Þjóðviljinn - 03.06.1978, Side 12

Þjóðviljinn - 03.06.1978, Side 12
12 SIÐA — WÓÐVILJINN Laugardagur 3. júnl 1978 NAMSSTYRKIR Sjóöurinn „GJÖF THORVALDSENSFÉLAGSINS” hefur þaö markmiö, aö sérmennta starfsliö stofnana fyrir van- heil börn, þ.e.a.s. dagvistarstofnana, vistheimila, sér- skóia og sérdeilda, þar sem eru afbrigöileg börn og ung- lingar til dvalar, kennslu og þjálfunar. Úr sjóönum er veitt fé til: A. náms innanlands, svo sem almennra námskeiöa fyrii tiltekna starfshópa undir handleiöslu sérfróöra manna B. náms erlendis I formi námsstyrkja til einstaklinga, ei stunda framhaldsnám I skólum erlendis. Þeir.sem njóta styrks úr sjóönum, skulu skuldbinda sig til aö vinna a.m.k. tvö ár hérlendis. Styrkur til þeirra, sem ekki fuilnægja téöri vinnukvöö, er endurkræfur. Umsóknir um styrk úr sjóönum skulu sendar undirrituö- um fyrir 25. júlf 1978, ásamt nauösynlegum upplýsingum um fyrirhugaö nám og þjálfun. Reykjavík, 31. mal 1978. Jón Sigurösson, Háuhliö 18, Reykjavik, formaöur sjóösstjórnar Gjafar Thorvaldsensfélagsins. Staða forstöðumanns fjármáladeildar Rafmagnsveitna rikisins er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa viðskipta- eða hagfræðimenntun eða starfsreynslu i stjórnun og meðferð fjármála. Laun sam- kvæmt launakerfi rikisstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til 23. júni. Nánari upplýsingar um starfið veitir raf- magnsveitustjóri rikisins. Rafmagnsveitur rikisins Laugavegi 116 Reykjavik. FRÁ SKÓLAGÖRÐUM REYKJAVÍKUR Innritun fer fram sem hér segir: 1 Laugardals- og Ásendagarða mánudag- inn 5. júni kl. 9-12. í Árbæjar- og Breiðholtsgarða sama dag kl. 1.30-4. Innrituð verða börn fædd 1966-1969, að báðum árum meðtöldum. Þátttökugjald, kr. 2000/- greiðist við innritun. Skólagarðar Reykjavikur Tökum að okkur smiði á eldhúsinnréttingum og skápum, þæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- ' umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum og vönum mönnum. Trésmíðaverkstæðið Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613 Blikkiðjan Ásgarði 7, Garöabæ Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468 Tveir ungir Borgnesingar Aöalfundur Kaupfélags Borg- firöinga var haldinn dagana 2. og 3. mai s.l. Mættir voru 68 full- trúar frá 18 félagsdeildum. i skýrslu stjórnarformanns og framkvæmdastjóra kom m.a. fram, aö afkoma félagsins var meö betra móti. Tekjuafgangur var kr. 11.640.807. Afskriftir námu samtals kr. 76.697.303. Heildarvelta félagsins var kr. 5.062.688.652. Reikningar K.B. gefa nú sem áöur takmarkaðar upplýsingar um rekstur einstakra deilda félagsins. Veröur þaö aö teljast furöuleg ihaldssemi hjá stjórn- endum félagsins aö gera ekki breytingar þar á þrátt fyrir að þetta hafi veriö gagnrýnt á hverjum aöalfundi i mörg ár. Tap hefur verið á mörgum af útibúum félagsins. I skýrslu framkvæmdastjóra er þessu lýst þannig: Akranes slæmt, Ólafsvik heldur ekki gott, Vega- mót slæmt, Hellissandur • viðunandi. Þá kom það fram, aö K.B. hafði gefið i afslætti i vöru- markaði og með tilboði mánaðarins um 10 milj. kr. Tilboð mánaðarins er tvimæla- laust góð ákvörðun hjá sam- vinnuhreyfingunni og má ætla, að slikar aðgerðir glæði áhuga á félagsverslun. Þó er ástæða til að gagnrýna hversu mikið rúm innfluttar vörur hafa skipað á þessum vörupöllum. Að sjálf- sögðu ætti samvinnuhreyfingin að gefa fyrst og fremst afslátt af innlendum vörum og glæða með þvi sölu þeirra, sem um leið styrkti islenskan iðnað. Kaupfélagið haföi á s.l. ári staðið i miklum fram- kvæmdum, svo sem oftast áður. Samtals var varið til fram- kvæmda 244 milj. kr. og var bygging Mjólkursamlagsins lang stærsta framkvæmdin. Til hennar var varið 104,9 milj. kr. Verulegar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á þessu ári. Úr stjórn félagsins áttu að ganga Magnús Sigurðsson, Gils- bakka og Magnús