Þjóðviljinn - 11.11.1978, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJOÐVILJINN Laugardagur 11. névember 1978
DJOÐVIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Otgáfufélag ÞjóÖviljans
Framkvæmdasljóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson.
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
Blaöamenn: AlfheiÖur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig-
uröardóttir, Guöjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur
Margeirsson. Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta-
fréttamaöur: Asmundur Sverrir Pálsson.
Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson
Ljósmvndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur, Biaöaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir,
Elias Mar, óskar Albertsson.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Rúnar Skarphéöinsson, Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir
Skrifstofa: GuÖrún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: GuÖmundur Steinsson. Kristin Pétursdóttir.
Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, SigriÖur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún BárÖardóttir.
Húsmóöir: Jóna SigurÖardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Síöumúla 6.
Reykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent h.f.
Olíufurstar Islands
• íslensku oliufurstarnir hafa gengið á fund við-
skiptaráðherra og tilkynnt að stórhækkunar sé þörf
á oliu- og bensinverði. Bera þeir fyrir sig svokallaða
Rotterdam-skráningu og segja að bensin hafi hækk-
að um 37% i verði og oliur um 27% frá þvi 1. ágúst sl.
Sérstakar ástæður til þessarar verðsveiflu eru
sagðar fall dollarans og óeirðir og verkföll i oliu-
iðnaðinum i fran.
• Verði þessar hækkanir viðvarandi og komi þær
fram i verðlagi hér, myndu gjaldeyrisgreiðslur af
þessum sökum einum aukast um 5.3 miljarða króna
á næsta ári. Engin ástæða er þó til þess að viður-
kenna kröfur oliufurstanna á stundinni. Rotterdam-
markaðurinn er mjög viðkvæmur og sveiflur á hon-
um tiðar. Vegna sérstakra aðgerða Bandarikja-
stjórnar hefur dollarinn styrkst á ný, og haft er eftir
einum formælenda OPEC — samtaka oliuút-
flutningsrikja - i AP-frétt i Morgunblaðinu að stöðv-
un á oliuútflutningi frá íran muni ekki hafa áhrif á
oliuframboð i heiminum, nema að hún vari i allt að
þrjá mánuði.
• Það stendur ekki á islensku oliufurstunum að
minna á þegar hækkanir verða á alþjóðamarkaði.
Um það eru hinsvegar ekki birt fagnaðarerindi þeg-
ar verðið sveiflast niðurávið. Það er einnig full á-
stæða til að meta ástæður til innlendra hækkana á
oliu- og bensinverði i ljósi umsvifa oliudreifingar-
fyrirtækjanna hér.
• Þvi hefur verið haldið fram að yfirbygging hljóti
að vera hlutfallslega meiri i fámennu og viðlendu
landi heldur en i þéttbýlum miljónaþjóðfélögum.
Þrátt fyrir það hefur öllum islenskum almenningi
þóttþað mikil ofrausn að hann skuli þurfa að standa
undir þreföldu dreifingarkerfi á sömu oliunni. Auk
þess fer ekki hjá þvi að spurningarmerki sé sett við
gifurlegar fjárfestingar oliufyrirtækjanna, stór-
fellda skuldasöfnun þeirra i bönkum, skrifstofuhall-
ir þeirra og önnur verðbólguflottheit. Og er þá enn
eftir að nefna afskipti þeirra og itök i óskyldum
rekstri. Gróðaumsvif þessara fyrirtækja eru þvilik
að einhverntima rekur að þvi að þau geti sjálf tekið
á sig þó ekki væri nema eina erlenda verðhækkun til
þess að stemma stigu við verðbólguáhrifum.
• Ódýrara oliudreifingarkerfi með sameiningu
oliufyrirtækjanna hlýtur svo að vera framtiðar-
verkefni sem ómótmælanlega kæmi neytendum
og þjóðarbúinu i líeild til góða.
Semjum við EFTA
• Það hefur komið áþreifanlega i ljós á siðustu
mánuðum að friverslunarmarkaður EFTA-rikj-
anna er ekki tiltakanlega frjáls, opinn og hömlu-
laus. Rikisstjórnir viðkomandi landa hafa útispjót á
ýmsum sviðum til þess að styrkja og vernda sinn
iðnað. Engin ástæða er þvi til að ætla annað en að
þvi yrði sæmilega tekið á ráðherrafundi EFTA-rikj-
anna i næstu viku ef islenska rikisstjórnin færi þess
eindregið á leit að siðasti áfangi tollalækkana komi
ekki til framkvæmda um næstu áramót.
