Þjóðviljinn - 03.06.1978, Síða 5
Laugardagur 3. júnl 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA5
Nordplan
50 manns í
Gestirnir dvelja hér í mánadartíma
og ferdast um landið
Dagana 4. júni til 1. júli mun
Nordplan verja mánaðartima á
islandi til könnunar á ýmsum
málum. Er slik vettvangskönnun
fastur liður i framhaldsmenntun
fóiks, sem starfar aö skipulags-
málum á Norðurlöndum. Til-
gangurinn er að mennta fólk til
rannsóknarstarfa og hafa á hendi
rannsóknir á skipulagsmálum.
Standa Norðurlöndin að þessari
stofnun.
Þessi framhaldsmenntun
stendur i ár og eru þátttakendur
50 talsins hverju sinni. Þunga-
miðja námsins er þrjú mánaðar-
námskeið. Eru tvö þeirra i Stokk-
hólmi, en hið þriðja, vettvangs-
timinn, stendur annarsstaðar á
Norðurlöndum og að þessu sinni á
íslandi.
Vettvangstimann skiptast nem-
endur i 7 „gengi”. Hvert fyrir sig
kannar sérstakt viðfangsefni
varðandi islenskt þjóðfélag.
Hópurinn i heild miðar könnun
siha að þessu sinni við tengsl lifs-
skilyrða og skipulags.
Hin sérstöku viðfangsefni
gengjanna eru þessi:
— Gerð þjóðfélagsins i helstu
dráttum og gangur mála á
íslandi.
— Utanaðkomandi aðstæður
eða staðbundnar, sem ráða
þróun byggðarlaga' af ýmsu tagi.
— Samvinnufélög á Islandi.
— Kjör ungmenna og tækifæri i
einstökum byggðarlögum.
— Félagatengsl i byggðar-
lögum á Islandi.
— Breytingar á nýtingu
náttúruauðlinda.
— Lifshættir og gildismat I
byggðarlögum á Islandi.
Ekki er hugmyndin með starfi -
Nordplans á Islandi að koma með
sérstakar tillögur um aðgerðir til
lausnar á vandamálum einstakra
staða varðandi skipulag eða áætl-
anir. Hugsanlegt er hinsvegar að
þessi gestakoma gæti leitt til þess
að vandamálin yrðu rædd á
annan hátt en verið hefur.
Það er Björn S. Stefánsson.sem
milligöngu hefur um þetta mál en
hann gegnir þetta kennslumisseri
starfi prófessors við Nordplan.
Islensku nemendurnir i
hópnum eru: Geirharður Þor-
steinsson, arkitekt, Gunnar
Haraldsson, hagfræðingur hjá
Framkvæmdastofnun, Snorri
Tómasson, viðskiptafræðingur,
Helgi Bjarnason Selfossi, fram-
kvæmdastjóri Sambands sunn-
lenskra sveitarfélaga, Ingi-
mundur Magnússon, fyrrum
framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi og
Stefán Thors, arkitekt hjá Skipu-
lagsstjóra rikisins.
Eins og fyrr segir hefst vett-
vangskönnunin i Reykjavik
sunnudaginn 4. júni, og þar
verður staðið við til 8. júni.
A mánudaginn mun borgarhag-
fræðingur flytja erindi um
borgarmál, skipulagsstjóri um
skipulagsmál og Bjarni
Einarsson hjá Framkvæmda-
stofnun ræðir um landshluta-
áætlanir.
Á þriðjudaginn talar Jón
Sigurðsson hagrannsóknarstjóri
og kynnt verður saga
Reykjavikur eins og hún birtist i
byggingum i borginni.
Frá gæsluvellinum við Iðufell. Ljósm. Leifur.
Athugasemd viö
leikvallarfrétt
1 tilefni af frétt um „moldar-
hól” og „grjótgarð” á leiksvæði
við Iðufell, 27. mai sl.fvil ég
hvetja fréttamann Þjóðviljans
(cös), i samræmi við góðan á-
setning hans, til að sýna nokkur
dæmium gæsluvelli, sem eru með
þvi sniði, sem gæsluvöllurinn við
Iðufell hefði átt að vera.
