Þjóðviljinn - 11.11.1978, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. nóvember 1978
AF STÓLPASPEKI
[slenskir bændur hafa í síauknum mæli
orðið fyrir ómaklegu aðkasti í f jölmiðlum og
.þykir ýmsum mál að linni. Þjóðin á að vera
þess minnug að bóndi er bústólpi og bú er
landstólpi og að þessir stólpar hafa verið
aðalstólparnir i þjóðfélaginu í ellefuhundruð
ár eða meira og ekkert mun breyta þessum
stólpasannindum um ókomnar aldir.
Þessi fleygu orð um bústólpann og land-
stólpann eru auðvitað svokallað líkingamál/en
sett fram í svo skæru vitsmunaljósi að hvert
barn á að geta numið þau með glans.
Að vísu verð ég að viðurkenna að ég var ekki
með þessa stólpaspeki skáldsins alveg á
hreinu þegar ég var krakki, enda löngum tal-
inn seinþroska. Það var satt að segja ekki fyrr
en eftir fermingu að ég þóttist leiddur í allan
sannleikann um það, hvað væri í raun og veru
bústólpi.
Það var uppúr stríðinu að ég kom í fyrsta
skipti norður fyrir Holtavörðuheiði. Og sem
ekið var um Húnavatnssýslu veitti ég því at-
hygli að á nokkuð mörgum bæjum hafði mikl-
um gaurum verið skáskotið undir framhlið
bæjanna svo að þeir dyttu ekki framfyrir sig
beint á andlitið (eins og krakkarnir segja).
Lengi eftir að ég barði þetta fyrirbrigði aug-
um var ég staðfastlega þeirrar skoðunar að
þessar stoðir við bæjarburstir Húnvetninga
væru bústólpar. Þá gatekki farið hjá því að ég
færi að hugleiða hve þreytandi og tímafrekt
það hlyti að vera fyrir bændur að vera bú-
stólpar og raunar ógerningur nema á vöktum.
Ég hafði sem sagt þá ekki enn vaknað til
symbólskrar meðvitundar. Ég var meirasegja
svo einf aldur að mér f annst óþarf i að taka það
fram að maður sæi frekar flísina í auga
náunga síns en bjálkann í sínu eigin. Mér
fannst sem sagt harla lítil von til þess að sá
maður sem á annað borð hefði fengið bjálka í
hausinn, með þeim afleiðingum að hann sæti
fastur í auganU/Væri líklegur til þess að sjá
yfirleitt nokkurn skapaðan hlut.
Já,þá var ég ungur að árum (eins og skáldið
sagði) og til dæmis ekki enn farinn að hafa
náin afskipti af kvenfólki, hélt þessvegna að
stólpakvenmaður væri kona með lærin í
skónum. Þannig einkenndist æska mín af mik-
illi fáfræði um hina tviræðu merkingu stólpa í
fræðunumog ekki bara bústólpa og landstólpa,
heldur allra stólpa milli himins og jarðar.
En þetta eru nú allt útúrdúrar. Astæðan til
þess að ég geri mér svona tiðrætt um bústólpa
er að ég rakst á forsíðugrein í Tímanum á
miðvikudaginn var. Þar er frá því greint að
enn hafi bændur orðið fyrir alvarlegum bú,-
sif jum og var þó ekki á ósköpin bætandi. Hin
válegu tiðindi eru birt undir fyrirsögninni:
„GIFURLEG UPPSKERA A GARÐÁVÖXT-
UM", en síðan segir orðrétt: „Nú iiggur fyrir
að uppskera garðávaxta, kartaflna, rófna og
gulróta er óvenjumikil I ár. Útlitið er þó verst
hvað varðar gulrófnauppskeruna. Þá kemur
skarpleg athugasemd síðar í fréttinni (nanar
tiltekið í frh. bls. 19) um að þetta ófremdará-
stand haf i ekki hvað síst sakpaast vegna þess
„hve margir haf i sett niður I vor og eins vegna
met-uppskeru."
Það má víst með sanni segja að hart sé í
heimi um þessar mundir og ástandið á Islandi
heldur bágborið,en engir eru þó verr settir en
bændur, því sama er hvaða tíðindi þjóðin
heyrir frá þeim, öll eru þau ill. Þannig er í
rigningarsumri ekki hægt að ná heyjum inn,í
þurrkasumrum sprettur ekki, mikil vá er fyrir
dyrum í uppskerubrestþ en þyngstar búsifj-
arnar í góðæri. Ef forvextir hækka tjá fulltrú-
ar bænda á Alþingi þjóðinni að slíkt komi
harðast niður á bændum,ef sauðf énaður er rú-
inn of snemma setur hroll að rollunum um
sauðburðinn, en ef ógert er látið að taka ullina
týnast reyfin. Grasið sprettur ekki, nema
borið sé á túnin, kýrnar mjólka ekki, nema
þeim sé gef inn fóðurbætir,og til að kóróna allt
saman tröllríður riða bændastéttinni um þess-
ar mundir.
