Þjóðviljinn - 24.06.1978, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 24.06.1978, Qupperneq 5
Laugardagur 24. jiinl 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Ósannindi afhjúpuð Morgunblaðið hefur haldið fram ýmsum mjög alvarlegum rangfærslum i sambandi við kjaramál borgarstarfsmanna eftir að nýi meirihlutinn tók við völdunum í Reykja- vík. Þjóðviljinn telur unnt og nauðsynlegt að hrekja þessi ósannindi íhalds- blaðanna og bendir á eft- irfarandi atriði: 1.1. júli hækkar vaktaá- lag starfsmanna Reykja- víkurborgar úr kr. 391 í kr. 417 á kvöldin, en úr 527 í kr. 563 á nóttunni og um helgar. 2. Kaup langflestra borg- arstarfsmanna hækkar þegar frá 1. júlí um 4.000 kr. eða svo til viðbótar við verðbótaviðaukann. 5. launaf lokkur, efsta þrep er 170.899 á mánuði, en verður 174.706 fyrir til- verknað nýja meirihlut- ans. Kaup í 10. launa- flokki 3. þrepi 199.794 kr. á mánuði en verður 203.601 kr. Mánaðarlaun í 15. launaflokki er 233.056 kr. en verður 236.865 kr. Mánaðarlaun í 20. launa- flokki eru 266.368 en verða 270.179 kr. 3. Sérstök hækkun verður á yf irvinnuálagi. í 5. launaflokki efsta þrepi fer launahækkunin úr 1.582 kr. á tímann í 1.747 kr. á tímann. 10. launa- flokki efsta þrepi verða launin 2.036 kr. á tímann en voru 1.905 kr. á tím- ann. í 15. launaflokki eru launin 2.278 kr. á tímann en verða 2.369 kr. og í 20. Ifl. fara launin fyrir yfir- vinnu á tímann úr 2.651 kr. í 2.702 kr. 4. Því er haldið fram í Morg unblaðinu að Reykjavíkurborg greiði þá fyrst fullar vísitölu- bætur þegar kaupráns- lögin eru runnin úr gildi. Það er ekki rétt. Kaup- ránslögin gera ráð fyrir áf ramhaldandi skerðingu launamanna til 28. febrú- ar á næsta ári, en kaup- skerðingin verður að fullu horfin hjá öllum starfsmönnum Reykja- víkurborgar f rá og með 1. janúar, en tekið skal fram að það eru aðeins þeir allra hæstu sem þurfa að búa við kaup- skerðingu fram til ára- móta. Nær allir hafa fengið kjaraskerðinguna að fullu bætta miklu fyrr og helmingur borgar- starfsmanna frá 1. júlí, þe. allir félagsmenn Dagsbrúnar, Sóknar og Framsóknar, sem eru um 2.500 talsins. Herinnburt Daniel Danlelsson læknir. Þegar aöild aö NATO var á döf- inni veturinn 1948—1949 geröi þorri íslendinga sér þess enga grein, aö sú aöild mundi hafa I för meö sér hersetu I landinu á friöartimum. Yfirleitt treysti fólk svardögum st jórnm álam anna sem hinu gagnstæöa. Ýmsir natðsinnar hrukku þó viö 1951, er bandariskt herliö settist hér að að nýju. Flestir sættu sig þó fljótt við skýringar valdhafa. Siðan hefur vitundin um þá óhugnanlegu staðreynd að Nato- aðild fylgi hernám, verið að siast hægt og hægt inn i hug þessa fólks. — Svo hægt, aö ekki hefur nægt til að reisa gáru á haffleti til- finningalifs þess. Hernám hugans varð algjört og sem i dásvefni voru nöfn rituð á VL-lista. