Þjóðviljinn - 10.08.1978, Side 4

Þjóðviljinn - 10.08.1978, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓDVILJ)NN Fimmtudagur 10. ágúst 1978 DJODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandí: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: EiBur Berg- mann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein- ar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: GunnarSteinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla auglýs- ingar: Siöumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf. Hver er kauplœkkunarpostulinn? Þær deilur sem jaf nan standa um ef nahagsmál snúast um það hvernig skipt er milli landsmanna afrakstri þjóðarbúsins. Deilan er um það hve mikið á að koma í hlut launamanna, hve mikið í hlut milliliða og svokall- aðra eigenda f ramleiðslutækjanna. Deilan er með öðrum orðum stéttabarátta. Á undanförnum f jórum árum hafa hægriflokkarnir, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknar- f lokkurinn, skert kaupgetu launafólks með pólitískum ráðstöf unum og þeir hafa átt í látlausu striði við verka- lýðshreyfinguna. Verkalýðshreyfingin hefur haldið þvi f ram að unnt sé að skipta af rakstri þjóðarbúsins á annan hátt, þar sé spurningin fyrst og fremst um pólitískan vilja. I kosningunum 25. júní 1978 höfðu tveir stjórnmála- flokkar gert kjörorð verkalýðssamtakanna að sínum. Annar f lokkanna hafði meira að segja mótað efnahags- stefnu sem lið fyrir lið var kynnt meðal kjósenda fyrir kosningar. Hinn flokkurinn hafði almenn orð uppi um kjarasáttmála. Úrslit kosninganna urðu þau að þessir tveir flokkar sem áður höfðu 16 menn samanlagt á al- þingi fengu nú 28 þingmenn, bættu við sig 12 þingmönn- um eða sem samsvarar einum f immta alþingis. Aldrei í sögu lýðveldisins hef ur önnur eins tilfærsla átt sér stað i einum kosningum. Það áttí því að vera unnt fyrir flokk- ana tvo að knýja stefnu sína og verkalýðshreyf ingarinn- ar f ram til sigurs. Hinir f lokkarnir sem að vísu hafa enn meirihluta á alþingi hafa enga burði til þess að standa gegn þeim flokkum sem sigurinn unnu ef rétt er á mál- unum haldið. En það hefur því miður ekki verið gert; annar þeirra flokka sem vann kosningasigur á kjörorð- um verkalýðshreyfingarinnar ákvað aðeins réttum mánuði eftir kosningar að svíkja þau hin sömu kjörorð og þá stef nu sem í þeim fólst. Þar með var kosningasig- urinn að engu orðinn. Þessi niðurstaða hefur orðiðöllum vinstrimönnum og verkalýðssinnum ákaflega mikil vonbrigði. Alþýðu- f lokkurinn sneri baki við bandamönnum sínum en kaus í staðinn að gerast pólitískur liðhlaupi — hann skipar sér nú í raðir andstæðinganna. Hvað sem því hnútukasti liður sem gengur nú manna á milli misjafnlega vel grundað eftir að slitnaði upp úr viðræðunum um vinstri- stjórn er hitt alveg augljóst að hér hafa gerst mikil póli- tísk tíðindi og ill. 14 manna þingf lokkur Alþýðuf lokksins hef ur sameinast um að svíkja þau loforð sem frambjóð- endur hans gáfu kjósendum. Eftir að slitnaði upp úr vinstristjórnarviðræðunum hef ur Alþýðublaðið og þingmenn Alþýðuf lokksins f ullyrt hvað eftir annað að forystumenn í verkalýðshreyfing- unni haf i verið tilbúnir til þess að f allast á þá skerðingu launa sem Alþýðuflokkurinn krafðist í viðræðunum um vinstristjórn. Ekki hefur Alþýðuflokknum þó tekist að særa fram einn einasta forystumann í verkalýðshreyf- ingunni sem opinberlega vill kannast við það að hann sætti sig við tvöfalt meira kjararán en hann barðist á móti fyrir kosningarnar. Það er þó engin ástæða til þess að ætla annað en að Alþýðuf lokksmenn hafi við einhver, rök að styðjast þegar þeir fullyrða aftur og aftur að 1 verkalýðsleiðtogar styðji kjaraskerðingarstefnu þeirra. Varla færi hinn nýi