Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — !>JÓÐVILJINN Laugardagur 9. september 1978 AF FRÆÐINGUM íslenska þjóðin hafði sannarlega þraukað þorrann og góuna i aldaraðir þegar fyrir- brigðið ,,fræðingur" fyrsf leit dagsins Ijós. Án þess að„fræðingar" kæmu til lifði þjóðin menningarleg gullaldartímabil, menningarleg blómaskeið, menningarleg hrörnunarskeið og menningarlegan afturbata í milli átta og níu aldir. Þegar ég var krakki í sveit þótti orðið „fræðingur" svo ankanalegt að búfræðingar voru jafnan kallaðir fræbúðingar. Mér er sagt að orðið „f ræðingur" komi f yrst fyrir í Ritum Lærdómslistafélagsins frá 1785 og þar í samsetningunni „ættfræðingur". i öðrum samsetningum sést það ekki fyrr en í Felsenborgarsögum ef tir miðja 19. öld. í orða- bók Fritzners, sem nær fram að siðaskipturrv er orðið ekki til, né heldur það margþvælda orð „vandamál," eitt mesta tískufyrirbrigði siðari ára. Segja má að „vandamálin" séu fylgifiskar fræðinganna, því hlutverk „fræð- inga" í samfélaginu er að f inna upp vandamál og leysa þau síðan með ærnum tilkostnaði og oft á launum hjá almenningi í landinu. Á sama hátt og vísindi Háskóla íslands skiptast í raunvísindi og hugvísindi, skiptast fræðingar i „raunfræðinga" og „hugfræð- inga". Þeir siðarnefndu eru stundum kallaðir „sálvíkingar." Á hverju ári koma á vinnumarkaðinn hér- lendistugir af útskrifuðum sálvíkingum, sem reiðubúnir eru að leysa áður óþekkt vandamál (flest innf lutt frá Svíþjóð),og ef vandamál eru ekki f yrir hendi, þá eru enn aðrir sálvíkingar í því að búa þau til. Eitthvað verður fólkið að hafa að gera, ef það á að geta séð fyrir sér og sínum og lifað mannsæmandi lífi. Félagsf ræðingar, félagsráðgjafar, sálkönnuðir, sambýlisf ræðingar, uppeldis- fræðingar atferlisfræðingar, félagsmálafull- trúar, sálfræðingar, sálmeinatæknar, sex- eða kynmeinatæknar, umhverfisfræðingar, vist- fræðingar, afbrotafræðingar og próblemó* lókar (stundum kallaðir „vandamenn"). Allt hefur þetta fólk eytt dýrmætum tíma sínum, drjúgum skildingi úr eigin vasa að ógleymdum framlögum af almannafé til þess að sinna þeirri skyldu sinni að leysa áður óþekkt vandamál innflutt frá Skandinavíu. Ráðstefnur halda sálvíkingar reglulega og eru þær kallaðar „vandræði", en þeir sem ekki þurfa á sálvíkingum að halda eru nefndir „vandalausir" og fer þeim óðum fækkandi, enda eru herskarar sálvíkinga í því að benda fólki á aðsteðjandi vandamál. Sagt er að í haust muni koma til landsins, erlendis frá, víst fjórir tugir útlærða sálvík- inga, og hef ur þjóðin verið i því að undanförnu að upphugsa vandamál (próblem) handa öllum þessum sérfræðingum að fást við. Víst er talið að helmingur hinna útskrifuðu fari strax í það að stofna til vandræða sem hinn helmingurinn reyni síðan að afstýra, en til vara er ráðgert að reisa heilsuræktarstöð í „Mjóddinni" milli Breiðholts og Fossvogs. Heilsuræktarstöðin á að kosta tæpiega miljarð, en þar eiga að hafa aðstöðu sálvík- ingar eftir þörfum, sex læknar og sjötiu tal- meinafræðingar, sjúkraþjálfar, músikterap- istar, föndurterapistar, sjúkraþjálfar, meina- tæknar og gæludýragæslumenn, en þegar Ijóst var að kjallarinn