Þjóðviljinn - 09.06.1978, Síða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
ÆSKLLÝDSBLAÐ
„Skakið er lang-
skemmtilegast”
— SkakiB er langskemmtileg-
ast, það er svo f jörugt, og svo fær
maður líka mest út úr þvl
peningalega. Maður getur fariö i
100.000 kall á dag og þaö er nú
ekkert smotterí. Annars getur
lika verið mjög gott að hafa á
loðnunni og togurunum.
Ertu ekkert sjóveikur?
— Það er bara rétt fyrst, svo
lagast þetta og maður sjóast með
timanum.
Eruð þið félagar allir búnir að
fá skiprúm I sumar?
— Já, já, tveir okkar eru búnir
að fá pláss á fragtskipum hjá
Eimskip og hinir þrir fara á tog-
ara.
Er ekkert erfitt að fá piáss?
— Jú, að er alveg svakaleg
ásókn á skipin, sérstaklega á
sumrin, og yfirleitt ganga Stýri-
mannaskólanemar fyrir með
plíss, að minnsta kosti á fragt-
skipunum.
Ætlar þú I Sjómannaskólann?
— Já, ég er ákveðinn i þvi. Þaö*
þýöið ekkert annað en að ná sér I
einhver réttindi ef maöur ætlar aö
vera eitthvað I þessu.
Hvort ætlarðu I Stýrimanna-
skólann eöa Vélskólann?
— Ég ætla I Stýrimannaskól-
ann, og helst I farmanninn.
—IGG.
órn Ægir Ragnarsson.
Við erum að koma af höfninni.
Maður fær sér oft göngutúr þang-
að tii aö kikja á skipin, maður er
alltaf að hugsa um þetta.
Þeir eru áhugasamir strákarn-
ir í sjóvinnudeild Hagaskólans og
nú er það örn Ægir Ragnarsson
úr Reykjavík, sem hefur oröið.
A hvernig veiðum er mest gam-
an að vera?
Kjörgarði, Laugavegi 59
Simar: 16975 og 18580
Auk þess að vera
með verslunina
fulla af
húsgögnum,
höfum við tekið
upp hentugar
tækifærisgjafir.
.......
►íSr
Portúgalskar
styttur í miklu
og fjölbreyttu
úrvali.
Eigum t.d. vínborð,
blaðagrindur, smáborð
og margt fleira.
Komið eða hringið.
Sendum í póstkröfu.
Helena Jónsdóttir
Hún spilar
fótbolta
í frístundum
Stundum hefur heyrst að ts-
lendingar séu ekki aðeins mesta
Prins-Pólóætur I heiminum held-
ur einnig mesta gosdrykkjaþjóð-
inenda þarf að skola kexinu niöur
með einhverju. A árinu 1973 voru
t.d. framleiddar 13 miljónir litra
af gosdrykkjum i landinu. Við
gosdrykkjaframieiðslu i landinu
vinna um það bil manns.
Þjóöviljinn ákvað þvi að forvitn-
ast um hag verkafólks sem vinn-
ur við þennan iðnað. Við lögðum
leið okkar i ölgerðina Egil
Skallagrimsson og hittum fyrst
Helenu Jónsdóttur, 17 ára. Helena
framlciðir appelsinusafa (djús)
ofan i þjóðina.
— Hvað ert þú búin að vinna
hér lengi Helena?
— Ég hef starfað hér i tæpt ár
og likar ágætlega.
— Þú ert ekki með eigin fjöl-
skyldu er það?
— Nei, nei, ég bý heima hjá
pabba og mömmu og hef ekki hug
á að hverfa þaðan I bráð, enda fer
ég i Menntaskólann við Hamra-
hlið næsta haust og þá er ágætt
að þurfa ekki aö standa alveg á
eigin fótum.
— Hvernig veröu fritima þin-
um?
— Ég hef nú nóg af áhugamál-
um. Ég spila t.d. oft fótbolta, les
mikið og fer oft I bló.
— Fótbolta segirðu, er ekki
óvenjulegt að stelpur spili fót-
bolta?
— Nei þaðheld ég ekki. Hér áð-
ur fyrr var þaö sjaldgæfara en
siðustu árin hafa vinsældir þess-
arariþróttar aukisthjá kvenþjóð-
inni og ég hald að viö séum engir
eftirbátar karlmannanna að
þessu leyti.
— Hvers konar bókmenntir
lestu aðallega?
— Ég ies aóaiiega 'bækur sem
eru eitthvað fræðandi, annars má
segja að ég sé alæta á bæði bók-
menntir og kvikmyndir.
— Hvar geta unglingar undir
tvitugu, þ.e. vinveitingaaldrin-
um, komist á dansleiki?
— Það má segja hvergi, alla
vega ekki við sem erum ekki i
skóla, en þar eru haldin böll við
og við. Ég held að þaö sé mjög
brýnt að koma upp einhverjum
stað fyrir okkur þar sem hægt
væri að hlusta á tónlist og dansa
en ráöakallarnir viröast ekki hafa
mikinn skilning á þessum þörfum
okkar.
— Að kikurn Helena. Kviðir þú
ekki að þurfa að fara að standa á
eigin fótum og fá þér húsnæði?
— Nei, ég kviði ekki fram-
tiðinni. Annars hef ég ekki mikið
hugsað út i þetta vandamál ungs
fólks að koma yfir sig þaki á Is-
landi, en vafalaust kemur að þvi
að ég lendi I þessu vandamáli.
—Þig.
Er
sjonvarpió
bilaó?
Skjárinn
S)dnvarpsvt?r)?sí®5i
Bengsíaáasínsíi 38
simi
2-1940