Þjóðviljinn - 11.11.1978, Side 13
Laugardagur 11. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÖA 13
Sveit Þórarins
Bikarmeistari
Úrslitaleikurinn í
bikarkeppni Bridgesam-
bands íslands var háður á
Loftleiðum um síðustu
helgi. Til úrslita kepptu
sveitir Þórarins Sigþórs-
sonar og Guðmundar
Páls Arnarsonar, báðar
úr BR. Er skemmst frá
því að segja, að sveit Þór-
arins gjörsigraði sveit
Guðmundar PálS/ og var
engum blöðum um að
flétta, hver væri sigur-
vegari að lokum. Um
miðbik leiksins, er alls 32
spil höfðu verið spiluð, af
64, var sveit Þórarins
komin með um 100 stiga
forskot, er entist út
leikinn, en lokatölur eftir
64 spil voru: v
Þórarinn Sigþórss. 179 st.
Guðm. P. Arnarson 94 st.
1 sveit Þórarins eru, ásamt
honum: Höröur Arnþórsson, Öli
Már Guðmundsson og Stefán
Guðjohnsen.
Leikurinn var sýndur á
sýningartöflu, og var nokkuð
um áhorfendur. Keppt er um
farandbikar, er Magnús Aspe-
lund gaf, til keppni. Er þetta i 2.
sinn sem bikarkeppni sveita er
spiluð. 1 fyrra sigraði sveit Ar-
manns J. Lárussonar úr Kópa-
vogi, sveit Jóhannesar Sigurðs-
sonar, eftir glfurlega jafrian
leik.
Þvi miður hefur gengi bikar-
keppni sambandsins ekki verið
nægilegt þessi 2 ár, hverju sem
um er að kenna. Ætti þó
keppnisformið að vera hvetj-
andi fyrir utanbæjarsveitir,
heldur en hitt, að þurfa að þveit-
ast alltaf út og suöur til keppni.
í ár hófu 27 sveitir keppni,
sem er ekki nógu gott.
Næsta keppni verður að vera
stærri I sniðum, ef ekki á aö
koma til enn einn dauðadómur,
innan bridgehreyfingarinnar. 1
þvi sambandi vil ég nefna hina
bikarkeppni sambandsins,
tvimenninginn, sem ég tel vera
að taka siðustu andvörpin, að
öllu óbreyttu.
Það hlýtur að vera verðugt
verkefni hinnar nýju stjórnar
sambandsins, að dusta til I ryk-
ugum skúmaskotum, og sjá
hvort ekki megi finna eitthvað
til að flagga meö. Ha?
Frá bridgesambandi
Austurlands...
Austurlandsmóti I tvimenning
var haldið um slðustu helgi á
Reyðarfirði, I Félagslundi. Til
keppni voru mætt 28 pör, viös
vegar að frá Austfjörðum.
Að sunnan kom Guðmundur
Kr. Sigurðsson, hinn kunni
keppnisstjóri, til aö stjórna móti
þessu. Notað var Barometers-
form, allir viö alla og 4 spil milli
para.
Keppni þessi var einnig
undankeppni fyrir Islandsmót I
tvimenning, en Austfiröir eiga 2
pör, lágmark.
Annars varð röð efstu para
þessi:
1. Hallgrlmur Hallgrlmsson —
Kristján Kristjánsson
Fljótsdalshérað 268 st.
2. Karl Sigurösson —
Ragnar Björnsson
Hornaf jörður 219 st.
3. Asgeir Metúsalemsson —
Þorsteinn ólafsson
Reyðarfjöröur 154 st.
4. Hafsteinn Larsen —
Jóhann Þorsteinsson
Reyðarfjörður 127 st.
5-6. Aöalsteinn Jónsson —
Sölvi Sigurösson
Fljótsdalsh. 126 st.
5-6. Sigfús Gunnlaugsson —
Pálmi Kristmannsson
Fljótsdalsh. 126 st.
Meðalskor var 0.
Vert er að vekja athygli á þvi,
að árlega er haldin firmakeppni
(einmenningur) á vegum BSA,
og er hagnaöur af henni notaöur
til að greiða niður kostnað kepp-
enda. Er þetta lofsvert framtak
af hálfu forráöamanna fyrir
austan, enda óhægt um vik með
fjarlægðir allar og veðurfar á
þessum tlma árs.
Frétt þessa sendi Hallgrlmur
Hallgrimsson, en hann hefur
verið liðlegur við þáttinn með
fréttir að austan. Kann ég
bonum hinar bestu þakkir fyrir.
