Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. september 1978 Einar Karl ræðir við Svavar Gestsson viöskipta ráðherra um bráöa birgöa- lögin ,,ftg vænti þess að þetta samstarf viö verkaiýössamtökin haldi áfram. Enda er það skýrt tekið fram i samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna aö um atriöi sem sncrta beint iifskjör launafólks i landinu eigi að hafa samráö við samtök þess.” -- Myndin er tekin á fundi viðræöunefndar ráöherranna með fulltrúum BSRB og ASt i vikunni. Staðfesting pólitískra tímamóta Þessi ríkisstjórn á líf sitt og starfshæfni undir samvinnu og samráði við verkalýðssamtökin — Með bráöabirgöaiögum um ráðstafanir i kjaramálum sem sett verða á morgun eru loksins staöfest i verki þau pólitísku timamótsem urðu-i kosningunum i vor. Það er óvenjulegt við þessi lög að i fyrstu grein þeirra eru greinar úr öðrum lögum felidar niður. Vcnjulega eru slik niöur- fellingarákvæði höfö aftast i slik- um lagabálkum sem þessum en hér er undirstrikað það eðli bráöabirgðalaganna að þau hrindi þeirri kjaraskerðingar- stefnu sem fráfarandi rlkisstjórn fylgdi. betta sagði Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, i upphafi er Þjóðviljinn leitaði til hans i gær og bað hann skýra ut nýju bráða- birgðalögin, sem eru hin þriðju sem stjórnin setur á sinni fyrstu starfsviku og öll snerta með ein- hverjun hætti kaup og kjör lands- manna. Áhrifin ljós í næstu viku — Lögin taka gildi frá 1. sept- ember, sagði Svavar ennfremur, það er að kaup verður greitt sam- kvæmt kjarasamningum frá 1. september. Launamenn fá þá grunnkaupshækkun sem um var samið i samningunum 1977. 1 stað veröbóta á launin er verö á land- búnaðarvörum greitt mjög mikið niður og söluskattur felldur niður af matvörum. Það er rétt að taka fram að þessi framkvæmd mun taka nokkra daga þannig að end- anleg áhrif þessara aðgerða verða ef til vill ekki komin i ljós i lifskjörum launafólks fyrr en i næstu viku. Vísitöluþakið Þjóðviljinn: En hvað um hið margumrædda visitöluþak? — I annarri grein laganna er ákvæði um svokallað visitöluþak. Það er að segja að laun fyrir ofan ákveöið mark fá visitölubætur i krónutölu en ekki hlutfallslega og er miðað við laun sem voru 200 þUsund krónur á mánuði i desem- ber 1977, en þau voru 233 þUsund krónur á mánuði i ágUst siðast - liönum. Mikilvæg trygging Þjóðviljinn: Hvaöa tryggingu fær launafólk i þessum lögum fyrir þvi að rikisstjórnin muni ekki ganga á kaupmátt launatekna þess á næstunni? — Um þetta efni er mjög mikil- vægt ákvæði i þriðju grein lag- anna. Þar er gert ráö fyrir að hafi ekki verið um annað samið fyrir 1. desember næstkomandi verði grunnlaun og tilhögun verðbóta óbreytt frá þvi sem nú er. Hér er ekki um að ræða lögbindingu kjara, heldur tryggingu rikis- valdsins fyrir þvi að þeirri launa- stefnu verði fylgt sem um hefur verið rætt við verkalýðshreyfing- una af hálfu stjórnarflokkanna i sumar. Ótvírætt að lögin gildi Þjóöviljinn: En er þaö tryggt að friður verði um þessar ráðstaf- anir rikisstjórnarinnar? — Forystumenn Alþýðusam- bands islands og Bandalags starfsmanna rikis og bæja hafa lýst sig reiðubúna til þess að beita sér fyrir framlengingu samning- anna óbreyttra, þannig að nýir samningar taki gildi fyrir 1. des- ember næstkomandi. En takist það ekki — það er aö segja að ná samningum fyrir þann tima — gilda ákvæði þriöju greinar bráðabirgðalaganna. Það er þvi ótvirætt. Það er vert að taka það sérstaklega fram,að samningar BSRB ná fram á árið 1979,en það er ætlunin að setja,fyrir 1. desem- ber næstkomandi.lög um nýjan samningsrétt opinberra starfs- manna og að jafnframt verði gerðir viö þá nýir kjarasamning- ar til 31. desember 1979. Rikisstjórnin mun nú snúa sér til Bandalags starfsmanna rikis Svavar Gestsson: Þó að ríkis- stjórnin sé aðeins fárra daga gömul er þegar Ijóst að það þarf að standa vel á verði til þess að áform kauplækkunarsinna nái ekki fram að ganga. og bæja, Bandalags háskóla- manna og Sambands islenskra bankamanna og óska eftir til- nefningu frá þeim i nefnd ásamt fulltruum þriggja 'ráðherra, fé- lagsmála-.fjármála- og viðskipta- ráðherra, sem hefðist handa um endurskoðun á lögum um samningsrétt opinberra starfs- manna. Tillit tekið til sérstöðu FFSÍ Þjóðviljinn: Forystumenn Far- manna og fiskimannasambands tslands hafa mótmælt „lögbind- ingu” kjara og telja að visitölu- þakið komi mjög iila við marga félagsmenn innan þeirra raða. Hefur rikisstjórnin tekið tillit til þeirra sérstöðu? — Fyrir utan það að hér er um misskilning að ræða varðandi það ið i bráðabirgðalögunum felist lögbinding kjara er rétt að taka fram að auðvitað ákveðast kjör fiskimanna ekki af þessum lögum heldur af fiskverðinu um næstu áramót. Þó snerta lögin kjör fast- launamanna og þá einkum yfir- manna á farskipum og stóru skut- togurunum. I lögunum er beinlin- is gert ráð fyrir þvi að sett verði reglugerð þar sem reynt verði að skilgreina dagvinnukjarna heild- arkaups þessara sjómanna, þannig að visitöluþakið taki ekki einungis mið af heildarkaupinu, þvi að inni þvi er óskilgreind yfir- vinna og vaktaálag. Þessir menn verða jú að standa sina plikt þeg- ar þarf en ekki samkvæmt föstu vinnutimaskipulagi. Enginn skattur á áhafnagjaldeyri Þjóðviljinn: En hvað um áhafnagjaldeyri sjómanna? Verður hann skattlagður eins og almennur ferðamannagjaldeyr- ir? — Þvi er fljótsvarað. t sam- bandi við sjómennina hefur það aldrei staðið til af minni hálfu að leggja skatt á áhafnagjaldeyri þeirra. Bætur almennra trygginga hækka samhliða Þjóðviijinn: Nú hefur verið allur Þó að rikisstjórnin hafi frómar óskir um að flýta endur- skoðun visitölukerfisins þá getum við ráðherrar Alþýðu- bandalagsins að sjálfsögðu ekki staðið að visitölubreyting- um sem brjóta i bága við viðhorf launafólks og verkalýðs- samtakanna. Ég hef fyrir mitt leyti engan áhuga á þvi að taka upp visitölukerfi þar sem rikjandi skipting þjóðar- tekna milli launavinnu og auðmagns yrði staðfest sem ein- hver endanlegur stórisannleikur. Vinstri stjórnin siðasta gerði það að reglu að bætur almannatrygginga skyldu hækka samtimis og almennar launahækkanir yrðu i landinu og með bráðabirgðalögunum hefur þessu bein- linis verið slegið föstu i löggjöf.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.