flokkur siðgæðisins að fleipra um hlutina, ef þeir hefðu ekki við nein rök að styðjast! En til þess verður að ætlast að kauplækkunarleiðtogar verka- lýðshreyf ingarinnar stfgi fram. Þjóðviljinn skorar á Al- þýðuf lokkinn að draga fram á sjónarsviðið þó ekki væri nema einn einasta verkalýðsleiðtoga sem játar kaup- lækkunarstefnu Alþýðuf lokksins. Fyrr er ekki unnt að taka mark á upphrópunum Alþýðuflokksins. Þegar kauplækkunarpostulinn hefur stigið f ram munu hinir al- mennu félagsmenn í verkalýðshreyf ingunni draga af því viðeigandi ályktanir: verkalýðsleiðtogi er enginn annar en sá sem hefur tiltrú verkalýðsins. Eðvarð Sigurðsson segir í viðtali við Þjóðviljann í gær að ekki einn einasti forystumaður verkalýðshreyfingar- innar hafi léð kauplækkunarkröfum kratanna stuðning. Þegar forystumenn Alþýðusambands Islands hafi fjall- að um það hversu þeir ættu að mæta á viðræðufundi með flokkunum þremur sem ræddu vinstristjórn hafi verkalýðsleiðtogarnir fengið eitt veganesti: Samning- ana í gildi. Þrátt fyrir þessar upplýsingar Eðvarðs Sig- urðssonar heldur Alþýðublaðið því fram að i forysturöð- um verkalýðssamtakanna séu menn sem vilji fallast á kauplækkun. Þess vegna endurtekur Þjóðviljinn áskorun sína: Framásviðiðmeðkauplækkunarpostulann! —s. Hugsjónir jóns og sérajóns Þjóðviljinn er enn einu sinni að eltast við ráðherra vegna bílakaupa. Það gerir hann alltaf nema á tímabilum vinstri stjórna, þá eru bílakaup ráðherra til fyrirmyndar, eins og kunnugt er — og krafa vinstristjórnar-ráðherra um VlP-meðferð á flugvöllum og annars staðar allt að því þjóðarnauðsyn! Siðlaust og vitlaust \ Morgunblaöiö birtir i gær vin- samlegan umvöndunarleiöara þar sem hnýtt er i þaö hvernig ráöherrar nýta sér Urelt forrétt- indi sin út i ystu æsar. Þaö er ánægjulegt aö þessi leiöari skuli vera til kominn vegna skrifa Þjóðviljans um bilakaup ráö- herra á gengisfellingartimum. Ritstjórum Morgunblaösins skal bent á þaö aö Þjóöviljinn gerir engan greinarmun á þvi hvort ráöherrar i vinstri eöa hægri stjórnum nýta sér þessa möguleika til tollfrjálsra bila- kaupa. Þaö er hugsanlegt aö Magnús Kjartanssonog Magnús Torfi Ólafsson heföu, ef þeir heföu setiö tvö kjörtimabÚ á ráöherrastóli, reynt aö græöa á bilaskiptum eins og Matthias, Halldór E. og Gunnar Thor. eru aö gera nú. Þó finnst oss þaö einhvernveginn ekki passa viö skaplyndi þeirra. Höfuömálið er hinsvegar þaö aö meö bilaskiptunum nú eru ráöherrarnir ekki einvörðungu aö hafa miljónir af rikissjóöi heldur græöa þeir einnig milj- ónir sjálfir á þessum viöskipt- um. Þaö er bæöi siðlaust og vit- laust, þótt löglegt sé. Lygamaskina krat- anna Lygamaskfna kratanna sem malaö hefur siöustu daga i dag- blööunum er sannarleg ósvifin. Benedikt: Fullt samráö viö stjórn verkalýösmálaráös. Ekki stendur þar steinn yfir steini þegar grannt er skoöaö. Ein fullyröingin er aö viö- ræðunefnd Alþýöubandalagsins hafi ekkert ssimráö haft viö verkalýösforystu flokksins. Þessu áróðursbragöi er i raun- inni þegar svaraö i viötali sem Þjóðviljinn átti viö Benedikt Daviösson, formann Verkalýös- málaráös Alþýöubandalagsins, laugardaginn 22. júli, tæpri viku áöur en slitnaöi upp úr viöræö- um um myndun vinstri stjórnar. Benedikt segir: „Stjórn verkalýösmálaráös hefur átt tvo formlega fundi meö þingflokki og fram- kvæmdastjórn Alþýöubanda- iagsins. Einnig hefur veriö haft náiö samráö viö viöræöunefnd Aiþýöubandalagsins. A fundum hefur veriö fariö yfir helstu málafiokka og sérstaklega fjall- aö um þau mál sem verkalýös- hreyfingin leggur áherslu á. Aö okkar dómi er þaö grund- vallaratriöi aö rikisstjórn sem mynduö yröi viröi kjarasamn- inga. Hver sem ætlar sér aö mynda rlkisstjórn og viröir ekki kjarasamninga iendir I