Þjóðviljinn - 19.08.1978, Side 3

Þjóðviljinn - 19.08.1978, Side 3
Laugardagur 19. dgúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Frá fundi forystumanna Alþýöubandalags og Alþýðuflokks með fulltrúum launþegahreyfingarinnar. Ljósm. —eik. Mikil fundahöld í gær — Rætt við verkalýðsforystuna Þaö er vor í lofti sagöi Guömundur J. Guðmundsson í gœr Mikil fundahöld voru aII- an daginn i gær vegna stjórnarmyndunarviðræði anna. Þingflokkur Alþýðu- bandalagseins kom saman til fundar kl. 10 í gærmorg- un þar sem þingmönnum var gefið yfirlit yfir stöð- una í viðræðunum og þær tillögur, sem fram hafa komið til lausnar á efna- hagsvandanum voru rædd- ar. Kl. 14 i gær hófst svo fundur Lúðviks Jósepssonar og Bene- dikts Gröndals meö forystumönn- um i launþegahreyfingunni og mættu þar fulltrúar almennu verkalýðsfélaganna, fagfélag- anna og fulltrúar opinberra starfsmanna. A meðan sá fundur stóð yfir áttu aðrir forystumenn Alþýðuflokks og Alþýðubanda- lags með sér fundi um einstök mál. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasam- BIÐSKÁKIN: Kortsnoj bað um frestun I gær áttu þeir Karpov og Kortsnoj að tefla áfram 13. ein- vfgisskák þeirra sem fór I bið á fimmtudaginn. Flestum á óvart bað Kortsnoj um frestun á bið- skákinni I 2 daga. Eins og kunnugt er þá notaði Kortsnoj mikinn tima á biðleik sinn, þ.e. 41. leik hvits. Hann hefur aðeins 20 minútur til að ljúka 15 leikjum en næstu timamörk eru við 56 leiki. Biðstaðan er talin ivið betri hjá Kortsnoj jafnvel þó hann sé skiptamun undir. Kortsnoj og að- stoðarmenn hans rannsökuöu biö- skákina alla fyrrinótt og hafa greinilega komist að þeirri niður- stöðu að best væri að rannsaka hana enn betur og þvl bað Korts- noj um frestun. Keppendur mega fresta þrisvar án þess að tilgreina neina sérstaka ástæðu. Þetta er i annað sinn sem frestaö er i ein- viginu en Karpov fékk áður frest-' aö 12. einvigisskákinni. 14. einvigisskákin verður tefld samkvæmt áætlun á laugardag- inn. —hól bandsins sagði er hann var spurð- ur hvort hann væri vongóður um að þessar stjðrnarmyndunarvið- ræður bæru árangur: „Þaðervor I lofti” Karl Steinar Guönason vara- formaður Verkamannasam- bandsins sagði að hann væri mjög vongóður um að þetta tækist nú, og bætti þvi við að það ætti að liggja ljóst fyrir nú um helgina hvort árangur yrði af viðræðun- um. Þá sagði Guðmundur Þ. Jóns- son formaður Landssambands iðnverkafólks, i örstuttu samtali við blaðið, að hann væri nokkuð bjartsýnn á að hægt yrði að mynda stjórn i þessari tilraun. Að loknum fundi formanna flokkanna með forystumönnum launþegahreyfingarinnar hófust viðræður flokkanna á nýjan leik og mætti þar Jón Sigurðsson.for- stjóri Þjóðhagsstofnunarinnar, gagngert til að svara ýmsum fyrirspurnum um efnahagsmál, en eins og fram kom i viðtali Þjóðviljans við Ragnar Arnalds i gær þá hafði Þjóðhagsstofnun verið sendur spurningalisti. Ragnar Arnalds tjáði blaðinu siðdegis i gær að það sem einkum væri nú til umfjöllunar i viðræð- unum væri meðhvaða móti mætti afla tekna til að standa straum af kostnaði við niðurfærsluaðgerðir. Samkomulag mun vera um að setja samningana i gildi, en ekki hefur verið rætt til hlitar hvort það eigi að gilda um hæstu