Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 09.08.1978, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN. Miðvikudagur 9. ágúst 1978 Vestmannaeyjabær. Ljósm. —jsj. Litíð við á þjóðhátíð í Eyjum Eins og oftast áöur héldu Eyja- menn þjóöhátiö sina um versl- unarmannahelgina. Þetta var 99. þjóöhátiöin frá upphafi, en þaö var i annaö sinn siöan eftir gos, aö hátiöin var i Herjólfsdalnum. Þjóöhátiöargestir voru um 5000, og var töluveröur fjöldi aökomu- manna, þó hústjöld Eyjamanna hafi aö vanda sett mestan svip á tjaldbúöirnar. Mikil og fjölbreytt útidagskrá var flutt, og var hátiöin sett á föstudegi af Arna Johnsen, sem jafnframt var kynnir og dag- skrárstjóri. Aö lokinni guösþjón- ustu og keppni krakka úr Iþrótta- bandalagi Vestmannaeyja, lék lúörasveitin i Eyjum nokkur lög, en siöan stigu fram á sjónarsviöiö knáir kappar: annars vegar þjóö- hátiðarnefnd iþróttafélagsins Þórs, sem annaöist hátiöina i ár, og hins vegar bæjarstjórnin i Eyj- um. Skyldu liö þessi eigast viö i reiptogi yfir tjörnina i Herjólfs- dal. Leikreglurnar voru afar ein- faldar og skýrar: Hver maöur fylgi sinum hnút, hvert svo sem hnúturinn fer. Dró siðan bæjar- stjórn i austur en þjóöhátiöar- nefnd i vestur, og heyröi blaöa- maður á fólki, að heldur hefði nú bæjarstjórnin þótt lin viö átökin og fariö of fljótt úti tjörn. En jafnt ósigri sem sigri var vel tekið, og tókust liðin i hendur eftir aö bæjarstjórnin haföi rölt yfir tjörnina, búin aö viöurkenna glæsisigur þjóöhátiöarnefndar- innar. Aö loknu bjargsigi var dagskrá ætluð börnum i umsjá Leikfélags Vestmannaeyja og hljómsveitar Þorsteins Guömundssonar, sem lék fyrir dansi á barnaballi. Um kvöldið var kvöldvaka meö fjölbreyttu efni en siöan var stig- inn dans til klukkan fjögur að morgni á tveimur danspöllum við undirleik Eymanna og Steina spil. A laugardegi var litið lát á mannskapnum, og var hátiöinni haldið áfram af engu minna fjöri og festu en áður. Skömmu eftir hádegi hófst dagskrá með tónlist og iþróttum, og sýndi meðal ann- ars flokkur iþróttamanna nýja sjálfsvarnarlist, Kimewasa. Um kvöldið var svo i fyrsta skipti á þjóðhátiö varðeldur. Sat Arni Johnsen með gjtarinn við eldinn og söng þekkt lög og tók fólk undir. Að sögn Arna munu hafa veriö þarna um 3000 manns, og sagði hann þetta liklega hafa verið stærsta kór sem sungið heföi við varðeld. A miönætti var svo haldin flugeldasýning meö aðstoð átta flugeldasérfræöinga undir umsjón Hjálparsveitar skáta, og þótti hún hin glæsileg- asta i alla staði. Var siðan stiginn dans frameft- ir nóttu á danspöllunum við und- irleik hinna sömu og kvöldið áö- ur, Eymanna og Steina spil. A sunnudeginum var iökaður dans um kvöldiö, en síðan lauk hátiöinni kl. eitt. Reyndar var enn danshugur i fólki, og sá diskótekið i dalnum um að halda uppi dans- stuöi, og var blm. tjáð morguninn eftir, aö þaö heföi starfaö til kl. 6. Þjóöhátiðarnefnd gaf út mikið og vandaö þjóðhátíöarblað, 64 bls., og önnuöust þeir Arni John- sen og Sveinn Tómasson ritstjórn þess. Þjóðhátiðin fór hiö besta fram i ágætu veöri, þrátt fyrir nokkra ölvun. Vlikiö fjölmenni fylgdist meö óförum bæjarstjórnar. Séö yfir hluta hátiöarsvæöis Félag áhugasafnara Vilja stuðla að betri skóla- söfnun Félag áhugasafnara var stofnað 1. nóvember 1975. Eins og nafnið bendir til er það félag karla og kvenna sem hafa það að áhugamáli að safna og varðveita ýmsa hluti og muni. Ahugasvið félagsmanna eru ótrúlega mörg m.a. bæk- ur, frímerki, stein- og berg- tegundir, skordýr, uppsett dýr, mynt, gamlir munir úr atvinnusögu og lifi þjóðar- innar, spil, póstkort og sitt- hvað annaö. Flestir munu einhverntima hafa „safnað” einhverju og flest opinber söfn i dag eru til orðin i byrj- un vegna einstakra einka- safna. í lögum félagsins segir m.a.: Tilgangur félagsins er að tengja saman safnara með skyld áhugasvið, auka kynni og samstarf safnara úti á landi, halda fræðslu- fundi og erindi og stuðla að sýningum hluta. Markmið félagsins er m.a. að vinna að þvi að sérhver skóli hafi i sinni umsjá vel skipulagt safn muna, jafnt úr dýra-, jurta- og steinariki og munu félagsmenn reiðubúnir til að leiðbeina með slikt. Einnig gengst félagið fyrir sumarferðum til náttúru- skoðunar með söfnun i huga. Fyrsti formaður félagsins var Lúðvik Jónsson, meina- tæknir, sem lést fyrir aldur fram. Félagsmenn geta allir þeir Islendingar orðið, sem hafa áhuga á einhverri tegund söfnunar og/eða vilja stuðla aö velgengni samtakanna. Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér nánar starfsemi félagsins skal bent á að snúa sér til Kristjáns S. Jóseps- sonar i sima 26628 og. veitir hann allar nánari upplýsing- ar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.