Einkum væri forvitnilegt að sjá
dæmi um velli þar sem tekist
hefur verið á við flatneskjuna,
sem oft hefur rikt á leikvöllumj
eða dæmi um að efniviður náttúr-
unnar, gras og grjót, eru gerð að
„leiktækjum”, eða sýnt dæmi um
aö gerð hafi verið tilraun til að
breyta girðingu úr tilbreytingar-
lausri takmörkun á útsýni i hluta
af umhverfinu, eða það mætti
jafnvel sýna dæmi um að mishæð
á velli væri notuð til að lyfta sjón-
deildarhring barnanna upp fyrir
girðingu stund og stund.
Ég fer ekki fram á að dæmin
séu fullkomin, ef t.d. flisar eru i
girðingu, þá veit ég að það má
laga, eða ef hóll er of hár eða
brattur, þá má laga það. Ég fer
einungis framá að sjá dæmi um
að reynt hafi verið að breyta lág-
kúru I hvetjandi umhverfi!
Geirharður J. Þorsteinsson,
arkitekt.
Svar viö athugasemd.
Ég veit aðeins hvernig gæslu-
völlurinn við Iðufell er, en ekki
hvernig hann hefði átt að vera.
Þess vegna get ég ekki „sýnt
dæmi um gæsluvelli með þvi
sniði, sem gæsluvöllurinn við Iðu-
fell hefði átt að vera”.
Á hinn bóginn tel ég það vissu-
lega góðra gjalda vert, þegar
reynt er að gera leiksvæði barna
fjölbreytt og nýstárlegt, þvi allt of
lengi hefur hin dauða hönd van-
ans ráðið rikjum i skipulagi leik-
valla. En ekki fer á milli mála, að
þrátt fyrir góðan ásetning hafa
orðið mistök i skipulagi, eða út-
færslu þess, á gæsluvellinum við
Iðufell. Þau mistök ber að viður-
kenna og bæta úr svo fljótt sem
auðið er.
vettvangskönnun
Björn S. Stefánsson
A miðvikudaginn flytja full-
trúar frá stjórnmálaflokkunum
erindi um þjóðmál á Islandi.
Siðar um daginn sitja þátttak-
endur boð forseta Islands. dr.
Kristjárns Eldjárns, að Bessa-
stöðum og þar mun hann flytja
erindi um þjóðina I landinu á fyrri
tið.
A fimmtudag ræða svo fiski-
málastjóri og maður frá Hafrann-
sóknastofnuninni um fiskveiðar,
fiskistofna og nýtingu þeirra. Þar
með lýkur hinni sameiginlegu
dagskrá i Reykjavik.
Á föstudag verður farið til
Hveragerðis og Selfoss. I Hvera-
gerði verður rætt um ylrækt i'
smærri og stærri stfl. A' Selfossi
mun Hjalti Gestsson, ráðunautur
ræða um Selfoss sem miðstöö
31/5 — Þingi sambands rithöf-
unda I Austur-Þýskalandi lauk I
dag i Austur-Berlin með þvi að
sambandið hét Sósialiska eining-
arflokknum, valdaflokki lands-
ins, stuðningi og hollustu. Tals-
vert var fylgst með þingi þessu,
vegna þess að margir þekktir
austur-þýskir rithöfundar tóku
svari skáldsins og söngvarans
Wolfs Biermann, þegar hann var
gerður útlægur til Vesturlanda.
Einn þeirra, sem mótmæltu að-
félags-og þjónustustarfsemi fyrir
Arnessýslu. Kynnt verður starf-
semi Kaupfélags Arnesinga
Mjólkurbús Flóamanna og
Sláturfélags Suðurlands og Helgi
Bjarnason ræðir um atvir.numál
þorpanna i nánd við Selfoss.
Nú skilja leiðir. Sumir verða
eftir á Selfossi, aðrir halda niðui
i Litlu-Sandvik, þar sem Páll
Lýðsson mun kynna málefni
sveitahreppanna á Suðurlandi og
enn aðrir fara austur i Skóga-
skóla þar sem rædd verða mál-
efni Austur-Eyjafjallahrepps
einkum er varðar búskap of
skólamál. Þá verður og farið i
heimsóknir á sveitabýli. Þeir
sem eftir urðu á Selfossi, fart
undir kvöldið upp i Gnúpverja-
hrepp.
A laugardaginn verður viðdvöl i
þorpunum Hellu, Hvolsvelli og
Vik og þeir, sem voru á Selfossi
og i Gnúpverjahreppi fara að
Búrfellsvirkjun. Siðan er komið í
Gunnarsholt þar sem Stefán
Sigfússon sér um kynningu á
skipulagi landgræðslu, land-
verndar og graskögglafram-
leiðslu.
