Þjóðviljinn - 31.08.1978, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Kimmludagur 31. ágúst 1978
■"".i
»//,
AÐ ÞROSKA,
ÞJÁLFA HUG
HENDUR
OG
Eins og sagt var frá i
Þjóðviljanum á laugardag-
inn voru í siðustu viku um
400 starfandi kennarar í
endurmenntun á nám-
skeiðum, sem voru haldin
á vegum Kennaraháskóla
íslands.
Þegar Þjóðviljamenn
litu inn á mynd- og hand-
menntarnámskeið, sem
fram fór í Ármúlaskóla,
urðu á vegi blaðamanns
þeir Þórir Sigurðsson,
námsstjóri í mynd- og
handmennt, og Júlíus
Sigurbjörnsson, \ sem er í
starfsnefnd mynd- og
handmenntar.
Þeir sögðu að námskeið
sem þetta hefði verið ár--
legur þáttur i endurmennt-
un kennara, síðan 1972.
Mynd- og handmennt er sam-
þætt námsgrein sem felur i sér
hannyrðir, smiði, teiknun og
vefnað, sem nú er tengdur áður-
nefndum greinum i samræmdu
námi i 1. og 2. bekk og er sérstök
valgrein i 7.-9. bekk grunnskóla.
Ástæðan fyrir þvi að áðurnefndar
greinar fá sameiginlegt heiti, er
sú að þær eru á margan hátt mjög
skyldar, hafa sömu heildarmark-
mið og styðja hver aðra.
Markmid
kennslunnar
Draga má markmið mynd- og
handmenntarkennslu i nokkra
meginþætti.
Að þroska og þjálfa hug og
hendur nemandans til að tjá eigin
hugmyndir, þekkingu og reynslu i
margskonar efnivið með viðeig-
andi vinnubrögðum.
Að efla hugmyndaflug, sköp-
unarhæfileika, sjálfstraust og
sjálfstæði nemandans.
Að stuðla að þvi að nemandinn
tileinki sér hagkvæm vinnubrögð
og nái að þeirri hæfni að verða
sjálfbjarga i verki.
Að vekja, hlúa að og efla áhuga
nemandans fyrir nytsömu þrosk-
andi tómstundastarfi.
Skólaárið 1978-1979 er i fyrsta
skipti gert ráð fyrir að mynd- og
handmenntakennsla fari fram i
öllum skólum landsins, i 1. og 2.
bekk.
Þeir bórir og Július sögðu, að
námskeið sem þetta hefði geysi-
mikla þýðingu, bæði fyrir kenn-
arana og skólastarfið sjálft.
Félagslegi þátturinn væri mjög
mikilvægur, þvi menn frá mis-
munandi landshlutum hittust,
kynntust mjög mismunandi við-
horfum og kynni sem þessi vektu
upp stéttarlega samkennd.
Breytingin i skólastarfinu er slik
að nauðsynlegt er fyrir kennara
að koma á námskeiö, þvi annars
dregst hann aftur úr fyrr en varir.
Fjölbreytt námskeiö
A námskeiðinu i Armúlaskóla
voru um 200 manns, og voru
námsþættirnir alls fimm, en litil-
lega verður fjallað um hvern fyrir
sig.
Mynd- og handmenntarnám-
skeið kennara 1. og 2. bekkjar
grunnskóla sóttu um 50 manns.
Þar voru námsþættir smiöi, vefn-
aður, leikmótun, frjáls saumur,
teiknun og málun. Þátttakendur
voru látnir gera kennsluáætlanir.
umræður voru um skipulagningu
kennsluhúsnæðis og aðstöðu til
mynd- og handmenntakennslu.
A námskeiðinu i málmsmiði
voru um 30 kennarar af báðum
kynjum. Þar var unnið i fyrsta
skipti úr áli. Alið er nýjung á
þessu sviði, og virðist ætla að gefa
mjög góða raun. Það er gott að
forma það, og beita má aðferðum
sem hverjum best likar við
vinnslu þess. Einnig er ýmsum
hlutum, sem venjulegast er
hent, svo sem niðursuðudósum,
breytt i listaverk, eða nýtilega
hluti t.d. öskubakka.
Útsaumsnámskeiðið sóttu rúm-
lega 60kennarar. Þar voru ýmsar
nýtiskulegar útsaumsaðferðir
kenndar, og hefðbundnum að-
ferðum beitt á nýjan hátt. Einnig
var þar kennd munsturgerð.
Um 30 sóttu námskeið i mynd-
mótun. Þar var unnið úr hinum
fjölbreytilegustu efnum m.a. við
sköpun þriviðra mynda. Jarðleir,
sandsteinn, pappamassi, gifs og
fleiri efni fengu á sig ýmsar
kynjamyndir.
Námskeið i vefnaði sóttu tæp-
lega 20. Vefnaður er valgrein i 7.—
9. bekk og þáttur i mynd- og hand-
menntarnámi i 1. og 2. bekk.
Vefnaðarkennsla hefur aukist
mikið i grunnskólum á siðustu ár-
um. Má i þv- sambandi geta
sýningar sem þessa dagana
stendur yfir á Kjarvalsstöðum og
ber yfirskriftina „Börnin vefa”.
