Þjóðviljinn - 24.06.1978, Side 14
1:4 SIÐA — ÞJÓÐVXLJINN. Laugardagur 24. júnl 1978
Kosninganóttin:
Lóðarlögun
Tilboð óskast i framkvæmdir við lóð hússins Auðbrekku
61, Kópavogi.
Innifalið I verkinu eru sprengingar, steyping stoðveggja,
trappa og stétta, regnvatns- og snjóbræðslulagnir, malbik
o.fl.
Verkinu sé lokið eigi siðar en 15. september 1978.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7,
Reykjavik, gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 6. júli 1978,
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
KOSNINGA-
HANDBÓK
FJÖLVÍSS
ÓMISSANDI
Á KOSNINGA-
NÓTTINA!
# Allar upplýsingar um úrslit undanfarinna
alþingiskosninga — og siðustu sveitar-
stjórnakosninga.
# Verðlaunagetraun þar sem lesendur fá að
spreyta sig á heildaratkvæðatölum og
þingmannafjölda flokkanna.
# Fæst i flestum bókaverslunum, söluturn-
um og á mörgum kosningaskrifstofum
flokkanna. Einnig á afgreiðslu Fjölviss,
Siðumúla 6, Reykjavik.
Sjónvarpad lengur
en síðast
Kosningasjónvarpið verður
með svipuðu sniði og siðast og
sömu menn sem stjórna þvi,
sagði Guðjón Einarsson frétta-
maður i samtali við Þjóðviljann i
gær. Við Ömar Ragnarsson verð-
um fyrir framan myndavélarnar
en Marianna Friðjónsdóttir
stjórnar útsendingu. Sá munur er
þó á að talnaflóðið veröur ekki
eins mikið og i sveitastjórnar-
kosningunum og gefst þvi betra
tækifæri til aö ræða tölurnar þeg-
ar þær koma. Reiknað er með að
sjónvarpað verði fram á 5ta tim-
ann að minnsta kosti.
Tölvan verður notuð á svipaðan
hátt og siðast, hún sýnir nýjustu
tölur og frávik frá siðustu ksosn-
ingum. Þá skrifar hún út nöfnin á
þeim frambjóðendum sem eru
kjörnir skv. tölunum og nafn þess
sem er næstur að ná kjöri. Enn-
fremur kemur spá yfir allt landið
um þingmannatölu hvers flokks.
Inn I þetta veröur fléttað viötöl-
um við kjósendur viöa um land og
sýndar glefsur af framboðsfundi i
Guðjón Einarsson fréttamaður
Valaskjálf á Egilsstöðum. Þar
verða klippt saman hnyttin til-
svör úr ræðum frambjóðenda og
háðulegar athugasemdir um and-
stæðingana auk þesssem fundar-
menn eru teknir tali og spurðir
hverju þeir spái um úrslitin.
Þá verður inn á milli flutt is-
lenskt skemmtiefni og verða það
söngvarar og hljómsveitir sem
komið hafa fram i sjónvarpi á
liðnum árum og er reynt að hafa
það efni við hæfi flestra, sagöi
Guöjón.
Þegar fyrstu tölur koma i
Reykjavik veröa nokkrir fram-
bjóðendur i sjónvarpssal til að
ræða þær. Enginn þeirra hefur
veriö kjörinn á þing áður en eru
nú allir nálægt baráttusætum.
Þetta eru þau Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir, Guðmundur G. Þór-
arinsson, Vilmundur Gylfason,
Friðrik Sóphusson og Ólafur
Ragnar Grimsson.
Um kl. 4 er ætlunin að hringja I
formenn flokkanna til að spyrja
þá um viöhorfin sem þá blasa við.
Sjónvarpað verður úr Austur-
bæjarskólanum I Reykjavik, en
fréttaritarar sjónvarpsins á öör-
um talningastöðum munu lesa
tölur beint i sjónvarpið jafnóðum
og þær berast.
—GFr.
