Þjóðviljinn - 09.06.1978, Side 9

Þjóðviljinn - 09.06.1978, Side 9
ÆSKULVÐSBLAÐ ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Þykir ópraktí skt! — Fólki finnst þaö alveg stór- undarlegt aö kona i svona góöri stööu, eins og þaö segir, skuli vera aö fara i myndlistaskóla, sagöi Anna Hlööversdóttir hjúkrunarfræöingur og nemandi i Myndlista- og handiöaskólanum. — Mig hefur alltaf langaö til aö fást við myndlist frá þvi að ég man eftir mér, og finnst það miklu skemmtilegra en að starfa sem hjúkrunarfræðingur.Þess vegna fór ég i þennan skóla i fyrra og er nú á öðru ári, i textil. Þegar ég segi fólki að ég sé i skóla, segir það yfirleitt: „Nú, já, þú ert i öldungadeildinni.” Það er nefnilega alveg gengið út frá þvi visu að maður sé þar, segist - maður vera i skóla og er kominn af svokölluðum skólaaldri, eða er ekki i einhverju langskólanámi. _ Hvaö finnst fólki svona undar- legt viö aö þú skulir vera i þessum skóla? — Jú, sjáðu til, þetta þykir svo skelfing ópraktiskt nám- Engin örugg atvinna eða tekjúr. Og þó margt sé t.d. skylt með tónlistar- og myndlistanámi þá þykir það miklu skiljanlegra að fólk fari i tónlistarskóla. Það er vegna þess að þar er kennslan miklu hefö- bundnari og fólk fær yfirleitt fasta vinnu að námi loknu, við kennslu o.þ.h. — En hér i skólanum er lika fólk að læra til kennslu, er þaö ekki? — Jú, jú, það er kennaradeild hérna og út i frá er lika borin miklu meiri virðing fyrir henni ásamt auglýsingadeildinni en öðrum deildum skólans. Þær eru nefnilega i hugum manna deildir sem gefa eitthvað i aðra hönd. —Hvaö fara myndlistanemar yfirleitt aö gera aö loknu námi? — Það er nú afar misjafnt, en yfirleitt fer ekki nema helm- ingurinn af fólkinu, sem kemur út úr þessum skóla, að starfa við það sem það hefur veriö að læra. —Hvernig likar þér skólinn? — Mér likar satt að segja miklu betur við námið en ég bjóst við i upphafi.En það sem fyrst og fremstháir þessum skóla er allt of þröngt og óhentugt húsnæði. Deildirnar verða allt of ein- angraðar, þar sem við erum hér eiginlega i tveim húsum, á fimm hæðum. Annars finnst .mér þetta mjög góður skóli, og ég er mjög ánægð . með að hafa farið i betta nám. -IGG Anna Hlöðversdóttir. Að vera í byggingasamvinnufélagi Rætt við Ingveldi Þor- kelsdóttur, ritara Blaöamaður Þjóöviljans geng- ur varlega upp á loft i gömlu húsi viö Tjarnargötu. Pikk, pikk, pikk... þar skellur viö hlustum taktfast ritvélarhljóö. Hann bankar kurteislega i öxlina á ungri konu, sem næst situr, og fær glapið hana inn i eldhús til aö for- vitnast um hagi hennar og lifs- striö. Hitt fólkið heldur áfram aö pikka en blaöamaöurinn fær skyndikaffi — þrátt fyrir ósvifn- ina. Unga konan heitir Ingveldur Þorkelsdóttir, 25 ára gömul, og leysir fúsiega úr spurningum. — Hver er vinnustaðurinn og hvaö gerir þú? — Þetta er Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar og ég er ritari hér, sé um launagreiðslur til kvenna sem starfa hjá heimilis- hjálpinni og reikninga til þeirra sem hennar