Áhugi mynd-
oghandmennt-
arkennara er
mikill, eh
kennslunni er
þröngur
stakkur skor-
inn í
skólakerfinu
Viðmælendur okkar ráðlögðu
fólki eindregið að fara og sjá
þessa sýningu, þvi hún væri
allrar athygli verð.
Nauösynlegt að
fylgjast vel meö
Er við gengum um Ármúlaskól-
ann undir leiðsögn bóris og Júli-
usar tókum við nokkra kennara-
nemendur tali. Fyrst var á vegi
okkar Steinunn Ingimundardóttir
kennari við Digranesskóla i
Kópavogi.
Hún sagðist fara mjög oft á
námskeið, annað hvert ár að
minnsta kosti.
— Námskeið hefur mjög mikið
gildi fyrir okkur kennarana, þvi
alltaf er eitthvað nýtt að koma i
greinina. Það er nauðsynlegt
fyrir kennara að fylgjast vel meö,
þvi annars staðna þeir, sagði
Steinunn að lokum.
1 útsaumsstofunni hittum við
Helgu Garðarsdóttur kennara við
Stóra-Tjarnarskóla, Ljósavatns
skarði. — Siðastliðin þrjú ár hef
ég farið á námskeið, en árin þar á
undan fór ég á tveggja til þriggja
ára fresti. Ég er mjög ánægð með
námskeiðið, maður kynnist nýj-
um félögum og lærir mjög mikið,
þvi leiðbeinendurnir eru mjög
hæfir. Það ættu allir kennarar að
sækja námskeið sem þetta, svo
þeir einangrist ekkij sagði Helga.
Ætla aö breyta miklu
— Þetta er i fyrsta skipti sem
ég fer á námskeið, sagði Ólafur
Eggertsson kennari við Barna-
skólann Hamraborg Berunes-
hreppi. — Ég er eini kennarinn
við skólann svo að maður verður
að fylgjast með i öllum greinum.
Námskeiðin eru ákaflega góð.
leiðbeinendur mjög hæfir, og
opna manni nýjar brautir. Ég hef
haft mikið gagn af þessu, og ætla
að breyta kennsluaöferðum mik-
ið, svo ég geti gefið minum nem-
endum innsýn i það sem ég hef
lært. Það vantar, finnst mér,
sameiginlega innkaupastofnun
fyrir grunnskólana, þar sem
maður gæti fengið efni og tæki til
kennslunnar, sagði Ólafur að
lokum, þar sem við hittum
hann við nám sitt i málm-
smiðinni.
1 lok námskeiöisins var haldinn
fundur með leiðbeinendum og
þátttakendum, þar sem m.a. var
rætt um nauðsyn þess að stofna
félag mynd- og handmenntar-
kennara.
Komiö veröi á fót
innkaupastofnun og
námsstjórn
A fundinum voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar.
Fundur haldinn á námskeiði
mynd- og handmenntarkennara
ályktar að nauðsyn beri til aö
Konur voru engir eftirbátar karlanna við smfðarnar.
I -Wím.
Leir er al|taf vinsælt viðfangsefni.
mynd- og handmennt verði tekii;
upp i kjarna menntaskóla og
fjölbrautaskóla.
Komið verði á fót sérstakri ihn-
kaupastofnun, er annist öll kaup
á efni og tækjum fyrir mynd- og
handmenntargreinar i islenskum
skólum, og verði námsstjórar i
mynd- og handmenntargreinum
ráðgefandi um slik efniskaup.
Fundurinn skorar á mennta-
málaráðherra að koma nú þegar
á fót námsstjórn i mynd- og hand-
mennt, er nái yfir framhalds-
skólastig allt að háskólastigi.
Mynd- og handmenntarkenn-
arar eru ákaflega óánægðir með
þá timaskerðingu, sem er oröin
viða i grunnskólum landsins i
mynd- og handmenntargreinum,
þar sem kennslutimum fjölgar
ekki i samræmi við aukinn nem-
andafjölda og námsefni.
Timaskeröingu
mótmælt
Mynd- og handmenntarkenn-
arar harma að itrekaðar tilraunir
á leiðréttingu þessara mála hafa
ekki borið árangur. Þeir minna á,
að i nýútkominni námsskrá i
mynd- og handmennt er námsefn-
ið i hannyrðum og smiði miðað
við tvær kennslustundir vetrar-
langt á nemanda.
Mynd- og handmenntarkenn-
arar vilja þvi undirstrika að
áðurgreind timaskerðing á engan
rétt á sér, og skipting nemenda i
hannyrða- og smiðanámi er ekki
timabær, fyrren timum hefur
verið fjötgað um helming.
Litiö inn á 200 manna endurmenntunarnámskeið í Armúlaskóla
Fiinmtudagur 31. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Áhyggjur af
sprengjufarmi
frá síðari
heimsstyrjöld
LONDON, 29/8 (lteuter) — Skips-
flak sein legið hefur við árósa
Thames frá siðari heimsstyrjöld
veldur inörgum Hretum áhyggj-
um. Skipið 7000 tonna bandarlskt
vopnaflutningaskip, var á leið til
Cherbourg i Krakklandi með 2.893
tonn af sprengjum þegar það sökk
árið 1944, og óttast menn að þær
kunniaðgera nokkurn óskunda ef
þær spryngju.
