Þjóðviljinn - 09.08.1978, Síða 3
Miövikudagur 9. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA>3
Diplomat á
Pétursstóli
Páll páfi sjötti lést á
sunnudagskvöld átt-
ræður að aldri, og var
banamein hans hjarta-
bilun. Segir i
Reuter-frétt að páfi
hafi fengið hjartaáfall-
ið siðdegis meðan ritari
hans, Don Pasquale
Macchi, söng messu
við sjúkrabeð hans i
Gandálfskastala
(Castelgandolfo), en
þar er sumarhöll páfa.
Hafði páfi lengi átt við
vanheilsu að striða og
raunar sjaldan gengið
heill til skógar þau
fimmtán ár, sem hann
hefur verið æðsti leið-
togi kaþólskra manna i
heiminum, er þeir eru
500-700 miljónir talsins.
Páll sjötti var ttali, svo sem
allir páfar hafa veriö svo öldum
skiptir, en fyrr á tlö voru páfar
af ýmsum þjóðernum. Hann
fæddist 20. sept. 1897 i smáþorpi
rétt hjá Brescia, en sú borg er á
Pósléttunni rétt sunnan Alpa.
Hiö veraidlega nafn Páls sjötta
var Giovanni Battista Enrico
Antonio Maria Montini, og faöir
hans var lögfræðingur, blaöa-
maöur og stjórnmálamaöur.
Eftir aö hinn veröandi páfi hófst
til metoröa i þjónustu kirkjunn-
ar starfaöi hann mikiö I utan-
rlkisþjónustu Páfagarös. Hann
var kjörinn páfi aö Jóhannesi
tuttugasta og þriöja látnum og
er sagt aö Jóhannes sjálfur hafi
bent á hann sem eftirmann sinn.
Gagnrýndur af um-
bótasinnum og aftur-
haldi.
Páll sjötti þótti ekki umbóta-
sinnaöur llkt og fyrirrennari
hans, sem aö vissu marki braut
blaö i sögu kaþólsku kirkjunnar
eftir aö hihn ihaldssami PIus
tólfti haföi lengi setiö á Péturs-
stóli. Haröast var Páll gagn-
rýndur vegna þess, aö hann
neitaöi meö öllu aö draga úr
andstööu kaþólsku kirkjunnar
viö getnaöarvarnir og fóstur-
eyöingar, og róttækir rómansk-
amerlskir prestar, sem lita svo
á aö kirkjan eigi aö taka virkari
þátt i stjórnmálum til stuönings
kúguöum og fátækum, voru
einnig óánægöir meö hann. En á
það má llka benda að þaö er
hægara sagt en gert aö vera
umbótasinnaöur páfi I svo gam-
algróinni og I eöli sinu harö-
ihaldssamri stofnun og
kaþólska kirkjan er. Raunar
sætti Páll sjötti einnig höröu
ámæli frá höröustu ihaldsmönn-
um kirkjunnar, svo sem franska
erkibiskupnumMarcel Lefebvre,
sem fordæmdu breytingar á
messuforminu og vinsamlega
afstööu til annarra kristinna
trúflokka.
Friðarkoss
Páll sjöttivaröfyrstur páfa til
Páll páfi sjötti — leysti grlsk-orþodoxu kirkjuna úr nfu aida banni.
þess aö feröast flugleiöis svo
heitiö gæti og feröaöist mikiö:
vildi gjarnan láta kalla sig
„postulann á faralds fæti”. 1964
hitti hann Abenagóras, patri-
arka grisk-orþódóxu kirkjunn-
ar í Konstantínópel (Istanbúl),
ogkysstust þeir þá sögufrægum
„friöarkossi”. Voru þar með
komnar á sættir milli kaþólsku
kirkjunnar og þeirrar
grlsk-orþódoxu eftir fullan
fjandskap þeirra á milli alla tíö
siðan 1054, er vinslit uröu meö
þeim kirkjudeildum, er hlýddu
páfanum I Róm og patriarkan-
um I Konstantlnópel. Bann-
færöu páfi og patrlarki þá hvor
annars kirkju, og voru þau bönn
i fullu gildi þar til þeir Páll s jötti
og Aþenagóras afnámu þau
1965.
Sáttfús þegar annað
dugði ekki
Páll sjötti þótti mikill dipló-
matog fljótur til málamiölunar,
þegar ljóst var aö stifni og
harka voru til einskis. Hann
gekkst þannig fyrir bættum
samskiptum. Páfagarös viö
Austur-Evrópuriki, svo sem
Sovétrlkin og Ungverjaland.