• t þessu sambandi má minna á að Tyrkir sem eru
i basli með sinn þjóðarbúskap likt og íslendingar
hafa farið fram á að tollalækkunum gagnvart inn-
flutningi frá Efnahagsbandalagi Evrópu. sem þeir
hafa aukaaðildarsamning við frá árinu 1963, verði
frestað i fimm ár. Það er mat breska blaðsins The
Economist að Tyrkir muni að visu ekki fá öllum sin-
um viðtæku kröfum fullnægt, en samningar við þá
verði i öllu falli teknir upp að nýju.
• Þetta sýnir að i höfuðstöðvum friverslunar-
manna er vilji fyrir hendi til þess að leiðrétta
skekkjur i friverslunaráætlunum þegar þær koma
ekki heim og saman við raunveruleikann.
• Þvi skyldu EFTA-menn vera tregari til þess að
horfast i augu við staðreyndir? —ekh
Almennir
krataþingmenn
Kratar hafa lagt fram mikinn
fjölda mála á Alþingi og hafa
umræöur i þinginu siðustu vik-
ur mjög sniiist um hinar ýmsu
tillögur þeirra. Svo viröist aö
fjölmiölariddararnir i þing-
flokki Alþýöuflokksins hafi ætl-
aö sér aö yfirgnæfa störf þings-
ins meö athafnasemi sinni. I
fyrsta lagi hafa þeir lagt tillögur
sem beinast aö endurskoðun
stjórnarskrárinnar og starfs-
hætti Alþingis. Þessar tillögur
eru einungis settar fram til þess
aö vekja athygli á stefnumálum
krata. þvi vitaö var aö þær
mundu allar koma til umfjöllun-
ar sérstakrar stjórnarskrár-
nefndar sem skipuö veröur full-
triium allra þingflokka. I ööru
lagi hafa þeir lagt fram þingsá-
Gyifi; gengur Ijósum iogum um
þingsali.
lyktunartillögur sem spanna
flest höfuöstefnumál fbkksins I
efnahags- og skattamálum. Þær
eru yfirleitt fluttar af öllum „al-
mennum” þingmönnum
flokksins i þinginu.
Þar er oftast tekiö á málum
sem Alþýöuflokkurinn náöi ekki
fram i samstarfsyfirlýsingu
stjórnarflokkanna. Þegar horft
er til þess aö náin samstaöa
viröist vera meö krötum og i-
haldi um meginefni þessara til-
lagna, hljóta aö vakna áleitr.ar
spurningar um heilindi Alþýöu-
flokksins I stjórninni. Menn
velta þvi jafnframt fyrir sér
hvort óbreyttir þingmenn
Alþýðuflokksins telji aö stjórn-
arsamstarfiö nái ekki til þings-
ins?
Gylfi nífaldur
Annars eru þessar tillögur
margar meö kunnuglegum
keim, manni viröist stundum
sem Gylfi Þ. Gislason sé alls
ekki hættur störfum f þinginu,
heldur gangi hann þar um f fullu
fjöri — f ellefu eintökum. Sú
goöfræöilega skýring hefur
veriö sett fram, aö þótt Gylfi
hafi falliö i bardaganum viö
Benedikt um forystuna, þing-
sætiö og stjórnarþátttökuna þá
hafi hann jafnskjótt risiö aftur
eins og einherji i Valhöll. Töfra-
mátturhanssé hins vegar af ætt
kattarins og þvf berjist hann nú
nifaldur. Þaö er aö minsta kosti
mjög náin samsvörun meö
greinaskrifum prófessorsins og
tillöguflutningi „almennra
þingmanna” Alþýöufbkksins
eins og Vilmundur nefnir þá.
BjarniP.; samþykktin var gerö
,,aö gefnu tilefni”.
Benedikt: Ekki búinn aö bfta úr
nálinni...
L.
