Þjóðviljinn - 28.06.1978, Blaðsíða 3
Miövikudagur 28. júni 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Þyrluslysið á Norðursjó:
18 FÓRUST
27/6 frá Þorgrími Gests-
syni, fréttaritara Þjóðvilj-
ans i ósló:
18 menn fórust í gær-
morgun þegar þyrla af
Sikorsky-gerö steyptist í
hafið á leiðinni frá Staf-
angri til olíuborpalls á
Statf jord-svæðinu í Norð-
ursjó. Þeir sem fórust voru
16 starfsmenn á borpallin-
um og tveir flugmenn.
Ekki er vitað um orsök
slyssins, og ekki hefur
heldur tekist að upplýsa
orsakir annars slyss í
nóvember í fyrra, þegar
þyrla af sömu gerð fórst á
svipuðum slóðum og 12
menn fórust.
Þyrlan lagði af stað frá
Flesland-flugvelli kl. 10.25 i gær-
morgun og flugmaðurinn til-
kynnti aö allt væri i lagi kl. 11.07,
eins og öryggisreglur gera ráð
fyrir. Næst átti hann að senda út
tilkynningu kl. lí.22, en þaö gerð-
ist ekki. Onnur þyrla var aðeins
nokkura minútna fiug á eftir.
Flugmaður hennar lækkaöi flugiö
niður úr skýjaþykkninu til aö
athuga hvort eitthvað væri að.
Fljótlega kom hann auga á brak
úr þyrlunni og lik fljótandi I
vatnsskorpunni.
Ollum tiltækum skipum var
beint á slysstaöinn, sem var
aðeins um tuttugu sjómilur frá
borpallinum. Leitað var fram i
myrkur, en aöeins 13 lik fundust.
Talið er að þeir fimm, sem ekki
hafa fundist, hafi fariö niöur með
þyrlunni. Hún liggur á um 300
metra dýpi og er áformað að ná
henni upp.
Eftir slysið I fyrra kröfðust
þyrluflugmennirnir, sem fljúga
milli borpalla og lands, bættra ör-
yggisráðstafana og vinnuskil-
yröa. Þeir telja að engu sé ábóta-
vant nú. Talsmenn verkamanna á
borpallinum halda þvi hinsvegar
fram, aö álag á mannskap og vél-
ar sé of mikið. Þeir krefjast þess
að fleiri félög fái leyfi til þyrlu-
flugs á svæðinu.
Fyrir skömmu höfnuðu norsk
yfirvöld umsókn félags, sem vildi
hefja flugþjónustu.
Aö þessu slysi meðtöldu er tala
dauðaslysa i tengslum viö oliu-
vinnsiuna i Norðursjó komin upp i
67 á ellefu árum. Þar af fórust 30 i
þessum tveimur siðustu þyrlu-
slysum en áöur höföu tvær þyrlur
farist og meö þeim sjö manns.
önnur var af Sikorsky-gerö og
hin af Seaking-gerö. 1 febrúar I
vetur fórust fimm menn i elds-
voða á Statfjord A-borpallinum
og kom þá i ljós aö öryggi starfs-
manna væri mjög ábótavant.
Suður-
drepínn
F orseti
Jemens
Aftakan sögð geta valdið borgarastríði
26/6 — í Reuter-frétt frá
Beirút segir, að útvarpið í
Aden, höfuðborg Suður-
Jemens, hafi skýrt svo frá
að Salem Robaja Ali,
forseti landsins, hafi verið
tekinn af lífi í kvöld eftir
að liðsmenn hans höfðu
beðið lægra hlut í hörðum
götubardögum í höfuð-
borginni, sem stóðu yfir
frá dögun til sólarlags.
Samkvæmt annarri frétt
féll forsetinn í bardögun-
um.
Samkvæmt sumum fréttum
hafa stuðningsmenn forsetans
ekki verið bugaðir enn og frétta-
stofa smárikisins Katar viö
Persaflóann telur að banamenn
hans muni eiga i vændum blóðuga
mótspyrnu frá sumum einingum
hersins og nokkrum ættbálkanna
úti I dreifbýlinu. Um ágreining
þann, er oili vinslitum Alis
forseta og annarra ráðamanna
Suður-Jemens, er það helst vitað
að hann vildi hafa nokkurt sam-
band við Saudi-Arabfu og þiggja
þaðan efnahagsaðstoð, en sam-
stjórnarmenn hans voru þvi mót-
fallnir af hugsjónaástæðum.
Ráðamenn Suður-Jemens telja
sig marxista, en i Saudi-Arabiu er
sem kunnugt er afturhaldssöm
konungsstjórn.
Noröur-Jemen (Yemeni Arab
Republic) og Suöur-Jemen
(Peoples Democratic Rep. of
Yemen). Ástandiö i þeim er mjög
ófriölegt þessa dagana, sem best
má sjá af þvi aö forsetar beggja
rikjanna hafa veriö drepnir meö
minna en viku millibili. Bæöi rik-
in eiga land aö hinu mikilvæga
mynni Rauöahafsins, og handan
þess eru Djibúti og Eritrea.
