Þjóðviljinn - 09.08.1978, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. ágúst 1978
Málefni ungmennafélagshreyfíngarinnar i dag
Markmiðin eru
Starfsemi ungmennafélaganna
stendur meö miklum blóma i
dreifbýlinu og virðist hafa náð
sterkari fótfestu þar en annars
staðar. Þjóðviljinn leita'ði þvi út
fyrir þéttbýlismörkin á
suövesturhorninu og fékk Her-
mann Nielsson iþróttakennara á
Eiöum til aö spjalla um málefni
ungmennafélagshreyfingarinnar
i dag. En auk þess að kenna
iþróttir viö alþýðuskólann á
Eiðum gegnir Hermann stöðu
formanns úíAumþessar mundir.
Alhlida upp-
byggingarstarf
„Ungmennafél.hreyfingin efldist
mjög ikringum aldamótin og átti
mikinn þátt í þeirri menningar-
legu og þjóölegu vakningu sem
leiddi til sjálfstæðis okkar um siö-
ir. Um skeið hljóp nokkur doöi i
starfsemina en ég held hún sé aö
rifa sigupp að nýju. Seg'ja má að i
dag sinnum við alhliöa uppbygg-
ingarstarfi, reynum aö rækta
líkamlegan og andlegan þroska
meðlimanna sem best. Sem dæmi
um stærð samtakanna get ég
nefnt að í ÚtA eru starfandi 22 fé-
lög. Virknin er að aukast, og til
marks um það tóku 500 ung-
menni, flest á aldrinum 9-14 ára,
þátt i sumarmótinu hjá okkur.
Við leggjum mesta áherslu á
æskulýðsmál og sem liö i þvi
reynum viö aö gefa unglingum
kost á skemmtunum viö þeirra
hæfi, þar sem áfengi er ekki haft
um hönd. A sumarmótinu vorum
viö t.d. með stórt danstjald, þar
sem popphljómsveitir léku og for-
Úthlutad
á Hlemmi
Skýlið tilbúið 1.
september n.k.
Úthlutaö hefur veriö 5 versl-
unarplássum í nýja biöskýlinu á
Illemmi og áætlað er að taka
skýlið I notkun 1. september n.k.
A sinum tima voru boðnir út 9
verslunar- og þjónustubásar og
bárust fjöldamörg tilboð. Stjórn
SVR hefur fjallað um tilboðin, en
borgarráð gekk formlega frá út-
hlutun á 5 básum á fundi sinum 1
gær. Var I öllum tilfellum tekiö
hæstu boöum. Frestaö var
úthlutun á 3 básum, sem ætlaðir
eru fyrir skyndimyndir, ljúfmeti
og leikföng.
Niunda básnum hefur þegar
veriö ráðstafað til SVR en það er
sælgætis- og tóbakssalan, sem
SVR hyggst reka.
Þeir sem hlutu verslunarað-
stöðuna eru:
1. Snyrti- og hreinlætisvörur:
Dóra Pedersen og Hanna
Hofsdal. 201.000 króna leiga á
mánuði eða 10.984 kr. pr.
fermetra.
2. Blóma og gjafavörur: Gúðrún
Jóhannsdóttir og Valdis Jóns-
dóttir, 130.000 krónur á mánuði
eöa 8.667 kr. pr. fermetra.
3. Biöð og bækur: Guömundur H.
Sigmundsson, 135.000 krónur eða
12.617 kr. pr. fermetra.
4. lssala: Mjólkursamsalan,
151.000 eða 19.483 kr. pr. fer-
metra.
5. Veitingar: Einar
Guðmundsson i samvinnu við
Halldór; Júliusson.veitingamann I
Útgarði, 300.000 krónur eða 21.127
kr. pr. fermetra.
Tilskiliö er að ársleiga verði
greidd fyrirfram og siöan árs-
fjóröungslega,en leigusamningur
verður gerður til þriggja ára.
—AI
Rætt við
Hermann
Níelsson
íþróttakennara
á Eiðum
eldrar gátu skemmt sér með
börnunum. Og ég held að til að
koma æskulýðsmálum úr þeirri
úlfakreppu sem þau eru viða i,
sbr. Hallærisplanið i Reykjavik,
séu varla aðrar leiöir færar en
efla starf frjálsra æskulýðsfélaga
á borð við ungmennafélögin. Það
verður lika að hafa unglingana
sjálfa meði' ráðum. Aftur á móti
held ég aö lagaboö eða rikisforsjá
hafi litil tækifæri til að greiöa úr
þessum málum.
