Þjóðviljinn - 09.09.1978, Síða 12

Þjóðviljinn - 09.09.1978, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Laugardagur 9. september 1978 Umrædur um Rauðsokka- hreyfínguna og jafnréttísmál Viö höldum nú áfram þar sem frá var horfið í umræöunum viö þær Vil- borgu Dagbjartsdóttur rithöfund, Vilborgu Harðardóttur blaðamann og Guðrúnu Helgadóttur nema um Rauðsokka- hreyfinguna starf hennar og stöðu. Á siðustu Jafn- réttissiðu f jölluðu þær um tilurð hreyfingarinnar og fyrstu árin og enduðu á kvennaárinu. Láglaunarádstefnan 1975 Jafnréttissíðan: Þrátt fyrir skiptar skoðanir um gildi kvennaársins þá var ýmislegt gert það ár sem hafði áhrif á ýmsum sviðum t.d. láglauna- ráðstefnan i jan. ’75. Viltu segja okkur aðeins frá henni Vilborg? Vilborg Harðardóttir: Ég held að láglaunaráðstefnurnar tvær sem Rsh. gekkst fyrir sé með þvi besta sem hreyfingin hefur gert. Sú fyrri var i Lindar- bæ ’75. Það tók tvo mánuði að undirbúa hana. Við byrjuðum á þvi aðfara i verkalýðsfélögin og reyndum að fá þau til að standa með okkur i orði. Það þýddi ekki einu sinni að hugsa um það á borði, ekki stjórnirnar. Hins vegar fengum við lista yfir trúnaðarfólk og náðum hrein- lega i konur úr þessum félögum inn i undirbúningshópinn. Það voru fluttar 8 framsöguræður og við höfnuðum þvi að nokkur framsögumanna væri formað- ur i sinu félagi. Það var ein undantekning gerð á þvi vegna þess að sú kona vann jafnframt starfið. Framsöguræðurnar voru tviþættar, annars vegar áttu þær að lýsa kjörum kvenn- anna sem verkakonur, hins veg- ar sem konur. Þetta tókst frá- bærlega, þó að þetta væru allt konur sem aldrei höfðu talað opinberlega á fundum áður. Vilborg Dagbjartsdóttir: Það kom i ljós áð þegar manneskjan fjallar um mál sem brennur á henni sjálfri þa er hún ekki i vandræðum með að flytja sitt mál. Þær komu fram i sjón- varpi, konur sem enginn vissi að væru til og töluðu eins og ráð- herrar... Jafnréttissiöan: Þú sagöir i upphafi Vilborg I). að Rsh. hefði veriö stofnuö sem mannrétt- indahreyfing en ekki sem ' kvennahreyfing. Hvenær varðstu fyrst vör við breytingu i hina áttina og hvaöa afleiðingar höföu þær breytingar? Hvenær tók hreyfingin að daia og hvers vegna? Umsjón: Hallgerður Gísladóttii Kristín Ástgeirsdóttir Kristín Jónsdóttir Sólrún Gísladóttir Steinunn H. Hafstað Vil. Dag.: Það var fyrst og fremst á kvennaárinu 1975. Þessi barátta var róttæk markviss mannréttindabarátta um og i framhaldi af stúdenta- byltingunni 1968. A kvennaári er svo þessi barátta tekin og gelt með þvi að borgarakellingum i stjórnskipuðum nefndum um allan heim er fengin þessi bar- átta á silfurfati til að gera að sinu málefni. Haldið þið að hægri stjórnin sem hér var hefði verið að púkka upp á eitthvað sem ógnaði þeirra máttarstoð- um? Kvennaárið hefur e.t.v. komið einhverju góðu til leiðar i löndum eins og Arabalöndunum þar sem konur hafa svo litil réttindi að við gerum okkur ekki grein fyrir þvi, að það er svo skelfilegt. En hér afvegaleiddi það okkar baráttu. Það sem gerðist var að kvenréttinda- hreyfingin einangraðist i smá- borgaralegum hugsunarhætti og trúarvellu og öllu þvi sem sigað er á róttækt fólk til að þagga niður i þvi. Útvarpið var fyllt af alls konar nöldri, tauti og suði um eintóm aukaatriði þar til allir fengju