and- stööu viö verkalýöshreyfinguna I heild”. Mygluð kratalumma Og Þjóöviljinn spyr sföan Benedikt um eina kratalumm- una i viöbót: ,,— Sagt hefur verið I ýmsum blööum aö „menntamenn I þingflokki Alþýöubandalags- ins” hafi boriö verkalýösforystu Alþýöubandalagsins ofurliöi og ekki virt óskir hennar um sam- stjórn meö Sjálfstæðisflokkn- um? — Þetta stenst ekki. Alþingis- kosningarnar beindu Alþýöu- bandalaginu beinlfnis inn á þá brautaö stuöla að vinstri stefnu. Þaö var kosiö um stefnuna I efnahagsmálum. Rikjandi var hægristefna, en andstæöa henn- ar er vinstri stefna. Sjálfstæöis- og Framsóknarflokkar réöu feröinni I siöustu stjórn og þeir eru ekki liklegir til aö breyta efnahagsstefnunni. Þaö er al- gerlega Ur lausu lofti gripiö aö verkalýöshreyfingin telji Sjálf- stæöisflokkinn llklegan til aö fylgja stefnu er verkalýössam- tökin geti sætt sig viö. í kosning- unum var kosiö gegn Sjálf- stæöisflokknum og efnahags- stefnu hans. Þingflokkur og framkvæmdastjórn Alþýöu- bandalagsins hafa haft fullt samráö viö stjórn verkalýös- málaráös viö undirbúning stjórnarmyndunarviöræön- anna.” Lygin hrakin Þvl hefur veriö haldiö fram af Eövarö: Vildum ekki svfkja meginkröfu verkalýössamtak- anna. krötum aö Eövarö Sigurösson hafi setið hjá þegar þingflokkur Alþýöubandalagsins neitaöi þátttöku i viöræöum um ,,ný- sköpunarstjórn. Þessu svarar Eövarö Sigurösson i Þjóöviljan- um I gær: „Segja þeir þaö já. Þaö er hel- ber þvættingur. Allur þingflokk- urinn stóö aö þessari samþykkt, þar var enginn á móti og allir einhuga. Þar á meöal ég.” Þar meö er einni kratalyginni I viöbót hrundiö. Krosstréð brást Enn halda kratar þvi fram aö verkalýösforysta Alþýöubanda- lagsins hafi veriö „svfnbeygö” og hún hafi haft ógnaráhuga á aö framkvæma efnahagsstefnu Alþýöuflokksins i félagi viö hann. Sunnudaginn 30. júli svaraöi EBvarö Sigurösson þessari full- yröingu I Þjóöviljanum, þar sem hann leggur áherslu á aö Alþýöubandalagiö hafi hafnaö gengisfellingu og tvöföldu kaup- ráni. ,,Ég harma þaö aö Alþýöu- flokkurinn skuli nú hafa brugö- ist stefnu verkalýöshreyfingar- innar I kjarabaráttunni, þvi ég tel aö verkalýöshreyfingin þurfi á þvl aö halda aö Alþýöuflokk- urinn stæöi viö hliö hennar eins og Alþýðubandalagiö gerir.” Kratabroddar einir mæla sér bót Og Eövarö hrekur f viötali viö Þjóöviljann i gær þær fullyrö- ingar kratabrodda, þingmanna og embættiskrata ýmissa aö til- lögur Alþýöuflokksins um 7% kjaraskeröingu i kjölfar gengis- fellingar eigi hljómgrunn i verkalýöshrey fingunni: Karl Steinar: Ekkl einu sinni hann hefur lýst stuöningi viö kjaraskerðingarhugmyndir Al- þýöuflokksins beinum orðum. „Ég minnist þess ekki aö einn einasti verkalýösforingi hafi tekiö undir þaö aö verkalýös- hreyfingin ætti aö taka á sig þessa kjaraskerðingu. Hvorki I okkar rööum né I Alþýöuflokkn- um . ÞJV: En Karl Steinar hefur mælt þessu bót? EÐVARÐ: Ég minnist þess ekki einu sinni aö hann hafi beinlinis stutt þetta, ekki bein- um oröum. ÞJV.: Þaö er þá enginn I verkalýöshreyfingunni sem mælir þessu bót? EÐVARÐ: Enginn sem ég veit til. Og ég vil benda á aö þegar miöstjórn ASl undirbjó fund sinn meö fulltrúum viö- ræöunefnda flokkanna nú um daginn (fundinn sem Benedikt aflýsti, innskot Þjv.) þá fengu fulltrúar ASl aöeins eitt vega- nesti, og aöeins eitt: Samning- ana I gildi.” Af þessu má ljóst vera hvert öfugmæli þaö er aö Alþýöu- bandalagiö hafi skorast undan aö taka meö ábyrgum hætti á vandamálunum. Þaö neitaöi hinsvegar að standa aö svikum viö yfirlýst stefnumiö Verka- lýössamtakanna ásamt Alþýöu- flokknum. Þaö er glæpurinn sem kratar vilja nú dæma Al- þýöubandalagiö út úr islenskri pólitik fyrir aö hafa drýgt. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.