Sprengjuserfræðingur að nafni
l)avid Cotgrove hefur bent á að
sprengjurnar séu vatnsheldar og
innihaldi auk þess TNT sem helst
virkt þrátt fyrir að það blandist
vatni.
I timariti lögreglunnar segir að
farmurinn sé enn mjög hættuleg-
ur. Hingað til hafa bresk yfirvöld
þó veigrað sér við að hrófla nokk-
uð við flakinu. Nú er það óðum að
falla saman, en mastriö stendur
upp úr yfirborðinu og er vel þekkt
leiðarmerki.
Skipsflak þetta liggur i tveggja
kilómetra fjarlægð frá bænum
Sheernessog fáeina kilómetra frá
stórri oliuhreinsunarstöö á fjöl-
farinni oliuflutningaleiö. Ef flakið
yrði fyrir farartækjum sem fram
hjá fara eða skemmdarverkum,
þannig að sprengjurnar fuðruðu
upp, er hætta á að nærliggjandi
svæði yrðu hörmulega útleikin.
Timarit lögreglunnar leggur til
að allt fólk verði flutt frá svæðinu
og siðan gæti floti hennar hátign-
ar annab hvort sprengt flakið eða
fjarlægt sprengjurnar.
Arið 1973 ályktaði varnarmála-
ráðuneytiöaöof hættulegt væri að
hreyfa við farminum og byggöi
það á rannsóknum sem gerðar
voru. Nú er ætlunin að kanna á ný
hvort mögulegt sé að fjarlægja
sprengiefniö.
Faderni frægra lista-
verka dregið í efa
LONDON, 29/8 (Reuter) —
Að minnsta kosti fjórtán
málverk og skissur sem
eignaðar haf a verið breska
listmálaranum John
Constable eru nú talin vera
verk sonar hans. Daily
Telegraph hef ur þetta eftir
tveimur sérfræðingum.
Sonurinn Lionel sem sagður er
eiga heiðurinn af verkunum
fæddist árið 1828 og var þvi niu
ára gamall þegar faðir hans dó.
Hann var einnig listmálari eins
og faðirinn fram til ársins 1855, en
þá á hann að hafa misst áhugann.
Auk hans átti John Constable þrjá
aöra syni og eina dóttur sem einn-
ig fengust við málun. Verkin sem
um er að ræða seldu barnabörn
Johns Constable á árunum 1880-
1924 en er þó haldið að seljend-
urnir hafi verið alls óafvitandi um
raunverulegan höfund verkanna.
Jafnvel er haldið að fleiri verk
sem hingað til hafa verið eignuð
John Constable séu ekki eftir
hann heldur eftir ættmenni hans.
Verk þessi eru á söfnum i Bret-
landi, Bandarikjunum og Þýska-
landi. Daily Telegraph hefur eftir
listfræðingi i London aö hugsan-
lega séu mörg verk eignuð John
Constable gerð af börnum hans og
það gæti tekið heilan mannsaldur
að komast til botns i þeim rugl-
ingi.
IDAHO FALLS 29/8 (Reuter) —
Lögreglan i Idahofylki leitar nú
dyrum og dyngjum að dularfull-
um manni sem krotaði með. sápu
á spegil i hótelherbergi „Forset-
inn mun deyja á fimmtudaginn”.
1 morgun fékk hún liðsauka þvi aö
bandariska leyniþjónustan slóst
einnig meöileitina.Carter forseti
er nú i sumarleyfi i vesturfylkjum
Bandarikjanna og á hann að
fljúga frá Idaho Falls til Was-
hington á morgun, miðvikudag.
Það var hótelþerna sem upp-
götvaði þessa dularfullu áletrun,
og sagöi hún i sjónvarpi aö maöur
einn hefði krotað hana á spegil og
hengt mynd af Carter viö hliðina,
en þegar að honum var komið
hefði hann slegið hana i kollinn
með byssuskefti og lagt á flótta.
Lögreglan sagði fréttamönnum
að einu vegsummerkin sem hún
hefði fundið væru brunagat á
rúmdýnu, og kann leitin að þess-
Carter.
um grunsamlega krotara þvi aö
revnast erfið.
Dularfull áletrun
Jaröýtu beitt á fornminjar
BRUSSEL 29/8 (Reuter) — Vega-
gerðarmenn i Suðaustur-Belgiu
fundu leifar af rómverskri höll,
en fornminjaverðir náðu ekki að
bjarga þeim frá jaröýtum.
Gerard Lambert vörður i forn-
minjasafni á þessum slóðum
sagði blaðamönnum að hann
heföi fariö á staðinn á laugar-
daginn ásamt hópi nemenda i
fornleifafræöi og hefði þeim rétt
tekist að teikna uppdrátt af höll-
inni áöur en vegagerðarmennir-
nir réðust á hana með jarðýtum
sinum og máðu burt öll vegsum-
merki um hana.