Þjóðviljinn - 03.06.1978, Blaðsíða 16
Samtök herstöðvaandstæðinga efna til Kef lavík-
urgöngu laugardaginn 10. júní n.k. Gengið verður
frá Aðalhliði Kef lavíkurf lugvallar og að Lækjar-
torgi, með viðkomu í Kúagerði, Straumi, Hafn-
arfirði og Kópavogi. Á þessum stöðum verða
haldnir stuttir fundir með fjölbreyttu efni.
0 Þeir sem ætla að taka þátt í göngunni, eru
beðnir að skrá sig í síma 83368, 29845, 29863,
29790 eða 29896, en í þessum símum eru einnig
veittar upplýsingar um gönguna.
£ Æskilegt er að sem flestir taki þátt í undir-
búningi göngunnar og eru menn þvi hvattir til
aðgerast sjálfboðaliðar og hafa samband við
skrifstofuna strax, eða hringja i áðurnefnd
simanúmer.
$ Skrifstofa samtaka herstöðvaandstæðinga,
Tryggvagötu 10, er opin f rá 10 til 21 alla virka
daga.
Vopnahlé í
Herstöðvaandstæðingar,
takið virkan þátt í
baráttunni.
Með þátttöku fjöldans
er sigurinn vís.
ísland úr Nato — Herinn burt
Grjótaþorpi
KEFLAVIKURGANGA 10. jjúnl
Cthlutunarnefndin frá hægri: ólafur B. Thors, Thor Vilhjálmsson og Kndtur Hallsson. Þeir sem laun
hlutu: Niels Hafstein, Bragi Asgeirsson, Manuela Wiesier, Þórhur Hall, Kristján Davlösson og Pétur
Gunnarsson. A mvndina vantar óiaf Lárusson. (ljósm. —eik—)
7 hljóta nú starfslaun
Starfslaun listamanna fyrir ár-
iö 1978 hafa nú veriö veitt eftir-
töldum mönnum: Kristjáni
Daviössyni, myndlistarmanni til
12 mánaöa, Braga Asgeirssyni,
myndlistarmanni til 9 mánaöa,
my ndlistarmönnunum Nielsi
Hafstein Steinþórssyni, Ólafi
Lárussyni og Þóröi Hall, tónlist-
armanninum Manuelu Wiesler
Ilermóösdóttur og rithöfundinum
Pétri Gunnarssyni, ölium til 3ja
mánaöa.
Úthlutunarnefnd skipuöu Ólaf-
ur B. Thors, Thor Vilhjálmsson
og Knútur Hallsson, en hann var
formaður nefndarinnar. Sagði
Knútur er starfslaunin voru veitt,
aö upphæðin sem ætluð er til
starfslauna listarnanna á fjárlög-
um væri ófullnægjandi, en hún er
nú 6,5miljónir. Alls sóttu 54 lista-
menn um starfslaun að þessu
sinni, en launin eru miðuð viö
byrjunarlaun menntaskólakenn-
ara. Sagöi Knútur ennfremur að
koma þyrfti á fót starfslaunasjóð-
um við hinar ýmsu listgreinar.
Itrekaöi Thor Vilhjálmsson þetta
sjónarmiö, enda væri hér um laun
en ekki styrki að ræða. Sagði
hann úthlutunarnefndina vera
sammála um að hækka þyrfti
verulega fjárveitingu til starfs-
launa listamanna, en reglur um
starfslaunin voru settar árið 1969
og hefur verið veitt fé á fjárlögum
árlega siðan til þeirra.
þs
Bæjarstjórnin
á ísafírdi:
Likur á
nýjum
mein-
hluta
Eftir þaö afhroð sem Sjálf-
stæöisflokkurinn galt I bæjar-
stjórnarkosningunum á sunnudag
tel ég fráleitt aö þeir veröi áfram
i meirihlutasamstarfi hér, sagöi
Aage Steinsson bæjarfulltrúi á
isafirði I samtali viö Þjóöviljann i
gær.
Mér þykir llklegt að vinstri
flokkarnir myndi meirihluta að
þessu sinni. 1 gær var fyrsti bæj-
arstjórnarfundurinn og þá var
frestað kjöri i allar nefndir og ég
geri ráð fyrir þvi að J-listinn og A-
listinn séu nú að ræða sin á milli.
