Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 09.09.1978, Blaðsíða 20
DWDVIlllNN Laugardagur 9. september 1978 Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaðs- ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. 1 BUÐIM simi 29800. (5 linurlN—, Versliö í sérverslun með litasjónvörp og hljómtæki GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON: Verður grýtt gæfuleiðín — fyrir þá sem ætla að hespa af endurskoðun vísitölunnar fyrir 1. desember — Kndurskoðun vfsitölunnar hefur i mínum huga verið alls- her jarendurskoðun. Bæði á grundvelli hennar og neysluvenj- um. Þar eru geysilega mörg atriði sem þarf að rannsaka og kanna með úrtaki. Núverandi grunnur er frá árinu 1964 eöa ’65 og það þarf að kanna á hvern hátt neysluvenjur hafa breyst á þeim tima sem liðinn er síðan, en þær hafa áreiðanlega breyst talsvert mikið. Siöan koma til fjölmörg önnur atriði sem útheimta ná- kvæmar rannsóknir. Þegar niðurstöður þessara rannsókna liggja f vrirþarf að taka ákvörðun Guðmundur J.: Þessar aðgerðir virðast hagstæöari fyrir lág- launafólk en hátekjumenn.... Guðjón Jónsson, formaður Málm- og skipasmiðasambandsins Niðurfærsla betri en krónu fjölgun — Ég tel umtalsverða verö- lækkun á brýnustu neysluvörum mun æskilegri kjarabót en hækkun verðbóta, sagði Guðjón Jónsson formaður Málm- og skipasm iðasambands tslands i samtali við Þjóðviljann i gær. — Aukning eða viðhald á kaupmættinumerþannigað minu áliti mun æskilegri eftir niður- færsluleið en eftir krónufjölg- unarleiö. Ég vona þess vegna að væntanlegar verðlækkanir verði aðeins upphafið aö enn frekari niðurfærslu verölags á nauðsynjavörum. Varðandi fyrirhugaöa hækkun á ýmsum vöruflokkum tel ég rétt- nyetara að afla tekna með hækkun verða á vörum sem ekki teljast til brýnna nauðsynja, þegar rikissjóður þarf aö afla aukinna tekna til millifærslu fjár og lausnar á sérstökum efnahags- vanda. Sama gildir um hækkun tekjuskatts á hálaunafólk og skatts á eignir umfram hæfilegt ibúðarhúsnæði. Þegar Guðjón var aö þvi spurður, hvort hann teldi mögu- legt aö ljúka endurskoðun visi- tölukerfisins fyrir 1. desember, svaraði hann því til, aö hann teldi sli'kt gjörsamlega útilokað. Timinn væri of naumur. — Samfara slikri endurskoöun þarf einnig að koma til endur- skoðun á uppbyggingu kauptaxta meö tílliti til mismunandi og blandaöra launakerfa sem nú tiðkast. Þessi mál eru bæri vandasöm og viökvæm og þvi ekki hægt aö framkvæma endur- skoðun undir timarpessu. t framhaldi af þvi vil ég geta þess, að mér finnst þaö frá- leit hugmynd, aö rikisstjórn eða meirihluti á alþingi geri nokkrar breytingar á visitölukerfinu án þess að full samráð séu höfö viö verkalýöshreyfinguna. Svo gróf Guðjón Jónsson: Gjörsamlega útilokað aö Ijúka endurskoöun visitölukerfisins fyrir 1. desember. afskipti af uppbyggingu og gerð kjarasamninga verða ekki þoluð. —hm uni nyjan visitölugrundvöll með samningum ntilli verkalýðs- hreyfingar og rOkisvalds, sagði Guðntundur J. Guömundsson, formaður Verkamannasambands tslands i samtali við Þjóðviljann I gær. — Til þess aö vinna þetta verk, bætti Guðmundur viö, — þarf að minnsta kosti 10 mánuöi, algjört lágmark. Þeir sem gefa sér timann til 1. desember eru