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hernámssinnar islensk- ir skiptast i tvo skýrt afmarkaða hópa. Annars vegar eru heit- trúarmennirnir sem fram ganga i eins konar hugsjón og mynda sér- trúarsöfnuð þann sem liturNató og hlutverk þess sömu augum og krossfarariddarar miðalda litu köllun sina. Þessir menn eru yfir- leitt auðtrúa sveimhugar gæddir rikri þjónustuhneigö og auðmýkt gagnvart þeim sem meiga sin. A hinu leitinu eru raunsæir rök- hyggjumenn, sem ekkilita á her- námið og Natðaðild sem góð eða vond, æskileg eöa óæskileg fyrir- bæri, heldur einfaldlega fyrir- bæri, sem á megi græða drjúgan skilding, ef rétt er að farið. Þessir menn eru vissir með að leggja áherslu á þá staðreynd, að hernámið sé tslendingum óæski- legt og veiti þeim enga vörn, en skapi þeim þvert á móti ómælda hættu. Einmitt þessvegna bæri Nató og Bandarikjamönnum að greiöa riflega fyriraöstöðu sina hér. Kenning þessara manna er einföld og auðskilin og þvi eru þeir sýnu hættnlegri en heittrú- armennirnir. Góöir landar. Til ykkar, sem e.t.v. eruð i vafa um réttmæti þess að láta her- stöövarmálið skipa sæti svo ofar- lega i flokki þeirra mála, er um verður kosið sunnudaginn 25. júni vil ég að lokum beina þessum spurningum: Hversu væri i dag komið reisn og metnaði islenskrar þjóðar, ef aldrei hefðu verið til skipulögö samtök herstöðvaandstæðinga? Hrýs ykkur ekki hugur við hugs- uninni um þaö, ef allir þingmenn tslendinga heföu staðið saman sem einn að samþykktunum um aðild að Nató ’49 og hernáminu ’51 og að baki þeim hefði öll þjóðin fylkt sér? Séu þessar hugsanir hugsaðar til enda eru sæmilegir íslending- ar naumast i vafa um það, hvern- ig þeir skuli greiða atkvæöi 25. júni n.k. Oskarshamn á þjóðhátiöar- degi islands 1978 Danlel Danlelsson. Höfnin á Olafsfirði. Salthúsin þar hafa þegar ákveöiö að greiða eftir samningum og næturvinnu þar, sagði Bjarni Sigmarsson verk- stjóri í Hraðf rystihúsi Ölafsf jarðar, þegar Þjóð- viljinn hafði samband við hann í gær. Frystihúsin á Ólafsfirði: Starfsfólkid setti á yfirvinmibaim Salthúsin á ölafsfirði greiða eftir samningum og fólkið hér í frystihúsunum hafði sjálft forgöngu um að leggja á yfirvinnubann til að fá greidda f ulla eftir- HVATNING Leggjumst á árar, lag fyrir stafni, lendingin örugg senn. Brimróður tökum í bræðralags nafni, Bandalagsmenn! Jóhann J.E. Kúld Hitt húsið er Hraðfrystihús Magnúsar Gamalielssonar og var samþykkt á fundum i þeim báð- um með miklum meirihluta atkvæða að setja á yfirvinnu- bannið. Jón Helgason, formaöur Einingar, hélt fund með fólkinu i fyrradag og var ákveðiö að standa fast við ákvörðunina. Bjarni sagöi að ekki hefði enn heyrst frá atvinnurekendum um þessa ákvörðun og ekki hefði fólk- ið heldur sett kröfur sinar form- lega fram, en það lægi að sjálf- sögöu I augum uppi hverjar þær —GFr væru. r StórFeIIcI VERÖl/EkkuN Vörubílstjórar athugid — vid höfum takmarkadar birgdir af hinum vidurkenndu BARUM vörubíla- hjólbördum til afgreidslu nú þegar á ótrúlega lágu verói 1200X20/18 verókr. 1100X20/16 veröfrákr 1000X20/16 ------ 900X20/14 ----- 825X20/14 ----- 89.350 72.500 67690 61.220 47.920 JÖFUR hf AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SÍMI 42600

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.