Þjóðviljinn - 11.11.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 11.11.1978, Blaðsíða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. nóvember 1978 Haustfundur ullariönaöarins: Góðar markaðshorfur á Vesturlöndum VQf Umsjón: Magnús H. Gíslason Hinn árlegi haustfundur ullariönaharins var haldinn föstudaginn 3. nóv. að Hótel Esju. Þetta er i þriðja skiptiö, sem Otfiutningsmiðstöð iðn- aðarins gengst fyrir slikum findi með sölu- og framleiðslu- aðiium f þessari iðngrein. Að þessu sinni sóttu 66 manns fund- inn, úr öllum landsfjórðungum. 1 upphafi fundar flutti for- maður stjórnar Útflutningsmið- stöðvarinnar, Pétur Sæmund- sen, ávarp en síðan voru flutt framsöguerindi um stöðu ullar- iðnaðarins, ullar- og skinna- verkefniö og afkomu fyrirtækja i iöngreininni. Einnig fluttu þeir Sveinn Björnsson og Pétur Sigurjónsson erindi um væntan- lega starfsemi Iðntæknistofn- unar íslands. Eftir hádegi geröu sölustjórar útflutningsfyrirtækjanna grein fyrir framvindunni 1978 og markaðshorfum á árinu 1979. Sérstaklega var rætt um erfið- ieikana á yfirstandandi ári, sem skapas hafa af miklum sam- drætti I sölu ullarvara til Sovét- rikjanna. Enda þótt vonir' standi til aö auka aftur aö vissu marki sölu til Sovétrikjanna var á þaö bent, hvaða áfalii iðnaöur- inn hefði orðiö fyrir og um leið nauösyn þess, að aðlaga sig breyttum markaðshorfum. Hinsvegar kom fram, aö markaðshorfur á vestrænum mörkuðum væru góðar, gert væri ráð fyrir rlflegri aukningu þar á árinu. Um leið bar mönn- um um að búast mætti viö áframhaldandi söluaukningu á vestrænum mörkuðum á næsta ári. Sölustjórarnir bentu samt á, aö aukning gæti aðeins átt sér staö með því að opna nýja markaði og auka kynningar- og söluátak. Jafnframt öfiugu sölustarfi verö gæði framleiðsl- unnar að vera fyrsta flokks og voru sölustjórar sammála um að gæði uliarfatnaöar frá Is- landi hefðu farið batnandi. Umræður á fundinum uröu allmiklar og spunnust venju fremur um samskipti milli út- flytjenda og framleiöenda. Vandamál I þessari grein skap- ast ööru fremur af árstíöabund- inni framleiöslu vegna þess að islenska ullarvaran er nær ein- göngu seld sem vetrarfatnaður. Lausn á þessu vandamáli i framtiðinni væri ef tækist að hanna og framleiöa sumarfatn- að. Þá mætti lengja framleiðslu- og sölutimabil ullarvara og brúa dauða framleiðslutimabil- iö des.-mars. Fundarmenn lögðu áherslu á að þetta mál yrði að leysast sameiginlega af framleiðendum og útflytjend- um. Nauðsyn þess að auka fjöl- breyttni framleiöslunnar og þar meö gera sauma- og prjónastof- um fært að framleiða meira magn á lengri tlma, hefur auk-. ist verulega viö samdráttinn á viðskiptum viö Sovétrikin. Framleiðslutimabilið i dag spannar yfir tlmabiliö april- nóv. en i des. til marsloka hafa fyrirtækin litiö að gera. A þessu timabili skapast þvl miklir f jár- hagslegir erfiðleikar og kaus þvi fundurinn 3ja manna nefnd til að athuga möguleika á þvl að fjármagna framleiðslu þessa timabils meö aðstoö afuröa- lánakerfisns. 1 nefndinni eiga sæti Zóphonias Zóphoniasson, Frá haustfundi ullariðnaðarins á Hótel Esju Pólarprjón hf., Rúnar Péturs- son, Akraprjón hf. og Kristján Jónsson Prjónastofan Katla en Otflutningsmiöstöðin mun veröa nefndinni til aðstoöar. I dag eru starfandi i landinu 2 spunaverksmiöjur, 17 prjóna- stofur og 35 saumastofur, sem framleiða til útflutnings auk handprjónakvenna, sem eru áætlaðar vera um 1500. útflutn- ingur er I höndum 15-20 aöila en þó að langmestu leyti hjá Ala- fossi hf, Hildu hf. og Samband- inu-Iðnaðardeild. —mhg 8 í ' ? 1 } . V f'% ___ . > L ‘ : Nauteyri við isafjarðardjúp. Þar er nú fyrirhuguö bygging sláturhúss, félagsheimilis o.fl. Mynd: Helgi Sveinbjörnsson. Miklar framkvæmdir fyrirhugaöar á Nauteyri Félagsstofnun um byggingu og rekstur sláturhúss Á fjölmennum fundi, sem haldinn var aö Melgraseyri við tsafjarðardjúp 28. okt. sl. var stofnaö hiutafélag og hiaut það nafnið Snæfell hf. Stofnendur félagsins eru bændur og einstaklingar við innanvert Isafjarðardjúp auk nokkurra fyrirtækja á tsafiröi. Stofnfé félagsins er 40 miljónir en stærstu hluthafar eru Norðurtanginn og Sandfell á Isafirði, svo og Nauteyra- hreppur, en þar er