Af Bridgefélagi Fljótsdals-
héraðs er þaö að segja, að nú
stendur yfir aðaltvimennings-
keppni félagsins, með þátttöku
alls 24 para. Lokiö er 3 kvöldum
af 5.
Nánar síðar.
bridge
Umsjón:
Ólafur
Lárusson
F rá Bridgefélagi
kvenna...
Eftir 20 umferðir I barometer-
keppni félagslns af 31, er staða
efstu para þessi:
1. Halla Bergþórsd. —
Kristjana Steingrlmsd. 423 st.
2. Asa Jóhannsdóttir —
Laufey Arnalds 376 st.
3. Gunnþórunn Erlingsd. —
Ingunn Bernburg 350 st.
4. Júliana Isebarn —
Margrét Margeirsd, 332 st.
5. Gróa Eiðsdóttir —
Valgerður Eirlksdóttir 312 st.
6. Steinunn Snorradóttir —
Þorgerður Þórarinsd. 311 st.
7. Kristin Þórðardóttir —
Guðrlður Guömundsd. 306 st.
8. Aðalheiður Magnúsd. —
Kristin Karlsdóttir 267 st.
Keppni veröur framhaldið nk.
mánudag.
Frá Ásunum...
Eftir 2 umferðir I Hraðsveita-
keppni félagsins, hafa 2 sveitir
afgerandi forystu. Staðan er
þessi:
1. Sv. GuðbrandsSigurb.1248 st.
(Guðbr. — Isak — Jón Páll —
Hrólfur)
2. Sv. Sverris Armannss. 1223 st.
(Sverrir — Jón B — Armann
— Haukur)
3. Sv.Einars Jónss. Kefl.1181 st.
4. Sv. Þórarins Sigþ. 1153 st.
5. Sv.Estherar Jakobsd. 1118 st.
Meöalskor er 1080 stig.
Keppni veröur framhaldiö nk.
mánudag, og lýkur keppni þá.
Spilamennska hefst kl. 19.30.
Næsta keppni Asanna er hið
árlega Boðsmót, sem er 36 para
tvimenningskeppni. Þegar er
hafinn undirbúningur fyrir þá
keppni, og geta menn skráð sig I
hana, hjá stjórn BAK.
Frá Bridgefélagi
Kópavogs...
Fimmtudaginn 2. nóvember
var spiluö 3. umferö I hraö-
sveitakeppni BK. Sveit
Armanns náöi enn hárri skor og
hefur tekið afgerandi forystu I
keppninni.
Besta árangri kvöldsins náðu:
Armann J. Lárusson 674 st.
Böðvar Magnússon 642 st.
Grlmur Thorarensen 618 st.
Vilhjálmur Vilhjálmsson 591 st.
Röð efstu sveita eftir 3
umferðir var þessi:
1. Sv. Arm. J. Lárussonar 1988
st.
2. Sv.BöðvarsMagnúss. 1826st.
3. Sv. Vilhjálms Vilhj. 1807 st.
4. Sv. Grlms Thorarensens 1760
4. umferö var spiluð sl.
fimmtudag.
Frá Barðstrendinga-
félaginu Rvk...
Sl. mánudag hófst hjá
félaginu hraðsveitakeppni með
þátttöku alls 11 sveita. Staða
efstu eftir 1. umf.:
1. Sv. Ragnars Þorst. 624 st.
2. Sv. Hauks Heiðdals 578 st.
3. Sv. Helga Einars. 559 st.
4. Sv. Baldurs Guðmundss. 548
5. Sv.Sigurjóns Valdimarss. 541
Keppni þessi stendur yfir 4
kvöld, en sföan hefst aöalsveita-
keppni féiagsins, I desember.
Nánar síðar.
Frá Bridgefélagi
Selfoss...
Hjá félaginu stendur yfir
meistaramót i tvlmenning, og
eftir 1. umferö 2/11, er staða
efstu para:
1. Þorvarður Hjaltason —
Kristján Jónsson 197 st.
2. Þórður Sigurösson —
Kristmann Guðmundss. 183 st.
3. Halldór Magnússon —
Haraldur Gestsson 181 st.
4. Sigfús Þórðarson —
Vilhjálmur Þ. Pálss. 180 st.
5. Gunnar Þórðarson —
Hannes Ingvarsson 176 st.
6. Brynjólfur Gestsson —
BjarniGuðmunds. 166 st.
