Þjóðviljinn - 24.06.1978, Page 16
16.S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. júnl 1978
Þjóðhátíðarkveðja Birgis ísleifs til kennara:
Bönnum öörum en
„sjálfstæðismönnum”
kennslu í skólum
landsins
Arthúr Morthens
Opiö bréf frá
Arthúr Morthens
Heill og sæll ljúfurinn!
A þjóöhátíöardegi Islendinga
birtist greinarkorn eftir þig á
mjög svo áberandi staö I Morg-
unblaöinu. Gremarkorn þetta
beryfirskriftina: „Þar sem inn-
rætinginfer fram”, og þar vitn-
ar þú á einstaklega „hógværan”
hátt til viötals, er Þjóöviljinn
átti viö mig og birtist þann 9.
júnl. 1 umræddu viötali ræddi ég
m.a. lauslega um skólamál og
kennarasamtökin. Kjarninn f
þeim hluta viötalsins er laut aö
skólamálum var á þessa leiö:
,.Skólinn er afskaplega ihald-
söm stofnun, sem leitast viö aö
halda í óbreytt ástand. Allt tal
um aö skólinn sé hlutlaus stofn-
un er aö mlnu viti rangt. Skólinn
I auövaldsþjóöfélaginu endur-
speglar alltaf þaö þjóöfélag sem
hann er I, og allar rannsóknir
sýna aö skólanum hefur ekki
tekist aö brúa þaö bil, sem rtkir
milli einstakra stétta, þvf börn
hástéttarfólks eru mun fleiri í
menntaskólum en börn lágstétt-
anna”. (Tilvitnun lýkur).
Nýleg visindaleg rannsókn á
þessu atriöihér á landi, sýnir að
einungis 9,5% barna verka-
manna og sjómanna ljúka há-
skólanámi, meöan 57.1% em-
bættismannabarna ljúka sams
konar námi.
Ekki vikur þú aö þessum
kjarna máls mins einu ein-
asta oröi, heldur tekur þann
kostinn aö snúa Ut úr og beinlin-
is rangfæra eftirfarandi: „Skól-
inn er meö pólitiskari fyrirbær-
um i þjóöfélaginu, þvi þar fer
innrætingin fram”.
Ég hélt satt aö segja, aö ég
heföi tekiö skýrt fram, aö skól-
inn i stéttaþjóöfélaginu endur-
speglar þaö þjóöfélag sem hann
er i. Nemendur berjast af kappi
til aö komast i gegnum prófasi-
ur skólanna. Skólinn eykur á
samkeppni meöal barna og
unglinga um aö meötaka staö-
reyndir og koma þeim á gagn-
rýnislausan hátt frá sér á próf-
blaöiö — eða eins og ritstjóri
Morgunblaösins túlkaöi þetta i
ritstjórnargrein 8/5 1977:
„Ahrifamesta leiöin til þess aö
auka viösýni nemenda er aukin
menntun, haldgóöar upplýsing-
ar um staöreyndir”.
Sam sagt — hlutverk kennar-
ans er aö troöa staöreyndum I
nemendur. Þeir eiga aö meö-
taka hinn „heilaga sannleika”
umbúöalaust:Héreri raun veriö
aö innræta nemendum ákveöiö
lifsmynstur, miskunnarlausa
einstaklingshyggju og sam-
keppni I staö þess aö efla sjálf-
stæða hugsun nemenda og þjálfa
hæfni til samstarfs við aðra.
Bláköld lygi
Þetta er nú i sem stystu máli
þaö, sem ég talaöi um innræt-
ingu. Þú aftur á móti lýgur þvi
blákalt aö hér eigi ég viö aö
vinstri sinnaöir kennarar eigi aö
misnota aöstööu sina i skólum
landsins og innræta nemendum
sinum sósialiskarskoöanir! Þaö
þarf vist ekki aö taka þaö fram,
aö hér er um svo ógeðfelldan
málatilbúning af þinni hálfu aö
ræöa, aö meö ólikindum er. Þaö
hlýtur aö þurfa alveg sérstak-
lega ömurlegt þjóöhátiöarskap
tilþess að geta hagaö sér svona.
