Þjóðviljinn - 31.08.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA —- ÞJÓÐVILJINN j Ftmmtudagur 31. ágúst 1978
Ný bók frá
Máli og menningu
Samfélags-
fræði
Komin er út hjá Máli og menn-
ingu námsbók i samfélagsfræði
cftirGísla Pálsson, mcnntaskóla-
kennara. Bókin nefnist Samfé-
lagsfræði — samhengi félags-
legra fyrirbæra. Bókinni er ætlað
aö bæta úr hinni brýnu þörf fyrir
námsefni i samfélagsfræði i
fyrstu bekkjum eða áföngum
framhaldsskólastigsins. Ilöf-
undurinn hefur stundað kennslu
um nokkurra ára skeið i Mennta-
skólanum við llamrahlíð. Ilann
hefur skrifaö allmargar ritgeröir
og greinar samfélagslegs efnis.
Höfundurinn gerir sér far um
að sneiöa hjá fræðilegum mála-
lengingum en leggur rika áherslu
á að skirskota til áhuga nem-
andans og almennra félagslegra
markmiða. 1 formála bókarinnar
segirm.a.: ,,Ef Samfélagsfræðin
kemur til móts við spurningar
lesandans er mikið unnið. Rétt er
þó að taka þaö fram að bókinni er
ekki ætlað að bera á borð fyrir
nemandann endanlegan sann-
leika. Nær væri að segja að mark-
mið hennar væri að benda nem-
andanum á samhengi félagslegra
fyrirbæra og auðvelda honum að
skoða samfélagið á gagnrýninn
hátt.... Sá þráður sem tengir ein-
staka hluta þessa námefnis er
áhrifin sem samfélagið hefur á lif
manna, kjör þeirra, hugsun og
reynslu.”
Hverjum kafla fylgja leiðbein-
ingar um aðgengilegt islenskt
itarefni. Auk þess eru felldar inn i
textann allmargar spurningar
sem snerta viðfangsefnið hverju
sinni. Aftast er rækileg heimilda-
skrá. Bókin er prýdd fjölda ljós-
mynda og teikninga.
-eös
«*Wf T*
Sólarlanda-
ferðir hækka
Félag islenskra ferðaskrifstofa
hefur ákveðið að frá og með 30.
ágúst munu allar ferðaskrifstofur
taka 19% álag ofan á allar hóp-
ferðir til útlanda, vegna yfir-
standandi stöðvunar á gengis-
skráningu.
Ráðstöfun þessi er nauðsynleg
þar sem skrifstofurnar fá ekki
yfirfærðan gistikostnað fyrr en
við brottför hverrar ferðar, og i
öðru lagi eru allir leiguflugs-
samningar gerðir i erlendri mynt.
Neytendasamtökin álykta um samnorræna verðkönnun
Rannsaka þarf af
hverju innkaupsverðið
er 21-27% hærra
A fundi i stjórn Neyt-
endasamtakanna, sem
haldinn var 25. þ.m. var
fjallað um samanburð
þann á innkaupsverði
nokkurra vörutegunda,
sem verðlagsstjóri hefur
nú nýlega skýrt frá i f jöl-
miðlum.
Stjórn NS fagnar þvi frum-
kvæði. sem verðlagsstjóri hefur
átt i þessu máli og lýsir fullum
stuðningi viö störf hans að þvi.
Niðurstaða könnunarinnar stað-
festir þann grun, sem lengi hef-
ur veriðuppi um, að tslendingar
gera mun óhagstæðari innkaup
en aðrar Norðurlandaþjóðir.
Stjórn NS telur nauðsynlegt,
að við frekari verðsamanburð
verði heimilað að birta verð-
samanburð einstakra vöru-
flokka, þar sem slikur saman-
burður mundi segja mun meira
og hvetur verðlagsstjóra til að
vinna að þvi.