iaun, en ljóst er að ef af þvi yrði þá myndu skattar verða hækkaðir á hátekjumennina. —Þig BLAÐBERABIÓ Aladdinlampinn gamanmynd i litum. Aðalhlutverk: Tony Rendal. Sýnd kl. 1 e.h. i Hafnarbiói laugardaginn 19. ágúst. djoðviuinn Siðumúla 6. Simi 8-13-33. TILKYNNING til rafverktaka á Austurlandi Frá og með 1. október 1978 taka i gildi reglur um rafverktakaleyfi. Starfandi rafverktökum á Austurlandi er bent á að kynna sér skilyrði og skilmála, til að öðlast rafverktakaleyfi við rafveitur á Austurlandi. Upplýsingar varðandi rafverktakaleyfin eru veittar hjá Rafmagnsveitum rikisins Selási 8 Egilsstöðum simar 1300-1303 og Rafveitu Reyðarf jarðar simi 4210 Reyðar- firði. Rafverktökum sem ekki eru með rafverk- takafyrirtæki sin skráð á Austurlandi eftir 1. október 1978 er óheimilt að taka að sér raflagnavinnu á framanskráðum orku- veitusvæðum, nema samkvæmt rafverk- takaleyfi. Rafmagnsveitur rikisins Austurlands- veita Rafveita Reyðarfjarðar. LÆKNASTOFA MIN Alfheimum74, verður lokuð frá 1. septem- ber til áramóta. Sigurður E. Þorvaldsson sérfræðingur i lýtalækningum. Blaðamaður á Þjóðviljanum óskar eftir litilli ibúð á leigu sem fyrst. Upplýsingar i sima 40595. SUMARFERÐ ALÞYÐUBANDALAGSINS í REYKJAVIK 3, SEPTEMBER N.K. Kynnumst landi og sögu í sumarferðinni Sumarferö Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik verður farin sunnudaginn 3. september n.k. Ekið verður sem leið liggur í Þjórsárdal og verður dvalist þar allan daginn. Eins og ávallt verða góöir leiðsögumenn i hverri rútu, fjöl- fróðir menn, sem eru þaul- kunnugir sögu og náttúru lands- ins og I Þjórsárdal er margt fróðlegt að sjá. Þar var eitt sinn blómleg byggö með 20 bæjum og kirkjustað á Skeljafelli, en næsti nágranni byggðarinnar, Hekla lagði hana i auðn i einu vetfangi. Margir hafa eflaust komið i Þjórsárdalinn, heimsótt Stöng og skoðað Þjóðveldisbæ- inn, en I dalnum og nágrenni hans eru ótal aðrir staðir, sem eiga sér merka sögu, auk þess sem landslag er stórbrotið og fagurt i Þjórsárdal, — ekki sist á þessum árstima i skrúði haustlita og berja. Frá Vindási við Sandá verð- ur farið i e.k. hringferðir um dalinn en einnig mun gefast gott tækifæri til gönguferða, útivist- ar og þeir sem vilja geta fengið sér sundsprett i nýju „Nor- dals”-lauginni i dalnum. Farmiða má panta á skrif- stofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3 i sima 17500. Skrifstofan er opin frá 9-17 virka daga og til að auðvelda undir- búning ferðarinnar er æskilegt að menn skrái sig sem fyrst eftir helgina. Verði farmiða verður i hóf stillt að venju, þannig að enginn ætti að þurfa að sitja heima þess vegna. Fararstjóri verður Björn Th. Björnsson, listfræðingur, en i ferðanefnd félagsins eru að þessu sinni Jón Hnefill Aðal- steinsson, sagnfræðingur, Silja i sumarferöum Aiþýðubandalagsins sameinast skemmtun og fróð- leikur, og ætU ferðin i Þjórsárdal að geta orðið öllum til ánægju livernig sem viðrar. — Þessi mynd var tekin I sumarferðinni 1976, en þá var komið viði dalnum á leið til Sigöldu. Ljósm. — eik. Aðalsteinsdóttir, bókmennta- arkitekt og dr. Gunnar Karls- fræðingur, Hrafn Hallgrimsson, son. —Ai

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.