7. Guðmundur Sigursteinss. —
Tage R. Olesen 161 st.
8. Jónas Magnússon —
Siguröur Sighvatss. 153 st.
Meðalskor 156 st.
Úrslit I hraðmóti I sveita-
keppni, er lauk 26/10:
1. Sv. Jónasar Magnúss. 106 st.
2. Sv. Halldórs Magnúss. 104 st.
3. Sv. Gunnars Þórðarsonar 79
4. Sv. FriðriksSæmundss. 49 st.
1 sveit Jónasar: Sigurður
Sighvatsson, Kristján Jónsson,
Kristmann Guömundsson og
Þórður Sigurðsson.
SÞ
Auknar álögur?
Þátturinn hefur fregnað, að til
stendur, eða jafnvel sé búið aö
ákveða aö hækka verð brons-
stigablokkar úr kr. 7.500 I kr.
10.000. Ef svo er, væri mjög gott
að fá það staðfest.
Þvi að áliti þáttarins, er þetta
vægast sagt mjög vafasöm
ákvörðun, og hinni nýju stjórn
til mikillar vansæmdar. Það er
og var alls engin þörf að hækka
verðið á blokkum þessum. Nær
heföi verið að halda firma-
keppni sambandsins á réttum
tlma, I stað þess að fara bak-
dyramegin aö félögunum. Þessi
ákvörðun er heldur ekki I sam-
ræmi viö þá þjónustu, sem félög
hafa fengiö I sambandi viö
bronsstigin almennt.
Og ekki trúi ég, að þjónustan
fari batnandi. Þetta hlýtur
aðeins að leiða athygli félag-
anna að þvi, hvort þau eigi yfir
höfuö að vera með I þessari
hringavitleysu, sem ég tel þessi
stig vera. Og þar tala ég af
reynslu, þvl frá byrjun hef ég
séð um skráningu þeirra I
félagi, og á timabili um
skráningu I tveimur félögum.
Það er leiðindavinna, vægast
sagt, og varla þess virði, sé litið
á gildi þeirra, sem er nánast
ekkert. Þú getur stritað I 25 ár I
félaginu þinu fyrir bronsstigum,
meðan sonur þinn eða dóttir
dettur ofaná það að komast I
úrslit I einu landsmóti, þar sem
keppt er um „gullstig”, og fyrir
það eina mót, er sonurinn orðinn
stighærri en þú. Er hann
þarmeð betri?
Hugsum um þetta. Hvernig
væri að leggja niður þessi
bronsstig I núverandi mynd,
hætta sölu þeirra, leggja aðeins
þyngri gjöld á öll félögin innan
sambandsins, og dreifa slðan
þessum árans bronsstigum
ókeypis meðal þeirra, sem
nenna að veita þeim viðtöku.
Eftir allt, hvers virði eru þessi
25 ár?
Starfsfólk
óskast i vinnu við léttan málmiðnað.
Hálfsdags vinna kemur til greina.
Málmiðjan hf
Smiðjuvegi 66, Kópavogi, simi 76600
Aðalfundur samtaka
grásleppuhrognaframleiðenda
verður haldinn að Hótel Esju sunnudaginn
26. nóvember n.k. kl. 14 stundvislega.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. 'Lagabreytingar
3. önnur mál
Stjórnin
Skólaheimilið
í Breiðuvík
Óskum að ráða bústjóra að heimilinu er
vinni að búskap, kennslu og öðrum heimil-
is-og uppeldisstörfum.
Upplýsingar gefur starfsfólk skólaheimil-
isins, — simi um Patreksfjörð.
Forstöðumaður
Norræn glerlist
i sýningarsölunum
opin i dag kl. 14—19
á morgun kl. 14—22
siðustu sýningardagar
Verið velkomin NORRÆNA HÚSIÐ
BLAÐBERABÍÓ
Skritnir feðgar enn á ferð.
Aðalhlutverk Wilfred Brambell og Harry
H. Corbett.
Sýnd kl. 1. eh. i Hafnarbiói laugardaginn
11. nóv.
Þjóðviljinn
Siðumúla 6, simi 81333.
Blaðberar óskast
Seltjarnarnes:
Skeljabraut, Selbraut, Sólbraut og Sæ-
braut (sem fyrst)
Þingholtsstræti (sem fyrst)
Háteigsvegur (sem fyrst)
Óðinsgata (sem fyrst)
D/OBttUlNN
Síðumúla 6. simi 81333