Stjórn NS telur þær niður-
stöður, sem birtar hafa verið,
uggvænlegar og beinir ein-
dregnum tilmælum til stjórn-
valda, að þau láti rannsaka
hverjar séu ástæðurnar fyrir
Ekki mikiö aö
grœöa á svona
meöaltali segir
Gisli Jónsson
þvi, að tslendingar búi við 21-
27% hærra innkaupsverð þeirra
vöruflokka, sem umrædd könn-
un náöi til, en aðrar Noröur-
landaþjóðir.
Vegna þessarar ályktunar
sneri Þjóðviljinn sér til Gisla
Jónssonar prófessors sem er i
stjórn Neytendasamtakanna og
spurði hann nánar úti málið.
— Okkur þykir miður að ekki
fást birtar einstakir þættir þess-
arar könnunar. Það er ekki
mikið að græða á svona meðal-
tali. í þvi geta verið litlir vöru-
flokkar sem vega mikið en vega
litið i meðalneyslu venjulegrar
fjölskyldu.
— Hvað finnst þér um um-
boðslaunin?
— Ef það er rétt hjá verðlags-
stjóra að sumir bæti sér upp
lága álagningu hér heima með
umboðslaunum þá er mjög mið-
ur íarið. Störf og þjónusta um-
boðsaðila er mjög mismunandi.
Sumir þurfa að leggja fram
mikla vinnu en aðrir gera litið
annað en þiggja umboðslaunin.
Gleggsta dæmið um slikt eru
þeir sem hafa umboð fyrir hin-
um ýmsu áfengistegundum.
Umræöa og skrif gera
mikið gagn
— Fyrir allnokkru skrifaði ég
grein i Dagblaðið um filmukaup
tslendinga, og sýndi fram á að
innkaupsverð innflytjenda hér
væri svipað og verð út úr búð i
Englandi. Útaf þessu boðaði fé-
lag áhugaljósmyndara til fund-
ar með innflytjendum filma en
þeir sáu sér ekki fært að mæta.
— Hvað cr til ráða?
— Ég legg áherslu á að stjórn-
völd geri eitthvað i málinu. En
fyrst þarf að koma hreinskilin
og opin umræða um málið.
— Við tslendingar erum mjög
sofandi i verðlagsmálum yfir-
leitt. Það er kannski eðlilegt i
öllum þeim verðbreytingum
sem verða frá degi til dags, að
fólk sljóvgast gagnvart þessu.
Hin siöari ár hafa stórmarkað-
irnir þó breytt miklu, en betur
má ef duga skal
Gisli Jónsson prófessor
Staða Neytendasamtak-
anna
Hver er staða Neytendasam-
takanna núna?
— Starf Neytendasamtakanna
er algjörlega háð áhuga al-
mennra félagsmanna. Ég held
að það sé aigjört einsdæmi með-
al nágrannalandanna. Annars
staðar er þetta svo og svo mikið
rikisstyrkt. Þær verðkannanir
sem við höfum birt að undan-
förnu hafa t.d. verið unnar af
formanni neytendasamtakanna
i hans fritima.
— Hefurðu trú á einhverjum
breytingum á næstunni?
— t röðum þeirra sem eru að
mynda stjórn þessa dagana hef
ég fundið mikinn stuðning við
neytendur. Má þvi vænta ein-
hverra átaka i þessum málum á
næstunni. HH
Innlendar vörur
standa vel aö vígí
i samkeppni við innfluttar vörur
Greinargerö verðlags-
stjóra um verðkönnun á
innfluttum vörum, sem
nýlega hefur veriö skýrt
frá i f jölmiölum, hefur að
vonum vakið mikla at-
hygli og umtal. Þar kem-
ur fram, að innkaup til
Islands séu að meðtaltali
21-27% óhagstæðari en
innkaup hinna Norður-
landaþjóðanna.
Könnunin náði til 30-40 vöru-
tegunda, en þar sem samkomu-
lag varð á milli landanna um að
birta ekki opinberlega niður-
stöður könnunarinnar um ein-
stakar vörutegundir, er ekki
vitað um hvaða vörur er hér að
ræða eða á hvaða vörutegund-
um innkaupin eru óhagstæðust.
