Þjóðviljinn - 10.08.1978, Page 1
Fimmtudagur 10. ágúst 1978 —169. tbl. 43. árg.
Viðræður þriggja
flokka að nefjast
t fyrramálið, föstudag, hefj-
ast viðræöur þriggja flokka um
myndun rikisstjórnar. Geir
Hallgrimsson formaöur Sjálf-
stæðisfiokksins ákvað i siðustu
vikuaökanna möguleikaá mynd-
un fjögurra flokka stjórnar. Hef-
ur sú athugun tekið um eina viku
án þess að árangur yrði af henni.
Telur Geir að ekki sé ..grundvöll-
ur fyrir þvi” að halda þeim könn-
unum lengur áfram.
Geir Hallgrimsson lagöi á það
áherslu i viðtali við rikisútvarpið
i gærkvöld að það væri engum
sérstökum „um aö kenna” að
myndun þjóðstjórnar væri ekki
talin árennileg.
Sem fyrr segir hefjast viðræður
um þriflokkastjórnina i fyrra-
málið. Verður engu spáð um
árangur en bent á þaö að allir
flokkarnir þrir hafa svipaða
stefnu að þvi er varðar lausn þess
efnahagsvanda sem viö er aö
glima þessa mánuðina.
Þingflokkur Sjáifstæðisfiokksins kom saman til fundar f gær. Þar
greindi Geir Haligrimsson frá þvi að hann teldi ekki ráðlegt að eyöa
tima i að reyna að mynda „þjóðstjórn”. Myndin er tekin I upphafi þing-
flokksfundar Sjálfstæðisflokksins: Jón G. Sólnes, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, Sigurður Hafstein, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins og Geir Hallgrimsson.
Þjóðviljinn ræddi i gær við for- þessara tiöinda og eru viðtölin við
menn allra flokkanna i tilefni þá birt hér neðar á siðunni.
Rekstrarstödvun frystihússanna
Um 3000
manns að
verða at-
vinnulausir
Um 500 manns hafa misst at-
vinnu sina á félagssvæöi Verka-
lýðs- og sjómannafélags Kefla-
vikur og nágrennis.
Að sögn Karls Steinars Guðna-
sonar formanns félagsins þá er
hér um að ræða 250 manns sem
starfa I frystihúsum á félags-
svæðinu og svipaður fjöldi
sjómanna. Eitthvaö á milli 70 og
100 manns hafa skráð sig á
atvinnuleysisskrá. Þá gat Karl
Steinar þess að fjöldauppsagnir
væru á döfinni hjá tslenskum
Aöalverktökum á Keflavikurflug-
velli og mætti gera ráð fyrir að
þar væri um að ræða nokkra tugi
manna.
Það er þvi ljóst að náiægt 3000
manns ganga atvinnulausir eöa
eru að verða það vegna stöövunar
frystihúsanna á Suðurnesjum og i
Vestmannaeyjum. En i Vest-
mannaeyjum hefur um 1100
starfsmönnum i frystihúsum
veriö sagt upp auk þess sem 500-
600 sjómenn eru að missa atvinn-
una vegna þess að móttöku á fiski
hefur veriö hætt þar.
—Þig
Halldór E. sendir
svar við bila-
kaupskveðju
Sjá 2. síðu
Dagheimilið i
Suðurhólum vantar
40 miljónir króna
Sjá baksíðu
Rðstt við forsvarsmenn flokkanna um þríflokkatilraun Geirs Hallgrimssonar
Lúðvik Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins:
Virðast vera sam-
mála um stefnu i
efnahagsmálum
— Um þessa tilraun hef ég
ekki margt aö segja annað en að
mér þykir þetta ekki óeðlilegt
að þessir þrir flokkar reyni aö
hnýta saman rikisstjórn. Það
hefur þegar komið fram að þeir
viröast allir vera meö svipaða
afstöðu I efnahagsmálum þ.e.
að það eigi að leysa vanda efna-
hagslifsins á kostnaö launa-
fólks, sagði Lúðvik Jósepsson
formaður Alþýðubandalagsins
er Þjóðviljinn spurði hann álits
á þvi að Geir Hallgrimssyni
hefði verið faliö aö reyna mynd-
un samstjórnar Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks. Ennfremur sagði
Lúðvik:
— Rikisstjórnarflokkarnir
settu iög um launalækkun eins
og öllum er kunnugt. Um þá
stefnu var kosið i kosningunum
og barðist Alþýðuflokkurinn
gegn þessari kjararánsstefnu.
Hann hefur snúist alveg til fylg-
is við þessa stefnu eftir kosning-
arnar, og jafnvel lýst sig fúsan
til þess að ganga ennþá lengra
til kauplækkunar en rikisstjórn-
arflokkarnir höfðu gert. Þegar
þetta ligguf fyrir er eðlilegt aö
þessir flokkar finni hvern annan
og sameinist um aö framfylgja
þessari stefnu sinni.
— Hefur þú trú á að þessi
Einar Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins:
Erfitt að segja fyrir um
á hverju gæti strandað
Framsóknarmenn samþykktu
á miöstjórnarfundinum á föstu-
dagskvöldið s.l. að taka þátt I
viðræöum um myndun sam-
stjórnar Sjálfstæöisflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks, og munum viö leggja
málefnasamning, ef samkomu-
lag verður um hann I viðræðun-
um, fyrir miðstjórnarfund á
nýjan leik.