Þjálfun i félags-
störfum
Viða er félagslif mjög ófull-
komið i sveitunum, mestan part
vegna þess að það vantar þjálfað
fólktil aðhafa forystu. Við teljum
að i okkar verkahring standi að
efla menningarlif i sveitunum og
höfum þvi um skeiö staðið fyrir
fjölsóttum félagsmálanámskeið-
um. Þau hafa gefist vel, enda er
þaöstaöreynd aö fjöldinn er mál-
laus á mannfundum, einungis
vegna reynsluleysis i aö tjá sig.
En „kerfið” hefur gersamlega
brugöist i þessum málum, þó ætið
heyrist einhverjar raddir um að
taka kennslu á þessu sviði inn i
skólana.
sífersk
Aukiö starf
í þéttbýli
Hreyfingin hefur verið gagn-
rýnd fyrir að sinna iþróttastarfi
of mikið. Og það má til sanns veg-
ar færa aö iþróttir skipa háan
sess hjá okkur, en hlutur annarr-
ar félagsstarfsemi eykst þó hröð-
um skrefum. Hitt er annaö mál,
að á þéttbýlissvæðunum, eink-
um i Stór-Reykjavik hefur áhersl-
anveriöaðmestu leyti á iþróttun-
um, en önnur starfsemi legið i
láginni. Samfara þessu hefur
hreyfingin ekki náö sömu hæð og
i dreifbýlinu. Orsakir þess tel ég
fyrst og fremst að i þéttbýlinu er
mjög mikiö af öðrum félögum
sem draga til sin fólk, sem þó
starfar ef til vill I iþróttunum hjá
okkur. Við höfum gert okkur
grein fyrir þessu, og munum leit-
ast við að efla aðra félagsstarf-
semi, s.s. fundi og félagsmála-
námskeið, þarsem fólk fær útrás,
ef svo má segja. Jafnframt er
ljóst, að þar sem ekkert samein-
ar nema sameiginleg iþrótta-
starfsemi, þá fer oft svo að
vináttan trosnar þegar keppnis-
árin eru liðin og menn hittast
sjaldnar. En viö ætlum okkur að
snúa þeirri öfugþróun við með
markvissum aögerðum og efla
starfsemina i þéttbýlinu. Annað
væri fráhvarf frá upphaflegum
markmiðum okkar.
Skortur á
tengslum
ÚlAer aðili að 1S1 en okkur hefur
þvi miður fundist skorta á nægi-
lega góð tengsl starfsmanna þess
við f élögin. ISI — og reyndar hér-
aðssamböndin líka — hafa fram
til þessa starfað of mikið i þeim
anda að félögin séu til þeirra
vegna en ekki öfugt. En sam-
Það þarf að efla starfsemi
frjálsra æskulýðsfélaga, segir
Hermann Nielsson.
böndin hljóta náttúriega að
vera til fyrst og fremst vegna
þarfar félaganna fyrir innbyrðis
samstarf. Margir forystumanna
ungmennafélaganna hafa deilt á
þennan ljóð stóru sambandanna,
og það verður að segja stjórnum
þeirra til hróss, að þær eru aö
taka við sér, m.a. vegna hóflegs
þrýstings frá okkur.
Of mikið fé til
fárra
Hverfisgata 86 verður boöin út
að nýju, samkvæmt ákvörðun
borgarráös frá í gær, I þetta sinn
til flutnings innar i lóðina, sem
jafnframt verður þá gerö að
leigulóö og mun i athugun aö frið-
lýsa húsið að utanverðu.
Áður hafði húsið verið boðiö út
til niðurrifs eða flutnings, og
bárust nokkur tilboö sem öllum
var hafnað á fundi borgarráðs i
annahafat.a.m. ekki unniö nægi-
legaiaö veita fólkifráfélögunum
kost á góðri menntun til leiðbein-
endastarfa. Við búum þvi viö
skort á hæfum leiðbeinendum i
ýmsum greinum og Iþróttafélögin
hafa þurft aö kaupa þjálfara dýr-
um dómum, t.d. I knattspyrnunni.