undir byggingunni yrði jafn stór og stöðin öll var afráðið að lyfta honum uppá fyrstu hæð og hafa þar gæludýragæslu. Slíkt gefur sálvíkingum aukið svigrúm til starfa, enda hefur því allt of litið verið sinnt að gefa óleystum vandamálum dýrarikisins verðugan gaum. Þarna skapast mikill starfsgrundvöllur fyrir f jölmarga dýrasálfræðinga. Svíar hafa komist að þeirri niðurstöðu að sambýlisvandi gæludýra sé geigvænlegur, og ef það á við í Svíþjóð, þá á það við hér, eins og dæmin sanna. Sambýlisvandi katta annars vegar og hunda, hamstra eða páfagauka hins vegar, eykst með ári hverju. Vandi þrasta og spörva er geigvænlegur, rottur og mýs eiga við telj- andi sambúðarvanda að stríða, að ekki sé talað um antilópur og tígrisdýr. Oll þessi gælu- dýr hafa orðið sambýlisvandanum að bráð, og sá vandi kallar á sérhæfða dýra-atferlis- og dýra*sambýlisf ræðinga. Það má með sanni segja að þessi vísa eigi hér illa við: Sýnist mér sálfræðingur svolítið útí hött, verri en vitleysingur við að sálgreina kött. Flosi. Ung kona sýknuð af ákæru um fóstur- eyðingu BOWLING GREEN, Kentucky, 30/8 (Reuter) — 1 dag sýknuðu dómstólar unga konu af ákæru fyrir að hafa eytt fóstri sinu á ólöglegan hátt. Á 6. mánuði með- göngutimans iór Marla Pitchford sem er 22 ára með tilvonandi barnsföður sinum til nálægrar borgar til að leita fóstureyðingar. A gistihúsi þar i borg eyddi hún fóstrinu með hjálp prjóns. Þaö tók kviðdóm tæpa klukkustund að komast að niðurstöðu sem þeir byggðu á tæpri andlegri heilsu hennar meðan á þungun stóð, en þá var trúlofun hennar við barnsfööurinn til- vonandi ný slitið. Saksóknari ákvað að áfrýja ekki en kvað fóstureyðingarlög Kentucky- rikis frá árinu 1974 vera of óljós. Yngsti kviðdómarinn sagðist vera mjög ánægður með dóminn og hefðu kvið- dómendur ekki veriö i mikl- um vafa. Hún sagði að mál þetta hefði aldrei átt aö koma fyrir dómstóla. Pipulagnir Nylagmr, brcyf- íngar, hifaveitu- tengingar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvoldin) Um 4.500 sex og sjö ára börn hefja skólagöngu í septembermánuði í fyrsta sinn. Þá eykst að mun um- ferðgangandi vegfarenda. Nauðsynlegt er að öku- menn hafi hugfast hversu aðstæður breytast þegar svo margir nýir og óreynd- ir vegf arendur bætast í hóp þeirra sem ferðast um göt- urnar. Gjarnan er litið á börnin sem sjálfstæða veg- farendur og þau standa frammi fyrir misjöfnum aðstæðum. Aðstæðum og umhverfi sem fyrst og fremst er sniðið fyrir full- orðið fólk. Oft 'er réttur bílsins gerður meiri en gangandi vegfarenda. Mjög reynir því á að bíl- stjórar séu skilningsríkir og aðgætnir í umferðinni. é Hvernig er best að fara i skól- ann? Þannig spyrja margir for- eldrar sjálfa sig, þegar yngstu börnin þurfa i fyrsta sinn að fara ein leiðina til og frá skóla. Umferðinni fylgja hættur og þess- vegna þurfa börnin að fá aðstoö, fræðslu og upplýsingar sem for- eldrar, lögregla og kennarar geta veitt. Þessar kringumstæður gera einnig þá kröfu til hvers og eins bilstjóra, að hann skilji erfiðleik- ana sem börnum eru búnir þegar þau þurfa að komast leiðar sinnar i nýju og framandi umhverfi sem einkennist af miklum hraða. En hvað veldur sex ára börnum erfiðleikum i umferð? Hér verða nokkur atriði nefnd. 