Kambódía-Víetnam:
Bardagar aftur
á landamærum
27/6 — Fréttastofa
Víetnams skýrði svo frá í
dag að kambódískar her-
sveitir, sem ráðist haf i yf ir
landamærin inn í Viet-
nam, hafi verið harðlega
leiknar af víetnömskum
hersveitum í bardögum,
sem staðið hafi yfir alla
s.l. viku. Hafi tvær
bataljónir úr Kambódíuher
verið stráfelldar að aðrar
hereiningar Kambódíu-
manna hafi einnig orðið
fyrir miklu tjóni.
Þetta er i fyrsta sinn I margar
vikur, að fréttist af bardögum
milli Vietnama og Kambódiu-
manna, en skömmu fyrir s.l. ára-
mót hófust meiriháttar bardagar
á landamærum rikjanna og stóðu
hafnir
þeir yfir alllengi. Sem dæmi um
hrakfarir Kambódiumanna nú
getur fréttastofan i Hanoi þess, að
um 160 kambódiskir hermenn
hafi veriö felldir i tveimur orrust-
um.
Fyrir tveimur dögum sakaði
upplýsingamálaráðuneyti
Kambódiu Vietnama um að hafa
staðið aö samsæri til að steypá
Kambódiustjórn i félagi við CIA,
bandarisku leyniþjónustuna. Seg-
ir vietnamska fréttastofan aö sú
ásökun sé uppspuni frá rótum og
ekki til annars en aö hlæja að.
Hörmungarástand meðal flóttamanna í Bangladesi:
Yfir 800 látnir
27/6 — Yfir 800 flóttamenn frá
Búrma hafa látist f bráöabirgöa-
búöum i Bangladesj sfðan fjöida-
flótti Múhameöstrúarmanna frá
Búrma hófst fyrir þremur mán-
uöum, aö sögn blaös f Dacca, höf-
uöborg Bangladesj. Flestir þeirra
látnu eru konur og börn.
Flóttamennirnir eru nú að sögn
orönir nærri 240.000 talsins og
streyma enn yfir landamærin i
hundraöatali dag hvern. Monsún-
rigningar hafa aukið mjög á
hörmungar flóttamanna, sem
hafa litið til hnifs og skeiðar og er
talin hætta á aö farsóttir komi
upp á meðal þeirra.
Flóttamennirnir segja að búr-
manskir hermenn hafi rekið þá
frá heimilum þeirra og framið á
þeim mikil hryðjuverk, morö,
pyndingar, nauðganir og brenn-
ur. Sé þar um að ræða skipulagð-
ar ofsóknir á hendur Múhameðs-
trúarmönnum i Búrma, en þorri
landsmanna þar aðhyllist Búdda-
sið. Margir Múhameöstrúar-
mannanna i Búrma munu vera
innflytjendur frá Bangladesj eöa
afkomendur þeirra.
ERLENDAR FRETTIR
/ stuttu
máti
Sovéskir hvitasunnumenn
leita hælis í sendiráði
27/6 — Sjö sovéskir hvftasunnu-
menn ruddust 1 dag framhjá
lögregluvöröum inn f banda-
riska sendiráöiö i Moskvu og
hafa lýst þvi yfir aö þeir muni
ekki yfirgefa sendiráösbygging-
una, fyrr en þeir fái aö flytjast
úr landi. Fólk þetta er hjón frá
Tsérnogorsk í Miö-Siberiu og
þrjú börn þeirra, auk konu og
sonar hennar á ungiingsaldri.
Sjömenningarnir segjast vilja
komast úr landi vegna þess, aö
sovésk yfirvöld geri þeim ófært
að iðka trú sina. Hvitasunnu-
menn festu rætur I Sovétrlkjun-
um á þriöja áratug aldarinnar.
Aöur hafa talsmenn sovéskra
hvitasunnumanna sagt við
fréttamenn, aðum 20.000 þeirra
vilji flytjast úr landi. Margir
þeirra eru sagöir hafa skrifaö
Carter Bandarfkjaforseta og
beðið hann hjálpar. Carter er
baptisti, og talsmaður sjömenn-
inganna, sem leituðu hælis I
sendiráðinu, sagöist lita svo á
aðbaptistar og hvitasunnumenn
væru mjög I einum anda.
Endurminningar Nixons seljast vel
27/6 — Enda þótt Richard M.
Nixon reyndist miölungi vei
sem forseti Bandarfkjanna,
viröist hann ætla aö slá i gegn
sem rithöfundur. Otgefendur
hans, Grosset & Dunlap, segja
aö endurminningabók hans sé
sú fimmta efsta á sölulistanum
yfir harökiljur og hafi þegar
selst af henni 260.000 eintök.