En hver er svo ástæöan fyrir
þessum óþverraskap I garö
kennara? Jú, —þaö kemur I ljós
aö þitt hjartans mál á þessum
hátiöisdegi er eftirfarandi — og
sem þú visvitandi rangtúlkar
ummæli min til aö geta komiö á
framfæri: „Þaö á ekki aö liöast
aö tiltölulega fámennur hópur
ofstækisfólks leggi undir sig
skóla landsins iþeimtilgangi að
innræta börnum og unglingum
öfgastefnur i þjóömálum.”
Berufsverbrot
og McCarthy
Birgir Islefur, í raun er ekki
hægt aö skilja ummæli þin á
annan veg en þann, aö þú viljir
banna öllum kennurum er ekki
hafa þina skoðun aö kenna i
skólum landsins! Ekki er hægt
aö segja aö þú vandir kennurum
rBirgir ísl. Gunnarsson:
Þar sem innræt-
ingin fer framj
Ef nefna ætti það, sem helzt
einkennir sósíalista á velgengnis-
tímum þeirra, þá er þaö hrokinn.
I, Sagan sýnir að þegar vel hefur
' Kengið hjá þeim, þegar þeir hafa
haft byr í seglin, þá einkennist
öll þeirra framkoma í orði og á
I g borði af dæmalausum hroka. Um
, leið.og þeir sjá glitta í valdaað-
stöðu upphefjast hverskyns yfir-
lýsingar um, hvernig fara eigi
. með völdin og hvernig knésetja
eigi andstæðinginn.
Eitt af því, sem sósíalistar
hafa á stundum tjáð sig mjög
opinskátt um, er hvernig haga
beri uppeldi barna, þannig að
þeim sé þegar á unga aldri
inrættur hinn „rétti“ hugsunar-
háttur. Dæmi um slík áhrif eru
æði inörg frá fyrri velgengnisár-
um/sósíalista á íslandi.
í ályktun 3ja þings S.U.J. 1930,
sem þá var stjórnað af komm-
únistum segir m.a.: „Innan skól-
anna skal S.U.J. beilast fvrir þvi,
að stofnaðir séu starfshópar
ungra öreiga, sem mæti þar sem
forlið og fulltrúar stéttar'sinnar.
I barnaskólum verður það að
nota barnahrevfinguna sér til
aðstoðar, í æðri skólum þá
félaga, er það kann að eiga eða
eignast þar".
Morg fleiri ummæli i svipuðum
dúr má rifja upp, þar sem
áherzla er logð á að kennarar í
skólum ali börnin upp í snsialist-
iskum anda og reyna þannig að
ala upp trygga fylgismenn.
'Því er þetta rifjað upp hér nú,
að nú gengur yfir okkur eitt
hrokaskeiðið. Urslit sveitar-
stjórnakosninganna hafa hleypt
lausum ýmsum oflum innan
Alþýðubandalagsins, sem nú
draga óhikað fram gómlu kenn-
ingarnar um það, hvernig sósial-
istar eigi að ná voldum og halda
þeim. Ein slík umma-li skulu
tilfærð hér.
I Þjöðviljanum 9. júní birtist
viðtal við formann jeskubfðs-
nefndar Alþýðubandalagsins,
Arthúr Morthens. Uann ræðir
m.a. um skólamál og blaðamað-
urinn spyr:„Eru kennarasamtok-
in pólitísk?" Svarið er svohljóð-
andi: „Samkvæmt logum eru þau
ekki pólitísk en í eðli sínu hljóta
þau að vera pólitísk, því að eins
og ég nefndi áðan, þá er ekki
hægt að ræða skólamál án
pólitísks mats. -Skólinn er meo
pólitískari fyrirbærum í þjóð-
félaginu, því að þar fer innræt-
ingin frarn.”