Þannig fórust Einari Agústs-
syni, varaformanni Fram-
sóknarflokksins, orð er Þjóð-
viljinn leitaöi álits hans á þeirri
samþykkt þingflokks Sjálf-
stæöisflokksins að hafnar yrðu
viðræður undir forystu Geirs
Hallgrimssonar um slika
stjórnarmyndun.
Einar sagði að það yröi
ákveðið I dag, fimmtudag, á
þingflokksfundi Framsóknar-
manna hverjir verða i viðræöu-
nefndinni af hálfu flokksins.
AðspurðurskýrðiEinar þá frá
þvi að deildar meiningar hefðu
verið i þingflokki hans um hvort
stef na ætti að þjóðstjórn, en þar
hefði komiö m.a. fram að
óframkvæmanlegt væri aö
koma slikri stjórn á fót. Hins
vegar vildi Einar ekki kenna Al-
þýðubandalaginu einu um
hvernig fór með þessa hug-
mynd.
Þá var Einar spuröur hvort
hann væri bjartsýnn á það hvort
hægtveröi aðmynda stjórneftir
hinu svonefnda „stefaniu-
mynstri”, þ.e. samsteypustjórn
allra fiokkanna nema Alþýöu-
Kjartan Jóhannsson varaform. Alþýðufl:
Get ekkert
sagt um vid-
horf þing-
flokksins
Lúðvik Jósepsson
stjórnarmyndunartilrauntakist?
— Ég skal ekkert segja um
þaö, en ef þetta tekst þá þýöir
það enn eina verðbólguskriðu I
kjölfar gengisfellingar og frek-
ara kaupráns vegna þess að al-
þýða manna mun risa upp gegn
þeim aðgerðum af fullri hörku.
Það var hægt að reyna nýjar
leiðir til lausnar á efnahags-
vandanum en þessi leið sem nú
á að reyna hefur verið marg-
reynd og alltaf kollsiglt sig.-þig
Alþýðuflokkurinn mun ræða
það á þingflokksfundi á morgun
hvaða afstöðu hann tekur til
myndunar samsteypustjórnar
Sjálfstæðisflokks, Framsóknar-
flokks og Alþýðuflokks þannig
að aðsvo komnu málivil ég ekki
tjá mig um þennan möguleika,
sagði Kjartan Jóhannsson for-
maður Alþýöuflokksins I sam-
tali við Þjóöviljann I gærkveldi.
Kjartan sagðist ekkert geta
sagt um það hver væri vilji
þingflokksins til þessa þar sem
hann hefur ekki komið saman
um nokkurt skeið.
Aðspurður um afstöðu til
Kjartan Jóhannsson
þjóðstjórnarsagðiKjartan. Það
er mál Geirs að skýra af hverju
sú tilraun fór út um þúfur, en
ætli það hafi ekki veriö heidur
dræmur áhugi á þvi i þingflokki
Alþýöuflokks þótt sjálfsagt hafi
verið rétt að reyna myndun
slikrar stjórnar.
Kjartan vildi að lokum ekki
tjá sig um það hvort hann væri
bjartsýnn á að tilraun til mynd-
unar þriflokkastjórnar tækist.
—Þig
Einar Agústsson
bandalagsins.
— Einar svaraði þvi til að
hann gæti ekki sagt að hann
væribjartsýnn, en taldi erfittað
segja til um þaö á hverju gæti
strandaö, en málefnaskrá
Framsóknarmanna yrði lögö
fyrir fundina.
Einar vildi aö lokum ekki tjá
sig um þaö hvort áframhaldandi
samstjórn Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks kæmi til
greina, en taldi litinn áhuga á
sliku bæði hjá Sjálfstæöisflokks-
mönnum og Framsóknarmönn-
um. —Þig
Geir Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins:
Almenn
vantru á
þjóðstjórn
A þingflokksfundi Sjálfstæðis-
flokksins I dag var skýrt frá
þessum könnunarviðræðum um
Þjóðstjórnarhugmyndina og
menn voru á einu máli um það
að hún væri lokin saga I bili
a.m.k. og yrði þvi að snúa sér að
öðrum möguleikum sem enn
hefðu ekki veriö reyndir. Um
þetta var almennt samkomulag,
sagði Geir Hallgrimsson i stuttu
samtali við Þjóðviljann i gær-
kvöldi.
Aöspuröur um orsakir þess að
Þjóðstjórnarhugmyndin fór út
um þúfur sagði Geir að þaö
heföi veriö almenn vantrú á þvi
Geir Hallgrimsson
að slik tilraun tækist. Þjóð-
stjórnarhugmyndin er þvi úr
sögunni sem stendur. Það er þvi
nærtækast að taka þann mögu-
leika að reyna myndun stjórnar
meö Framsóknarflokki og
Alþýöuflokki. Það er skylda
okkar að mynda meirihluta-
stjórn á þingi okkar sem höfum
verið kjörnir til þess. Hvaöa
möguleikar eru, aðrir i mynd-
inni skal ég ekki fjalla á þessu
stigi málsins. .þ^