Þeir hafa gefið i skyn, að síðan
muni þeir leita til Alþyðubanda-
lagsins og Framsóknarflokksins,
sagði Aage. Undanfarin 4 ár hafa
myndað meirihluta á Isafirði 4
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og 3
fulltrúar af sameiginlegum lista
Alþýðuflokks og SFV sem boðinn
var fram 1974.
—GFr.
Vopnahlé rikir nú i
Grjótaþorpi, en eins og
kunnugt er stöðvuðu íbúar
þar framkvæmdir Þorkels
Valdimarssonar á lóð hans
bak við Fjalaköttinn við
Bröttugötu.
Gert var samkomulag
milli íbúanna og Þorkels,
um að Þorkell legði stétt
meðfram Fjalakettinum
baka til, en afgangur lóð-
arinnar yrði fenginn íbú-
um þorpsins til ráðstöfun-
ar. Þorkell mun leggja til
allt efni túnþökur og ann-
að, en ibúarnir sjá um
vinnuna alla.
Þetta samkomulag er þó háð
samþykki borgarráðs um aö
borgin greiði fasteignaskatta af
þeirrispildu sem ibúasamtökin fá
til ráðstöfunar, en sú upphæð mun
vera nærri 150 þúsund krónum.
Jón G. Tómasson, sem nú gegnir
embætti borgarstjóra lýsti þvi
yfir viö deiluaðila, að hann myndi
leggja til aö borgarráð samþykkti
þetta, og verður málið væntan-
lega tekið fyrir á borgarráðsfundi
næsta þriðjudag.
Einn ibúa Grjótaþorpsins Friða
Haraldsdóttir, sagöi i samtali við
Þjóöviljann i gær, að menn væru
að vonum ánægðir með þessi úr-
slit mála, en meðan beðið er eftir
samþykki borgarráðs verður
ekkert gert á lóðinni.
Við höfum hins vegar fullan hug
á þvi að drifa i framkvæmdum
strax og borgarráð hefur lagt
blessun sina á samkomulagiö,
sagði Friða.
—AI
'.rwiwj.
’ * Sp
> v. U * ,' ^ • ' vt -
Gamla Sjálfstæöishúsiö viö Austurvöll var reist áriö 1874 og þar var
fyrsti húsmæðraskólinn á landinu. Nú hefur þaö veriö múrhúöaö, svipt
skrautiog augnstungiöeins ogsésthér. (Ljósm.: Leifur)
A horni Túngötu og Garöastrætis er gamall skrúögaröur aö veröa aö
engu og hugmyndir eru nú uppi um aö gera hann aö bdastæði. Þar stóö
áöur fallegt timburhús sem eigandinn lét rffa niöur aö ástæöulausu. A
myndinni á spjaldi ibúasamtaka Vesturbæjar er fjölskylda Þóröar
Thoroddsens læknis úti i garöi fyrir framan hiö fagra hús sitt fyrr á
öldinni.
Þarft framtak
íbúasamtök Vesturbæjar setja upp spjöld
vid gömul hús og garða
ibúasamtök Vesturbæjar hafa
sett upp spjöld á nokkrum stöö-
um til aö minna Reykvikinga á
umhvcrfisverðmæti I gamla
bænum undir einkunnaroröun-
um Aö fortiö skal hyggja er
framtiö skal byggja.
Spjöld þau sem komin eru upp
eru á þremur stöðum i bænum
og 70x80 sm aö stærð. Eitt
þeirra er viö gamla Sjálfstæðis-
húsið við Austurvöll meö mynd
af húsinu eins og þaö var fyrir
aldamót til aö sýna fram á
hvernig það hefur veriö eyði-
lagt. Annað er við Túngötu 5
sem sýnir gamla mynd af garð-
inum sem nú hefur verið gerður
að bilastæði og húsiö þar sem
það er upp á sitt besta en nú
hefur það verið „augnstungið”
og eýðilagt á annan hátt. Þriðja
spjaldið er i garðinum á horni
Túngötu og Garðastrætis sem
nú er i mikilli niðurniðslu og
ætlunin tír að leggja undir bila-
. stæði. Fallegt hús sem þar stóö
er nú rifiö. —GFr.
Garöur Magnúsar Einarssonar dýralæknis stóö lengi meö miklum
bióma. Nú er þar bilastæöi og veriö aö ganga aö þeim trjám sem eftir
eru dauöum. Húsiö er lika skemmt.
DWÐVIIJINN
Laugardagur 3. júni 1978
Aöalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná I blaðamenn og aðra starfs-
menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-
skrá.