Þjóðviljinn - 09.06.1978, Page 8

Þjóðviljinn - 09.06.1978, Page 8
ÆSKULYÐSBLAÐ 8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN I kulda og trekki Blaöamaöur stendur á Lækjar- torgi meö tilskipun I vasanum upp á aö hafa viötöl viö ungt fólk i atvinnulífinu. Köld rigning hellist skyndilega yfir og nú eru góö ráö dýr. Hamarshögg berst yfir torg- iö úr stórri nýbyggingu aö norö- anveröu við þaö. Þar stóöu áður Hilmar Haröarson: Fær borgaö 70% af fullri uppmælingu. gömul timburhús svo sem Hótel Hekla og Smjörhúsiö. Blaöamaö- ur tekur til fótanna og skýst inn i bygginguna. Þar eru margir menn við vinnu i dragsúgi og hrá- slaga. Ungir menn I atvinnulifinu. Uppi á efstu hæð eru tveir þeirra aö slá innan úr stigagangi. Þeir eru Hilmar Haröarson, 18 ára tré- smiðanemi á 1. ári, og Gunnar Þóröarson, 24 ára trésmiöanemi á lokaári. Báöir fást þeir til aö eiga oröaskipti viö blaðamanninn þrátt fyrir trekk og kuldaregn. Hilmar, sem er nýbyrjaöur aö læra trésmiði er spuröur hvernig honum iiki I henni. — Það er ágætt aö vinna í þessu. — Hvernig eru kjörin? — Ég fæ 70% af fullri uppmæl- ingu sem nemi. — Og geturðu lifaö af þvi? — Já, ég bý i foreldrahúsum og kemst sæmilega af enda er ég ekki mjög eyðslufrekur. — Þú ert ekki farinn aö leggja peningana i neitt fast? — Nei, ekki enn sem komið er. — Hvernig finnst þér að búa i Reykjavik? — Það er ekki verra en annars staðar. — Ferðu mikið út aö skemmta þér? Gunnar Þóröarson var aö hamast viö aö rifa mótatimbur innan úr stigagangi i gjóstri og slyddu rigningu. (Ljósm.: GFr.) 1 i * h Wmm\ \M \ Wm j Viðtal við trésmíða- nemana Hilmar Harðarson og Gunnar Þórðarson — Svona þegar tækifæri gefst. Nú er blaðamaðurinn eiginlega allur kominn í herðarnar enda vanari innisetum heldur en kuldavinnu utan dyra. Hann snýr sér að Gunnari. — Ert þú fjölskyldumaður? — Nei ég er einhleypur. — Hvernig gengur aö lifa? — Það gengur sæmilega þar af leiðandi. — Attu Ibúö? — Ég er að kaupa einstaklings- ibúð I blokk hjá Einhamri. Hún er að verða tilbúin. — Þarftu þá ekki aö vinna mik- ið? — Ég vinn svona að meöaltali 10—12 tima i eftirvinnu á viku og oft um helgar. — Er ekki lýjandi aö vinna svona mikiö? — Það er rólegt yfir vetrar- timann en nú er nóg að gera og ég er ánægður með það. — Áttu bil? — Nei. Nú er regnið farið að lemja handrit blaðamannsins og einn og einn sultardropi dettur lika á það. Þar að auki lemjast þau til og frá vegna dragsúgsins svo að hann þakkar fyrir sig skjálfandi af kulda og tekur á sprett. —GFr. Sómi íslands... Fallegar, vandaðar og hentugar innréttingar frá JP eru eins og svo margur annar innlendur iðnaður sannkallaður ,,sómi ís- lands”. Við bjóðum þér upp á 21 möguleika á útliti og verði. Það er þitt að velja en við erum ávallt til þjónustu reiðubúnir ef þú þarf t á aðstoð að halda. Að þessu sinni bendum við sérstaklega á klæðaskápa og gull- fallegar innihurðir, auk þess sem við minnum að sjálfsögðu á eldhúsinnréttingarnar, sem hafa farið sannkallaða sigurför um landið sið- ustu mánuðina. ddhús fataskápar ^ baðskápar C sólbekkir iájwg|i inmhuiðir Bflzr viöarklæðningar Líttu við, skoðaðu úrvalið! Gleymduekkiað við höfum bæðireynsluna.... ogfagmennina. JP innréttingar Skeifan 7 - Reykjavík - Símar 83913 — 31113

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.