Þá höfum viö það. Gamla
kenningin um innrætingu skóla-
barna er nú óhikaö dregin fram
í dagsljósið, þó að nokkuð hafi
verið hljótt um hana að undan-
fórnu. Sennilega hefur hún aldrei
verið logð á hilluna, heldur
aðeins talið óheppilegt að flíka
henni um of Nú er byr í seglin
og því óha*tt að koma fram i
dagsljósið.
I þessu efni þurfa allir lands-
menn að vera vel á verði. Það á
ekki að liðast að tiltolulega
fámennur hópur ofstækisfólks
leggi undir sig skóla landsins í
þeim tilgangi að innræta Itornum
og unglingum ofgastefnur í
stjórnmálum. Nú þegar Alþýðu-
bandalagið hefur tekið forystu i
stjórn borgarinnar og s;ekir fast
á stjórn landsins eru margir, sem
spyrja: Kr þetta það, sem koma
skal? Viðurkenna verður, að við^
núverandi aðstæður er svarið
óljóst. hítt er þö vist, að það er
einungis með samstilltu ataki
allra lýðræðissinna. að komið
verði i veg fyrir að skólarnir
verði gróðrarstia sósíalista. Það
sainstillta átak á ekki aðeins við
í kosningum, heldur einnig í
daglegu starfi árið um kring.
Foreldrar þurfa að fylgjast með
skólastarfinu i samvinnu við
hina mörgu lýðræðissinnuðu
kennara og veita skólunum að-
hald, og koma þannig í veg fyrir
misnotkun skólanna.
Ætlar Sjálfstæöisflokkurinn sér menntamálaráöuneytiö aö kosningum
loknum til þess aö framkvæma þar yfirlýsingar Birgis Isleifs og hcfja
atvinnuofsóknir á hendur kennurum?
þessa lands þjóöahátiöar-
kveöjuna, kennurum, er leggja
á sig mikla vinnu viö oft mjög
erfiöar aöstæöur til þess aö
framkvæma og framfylgja
Grunnskólalögunum frá 1974.
A þessa kennara vilt þú ein-
faldlega setja lög i anda hinna
illræmdu Berufsverbot-laga I
V-Þýskalandi. Hvar er nú lýö-
ræöishugsjónin? Hvar er nú
umburöarlyndiö fyrir skoöun-
um annarra?
Dagskipun þin á 17. júni er:
Foreldrar og „lýöræöissinnaöir
kennarar”! Njósniö um alla
kennara sem hafa aörar skoö-
anir en viö ..sjálfstæðismenn”—
komist aö þvi hvort þeir fetta
fingur út I þá hagspeki okkar aö
gróöinn sé ekki tekinn frá nein-
um! Passiö aö þeir segi ekkert
um þaö þjóöfélag, sem mismun-
ar nemendum eftir efnahag for-
eldra! Passiö aö þeir tali ekki
um misskiptingu auösins! Kær-
iö þá hiklaust fyrir skólastjóra
og skólanefndum!
Og svo framvegis. Meö vax-
andi ofstæki kæmi siöan endir,
sem viö ættum aö þekkja úr
sögukalda striösins. A þeim ár-
um varö maöur einn frægur fyr-
ir aö hrinda af staö einhverri
ógeöfelldustu ofsóknarherferö á
hendur fr jálslyndisöflunum
vestur i BandarÖcjunum. Sefa-
sýkisofsóknir þessar teljast i
dag einhver mesti smánarblett-
ur á þeirri þjóö. Upphafsmaöur
þessara ofsókna McCarthy varö
aö visu þess vafasama heiöurs
aönjótandi aö vera I sviösljósinu
smá-tima. En hann notaöi tim-
ann vel og náöi aö skilja eftir sig
sorg og óhamingju, dauöa og
fangelsun tugþúsunda Banda-
rikjamanna.