Hinsvegar kom hann I engu til
móts viö ftalska kommúnista I
viöleitni þeirra til þjóöarsáttar
viö kaþólsku kirkjuna og flokk
þann, sem kallast má pólitiskur
armur hennar á ftallu, kristi-
lega demókrata. Fyrir kosning-
ar voru prédikunarstólar hag-
nýttir til áróöurs gegn kommún-
istum, sem fyrr I tiö Píusar
tólfta, og sjálfur varaöi Páll páfi
fólk opinberlega viö aö kjósa
kommúnista. Honum varö þó
ekki betur ágengt i þeirri
baráttu en svo aö I hans valdatiö
varö borgin eilifa rauö, er fram-*
bjóöandi kommúnista var kos-
inn þar borgarstjóri.
dþ.
Ródesía:
„Of títíö, of seint”
8/8 — Bráöabirgöastjórnin i
Ródesiu tilkynnti i dag aö hún
hefði ákveðið aö afncma kyn-
þáttamisrétti gegn biökku-
Rommel í stað
Filbingers?
Alger misheppnun samkomuiags-
umleitana tsraela og Egypta er
Carter mikill höfuöverkur.
Carter
boðar
Begin
og Sadat
tíl
yiðræðna
8/8 — Þeir Sadat Egyptaforseti og
Begin forsætisráöherra tsraels
munu ræða viö Carter Banda-
rikjaforseta I Camp David,
bústað forsetans I fjöllum Mary-
lands, 5. sept. n.k. Mun Banda-
rikjastjórn eiga frumkvæöið að
viöræðum þessum. Tilgangurinn
er að reyna að koma af stað að
nýju friöarumleitunum milli
tsraels og Egyptalands.
8/8 — Manfred Rommel, sonur
Erwins Rommel marskálks, sem
frægur er úr siðari heimsstyrjöld,
er annar af tveimur mönnum sem
helst koma til greina I sæti for-
sætisráðherra vesturþýska sam-
bandsfylkisins Baden-Wiirttem-
berg, eftir að Hans Filbinger,
sem verið hefur forsætisráöherra
þar I tólf ár, sagöi af sér. Manfred
Rommel er nú borgarstjóri i
Stuttgart, höfuðborg fylkisins.
Filbinger hefur verið mjög um-
deildur upp á siðkastið eftir að i
hámæli komst að hann haföi verið
Samkvæmt niðurstööum rann-
sóknar, sem gerö var á kostnaö
bandarisku alrikisstjórnarinnar,
eru saksóknarar hins opinbera
þar I landi oft ófúsir til aö taka aö
sér sækjandahlutverk i nauög-
unarmálum fyrir dómstólum, þar
eö þeir lita svo á aö slik mál verði
lögfræðingum jafnan til Htils
dómari i þýska sjóhernum i Nor-
egi i siðari heimsstyrjöld og þá
ákaflega fylginn sér við aö dæma
menn til dauða fyrir til þess að
gera smávægileg brot, einnig eft-
ir að ljóst var orðiö að striöinu
var að ljúka með algerum ósigri
Hitlers. Hefur þetta umtal komið
sér illa fyrir Kristilega
demókrataflokkinn, en þar er Fil-
binger meðal helstu framá-
manna, og stóð jafnvel til aö hann
yrði i framboði þegar næst yröi
kosinn forseti Vestur-Þýska-
lands.
frama. Þessi litla framavon
stafar aö sögn af þvi, aö aðeins
fáir þeirra, sem ákæröir eru fyrir
nauöganir, eru dæmdir sekir.
I skýrslunni frá rannsóknar-
hópnum segir einnig aö niður-
stöður rannsóknarinnar sýni aö
fjórar af hverjum fimm nauög-
unum i Bandarikjunum séu aldrei
mönnum I hótelum, börum,
kvikmyndahúsum og leikhús-
um.
Hins vegar er ekki minnst á
það I tilkynningunni frá stjórn-
inni að blökkumenn fái jafnan
aögang að skólum og sjúkrahús-
um og hvitir, né heldur aö
blökkumönnum veröi leyft aö
setjast að I hverfum hvitra.