Kristjánsson, Norðurtungu, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Kosningu hlutu Magnús Sigurðsson með 64 atkv. og Jakob Jónsson, Varmalæk með 26 atkv. Jakob hafði áður verið varamaður. Varamaður i stjórn i hans stað var kosinn Kristján Axelsson, Bakkakoti. Fulltrúar á aöalfund SIS voru kjörnir þeir Daniel Kristjánsson með 52 atkv., Magnús Sigurðs- son með 38 atkv., Gunnar Guðbjartsson með 31 atkv. og Guðmundur Ingimundarson meö 29 atkv. Fulltrúar á aðalfund Mjólkur- samsölunnar: Guðmundur Þorsteinsson, Jón Guðbjörnsson og Bjarni Guðráðsson. Þessi aðalfundur K.B. var með daufasta móti, umræður um skýrslu stjórnar og reikn- inga félagsins urðu mjög litlar. Svo var einnig um hin ýmsu mál, sem fram komu á fundinum, þó að undanskildu áliti millifundanefndar um félagssvæði K.B. Um það mál urðu nokkrar umræður, sem lauk þannig, að félagssvæöið var ekki afmarkað, svo opinn er nú að öllum likindum möguleiki á nýjum félagsdeildum i tengslum við þau útibú, sem rekin eru utan við núverandi félágssvæði. Einhver merkilegasta til- lagan, sem fram kom á fundinum, er án efa tillaga Gunnars Guðbjartssonar um að athuga möguleika á að verð- tryggja stofnsjóð félagsmanna. Samkvæmt lögum þarf leyfi Seðlabanka Islands til þess, svo ekki er ljóst hvernig það mál fer. Einnig var samþykkt á fundinum tillaga um að fela stjórn félagsins, að beita sér fyrir þvi við Byggðadeild Fram- kvæmdastofnunar rikisins, að gerð verði áætlun um uppbygg- ingu atvinnulifs á félags- svæðinu. Þarna er án efa hreyft mjög merku máli. Ljóst má vera, að ef ungt fólk i dreifbýlis- hreppum á félagssvæðinu á að hafa möguleika á atvinnu i heimahéraði, þurfa nýjar at- vinnugreinar að koma til. Land- búnaðarframleiðslan, i þeirri mynd, sem hún er i i dag, tekur ekki við þeirri fjölgun, sem verður á næstu árum. Röðull bendir þeim, sem áhuga hafa á þessum málum, á grein, eftir Þórunni Eiriks- dóttur, sem birtist i Vestur- landsblaðinu 1. mai s.l. 1 Kaupfélagi Borgfirðinga voru um siðustu áramót 1239 félagsmenn og litil fjölgun hefur orðið á siöustu árum. Það er mjög brýnt að gera átak i fjölg- un félaga og einnig aö vekja áhuga félagsmanna á málefn- um félagsins. Röðull hvetur alla félags- hyggjumenn, sem nú standa utan við K.B. að gerast félagar, og alla félaga til að sýna mál- efnum kaupfélagsins áhuga og taka virkan þátt i félagslegu starfi þess. Með þvi gerum við gott kaupfélag betra. (Heim.: Röðull). —mhg Nýtt sumarhús aö Svignarskardi Borgfiröingafélagiö, sem starfaö hefur meö miklum myndarbrag undanfarin ár, mun þann 17. júnl n.k. taka i notkun sumarhús, sem félagiö hefur reist I landi Svignaskarös. Þar veröur um að ræða óformlega vigsluhátið og munu félagsmenn reyna að fjölmenna þar þennan dag. Ekki verður ánægjan minni hjá þeim, sem lengra eru að komnir, ef heima- menn héðan úr héraöi láta sjá sig þar þennan dag. Formaður Borgfirðingar félagsins er Svavar Kærnested. (Heim.: Röðull) —mhg Umsjón: Magnús H. Gislason Frá aöalfundi Kaup- félags Hornfirdinga Heildarvelta kr. 5.062.688.652 Huppa mjólkar vel 1 mai mjólkaöi Huppa á stöðvar mjólkurverðsins verða Brúnastöðum 422 ltr. Eydis Einarsdóttir, sem vann i sam- keppni Mjólkurdagsnefndar, fær þvi fyrir mjólkurinnleggið i mái kr. 50.640.-. Samtals hefur hún þá fengiö kr. 108.480,-. Félagsbúiö á Brúnastöðum fær aftur á móti fyrir sama mjólkurmagn lagt inn hjá Mjólkurbúi Flóamanna i mai- mánuði kr. 34.456,-. Þá hefur verið dreginn frá flutnings- kostnaður til búsins. Eftir- greiddar einhverntima á næsta ári. Þá verða dregin frá ýmis sjóðagjöld. Það getur orðið þó- nokkur upphæö, þar sem útlit er fyrir að bændur verði að greiða með útfluttum mjólkurvörum. Fóðrið handa Huppu kostaði i mai kr. 16.500,-, en hún fékk 150 kg af fóðurblöndu og 290 kg af þurrheyi. (Heim.: Uppl.þjón.landb.) —mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.