Þaöer von min, Birgir ísleif-
ur Gunnarsson, aö þó þú sért
ekki lengur i sviösljósinu sem
borgarstjóri þá reynir þú ekki
aö feta i blóöi drifna slóö
McCarthys á þennan hátt. Satt
best aö segja tel ég sviösljósiö
ekki þessi viröi.
Meö vinsemd,
Arthúr Morthens.
Stúdentahópurinn, sem brautskráöist frá M.L. 14. júnl, ásamt Kristni Kristmundssyni skólameistara.
— Mynd: Ljósgiyndastofa Þóris.
Menntaskólinn ad Laugarvatni 25 ára
48 stúdentar brautskráðir
Menntaskólanum aö Laugarvatni
var slitiö miövikudaginn 14. júni.
48stúdentar útskrifuöust frá skól-
anum, 26 úr máladeild, 9 úr eðlis-
fræöideild og 13 úr náttúrufræöi-
deild.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlútu Harpa Finnsdóttir, Laugar-
vatni, sem stundaði nám i mála-
deild. Hún hlaut einkunnina 8.67.
Stefán Steinsson frá Seyöisfirði
fékk hæsta einkunn I eðlisfræði-
deild 8.40. 1 náttúrufræðideild
fékk Guðriður Gyöa Eyjólfsdóttir
frá Bryðjuholti i Hrunamanna-
hreppi hæstu einkunn, 8,29.
Þetta er 25. stúdentaárgangur-
inn sem útskrifast frá Mennta-
skólanum að Laugarvatni, en
skólinn átti 25 ára afmæli 12. april
sl., og var afmælisins þá minnst i
skólanum. 695 stúdentar hafa
verið brautskráöir frá M.L. frá
upphafi. Skólameistari, Kristinn
Kristmundsson, minntist afmælis
skólans i skólaslitaræðu og Gunn-
laugur Ástgeirsson flutti ávarp
viö skólaslitin fyrir hönd nem-
endasambands skólans. Skýrði
hann frá þvi, að nemendasam-
bandið hefði stofnað sjóð til
styrktar Menntaskólanum að
Laugarvatni.
Kristinn Kristmundsson' skóla-
meistari sagöi i samtali viö blaö-
ið, að aukið samstarf væri nú á
döfinni milli skólanna aö Laugar-
vatni. Nýjar framhaldsnáms-
brautir hafa verið auglýstar viö
Héraðsskólann og Húsmæðra-
skóia Suðurlands. Menntaskólinn
hefur tekið þátt i viðræðum um
aukiö samstarf skólanna, en hug-
myndin á þessu stigi málsins er
aö nýta sem best húsnæði og
starfskrafta á staðnum.
Alltaf berst meir en nóg af um-
sóknum um skólavist i Mennta-
skólanum. Nú hafa borist 84 um-
sóknir um 1. bekk, en aðeins eru
teknir inn 50 nemendur. 1 2. bekk
hafa borist 12 umsóknir. —eös
Landsþing
menntaskólakennara:
Mótmælir dylgjum
um pólitískan áróöur
í skólum
Landsþing menntaskólakenn-
ara, sem haldiö var 19.-21. júni
sl., samþykkti aö mótmæla
þeim dylgjum sem enn birtast I
fjölmiölum um aö kennarar
reyni aö misnota aöstööu sina til
aö hafa uppi pólitlskan áróöur I
kennslu sinni.
1 ályktun landsþingsins segir:
„Slikar hugmyndir benda raun-
ar til vanþekkingar á skólamál-
um og pólitik — þó veröur aö
gera þá kröfu til þeirra sem
gagnrýna kennara, aö þeir rök-
styðji mál sitt. Annað er lýö-
skrum, skaðlegt opinberum
skoðanaskiptum”.
—eös
Tökum að okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
Trésmíðaverkstæðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613
Augiýsingasíminn er 81333