kligju þegar minnst var á kvenréttindi. En auðvitað verðum við fyrst og fremst að lita á þá sem eru verst settir. Það er viða i heim- inum hægt að tala um kven- frelsisbaráttu þó að það sé ekki hægt hér hjá okkur. Guðrún Helgadóttir: Það sem helst afvegaleiddi okkar baráttu var hvað hún var slitin úr tengslum við allt annað. Deil- urnar sem komu upp á ráð- stefnunni i Mexikó sýna það. Konurnar frá þriðja heiminum voru að tala um allt aðra hluti. Þær voru að ræða almenn vandamál i sinu þjóðfélagi sem konum frá tslandi fannst bara asnalegt. Þær skildu ekki að jafnréttisbarátta verður ekki slitin úr tengslum við það sem gerist i þjóðfélaginu. Það þýðir ekkert að loka sig inni á sinu heimili og berjast þar einar eða i einhverjum hreyfingum þar sem við sitjum og kjöftum um það hvað við séum kúgaðar. Við verðum aldrei neitt frjálsari en þjóðfélagið sem við lifum i leyf ir. Svo lengi sem einhver kúgun er til staðar hljótum við að vera kúgaðar lika. Þrasað og þrasað fund eftir fund Vil. Harö.: Sannleikurinn er sá að fyrst eftir kvennadaginn og árið á eftir komu mjög marg- ir nýir inn i hreyfinguna, en við vorum ekki tilbúin til að taka við þeim. Við höfðum ekki bol- magn til að skipuleggja starf handa öllu þessu fólkiog um leið gerðist annað sem varð afdrifa- rikt. Ýmsir þrælpólitiskir og vel skipulagðir hópar sáu að það væri kannski hægt að „nota” Rsh. Þetta fólk gekk inn, sem i sjálfu sér var ekki neikvætt, alls ekki. En það sem gerðist var, að fund eftir fund var þrasað og þrasað og allur timinn fór i deil- ur milli þessarra hópa. Allt þetta venjulega fólk sem kom óviðbuið og hafði aldrei áður staríað með neinum pólitiskum samtökum hrökklaðist burt. En verkefni Rsh. var einmitt að virkja þetta fólk og gera það meðvitað. Svo að ég tali nú ekki um þær sem fyrir voru og höfðu ekki áhuga á að standa i póli- tiskum deilum á þessum vett- vangi. Koma þessarra hópa inn i hreyfinguna skapaði gifurlega tortryggni. Það lamaði alveg starf hreyfingarinnar um tima. Þær voru ekki komnar vegna þess að þær væru konur og hefðu fundið til þeirra vandamála sem þvi fylgja, heldur komu þær sem fulltrúar sinna pólitisku hópa. A timabili mátti varla Vid betri heim — og það strax! Við viljum betri heim — og þaö strax! Annar hlutí Kauösokkur komu fyrst fram opinberlega f kröfugöngunni 1970. J minnast á kynferðislega kúgun þvi þá var það bara „femin- ismi” sem var hræðilegasta skammaryrði sem til var. Þó stóð skýrum stöfum i stefnuyfir- lýsingunni að kúgun kvenna sé tviþætt, annars vegar efna- hagsleg, hins vegar kynferðis- leg. Það þýðir ekkert að vera að starfa i kvennahreyfingu án þess að viðurkenna að það rikir kynferðiskúgun og það er hún sem tengir okkur til samstarfs. Gegn hinni efnahagslegu kúgun erum við hvort sem er að berj- ast á öðrum vettvangi. Það er ekkert sem mælir gegn þvi að við sameinumst og gerum það þarna, en þá megum við ekki gleyma hinni tvöföldu kúgun. Hennar vegna erum við að þessu, er það ekki? Guðrún H.: Ég kom inn i hreyfinguna sem róttæk kona og var á þeirri skoðun að hreyf- ingin þyrfti að taka stéttarlega afstöðu, og að kvenfrelsisbar- átta sé stéttabarátta. Ég var ekki nógu vel inni i málum hreyfingarinnar, en eitt það fyrsta sem ég varð vör við var að það geisaði gifurlegt