Þrátt fyrir allt þetta f ullyrði ég að íslenskir
bændur eru mestu búmenn samtímans, því
hvað segir ekki hið fornkveðna: „Það er ekki
búmaður sem ekki kann að berja sér."
Hvað segir raunar ekki í kaflanum „Dægra-
dvöl" í bókinni „Þjóðleg iðkan":
Dunda við það dægrin löng
dándisbændur hýru
að kyrja gamlan sultarsöng
um sultarkjörin rýru.
Flosi
Ars Antiqua de Paris
Franskir tón-
listarmenn
í Austurbæjarbíói
Tónlistarflokkurinn Ars
Antiqua de Paris heldur tón-
leika á vegum Tónlistarfélags-
ins i Austurbæjarblói kl. 14.30
i dag.
Flokkurinn er skipaöur þrem-
ur mönnum og er einn þeirra
söngvari, en allir taka þátt i
kynningu og leik á fjölda
strengja- blásturs- og ásláttar-
hljóðfæra frá fyrri öldum. Tón-
leikíu'nir gefa fóki innsýn i þró-
un og sögu hljóðfæraleiks, og
reyna listamennirnir jöfnum
höndum að fræða og skemmta,
en skýringar þeirra eru túlkað-
ar á i'slensku jafnööum.
Ars Antiqua de Paris hefur
haldiö u.þ.b. 1750 tónleika viðs-
vegar um heiminn. Hér á landi
hafa þeir félagar leikiö á tón-
leikum á Akureyri og Akranesi.
Þeir hafa einnig heimsótt
nokkra skóla.
Íslendíngar
töpuðu fyrir
Kúbu-
mönnum
1,5:2,5
Islenska sveitin á ólymplu-
mótinu i skák tapaði fyrir Kúbu-
mönnum með 1 1/2:2 1/2 I 13.
umferð mótsins.
Guömundur og Helgi gerðu
jafntefli á 1. og 2. boröi, tefldu
báöir viö stórmeistara, Margeir
geröi jafntefli á 3. boröi en Jón
L. tapaöi á 4. boröi.
Islenska sveitin er nú 120. sæti
meö 27 1/2 vinninga. Eftir mjög
góöa byrjun hefur sveitin gefiö
eftir I siöustu þremur
umferöunum og hrapaö úr 6.
niöur i 20.sæti.
OLYMPIU-
SKÁKMÓTIÐ
Frá Helga Olafssyni
♦
♦♦♦
949
Æðisgengin spenna
í toppbaráttunni
Þegar ein umferð er eftir hér
á ólympiuskákmótlnu I Buenos
Aires, hafa aðeins þrjár sveitir
möguleika á sigri. Það er sveit
Ungverjalands sem hefur 34
vinninga, Sovétrikin eru með 33
1/2 vinning óg Bandarfkin 33
vinninga. Aðrar þjóðir koma
Kortsnoj
gengur
um með
undir-
skriftarlista
Stórmeistarinn Victor Korts-
noj hefur undanfarið gengið um
meðal manna á skákmótinu I
Buenos Aires með undir-
skriftarlista, þar sem menn
skora á stjórn Sovétrfkjanna að
leyfa eiginkonu Kortsnojs að
hverfa úr landi.
Flestir skákmenn af vestur-
löndum hafa skrifaö undir hjá
Kortsnoj, þar á meöal allir
lslendingarnir.
Victor Kortsnoj
ekki til með að blanda sér I þá
baráttu. Ekki er nokkur leiö að
spá fyrir um úrslitin. Þegar
þetta er talaö, er ekki ljóst við
hverja þessar toppsveitir keppa
1 sfðustu umferðinni, sem tefld
verður f dag, laugardag.
Islensku sveitinni hefur ekki
gengiö vel f síöustu umferöum
og er nú í kringum 20. sæti meö
27 1/2 vinning en þessi staöa
getur breyst mjög mikiö, ef
sveitinni gengur vel i siöustu
umferöinni. Jafnvel er mögu-
leiki á aö hún komist upp fyrir
10. sæti. Ekki er heldur vitaö viö
hverja íslendingar tefla I
slöustu umferö.
Helga boðið
á mót
í Colombíu
Guðmundi Sigurjónssyni stór-
meistara var boöið á skákmót i
Colombfu, nú strax eftir að
ólympiu-mótinu lýkur, en hann
afþakkaði, og þá var Helga
Ólafssyni boðið f staðinn.
Helgi sagöi i gær aö hann
heföi ekki aöstæöur til aö þiggja
þetta boö, en hann og hinir *
Islendingarnir koma heim nk.
þriöjudag. S.dór