1 fyrsta lagi þurfa börnin aö finna öruggustu leiðina til og frá skóla. Það getur stundum verið erfitt, og hér hvilir ábyrgðin á okkur fullorðna fólkinu. Börn á þessum aldri hafa litla eöa enga reynslu sem sjálfstæðir vegfarendur og oft kynnast þau umferðinni i umhverfi sem þau þekkja ekki. Þau hafa ekki öðlast nægan þroska til að beita skyn- færum sinum eins og fullorðnir menn, t.d. að meta hraða, fjar- lægöir, fjölda ökutækja á ferð, bil á milli þeirra, hvaðan hljóðið berst hverju sinni, o.s.frv. Börnin þurfa að koma i skólann á réttum tima. Aðstæður i hverfum eru mjög misjafnar. Oft tekur mörg ár að ganga frá gatnakerfi og merkingum þannig að aðstæöur gangandi vegfarenda séu sæmi- lega tryggðar. Börn geta átt við sérstök vandamál að striða sem við hin fullorðnu veitum ekki athygli i fljótu bragði. Okkur hættir til að ætlast til of mikils af þeim. En það er staðreynd að 6 ára barn er óútreiknanlegt i umferðinni. Oft litur út sem það sé fullkomlega fært um að fara yfir akbrautina sjálft, liti vel til beggja hliða og hlusti. En við vitum lika að barnið gleymir auðveldlega leiðbein- ingum og öðru sem það hefur lært ef eitthvað óvænt vekur áhuga þess, t.d. bolti, leikfélagi o.s.frv. í þannig tilvikum hleypur barnið e.t.v. beint af augum án þess að gæta nokkurrar varúðar. Foreldrar geta veitt barni sinu dýrmæta fræðslu og stuölað að góðri venjumyndun hjá þvi sem vegfaranda á leið sinni til og frá skóla. 1 tilefni þess hefur Umferðarráð i samvinnu við menntamálaráðuneytið gefið út og sent til skóla foreldrabréf ,,Á LEIÐ I SKÓLANN”. Þar er að finna ýmsar upplýsingar og ráð- leggingar ásamt spurningalista um umferöaraðstæður hvers nemanda sem er að hefja skóia- göngu i fyrsta sinn. Með svörum foreldra geta kennarar yngstu deildanna, betur en ella, lagt áherslu á þau vandamál sem fyrir eru i umferðinni. Foreldrar ættu að ganga úr skugga um hvort barn þeirra fái umferðarfræðslu i skólanum og veita fræðslunni lið t.d. með góðu fordæmi i umferðinni. —Frá Umferðarráði Bóluefni til lækn- inga á bruna- sárum Breskir visindamenn hafa fundið upp nýtt bóluefni, sem gæti einfaldað mjög lækningar á brunasárum. Bóiuefni þetta verndar menn gegn sérstökum sýklum, sem nefnast „pseudomur” og ekkert lyf hefur enn unnið á. Leggjast þessir sýkl- ar á brunasár og geta valdið þvi að þau verði banvæn. Hægt er að komast hjá sýkingu af völdum þessarasýkla með sérstakri með- ferð, en hún er mjög kostnaðar- söm, og i fátækum löndum þriðja heimsins — þar sem brunasár eru mjög algeng vegna matargerðar yfir opnum eldi — er ekki unnt að koma henni við. Bóluefni þetta gæti þvi gert lækningar á bruna- sárum einfaldari í iðnaðarrikjum og valdið gerbyltingu I löndum þriðja heimsins. Tilraunirsem gerðarhafa verið með bóluefnið hafa gefið mjög góða raun, en það er þó enn á til- raunastigi og ekki fáanlegt á markaði. Þegar hefur þó verið rætt um að bólusetja slökkviliðs- menn. __(Reuter) , Er sjonvarpið bilaó? QJ Skjárinn Sjonvarpsvtpríistói Begsta5asír<fiíi 38 simi 2-19-40

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.