þegar búnir að hugsa sér niðurstöðu, sem þá á að vera til lækkunar. Slík vinnubrögð, aö ætla sér að kássa þessu af á tveimur mánuð- um, verður sannarlega grýtt gæfuleið fyrir þá sem hana ætla. Þaö er ekki þaö sem verkalýðs- hreyfingin hefur I huga þegar hún samþykkir endurskoðun. Aö byrja á niðurstöðunni getur dug- að einhverjum aðilum i augna- blikinu, en sú leið er ekki tii þess fallin að byggja á framtiðarlausn. Bráðabirgðalög hafa verið sett i kanseliinu, til að hafa áhrif á visi- tölugreiðslur til skerðingar, sagði Guðmundur, þegar hann var spurður áhts á þvi hvort hann teldi vænlegt að rikisstjórnin setti lög um nýjan visitölugrundvöll 1. desember, ef endurskoðun verður ekki lokið, — og þau viti eru til þess eins að varast þau. Guömundur var að þvi spurður, hvaðhonum finndist um þá laskk- un á matvörum sem taka á gildi á mánudag.Hannsvaraðiþvitil, aö iþaðheila tekiö virtust þessar að- gerðir talsvert hagstæðari fyrir láglaunafólk en hátekjumenn, þar sem hinn láglaunaöi eyddi stærra hlutfalli af launum sinum i nauðþurftir heldur en sá sem hærri launin hefur. — En allt spilverk meö visitöl- una, eins og svona niöurgreiðslur eru, er ákaflega tvieggjaö, sagði hann. — Hins vegar sé ég ekki að þetta séu mjög hættulegar að- gerðir. En ég vil aö vandlega sé fylgst meö þvi t.d. að matur á veitingastöðum og i mötuneytum lækki hlutfallslega við þessar að- geröir. Þaö hefur viljað brenna við að slikt geröist ekki. Loks var Guðmundur spurður Framhald á 18. siðu Snæfellið sökk Akureyrarhöfn / í Gamla Snæfellið, sem legið hefur vðarvana utan á togaran- um Haröbaki i Akureyrarhöfn undanfarin ár, sökk i fyrrinótt, að svo miklu leyti sem festar þess leyfðu. Það maraði i hálfu kafi og á hliðini, þegar Akureyr- ingar brugöu blundi i gær- morgun. Háværar raddir hafa verið um að vernda þyrfti þetta gamalfræga skip, sem smiðað var árið 1943, en litið hefur veriö gert til þess. Kaupfélag Ey- firðinga sem er eigandi Snæ- fellsins hefur látið það drabbast niður við hliðina á siðasta nýsköpunartogaranum sem enn flýtur hér við land, Harðbaki. Myndina tók ljósmyndari Þjóðviljans —eik á Akureyri fyrir skörpmu, af Snæfellinu og Harðbaki. —-hm Gjaldeyrisskammturinn tvöfaldaður: Úr 350 í 700$ 10% gjald sett á ferðalög til útlanda Viðskiptaráöherra ákvað I gær að gjaldeyrisskammturinn vegna ferðalaga til útlanda skyldi hækk- aður úr 90.000 krónum fyrir ein- stakling i 215.000 krónur. 1 bráðabirgðalögum rikis- stjórnarinnar er ákvæði um sér- stakt gjald á ferðalög til útlanda og nemur það 10% á andvirði er- lends gjaldeyris vegna greiðslu á dvalarkostnaði öðrum en viður- kenndum kostnaði nemenda og sjúklinga og áhafnagjaldeyri. Gildir þetta 'ákvæði til 31. des. 1979. —Ai. Gunnar Már Kristófersson, form. Alþýðusambands Vesturlands: Hæpið á tveimur mánuðum Ef breyta á vísitölukerfinu verður það að gerast í fullu samráði við verkalýðshreyfinguna — Auðvitað fagna ég þessari hækkun, það hljóta allir að gera, sagði Gunnar Már Kristófersson, formaður Alþýðusa mb ands Vesturlands, þegar blaðið náði tali ai honum vestur á Rifi i gær. — Þetta er mikill akkur fyrir lág- launafólk, eins og allt sem lýtur aö lækkun neysluvara. Hins vegar er ákaflega