Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 17
I.augardagur 9. september 1978 I ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17 Atriöi úr „Heimkomumii,” Frá vinstri: Michael Jayston I hlutverki Teddys, Ian Holm (Lenny), Cyril Cusack (Sam) og Paul Rogers (Max). Undarlegar móttökur „Heimkoman” eftir Harold Pinter t kvöld kl. 21.40 veröur sýnt I sjónvarpinu leikritiO Heimkoman (The Homcoming) eftir Harold Pinter. Leikstjóri er Peter Hall. Aöalhlutverk leika Paul Rogers, Vivien Merchant, Michael Jayston og Cyril Cusack. 1 gömlu húsi i London býr sjötugur ekkjumaður, Max^yngri bróöir hans, Sam, og tveir synir Max. Elsti sonur hans, Teddy, sem býr i Bandarikjunum, kemur i heimsókn ásamt konu sinni og ta þau undarlegar móttökur á heimilinu. Harold Pinter er fæddur 1930 i. London. Hann er einn frægasti núlifandi leikritahöfundur Bretiands. Leikrit Pinters eru yfirleitt sýnd hjá Royal Shakespeare Company jafnóöum og þau eru skrifuð og i sviö- setningu Peters Hall. Mörgum hefur þótt Pinter nokkuö myrkur i máli og mörg verka hans torráðin. „Heimkoman” var fyrst sett á sviö árið 1965. t þessu leikriti þykir Pinter takast einna best upp i fjarstæðukenndum lýsíngum sinum á þvi sambands- og afskiptaleysi, sem rikir oft manna á meöal. útvarp „í deiglunni” kl. 20.35: Fjölbreytt efni úr listalífinu Stefán Baldursson býður upp á f jölbreytt efni i þætti sinum, „i deiglunni", sem er á dagskrá í kvöld klukk- an 20.35. Rabbaö veröur stuttlega viö Sigurð Bjólu og leikin lög af nýrri plötu Spilverksins, „Island”, sem kemur á markaöinn bráölega. Þá er bókakynning og verður kynnt sænsk skáldsaga um fangelsis- mál, sem vakið hefur mikla athygli. Sagan nefnist Gröndbult- en og er eftir tvo höfunda, sem skrifa undir dulnefni. SpjallgJi verður um islenska kvikmynda- gerð og rætt við Þorstein Jónsson kvikmyndageröarmann. Stuttar kvikmyndafréttir verða sagöar og m.a. sagt frá nýlegri gaman- mynd um Picasso, sem heitir „Ævintýri Picassos”. Að lokum verður lesin stutt skopsaga um skattamál. „t þættinum er reynt að hafa blandað efni úr lista- og menn- ingarlifinu, og kynna þá jafn- framt ýmislegt sem þar er á döf- inni,” sagði Stefán Baldursson. Þetta er annar þátturinn með þessu nafni. Ovist er hve margir þættirnir verða, en þeir verða á dagskrá eitthvað fram á haust. Þátturinn „1 deiglunni” er 40 minútna langur. —eös 7.00 Veðurfregnir. Fréttir 7.10 l.étt liig <>g inorgunrabh. (7.20 Morgunleikfimi). 7.55 Morgunha-n 8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Forustu- gr. dagbl. (útdr.). 8.30 Af ýnisu tagi: Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.20 Morgunlcikfini i 9.30 Oskaliig sjúklinga: Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir). 11.20 Þetta crum við að gera Valgerður Jónsdóttir sér um þáttinn. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilky nningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Hrotahrot E inar Sigurðsson og Olafur Geirs- son sjá um þáttinn. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir 16.20 Vinsælustu popplögin Vignir Sveinsson kynnir. 17.00 „Runki, danskurinn og ég”, smásaga cftir Alf é>lason Sigurður Skúlason leikari les. 17.20 Tónhornið Stjórnandi: Guörún Birna Hannesdóttir. 17.50 Söngvar f léttum tón Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Fréttir. Fréttaauki Tilkynningar 19.35 Allt í grænum sjó U msjónarmenn: Hrafn Pálsson og Jörundur Guömundsson 19.55 Tónleikar a. Intermezzó úr óperunni „Orfeus og Evridls” eftir Christoph Willibald Gluck. Auréle Nicolet leikur á flautu með Bach-hljómsveitinni I Munchen: Karl Richter stj. b. Konsert I C-dúr fyrir orgel, lágfiðlu og strengja- sveit eftir Johann Michael Haydn. Daniel Chorzempa, Bruno Giuranna og þýzka Bach-hljómsveitin leika: Helmut Winschermann stjórnar. Það er ýmislegt I deiglunni hjá Stefáni Baldurssyni I kvöld. 20.35 I dciglunni Stefán • Baldursson stjórnar þætti úr listalifinu. 21.15 Gleðistund Umsjónar- menn: Guöni Einarsson og Sam Daniel Glad 22.00 Svipast um á Suðurlandi Jón R. Hjálmarsson ræðir viöJónPálssondyralækni á Selfossi: siöari þáttur. 22.30 Veöurfregnir. Préttir 22.45 Danslög 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. 16.30 íþróttir Umsjónarmaö- ur Bjarni Felixson. Leikur úr siöustu umferð Islands- mótsins i' knattspyrnu. 18.30 Enska knattspyrnan. (L) Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Gengið á vit Wodehouse (L) Nýr, breskur gaman- myndaflokkur I sjö þáttum, byggður á smásögum eftir gamansagnahöfundinn P.G. Wodehouse. 1 aöalhlutverk- um John Alderton og Pauline Collins. 1. þáttur. Sannleikurinn um Georg Þýöandi Jón Thor Haralds- son. 20.55 Angelo Branduardi (L) Tónlistarþáttur með italska söngvaranum Angelo Branduardi, en hann nýtur nú mikilla vinsælda I heimalandi sinu. 21.40 Heimkoman (L) (The Homecoming) Leikrit eftir Harold Pinter. Leikstjóri Peter Hall. Aðalhlutverk Paul Rogers, Vivien Merch- ant, Michaei Jayston og Cyril Cusack. Leikurinn gerist i gömlu húsi i Lund- únum. Þar búa Max, sjötug- ur ekkill á eftirlaunum, yngri bróðir hans, Sam, og tveirsynir Max. Elsti sonur hans, Teddy, sem er búsett- ur i Bandarikjunum, kemur i heimsókn ásamt konu sinni og eru móttökurnar undar- legar. „Heimkoman” var fyrst sett á svið árið 1965. t þessu leikriti þykir Pinter takast einna best upp i f jar- stæðukenndum lýsingum sínum á þvi sambands- og afskiptaleysi, sem rikir oft manna á meöal. Þýðandi Heba Júliusdóttir. 23.25 Dagskrárlok PETUR OG VELMENNIÐ — II. HLUTI EFTIR KJARTAN ARNÓRSSON íþl HINSií yflRflöfi hfEFuR i Hvo-ft OW FNurv/í /Vp 0£Tfcl TW -5A/0 0(vi oWfi flFTOR BP pfTRí- VÍ5lMPfíNNA. .

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.