Enda gætir vonbrigða meða)
blökkumanna, einnig tals-
manna samtaka undir forustu
blökkumannaleiötoga þeirra,
sem eiga sæti I bráðabirgöa-
stjórninni. Talsmaöur UANC,
samtaka undir forustu Muzor-
ewa biskups, sagði þessar til-
slakanir þvl sem næst einskis
virði og talsmaður samtaka
undir forustu séra Ndabaningi
Sithole sagöi að blökkumenn
hefðu gert sér vonir um afnám
alls kynþáttamisréttis. Tals-
maður Föðurlandsfylkingarinn-
ar, sem á I skærustriöi gegn
bráðabirgðastjórninni, sagöi
um hinar nýju réttarbætur: ,,0f
litið, of seint.”
kæröar. Þessi tregöa kvenna sem
verða fyrir árásum nauðgara, á
að leita til dómstóla, stafar senni-
lega hvaö helst af þvi, aö þær sjá
þess litla von aö ná rétti sinum
meö þvi móti.
Donna Schram, formaður rann-
sóknarhópsins, segir að „um
56.000 nauögunartilfelli séu
árlega tilkynnt til lögreglunnar,
en niöurstööur rannsóknarinnar
sýna, aö sennilega eru um 250.000
nauöganir framdarárlega.” (Þaö
myndi samsvara um 250 nauðg-
unum árlega á tslandi.)
Ungverjar syrgja
Pál sjötta:
„Mikill
páfi
látinn”
8/8 — Blöö kommúnistaflokksins i
Ungverjalandi lofuöu Pál páfa
sjötta mjög i minningargreinum
um hann i dag. Hrósa blöðin Páli
sérstaklega fyrir framlag hans til
bættra samskipta Páfagarðs og
Austur-E vrópurikja. Blaöiö
Magyar Nemzet segir, aö hinn
nýlátni páfi hafi komiö á mikil-
vægum viðræöum milli kaþólikka
og trúleysingja og aö hann hafi
veriö virkur baráttumaöur fyrir
afvopnun og slökun á alþjóöavett-
vangi. Sé enginn vafi á þvi aö nú
hafi kaþólska kirkjan misst
mikinn páfa.
Samskipti Ungverjalands og
Pafagarðs voru heldur erfið lengi
vel, meöal annars vegna dvalar
Joszefs Mindzenty kardinála i
bandariska sendiráðinu i Búda-
pest, en þar var kardinálinn i 15
ár eftir uppreisnina 1956. En
siöustu árin hafa samskiptin stór-
batnaö, sérstaklega frá og meö
heimsókn Janosar Kadar, rikis-
leiötoga Ungverjalands, til Páfa-
garðs i júni s.l. ár, en þá veitti
páfi honum áheyrn.
Dægurlög
til dýrðar
forseta
8/8 — Nokkrir ráðherrar i Mið-
Amerikurikinu Hondúras hafa
sagt af sér I mótmæla-
skyni vegna þess, aö hers-
höfðingjar þar i landi
hafa rekiö frá völdum for-
setann, sem Juan Alberto Melgar
Castro heitir og er raunar sjálfur
hershöfðingi. Hafa hershöfðingj-
arnir, sem ráöa lögum og lofum i
riki þessu, skipaö þriggja manna
ráö úr sinum hópi til að fara meö
æðstu formleg völd, og er höfuö-
paurinn Policarpo Paz Garcia,
yfirhershöfðingi landhersins.
Astæðan til þess aö Melgar forseti
var rekinn er talin sú, aö hann
haföi hleypt af stað áróöursher-
ferð sér til framdráttar persónu-
lega og meöal annars látiö semja
dægurlög sér til dýrðar.
Mannskæð-
ar rigningar
• •
í Olpunum
8/8 — 14 manns hafa aö sögn far-
ist undanfarið af völdum mikilla
rigninga I svissnesku og itölsku
ölpunum og ntiklar truflanir hafa
einnigorðið á samgöngum. Meoal
þeirra sem fórust voru tvær tdlf
ára stúlkur, sem grófust lifandi i
skriðu, sem féll á sumarbústaö
fjölskyldu þeirra noröur af
Lugano I Sviss. Skriöur uröu sex
manns aö bana I Ossola-dal I
itölsku ölpunum, aö sögn lög-
reglu þar. Svissneskyfirvöld telja
aö eyöilegging af völdum flóöa sé
nú meiri en nokkru sinni fyrr stö-
an 1951.
Haft er eftir mönnum i sviss-
nesku kantónunni Ticino, sem er
aö mestu kaþólsk og itölskumæl-
andi, aö úrhelliö standi I sam-
bandi viö fráfall Páls páfa. Enda
fór að rigna á sunnudagskvöld,
um þaö leyti sem páfi lést.
250.000 nauðganir árlega
í Bandaríkjunum
Aðeins fímmta hver nauðgun tilkynnt