til- finningastrið milli gömlu félag- anna og þeirra nýju. Það lá við að sagt væri við mann „Látið okkur i friöi. Leyfið okkur að hafa hreyfinguna okkar á- fram.” En nú erum við komnar yfir þetta timabil og þess vegna ættum við að eiga möguleika á að hefja starfið aftur af fullum krafti. Einhliða frelsi Jafnréttissiðan: Vilborg Ilarðardóttir sagði að kyn- ferðiskúgunin hefði verið af- greidd með þvi að hún væri „feminismi”. Þar ekki að hefja umræðu að nýju um þessa hlið kvennabaráttunnar? Vil. Harð.: Jú, eins og ég sagði eru þessi mál orðin svolitið tabú i Rsh. — sem privatmál. En sannleikurinn er sá að þrátt fyrir umræðurnar um aukið frelsi i kynferðismálum á sið- ustu árum þá er það frelsi mjög einhliða, það hefur skapað ný vandamál. Það eru bara gerðar enn meiri kröfur til konunnar. Guðrún H.: Frelsið til að segja nei er ekkert eftir tilkomu pillunnar. Þú ert gamaldags, þreytt og útslitin ef þú ert ekki til hvenær sem er. Eða þá kyn- köld,og eins er frelsið til einlifis ekkert. Vil. Harð.: Reynslan sýndi okkur fyrstu árin að konur höfðu mikla þörf á að ræða sin per- sónulegu mál þegar þær komu inn i hreyfinguna. Þær gátu ekki farið að starfa fyrr en þær voru búnar að fá útrás fyrir sin vandamál. Þetta varð auðvitað svolitið leiðigjarnttil lengdar en við leystum þetta með nýliða- hópum sem lásu saman efni og ræddu, og gátu þá um leið komið eigin reynslu að. Svona hópar held ég að séu nauðsynlegir. Út úr þeim komu súperkonur sem voru tilbúnar til starfa. Jafnréttissiðan: Konur þurfa að finna að þær eigi sameiginieg vandamál og slik umræða skap- ar einmitt þá samstöðu sem er nauðsynleg i hreyfingu eins og Rsh. Guðrún H.: Ég held að það sem hái Rsh. i dag sé ekki það að við getum ekki tjáð okkur um okkar kvenlegu reynslu, heldur það að hún er allt of einangruð. Hvar er Sokkholt? Jafnréttissiðan: Er það ekki staðreynd að i hvert sinn sem hreyfingin snýr starfinu út á við þá biómstrar hún, sjáið t.d. 8. mars. GuðrúnH.: Mér hefur fundist starfið og umræðan beinast of mikið að þvi að ná konum inn i hreyfinguna i stað þess að við eigum að fara út til annars fólks. Ekki bara til kvenna. Starfið gengur alltaf betur þeg- ar fengist er við ákveðin verk- efni. Jafnréttissiöan: Þarf starfið út á við ekki að verða miklu meira? Rsh. er að verða eins og lokaður klúbbur. Þegar árs- fjóröungsfundirnir eru auglýstir er bara sagt: Fundur i Sokk- holti. Hvar er Sokkholt? Hvern- ig á fólk að vita það? Er ekki bara verið að höfða til ákveðins hóps sem er þarna dags dag- lega? Auk þess eru þetta einu fundirnir sem eru auglýstir. Svo koma konur sem vilja kynna sér hreyfinguna og þær mega sitja undir skýrslum um hópastarf, fjármál og húsnæðismál og eru litlu nær þegar upp er staðið, nema um það hvað fjárhagurinn sé fjári bágborinn. Guðrún H.: Það þarf fleiri opna fundi, þeir eru alltaf vel sóttir. Vil. Harð.: Ég vil geta um glæsilegt framtak hjá Rsh. s.l. vetur þar sem var útgáfa 8. mars bókarinnar. Þar var um verk að ræða sem sýnir hvað hægteraðgera. Enda hefur hún verið notuð eins og til var ætlast úti á landi. Ég þekki tvö slik dæmi. Annars vegar á Akureyri og hins vegar i Vestmannaeyj- um. I Eyjum bættu konurnar við frá eigin brjósti þvi sem var

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.