um- Forsætisráðherra um kjaramálaþátt bráðabirgðalaganna: Vongóður um árangur Endurskoðun vísitölunnar mikið og vandasamt verk, en allt er hægt efgóður vilji er hjá öllum aðilum I 1 stuttu simtali i gær kvaðst Ólafur Jóhannesson forsætis- ráðherra vera ánægður með það að rikisstjórnin hefði nú gengið frá lögum um aðgerðir á sviöi kjara- og verðlagsmála. Hann vonaöi að ákvæði bráöabirgða- laganna um kj arasam ninga gætu tryggt vinnufrið á næst- unni, þótt ekki væri hægt aö vitna til fyrirheita af hálfu hagsmunaaöila i þvi sambandi. Spuröur um endurskoöun visi- tölunnar, kvað hann það mikið og vandasamt verk en gæti þó unnistef góður vilji væri hjá öll- um aöilum. Ólafur Jóhannesson sagði aö rikisstjórnin heföi haft samráð um þær ráðstafanir,sem bráða- birgðalögin fela i sér við ýmsa hagsmunaaðila. Yrði vonandi hægt að finna I framhaldi af þeim ráðstöfunum i samræmi viö það sem gert er ráð fyrir i stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar. Oskandi væri að unnt yrði að fá kjarasamninga framlengda um eitt ár með óbreyttu grunnkaupi en um möguleika á þvi lægju ekki fyrir neinar yfirlýsingar frá aðiium. Þó hefðu komið fram vissar samþykktir, t.d hjá atvinnurekendum, sem mættí skilja á ýmsa vegu. — Endurskoöun visitölunnar fyrir nóvemberlok? — Ég skal ekki segja um það hvort þvi' verki yrði lokiö á svo skömmum tima, en þaö eru litil takmörk fyrir þvi hvað hægt er .að gera ef góður vilji er fyrir hendi hjá öllum aðilum. Þetta er mikið og vandasamt verk og þaö eru margir aðilar sem þarna þurfa aö koma við sögu. — Fari svo að endurskoðun visitölunnar verði ekki lokið og ekki hafi tekist að semja um framlengingu kjarasamninga, hvað tekur þá við i kaupgjalds- málum 1. desember i vetur? — Þeirri spurningu hvorki vil ég né get svarað. Þetta þarf að taka til ihugunar þegar það timamark nálgast. Ég veit ekki hvort hægt er aö lita svo á að orðalag laganna gefi nákvæma bendingu um þetta fram yfir það sem felst i sjálfu orða- laginu. —h deilanlegt hvað kalla má munaðarvörur, enda hlýtur það alltaf að vera misjafnt mat. Ég sé til dæmis ekkert samhengi i þvi að með hækkun vörugjalds sé það gert erfiðara fyrir mann með lág laun að láta gera við sjónvarps- tækið sitt, — eða fá sér plötu- spilara sem eru eiginlega löngu hættir að vera lúxus. En ég hef ekkert á móti þvi aö peninga sé aflað með hækkun tó- baks og áfengis. 1 sambandi við endurskoöun visitölukerfisins sagðist Gunnar Már telja slikt verk geysilega mikla vinnu. Þarna væri á ferðinni mál sem i blönduðust hagsmunir ákaflega margra aðila. — Endurskoðunin veröur að vera þannig úr garði gerö, að kaupmáttur launa haldist. Ég tel þörfina á slikri endurskoðun fylli- lega fyrir hendi, til að tryggja á réttlátan hátt bætur til launafólks vegna verðhækkana. Kannski er hægt að vinna slika endurskoðun á tveim mánuðum, en ef hér á aö vera um raunhæfa endurskoðun að ræða finnst mér ákaflega hæpið að hún takist á svo skömm- um tima. En takist endurskoðunin ekki, þá skiptir miklu máli fyrir laun- þegahreyfinguna, að rikisstjórnin geri ekkert til að breyta visitölu- kerfinu, nema meö fullu samráði viö hreyfinguna. —hm

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.