njóta. — Ert þú f jölskyldumann- eskja? — Já, ég bý með Gunnari Þor- steinssyni bilstjóra hjá ölgerð Egils Skallagrimssonar og á eina dóttur, Elvu Dögg 5 ára. — Leigið þiö eöa búiö i eigin húsnæöi? — Við erum að byggja i Bygg- ingasamvinnufélagi Kópavogs og fáum 3ja herbergja ibúð I blokk afhenta i haust. A meðan erum við i leiguhúsnæði. — Hvernig skilmálum gangið þiö aö i sliku byggingasamvinnu- félagi? — Við borguðum fyrst stofn- framlag, sem var um 1300 þúsund krónur i júni i fyrra og siðan fast- ar mánaðargreiðslur. Þær eru hjá okkur 110 þúsúnd krónur á mánuði og að lokum borgum við eitthvert jafnaðargjald vegna hækkana á byggingakostnaöi. — Vinniö þiö bæði fullan vinnu- dag? — Já, og auk þess vinnur Gunni mikla eftirvinnu. Það er algengt að hann komi kl. 8-9 á kvöldin heim. — Þurfiö þið aö borga háa húsaleigu? — Nei, við erum svo heppin að vera ekki á hinum almenna leigu- markaði. Við leigjum ibúð hjá móður Gunna svo að leigan er hagstæð. ár erum við komin yíir hann. Þá eru bara stóru lánin eftir. — Hvar hefuröu litlu dótturina meöan þú ert i vinnu? — Hún er hjá dagmömmu af þvi að það er ekki hægt að koma henni á dagheimili. En hún er á- nægð hjá dagmömmunni. — Eigið þiö einhverjar tóm- stundir? — Það er ekki mikill timi fyrir þær. Gunni er að vinna svo lengi fram eftir á kvöldin og ég verö þá að sjá um húshaldið. — Ætlar þú aö vinna áfram á skrifstofu? — Eg var hálfnuð með öld- ungadeild menntaskólans við Hamrahlið en varð að hætta vegna húsnæðiskaupanna. Ég vonast til að geta byrjaö aftur næsta haust en veit ekki hvort það verður hægt, það eru svona draumórar. En ég er ákveðin i aö halda áfram þó að siðar veröi. —GFr Ingveldur Þorkelsdóttir hlakkar til aö komast I nýju ibúöina i haust. (Ljósm.: GFr) — Hvernig fóruö þiö aö þvi aö borga stofnframlagið? — Gunni átti bil sem hann gat selt og einnig rétt á lifeyrissjóðs- láni. Þannig gátum við klofið það. — Ætli það sé ekki einhver hag- stæöasti byggingamátinn aö vera i byggingasamvinnufélagi? — Jú, ég býst við þvi. Hins veg- ar er biðtiminn 2 ár i þessu félagi sem við erum i. — Veistu hvað greiðslurnar eru háar fyrir þá sem byrja núna? — Já, stofnframlagið er orðið 1900 þúsund krónur og mánaðar- greiðslur 190 þúsund á mánuði fyrir þriggja herbergja ibúð i blokk. — Er þetta ekki dálítið erfitt? — Okkur er ekki vorkunn að þvi leyti að við getum bæði unnið úti og klofið þetta á þann hátt. Við getum hins vegar ekki leyft okkur allt og þetta er ekki auðvelt. Erf- iðasti timinn eru 3 ár. Eftir rúmt X-G Islensk gæðaframleiðsla! d | J i \ Fífa er fundin lausn Auðbrekku 53, Kópavogi. Sími 43820. Fifu skáparnir ert^andaöiMaUegi^ódýri^j^Tentí^iva^erT^er^^ Fifu skaparnir eru islensk framleiösla. Þeirfástiþremviöartegundum, hnotu, álm og antikeik. Haröplast á boröplötur i mörgum fallegum litum allt eftir yöar eigin vali. Komiö og skoöiö, kynniö ykkur okkar hagstæöa verö. Látiö okkur teikna og fáiö tilboö. Fifa er fundin lausn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.