Kosningaútvarpið:
Útvarpaö beint frá
öUum talningastööum
Tölvuspá fyrír allt
landið þegar fyrstu
tölur berast úr
Reykjavik
Kosningaútvarpiö hefst kl. 23 á
sunnudagskvöld og stendur fram
á næsta dag og verður nú útvarp-
að I fyrsta sinn beint frá öllum
talningastöðum. Búist er við
fyrstu tölum frá Reykjavik korter
yfir 11 og þá mun strax vera gerð
tölvuspá fyrir allt landið, sagði
Kári Jónasson fréttamaður sem
stjórna mun kosningaútvarpinu.
Allir fréttamenn og tæknimenn
útvarpsins auk annars starfsliðs
mun taka þátt I útsendingunni og
er þetta mun viðameira en I
byggðakosningunum, sagði Kári.
Fréttamenn og tæknimenn verða
á talningastöðum i Austurbæjar-
skólanum, i Reykjavik, i Borgar-
nesi, á Isafirði, Sauðárkróki,
Akureyri, Seyðisfirði, Hvolsvelli,
i Hafnarfirði, og verða kosninga-
tölur lesnar beint frá þessum
stöðum, eins og fyrr sagði og auk
þess frá Reiknistofnun Háskól-
ans.
Þegar úrslit liggja fyrir er ætl-
un að tala við frambjóðendur i
hverju kjördæmi, beint ef þeir eru
á talningastað eða þá i gegnum
sima, og leita eftir áliti þeirra.
Um kl. 4 eða 5 um nóttina verða
leiðtogar stjórnmálaflokkanna
spurðir álits á niðurstöðum eins
og þær liggja þá fyrir. Kári Jónasson fréttamaður
Búist er viö fyrstu tölum frá
Reykjavik og Reykjaneskjör-
dæmi kl. 11.15-11.30 en þaö fer
mjög eftir veðri hvenær úrslit
verða ljós t.d. á Vestfjörðum,
Norðurlandskjördæmi eystra og
Austfjöröum,en þar eru flugvélar
notaðar til að flytja kjörkassa. I
siöustu kosningum voru úrslit
ekki komin i þremur af átta kjör-
dæmum á hádegi daginn eftir þ.e.
I Suðurlandskjördæmi, Vestfjörð-
um og Norðurlandi vestra. Kári
sagði að mikill vilji væri alls stað-
ar að hraða talningu sem mest.
Eftir hádegi á mánudag verða
endurtekin viðtöl viö frambjóð-
endur sem tekin voru um nóttina
og i kvöldfréttum kl.19 koma leið-
togar stjórnmálaflokkanna i út-
varpiö og ræða úrslitin. —GFr
Sveitarstjórnarmál
Út eru komin Sveitarstjórnar-
mál, 2. hefti, 1978. Er ritiö sem
fyrr vandað að efni og frágangi.
Helstu greinar i þvi eru þessar:
Minningargrein um Karl
Kristjánsson, eftir Pál Ltndal.
Grundarfjörður, eftir Halldór
Finnsson. Grundarfjarðarkaup-
staður hinn forni, eftir Sigfúá
Hauk Andrésson, skjalavörð.
Hlutverk sveitarstjórna i iðnað-
armálum, eftir Jón Isberg, sýslu-
mann. Hlutverk fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri I heilbrigöis-
þjónustu Noröurlands, eftir Claf
Sigurösson, yfirlækni á Akureyri.
Framkvæmd fasteignamats eftir
1976, eftir Guttorm Sigurbjörns-
son, forstjóra Fasteignamats rik-
isins. Reynslan af nýskipan fé -
lagsmála i Kópavogi, eftir
Kristján Guðmundsson, félags-
málastjóra. Hlutfallskosning eða
óbundin kosning, eftir Hallgrim
Guömundsson. Birtir eru frétta-
pistlar frá Hrtsey. Yfirlit er um
ýmsar gjaldskrár og margan
annan girnilegan fróðleik er að
finna i ritinu.