Reyndar er knattspyrnan sér-
kapituli, þvi hún er orðin þvilik
peningahit aö stór hluti af þvi fé
sem við öflum til Iþróttastarfsiris
með frjálsri félagastarfsemi
og styrkjum frá sveitarfélögun-
um fer i hana. Gifurlegu fé er
variö i þjálfun og ferðalög 16
manna keppnisliðs á hverjum
sta ð. Með þessu er ég alls ekki aö
sneiða aö keppendunum, sem
leggja oft á sig ótrúlega fórnfýsi
og verða m.a. fyrir miklu vinnu-
tapi. Aftur á móti rikir óánægja
með þennan peningaaustur, bæði
i ungmennafélögunum og meðal
almennings, enda væri hægt aö
verja þessu fé á mun betri hátt
fyrir almenning. Þarna tel ég að
of mikið fé fari til of fárra.
Við sem stöndum i forystunni i
ungmennafélögunum vitum að á
okkur hvilir mikil ábyrgð. Það er
skammt siðan hreyfingin var i
mikilli lægð, en með starfi ötulla
liðsmanna er hún að rísa til vegs
áný.Tilað svogeti orðið þarfnast
hún stuðnings og velvilja, og hann
mun hún fá, þvi markmið ung-
mennafélaganna koma öllum viö,
þau standa á gömlum grunni en
eru fersk á hverjum tíma.ös/öt
gær.
Samþykktin er svohljóöandi:
Þar sem greinilega er áhugi fyrir
þvi að flytja húsið Hverfisgata 86
innar i lóðina, samþykkir borgar-
ráö að hafna öllum tilboðum I
niöurrif eða flutning hússins, en
bjóða út að nýju flutninga á
húsinu innar á lóðina gegn út-
hlutun hennar sem leigulóð og
friðun hússins i B-flokki. —AI
Chrysler LeBaron. Hin nýja bifreiö Matthiasar er af sömu tegund. Hann græöir eina til eina og hálfa
miljón króna á skiptunum.
Gródi ráðherra af
endursölu af bifreiðum
ganga 3ja ára gamlar > gamlar Oldsmobile bif-
Volvo 244 DL bifreiðar á
þrjár til þrjár og hálfa
Samkvæmt upplýsing-
um sem Þjóðviljinn afl-
aði sér á tveimur bílasöl-
um hér í bæ, þ.e. hjá
Bílasölu Alla Rúts og
Bílasölu Guðfinns, þá
miljón. Hjá sömu bílasöl-
um fékkst það einnig
uppgefið að fyrir 3ja ára
reiðar eða sambærilegar
amerískar bifreiðar gætu
fengist allt að 3 miljónir.
Eins og skýrt hefur
veriðfrá hér í blaðinu eru
tveir ráðherrar í fráfar-
andi ríkisstjórn að skipta
um bíla, þeir Matthías Á.
Mathiesen og Halldór E.
Sigurðsson, auk þess
sem Gunnar Thorodd-
sen hefur einnig orðið
sér úti um nýja bifreið.
ísjálfusér erþaðekkií
frásögur færandii • að
ráðherrar kaupi sér
bíla, nema að þvi leyti
að þeir kaupa bílana
tollfrjálsa. Þannig er
Matthías að festa kaup
á bifreið sem kostar
hingað keypt 6 miljón-
ir.
Matthias borgar hins vegar
aðeins l,5-2,0 miljónir fyrir bil-
inn vegna ráðherrakjaranna.
Matthias á fyrir, Volvo 244 DL
bifreið, sem hann keypti fyrir 3
árum á ráðherrakjörum, þ.e.
tollfrjálsa. Þessa bifreið getur
hann nú selt fyrir 3-3,5 miljónir
á bilasölum. Þannig selur hann
gamla bilinn fyrir hærra verð en
hann kaupir nýja bilinn á.
Halldór E. Sigurösson er aö
festa kaup á bil sem kostar með
tollum 6,5 miljónir. Halldór
borgar hins vegar aðeins 2,0-2,5
miljónir, þ.e. greiðir enga tolla
sem eru 4,5-5,0 miljónir. Fyrir
gamla ameriska bilinn sem
Halldór keypti á ráðherrakjör-
um getur hann fengið allt að
þremur miljónum. Hagnaður-
inn vegna ráðherrakjaranna er
kálf til ein miljón.
Þess skal getið að i frétt um
þessi mál i laugardagsblaði
Þjóöviljans brengluðust upplýs-
ingar um bilagróðann, þannig
að fréttin varð illskiljanleg.
—Þig
Stjórnir ISI og sérsamband-
Hverfisgata 86
fíutt innar í lóðina