heimili og varnarþing hins nýstofnaða félags. Tilgangur félagsins er bygging og rekstur siáturhúss, afurðasala og verslun fyrir Inn- djúpssvæðið, en þessi mál hafa veriö I miklum ólestri undan- farna áratugi. Allt sláturfé úr Inndjúpi er nú flutt til slátrunar annaðhvort yfir Þorskafjaröar- heiöi i Króksfjaröarnes eða til Isafjaröar, bæöi á sjó landveg en vegalengdin til Isafjaröar frá yrstu bæjum norðan Djúps er 240 km. Sjóleiöin er styttri en nær ógerningur aö flytja fé þannig I misjöfnum veörum. Auk þess er sláturhús Kaup- félags Isfiröinga á Isafirði orðið ónothæft. Fyrirhugað er að hefjast handa viö byggingu slátur- hússins þegar næsta vor, en það veröur byggt á Nauteyri I Naut- eyrarhreppi. Þar er talsverður hiti á jöröu og hafði veriö á- kveöið aö bora þar eftir meira vatni og heitari sl. sumar en þaö dróst af ýmsum ástæðum en verður gert strax næsta vor. Auk fyrrgreindra verkefna er á döfinni bygging félagsheimilis og vélaverkstæöis aðNauteyri og jafnframt aö koma þar upp léttum iðnaöi. Þessar fyrir- huguðu framkvæmdir mundu treysta mjög búsetu við Isafjarðardjúp og koma I veg fyrir að unga fólkiö þyrfti I jafn rlkum mæli og nú er aö leita burtu aftir atvinnu og félagsllfi. Stjórn Snæfells hf. skipa þessir menn: Engilbert Ingvarsson, Tyrðilmýri, Bene- dikt Eggertsson, Hafnardal og Jón E. Þóröarson, Laugarási. Stjórnarformaöur er Engilbert Ingvarsson. —mhg „Konan með strokkinn” komin til Sauðárkróks Þeir, sem leið eiga framhjá Mjólkursamlagi Skagfiröinga á Sauðárkróki veita þvl eftirtékt að lóöin, vestan við Samlagið hefur nú verið skipulögö og lag- færð til mikiila muna. Það var Hafliði Jónsson, garöyrkjustjóri, sem skipulagði lóðina en Steinn Kárason, garðyrkjufræðingur, sá um alla jarðvinnu og gróðursetningu. A lóöinni hefur verið komið fyrir listaverki eftir Asmund Sveins- son, myndhöggvara. Er það „Konan með strokkinn” og er mikil staðarprýði. Fer vel á þvi aö þetta lista- verk Asmundar myndhöggvara standi þarna i nánd nýtisku- legs mjólkursamlags og minni á þá tima þegar einskonar „mjólkursamlög” voru á hverju sveitaheimili i landinu. —mhg Svipadur fallþungi og í fyrra Hjá Kaupfélagi Langnesinga á Þórshöfn lauk slátrun þann 20. okt. Slátrað var 15.300 fjár. Vænleiki dilka er svipaður og I fyrra en nákvæmur saman- buröur er torveldur þar sem nú voru föllin vegin án nýrmörs en með honum áður. Þungi pýr- mörsins mun Ieika á 700—1000 gr. eftir þvi hversu væn lömbin eru. I fyrra var meöalþunginn 16.19 kg. en i haust 15.31 kg. Slátrun stórgripa hófst á Þórshöfn að sauöfjárslátrun iokinni og var slátrað um 60 gripum. Dagana 19. og 20 okt. gekk þarna yfir eitt versta hausthret, sem komið hefur á þessum slóðum i mörg ár. Vorueinhver brögð að þvl að fé fennti I þeim illviörisgarði en hvergi munu þó hafa oröiö verulegir fjárskaöar. (Heim.: Norðurland). —mhg Meöalvigt meiri en í fyrra Hjá Kaupfélagi Þingeyinga á HUsavik var slátraö I haust 47.200 kindum, eða þvl flesta, sem veriö hefur. Þar af voru 43.300 dilkar. Sauðfjárslátrun byrjaöi um miðjan sept, og lauk 18. okt. Hófst þá slátrun stórgr^a. Fallþungi dilka var góöur. 1 fyrra var hann 14.7 kg. og þá með nýrmör, en ekki lá alveg ljóst fyrir, er þetta er skrifaö, hvað hann yrði endanlega nú þó trúlega nálægt 15 kg. án nýr- mörs. Sýnt þykir þannig að dilk- ar reynist vænni nú en i fyrra og gæti sá munur numið allt að einu kg. (Heim.: Noröurland). —mhg Eidfaxi Blaðinu hefur borist 10. hefti Eiöfaxa 1978. Þar er m.a. að finna eftirtaldar greinar: Aö haustnóttum, eftir Sigurð Haraldsson. Arsþing Lands- sambands hestamanna I Kópa- vogi, viðtal við Albert Jóhanns- son, formann LH. Högni Mohr skrifar fréttabréf frá Færeyj- um. „Mér finnst ég ganga — hann er eins og fætur mlnir” , eftir Sigurð Ragnarsson.Gunnar Bjarnason heiðursfélagi hjá tamningamönnum, en þá sæmd hlaut Gunnar á Skógarhóla- mótinu I sumar. Þá var gaman á Vlðivöllum, eftir Ragnar Tómasson. Hertamannafélagiö Hörður, eftir Birnu Hauks- dóttur. Þýska landsmótið, eftir P.B. Skipulegt og fjölþætt nám- skeið, eftir önnu Loise Hermannsdóttur. Auk þessa er mikið af fréttum i ritinu og fjöldi mynda. -mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.