Þjóðviljinn - 19.08.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 19. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
„Þetta er gert að fyrirmælum
borgarverkfræðings
án efa....,
Eins og komiö hefur fram i
Þjóöviljanum hefur veriö
samiö aö nýju viö verktaka
þann sem byggir dagheimil-
iö viö Suöurhóla fyrir
Reykjavíkurborg. i fyrri
samningum viö verktakann
var áætlaö aö verklok yröu
fyrir 1. október og þann dag
tæki dagheimilið til starfa,
og I fjárhagsáætlun þessa
árs var veitt til byggingar-
innar 95 miljónum króna,
sem taliö var myndi nægja
til verkloka. Þegar fjárhags-
áætlun var endurskoöuö nú I
sumar var þessi tala, 95
miljónir, látin standa
óbreytt, en nú er Ijóst aö um
40 miljónir vantar til viöbót-
ar, ef ljúka á verkinu á til-
settum tima.
Aætlun verklok i nýja
samningnum eru 20.3. ’79.
Formaður Félagsmálaráös,
Gerður Steinþórsdóttir, rit-
aði fyrir skömmu grein i
Timann um þessar breyting-
ar á verksamningnum og
bókun félagsmálaráðs vegna
þess, og þykir Þjóðviljanum
rétt að endurbirta grein
Gerðar hér.
Nokkur skrif hafa orðið um
dagvistarmál i blöðum undanfar-
ið (Mbl. 6. ág., Þjóðv. 9. ág. og
Mbl. 11. ág.) Tilefni þessara
skrifa er bréf byggingadeildar
borgarverkfræðings — þar sem
greint er frá samkomulagi við
verktaka þriggja barnaheimila —
og bókun meiri hluta félagsmála-
ráðs á fundi sinum 3. ágúst s.l.
Tilgangur þéirrar bókunar var i
fyrsta lagi, að mótmæla þeim
vinnubrögðum, sem viðhöfð voru
gagnvart félagsmálaráði og i
öðru lagi, að beina þvi til borgar-
ráðs, að það endurskoðaði samn-
ingana við verktakana i þvi
augnamiði að upphafleg áætlun
standist um opnunartima dag-
vistunarheimila.
Þetta er kjarni málsins. Um
hlutdeild borgarverkfræðings
verður rætt siðar.
Bréfiö lagt fram.
Bréf frá byggingardeild
borgarverkfræðings barst félags-
málastjóra 25. júli s.l. Voru þá
liðnir nitján dagar frá dagsetn-
ingu þess. Af þessum seinagangi
má draga þá ályktun, að ekki hafi
þótt aðkallandi að koma boð-
skapnum til þeirra aðila, sem
með réttu eiga að sjá um stefnu-
mótun og uppbyggingu dag-
vistarmála i borginni.
Og
55
Fyrrgreint bréf var lagt fram i
stjórn dagvistar 27. júli. Nefndina
skipa þrir fulltrúar félagsmála-
ráðs, þar af tveir borgarfulltrúar,
fulltrúi starfsfólks dagvistar-
heimila og fulltrúi Sumargjafar.
Enginn hafði heyrt getiö um
þessa samninga, og borgarfuli-
trúar lýstu þvi yfir aö niöurskurð-
ur á framkvæmdum borgarinnar
heföi ekki átt að koma niður á
dagvistarheimilum. A sama tima
og bréfið liggur væntanlega hjá
byggingadeildinni er verið að inn-
rita börn á dagheimilið við Suður-
hóla, sem ^tti að taka til starfa
skv. áætlun 1. okt.
Afriti af samkomulagi við verk-
taka þessara þriggja barnaheim-
ila fylgdi stutt bréf, og þykir mér
rétt aö vitna orörétt i það til aö
sýna hversu óljóst kemur fram
hvar, hvernig og af hverjum
ákvörðunin er tekin:
„Þetta er gert aö fyrirmælum
borgarverkfræðings og án efa i
samráði eða samkvæmt fyrir-
mælum fjármálastjórnar borgar-
innar.”
1 bréfinu er lögð áhersla á fyrir-
mæli borgarverkfræðings. Þann-
ig dregst hann inn i málið.
Fjárhagsáætlun
A siðari hluta árs fer ávallt
fram endurskoðun fjárhagsáætl-
un^r. A fundi borgarstjórnar i júli
var gerð grein fyrir niðurskuröi
framkvæmda á vegum borgar-
innar og náði hanh ekki til dag-
vistarheimila. Þab var fjárhags-
áætlun látin standast, sem þýöir i
raun niðurskurður með lækkandi
gengi krónunnar. Þetta þýðir, að
Dagheimiliö viö Suöurhóla, þar sem fjöldafólks hefur veriö úthlutaö plássum fyrir börn sln 1. ol tóber n.k.
þau þrjú barnaheimili, sem nú
eru i smiðum, dragast á langinn:
Dagheimiliö við Suðurhóla átti
skv. upphaflegri áætlun, að taka
til starfa 1. október, en eftir nú-
gildandi samningi 20.3. ’79, dag-
heimilið viö Hagamel (Vestur-
borg) 1. nóvember, en frestast
fram i febr., og skóladagheimilið
við Völvufell um áramót, en
frestast fram til 15. mars 1979.