Þetta hefur gerst þótt margir
hafi lýst yfir andstyggð á bók-
Lömunarveikifaraldur
herjar á Kalvínstrúarmenn
inni, sem og höfundi hennar.
Hefur verið hleypt af stað áróð-
ursherferö undir slagorðinu:
„Kaupiö ekki bækur eftir þorp-
ara”.
Þegar bókin kom út i sl. mán-
uði hlaut hún heldur kuldalegar
viðtökur gagnrýnenda. Vé-
fengdu þeir bæði rithöfundar-
hæfileika Nixons og sögðu enn-
fremur að i bókinni kæmi ekkert
það fram, sem ekki væri þegar
vitað um Watergate-hneykslin.
27/6 — Lömunarveikifaraldur
er á kreiki f Hollandi og gætu 67
manns hafa tekið veikina siðan I
s.l. mánuöi, aö sögn heilbrigðis-
yfirvalda. Tilkynnt var um sex
ný tilfelli I dag, og segir tals-
maöur heilbrigöismálaráöu-
neytisins aö enginn þessara sex
hafi veriö bólusettur gegn veik-
inni.
Allir hinir sýktu eru i hinni
kalvinsku Siöbótarkirkju, en
flestir holienskir mótmælendur,
sem munu vera um helmingur
þjóðarinnar, er Kalvinstrúar-
menn. Siðbótarkirkjan vill ekk-
ert með bólusetningar hafa og
heldur þvi fram að fólk verði
eingöngu að treysta á Guð til
viðhalds likamlegri heilsu sinni.
Suður-kóreanskur sendiráðs-
maður fær landvist í Kanada
27/6 — Suöurkóreanskur sendi-
ráösmaöur, sem baöst hælis i
Kanada sem pólitískur flótta-
maöur á þeim forsendum, aö
hann ætti i vændum aö veröa
pyndaður ef hann sneri heim,
hefur fengiö landvistarleyfi.
Sendiráðsmaðurinn, Jung-
man Jang að nafni, bað kana-
disk yfirvöld um hæli fyrir sig
og fjölskyldu sina i april s.l.
Bretastjóm fagnar tillögum
V ars j árbandalagsins
Hann sakaði suðurkóreönsku
leyniþjónustuna (KCIA) um að
halda uppi njósnum og ógnun-
um gagnvart Kóreumönnum
búsettum i Kanada, en þeir eru
um 20.000 talsins.
Jung-man Jang, sem var
vararæöismaöur Suður-Kóreu i
Toronto, fékk lögregluvernd i
nokkra daga eftir aö fréttist að
fjórir KCIA-njósnarar væru aö
leita hans.
27/6 — Fred Mulley, varnar-
málaráðherra Bretlands, fagn-
aði I dag nýjustu tillögum Var-
sjárbandalagsins um fækkun i
herjum þess bandalags og Nató
iEvrópu. Sagði Mulley aö tillög-
urnar væru merkasta framlag
Varsjárbandalagsins frá þvi aö
afvopnunarviöræöurnar i Vin
hófust. En engu aö siður þyrfti
viö nánari skýringa á tillögun-
um.
Pólverji út í geiminn
27/6 — Pólverja og Sovétmanni
var I dag skotið út I geiminn i
geimferju af Sojus-gerö, og er
fyrirhugað aö geimfarar þessir
tveir tengi ferju sina viö so-
vésku geimstööina Saljút-6.
Geimfararnir eru Miroslav
Giermaszewski, 37 ára gamali
pólskur orrustuflugmaöur, og
Pjotr Klimúk, reyndur geimfari
sovéskur.
Þeim var skotið út i geiminn
frá geimfaraskotstöð Sovét-
manna i Baikonúr i Mið-Asiu
Giermaszewski er annar
maðurinn frá bandalagsrikjum
Sovétmanna i Austur-Evrópu,
sem sendur er út i geiminn. Sá
fyrsti þaöan sem slika för fór
var Vladimir Remek frá
Tékkóslóvakiu.
Danska stjórnin vill styðja
F öðurlandsfylkinguna
27/6 — Danska stjórnin ætlar aö
biöja þingiö aö samþykkja fjár-
hagsaðstoö viö Fööurlandsfylk-
inguna I Ródesiu, aö upphæö 15
miljónir danskra króna. Er þaö
i samræmi viö þá stefnu
danskra sósialdemókrata aö
styðja baráttuhreyfingar
blökkumanna I sunnanveröri
Afriku.
Búist er viö að þessi tillaga
stjórnarinnar muni mæta and-
stöðu hægrimanna á þingi, og
munu hægrimenn þá meöal
annars benda á morðin á 12
breskum kristniboðum og börn-
um þeirra, sem framin voru ná-
lægt Umtali i Ródesiu sl. föstu-
dag.Ródesíustjórnsegir skæru-
liða Föðurlandsfylkingarinnar
hafa framiö morðin, en tals
menn Fööurlandsfylkingarinn-
ar segja liösmenn Ródesiu-
stjórnar hafa veriö þar aö verki.