Kaupmenn hafa kveinkað sér
mjög undan þessari verðkönn-
un, og hafa að vanda bent á þaö
að eina lausnin væri að gefa
alla innflutningsverðlagningu
frjálsa, þá myndi vöruverö'
lækka i skjóli „frjálsrar sam-
keppni”. Reynslan bendir hins
vegar i gagnstæða átt. Könnun,
sem verðlagsstjóri geröi 1976 á
verði leikfanga, sem búa við
frjálsa álagningu, leiddi einmitt
i ljós að álagning á þeim var ó-
eðlilega há miðað við innkaups-
verð.
Ýmsar spurningar vakna i
sambandi við hinar athyglis-
verðu niðurstöður verðkönnun-
Björn Guðmundsson: ódýrari
gallabuxur héren annars staðar
á Norðurlöndutn.
arinnar á innfluttum vörum.
Hvernig er t.d. ástandiö þar
sem innfluttar vörur mæta sam-
keppni við samskonar vörur,
sem framleiddar eru hér á
landi? Engin samanburðar-
könnun hefur verið gerð á þess-
um vörum á vegum Verölags-
skrifstofunnar. Þjóöviljinn
hafði samband við þrjá islenska
iðnrekendur, sem framleiða
vörur sem keppa við innfluttar
vörur á markaðinum.
Gunnar J. Friðriksson, for-
stjóri sápugerðarinnar Frigg,
sagði að þeir stæöu býsna vel að
vigi i samkeppni við innfluttar
vörur. Hann sagðist reyndar
hafa orðið var við þveröfuga til-
hneigingu miðað við það sem
fram kemur i könnun verðlags-
stjóra, þ.e. að um undirboð væri
að ræða á erlendum vörum.
Gunnar taldi það ótvirætt, að
innlendur iðnaður héldi niðri
innflutningsverði á samskonar
vörum erlendum. Hann sagði,
aö innlendu vörurnar i þessari
framleiðslú, þ.e. sápur, þvotta-
efni og hárlöður, væru yfirleitt
ódýrari, nema þegar um undir-
boð væri að ræða. Hann sagði,
að auðvelt væri að framleiða
allar þessar vörur hér heima
fyrir innanlandsmarkað. Hann
giskaði á, að innlend
framleiðsla næmi um 80% af
neyslunni að undanskilinni
handsápu, en þar væri hlutfallið
liklega öfugt, þ.e. 80% innflutt.
Magnús Helgason, forstjóri
málningarverksmiðjunnar
Hörpu hf., sagði, að islenska
framleiöslan seldist mjög vel.
Hér starfa nú fjórar málningar-
vöruverksmiðjur og þar að auki
er flutt inn máining, einkum frá
Norðurlöndum. tslenska máln-
ingin er að jafnaði mun ódýrari
en innflutt málning, og afkasta-
geta islensku verksmiðjanna er
miklu meiri en innanlands-
Gunnar J. Friðriksson: ótvirætt
að islenskur iðnaður heldur
niðri innflutningsverði á sams-
konar vörum erlendum.
markaður getur annað. Harpa
hefur t.d. selt 1000 tonn af máln-
ingu til Sovétrikjanna á ári und-
anfarin ár.
Sportver er ein þeirra fata-
verksmiðja, sem sauma sport-
buxur úr denim, flaueli og álika
efnum. Björn Guðmundsson,
forstjóri sagði, að þessar buxur
væru nú 1200-1500 krónum ódýr-
ari út úr búð heldur en sambæri-
legar buxur væru innfluttar frá
Norðuriöndum. Denimbuxur
kosta um 5900 frá verksmiðj-
unni. Björn taldi, að islenska
framleiðslan hefði fyllilega
staðist samkeppni við erlenda
vöru, en hins vegar væri erfitt
að keppa við vörur, sem fram-
leiddar væru i Hong Kong og
viðar i Austurlöndum, þar sem
vinnulaun og annar fram-
leiðslukostnaður væri lægri en
hér. —eös
íslenskur iðnaður heldur niðri innflutningsverði
á samskonar vörum, segir Gunnar J. Friðriksson