Siðan verður haldið að Kirkju-
bæjarklaustri og Höfn i Horna-
firði. Þar fer fram á vegum
Hafnarhrepps kynning á
kauptúninu. Samskonar kynning
fer fram á Djúpavogi. Þar verður
eitt ,,gengið”eftirum sinn, annað
dvelur i Breiðdal og þriðji
hópurinn verður á Stöðvarfirði.
Þá veröur komið við á Búðareyri,
Eskifirði og Mjóafirði. A þessum
slóðum verður dvaliö fram á
föstudag.
17. júni verður svo farið til
Norðurlands.
Mánudaginn 19. júni verður
kynning á Akureyrarbæ og full-
trúar frá atvinnurekendum og
förum stjórnarvalda við Bier-
mann, var Stephen Hermlin,
þekktur rithöfundur og kommún-
isti um langt skeið. Hann sat
þingið, en sumir aðrir, sem tekið
höfðu svari Biermanns, voru fjar-
staddir, að likindum i mótmæla-
skyni. Hermlin hélt á þinginu á-
fram gagnrýni sinni vegna út-
legðar Biermanns og sakaði i gær
ónefndan embættismann um lýð-
skrum og lágkúru i árásum á
Frh. á 14 síðu
verkalýðsfélögunum ræða kjara-
mál. Komið verður m.a. á Dalvik
og Ólafsfjörð.
A föstudagskvöld verður haldið
i Húnaver og rætt um Blöndu-
virkjun. Þar mætir maður frá
Orkustofnun, Helgi Hallgrimsson
náttúrufræðingur og alþingis-
mennirnir Páll Pétursson og
Pálmi Jónsson. Þá verður komið
á Blönduós og Skagaströnd og
loks endað i Reykjavik.
—mhg
Sjómanna-
dagurínná
Akranesi
Hátiðahöld Sjómanna-
dagsins á Akranesi hefjast
laugardaginn 3. júni kl. 13,
meðsundmóti i Bjarnarlaug.
Kl. 19.30 hef jast svo hátiða-
höld við höfnina með björg-
unaræfingu Björgunar-
sveitar Slysavarnafélagsins.
Kl. 20:30 fer fram kappróður.
Þar keppa skipshafnir, fyrir-
tæki og kvennasveitir.
Klukkan átta á sjómanna-
sunnudaginn: Fánar dregnir
að hún.
Kl. 10.00, Sjómannamessa
i Akraneskirkju. Sr. Björn
Jónsson messar og heiðrar 3
aldraða sjómenn. Gengið
verður úr kirkju að minnis-
merki drukknaðra sjómanna
á Akratorgi og lagður á það
blómsveigur.
Kl. 14.00 hefst skemmtun i
iþróttahúsinu. Þar fer fram
knattspyrnukappleikur,
reiptog og fleira verður til
skemmtunar.
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins verður með kaffi-
sölu i Slysavarnahúsinu við
Sunnubraut á sunnudag frá
kl. 15.00. Hlaðborð. Agóðinn
rennur til dvalarheimilisins
Höfða.
Haldnir verða tveir dans-
leikir. Verður annar að Hótel
Akranesi og hefst með borð-
haldi kl. 20.00. Avarp:
Fulltrúi útgerðarmanna,
afhending aflaverðlauna
Sjómannadagsins, ýmis
skemmtiatriði. Hljómsveit
Kalla Bjarna leikur fyrir
dansi.
Unglingadansleikur
verður i Rein. Tibrá leikur
fyrir dansi til kl. 2.00.
—mhg
Austurþýskir rithöfundar;
Herinlin ódeigur
gagnvart yfírvöldum
ÁSKORUN!
Kommúnistaflokkur íslands, m-1, skorar á
Alþýðubandalagið og Fylkinguna í kappræður um
málefni kosninganna
Ef Alþýðubandalagið og Fylkingin taka áskoruninni; verður af fundí
og óskast þá svar fyrir 10. júní.
Fundurinn fari fram i einhverju stóru samkomuhúsi i Reykjavík 10.-
20. júni.
Efstu menn á hverjum lista taki þátt i kappræðunum.
Allir aðiiar kappkosti hver i sinu málgagni að auglýsa fundinn á áber-
andi hátt.
Kommúnistaflokkur íslands,
marxistar-leninistar
—eös