En — fjárhagsáætlun stenst —
þýðir einnig, að boðin veröa út tvö
ný dagheimili á þessu hausti.
Bókun félagsmálaráös
Félagsmálaráð er sá aðili, sem
á aö móta stefnuna i dagvistar-
málum og sjá um uppbyggingu
þeirra. Það skýtur þvi skökku viö
þegar gengið er fram hjá ráðinu
við svo mikilvæga ákvöröun.
Ljóst er aö samþykkt borgarráðs
á sinum tima um nýja samninga
viö verktakana hefur gengið
hljóðalaust fyrir sig, þar sem
borgarfulltrúar, sem sæti eiga i
félagsmálaráði vissu ekkert um
þessa ákvörðun.
Bókun félagsmálaráðs 3. ág.
s.l. og samþykkt var með fjórum
atkvæöum er eftirfarandi:
„Félagsmálaráð mótmælir
þeirri málsmeðferö borgarverk-
fræðings að semja viö verktaka
þriggja barnaheimila um frestun
á skiladegi án nokkurs samráðs
við félagsmálaráö og stjórn dag-
vistar. Bréfið frá byggingardeild
borgarverkfræðings til verktak-
anna er stilað 6. júli s.l. er berst
félagsmálastjóra 25. júli s.l.
Félagsmálaráð samþykkir að
skrifa borgarráði og fara þess á
leit við ráðiö að það endurskoði
ákvöröun borgarverkfræðings.”
Reyndin hefur orðið sú, að i
bókunum og skrifum um þetta
mál er lögð höfuðáhersla á að
hreinsa æru borgarverkfræðings,
en minna hugsað um svik við
fjöldann allan af barnafólki.
Tveir borgarráðsmenn, þeir
Kristján Benediktsson og Björg-
vin Guðmondsson (Sigurjón Pét-
ursson var fjarverandi),' hafa
með bókun 8. ágúst lýst þvi yfir,
að ábyrgð þessarar ákvörðunar
hvili á þeirra breiðu herðum og
hvitþvegið borgarverkfræðing.
Meginatriðiðerþetta: Ég tel að
borgaryfirvöld verði að leita leiða
til að upphafleg áætlun um
opnunartima geti staðist a.m.k.
hvað varðar dagheimilið við
Suðurhóla.
Þessi grein er skrifuð á ábyrgö
mina.
Gerður Steinþórsdóttir
formaður félagsmálaráös
Neytendasamtökin:
Verðkönnun
í
Breiðholtí
Neytendasamtökin gerðu nýlega verðkönnun i
þremur verslunum i Breiðholti: Breiðholtskjöri,
KRON við Norðurfell og Kjöti og Fiski. Þetta ér
önnur verðkönnunin sem samtökin gera, og sagði
Reynir Ármannsson, formaður samtakanna, að
þær gæfu góðan árangur þvi kaupmenn tækju
greinilega nokkuð tillit til þeirra. Eins og sjá má
af listanum hér að neðan er allmikill verðmunur
á ýmsum matvælum i þessum þremur verslun-
um, en verðkönnunin var gerð 1. ágúst s.l.
Vörutegund Breiðholts- KRON- Breiðholti
Hveiti 10 Ibs. kjör Norðurfelli Kjöt & f iskur
Philsbury's 865,- 888,- 860,-
Sykur2kg. 156,-1 kg. 280,-2 kg. 278, -2 kg.
Hrísgrjón 454 gr. Appelsínudjús 187,- 179,- 134,-
21. Egils Korn flakes 1.009,- 1.009,- 907,-
KELLOGS 250 gr. 361,- 390,- 342,-
Klósetpappír Regin Uppþvottalögur 107,- 106,- 104,-
Þvol 2 1. 543,- 544,- 491,-
Sirkku molasykur Ikg. 277,- 265,- 299,-
Frón mjólkurkex 400 gr. 229,- 215,- 214,-
Holts mjólkurkex 250 gr. 192,- 192,- 193,-
Frón kremkex 230,- 236,- 235,-
Royal lyftiduft 450 gr. 386,- 386,- 368,-
Kakó FRY'S 2.27 gr. 701,- ROWNTRE'S 250 gr. 857,-
Flórsykur 500 gr. 138,- 122,- 117,-
Ora fiskbollur stór d. 422,- 422,- 528,-
Ora f iskbúðingur stór d Tómatsósa 613, 735,- 750,-
LYBBYS680gr. 453,- 467,- 431,-
Kartöf lumjöl 1 kg. Solgryn haframjöl 329,- 263,- 330,-
475 gr. 199,- 180,- 198,-
Grænar baunir stór dós 340,- 309,- 344,-
Púðursykur Katla Dansukker Katla
375,-1 kg. 164,-1/2 kg 375,-1 kg.
Vex þvottaef ni 700 gr. 325,- 301,- 324,-
EggjasjampóMan 283,- 323,- 207,-
Vanilludropar Kókómalt 89,- 91,- 97,-
NESQUIK800gr. 1.186,- 1.085,- 1.173,-