Orð og gerðir
En kratar eru nú sem betur
fer ekki allir eins. Um siðustu
helgi var haldiö i Hafnarfiröi
þin g SUJ. Þingiö geröi aö venju
fjölmargar ályktanir um her-
inn, utanrikismál ofl. en þær
hafa þvi miöur ekki enn borist
Þjóðviljanum (líklega vegna
samgönguerf iöleika ), þótt
fregnir hafi af þeim spurst.Éins
og kunnugt er hafa ungkratar
ekki veriö á sama máli og gamli
flokkurinn i utanrikismálum og
hafa margir þeirra veriö virkir
félagar i Samtökum herstöðva-
andstæöinga. Þeir hafa þó átt
viönokkurfcringjavandamál aö
striöa eins og pabbinn. Fyrrver-
andiformaöurSUJ er Bjarni P.
Magnússon. Þaö hefur veriö
rakiö I þessum þætti hvernig
hann kom ihaldinu i háskólan-
um til hjálpar meö þvi aö vitna i
blaöi þeirra „Vöku”. Hann mun
einnig hafa tekiö þátt i „kynnis-
ferö” ihaldsmanna til höfuö-
stööva verndaranna í Ameriku.
Þessi athaftiasemi vaktiaö von-
um litla hrifningu fulltrúa á
þingi SUJ. Þar var þess vegna
samþykkt í fundarlok ályktun
1
Davið; var hann kannski kosinn
skrifstofustjóri Sjúkrasamlags-
ins?
sem segir á þá leiö aö „orö og
geröir formanns SUJ veröi aö
vera i samræmi viö stefnu og
samþykktir sambandsins.” 1
upphafi ályktunarinnar sagöi aö
hún væri gerö aö gefnu tilefni.
Davíö
og stólarnir
Nú uppá siðkastiö hefur staöið
yfir i Morgunblaöinu krossferö
Davfös Oddssonar til varnar
lýöræöinu i höfuöborginni gegn
hinni fbkkspólitisku misnotkun
kommúnista á stólum og skrif-
stofubúnaði borgarinnar. Þaö er
upplýst i máli þessu aö Sigurjón
Pétursson hefur notfært sér aö-
stööu sina til þess aö tala viö
meinta flokksbræöur sina i hús-
næöi borgarinnar tvo til þrjá
tima i viku. Þetta hefur hann
meö dæmigeröum öfugugga-
hætti kremlverja kallaö aö hafa
lýöræöisleg tengsl viö borgar-
búa. Klippari tekur ekki undir
þá sviviröilegu aödróttun sem
ma. hefur birst i fylgiblaöi
kommúnista Timanum, aö þetta
sé hræsni hjá Daviö. Þaö er
þvert á móti eðliiegt aö ungur
og efiiilegur sjálfstæöismaöur á
borö viö hann veki athygli á
þessari freklegu misnotkun
sovétvaldsins i Reykjavik. Til
þess liggja söguleg rök. Eftir
þau sorglegu mistök, sem kjós-
endur i' Reykjavik geröu i vor er
nefnilegahárréttaö upplýsa al-
menning um eöli ráöstjórnar-
innar og umskipún sem uröu i
lifi Reykvikinga. Þaö veröur aö
vera hverjum lýöræöissinna
umhugsunarefni hvaö tekiö
hefur viö. Nú rikir ekki lengur
hér hagsældarstjórn Sjálf-
stæöisflokksins. Þeir timar eru
liönir aö gjörvöll störf meiri-
hlutans i borginni mótist af ó-
eigingirni og heildarhagsmun-
um ibúanna. Nú veröur aldrei
framar úthlutaö böum af þeirri
réttlætiskennd og pólitiska hlut-
leysi sem Sjálfstæðisflokkurinn
beitti sér fyrir.
Nú er þaö liöin tiö aö stööu-
veitingar byggist á viðsýni og
frjálshyggju. Nú geta menn
jafnvel átt von á þvl aö
kommúnistar veröi embættis-
menn. Nei,það er rétt hjá Davlð
aöopinbera ósómann. Enklipp-
ara finnst rétt aö Daviö gangi
lengra. Merkir hugsjónamenn I
rööum ungra sjálfstæöismanna
hafalagttilaöborgararnir kjósi
sér embættismenn. Þeir benda
á ýmis fordæmi, td. i Ameriku
þar sem menn kjósa sériffann.
Og nú er hætta á ferðum i
Reykjavik. Daviö veröur aö
sinna lýöræöislegri köllun sinni.
Til þessaöbyrja meögætihann
lagt til aö efnt yröi til kosninga
um embætti skrifstofustjóra
Sjúkrasamlags Reykjavikur.
sgt