur leikiö þessi verk inn á hljóm- plötur, og eru þau oft á verk- efnaskrá hans, bæöi i Danmörku og erlendis. Fjársöfnun Sjúklingará Bæklunardeild 12-2 Landspitalanum eru nú aö fara f stað með f jársöfnun til kaupa á tsjónvarpstæki fyrir deildina. lún hefur hingað til haft afnot af vart-hvitusjónvarpstæki en vist- lenn á deildinni hafa nú hug á aö kipta „yfir » lit”, og eru bjart- sýnir á góðar undirtektir við þessa hugmynd utan sjúkrahúss- ins sem innan. Framlögum má skila til Jó- hannesar Björgvinssonar vist- manns á Bæklunardeildinni og hjúkrunarfólks þar. —mgh Listahátið í Norræna húsinu Laugardagur Sunnudagur 3. júni kl. 17:00 Opnun listsýninga. 4. júní kl. 20:30 STROKKVARTETT KAUPMANNAHAFNAR leikur verk eftir Mozart, Þorkel Sigur- björnsson og Schubert Mánudagur 5. júni kl. 20:30 í sýningarsölum i kjallara: GRIEG-DUÓIÐ leikur verk eftir Jón Nordal, Grieg og Beethoven. SEPPO MATTINEN og HELLE- VIBEKE ERICHSEN, málverk og grafikmyndir,opið 14-19 í bókasafni: VIGDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR „íslenskar jurtir og blóm”, vatnslitamyndir, opið kl. 14-19 Verið velkomin Tónskóli Sigursveins: Fjölbreytt starf Fjórtánda starfsár Tónskólans hófst med setningu i Lindarbæ 9. september 1977 Fjórtánda starfsúr Tónskólans hófst meö setningu f Lindarbæ 9. september 1977. Við skólann störfuöu 25 kennar- ar auk skólastjóra. Nemendur voru 477 og skiptust þannig á námsgreinar: Einsöngur 23, pianó 138, harmonium 17, fiöla 31, Cello 8, gitar 59, þverflauta 25, aítflauta 9, klarinett 10, trompet 5, horn 1 nemandi. 1 forskóla, fyrsta og öðrum áfanga, 120, undirbúnings- deildum 32. 1 aðalnámsgreinum voru þreytt 145svigpróf, semskiptustþannig á námsstig: I. stig 61, II. stig 43, III. stig 18, IV. stig 16, V. stig 5 nem- endur. Tveir nemendur þreyttu fullnaðarpróf, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson I klarinettuleik og Astmar Einar ólafsson i pianó- leik. Tvær nemendahljómsveitir voru starfræktar i skólanum, önnur fyrir yngri nemendur, hin fyrir þá, sem lengra eru komnir. A sama hátt var æfður skólakór. Kórinn og hljómsveitin héldu tónleika i kirkju Óháða safnaðar- ins 12. april. Þar var m.a. flutt verk eftir John A. Speight: „Little Music” fyrir klarinettu og hljómsveit. Einleikari á klarin- ettu var Jón Aðalsteinn, sem nú lýkur fullnaðarprófi. Auk þess voru haldnir nemendatónleikar um jól og páska i Menntaskól- anum við Hamrahlið og i Nor- ræna húsinu 30. april. Þann 7. mai voru fullnaðarprófstónleikar Ast- mars Einars Ólafssonar i Nor- ræna húsinu. Þann 14. april fór Hljómsveit Tónskólans til Egilsstaða og aðstoðaöi Tónkórinn á Fljótsdals- héraði við flutning páskaóratóriu eftir Brunckhorst. Tónkórinn kom síðan til Reykjavikur og hélt tónleika I kirkju Óháða safnaðar- ins, þar sem þessir aðilar fluttu óratóriuna öðru sinni. Skólaslit fóru fram i Hagaskóla miðvikudaginn 10. mai. Þar voru skirteini afhent. > Tónleikar Öldutúnskórsirts ; Kór öldutúnsskóla efnir til tónieika I Hafnarfjaröarkirkju á morgun 1 (sunnudaginn 4. júnl) kl. 5 s.d. A efnisskránni eru bæöi innlend og erlend lög, þar á meðal nýtt kórverk eftir Jón Nordal tónskáld. Stjórn- andi kórsins er Egill Friðleifsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.