Þjóðviljinn - 14.02.1979, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 14.02.1979, Qupperneq 7
MlAvikudagur 14. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Þegar erlendi auðhringurinn, sem á minni partinn i fyrirtækinu, segir nei, þá verður ríkissstjórn lýðveldisins íslands að beygja sig. Þorgrimur Starri Björgvinsson, bóndi , [Garði Mývatnssveit: Þitt er ríkið... Það var á dögum vinstri- stjörnar ÓlaJö.hinnar fyrri eöa númer eitt, aöhafinvar bygging Sigölduvirkjunar. Þegar sú framkvæmd var nýhafin meö lánsfjárloforöi Alþjóöabankans án skilyröa um hvernig Islend- ingar nýttu orkuna frá hinu fyrirhugaöa orkuveri, þá gerö- ist þaö aö efnahagspáfinn Nor- dal kom meö amerikst Carbítnaut i taumi og batt þaö á bás hjá kúnum i stjórnarfjósinu. Hann haföi i tiö Viðreisnar undirbúiö komu þessa þarfa- nauts og tilkynntinúhinum nýju valdhöfum, aö það væri fásinna aö ráöast i Sigölduvirkjun án þessaö fyrir værieinhver slikur gripur, sem gleypti svosem eins og helminginn af framleiöslu orkuversins, enda fordæmiö glæsilegt þar sem Búrfellsvirkj- un fóöraöi á likan hátt Alveriö i Straumsvik. Þá sem nú laut Iönaöarráöu- neytiö, sem þessi mál heyra undir, yfirráðum Alþýöu- bandalagsins. Sannaöistþá sem fyrr, aö þessi Nordal, strand- kapteinn islenskra efnahags- mála, var i raun valdamesti maöurá Islandi. Vinstristjórnin sá sér ekki fært aö deila viö slik- an dómara, og leiddi þvl ekki Carbittarf Nordals út fýrir vegg og skaut hann, sem hún heföi þó betur haft manndóm til að gera. En það er af bola aö segja, aö hann sleit sig stuttu siöar upp af básnum og hljóp bölvandi vest- ur um haf til sins heima meö halann á lofti. Nordal lét sér ekki bregöa, en sótti um hæl Elkem-tarf til Noregs til aö láta Sigölduvirkjun fóöra hann i staöinn. Þegar smánarsamn- ingarnir voru á döfinni um Al- veriö I Straumsvlk i tengslum viö Búrf ellsvirkjun beitti Alþýöubandalagið sér óskipt og af hörku gegn þeim erlendu stóriöjuáformum. Þaö var þvi rökrétt aö ætla, aö flokkurinn hvikaði ekki frá þeirri heilla- vænlegu stefnu og snerist önd- veröur og óskiptur gegn hinum nordælsku fyrirætlunum um málmblendiverksmiöju i Hval- firöi i' tengslum viö Sigöldu- virkjun. Þvi var, þvi miöur, ekkiaö heilsa. Eins ogmörgum mun I fersku minni upphófust allharðar deilur innan flokksins um stóriöjumál i félagi viö er- lenda auöhringa og afstööu til byggingar málmblendiverk- smiðju i Hvalfiröi. Eru þær deilur mér nokkuö kunnar, þvi ég tók þátt I þeim sem óbreyttur flokksmaöur, bæöi á flokksþingum og meö skrifum i Þjóöviljanum. Meðal ýmissa ráöa- og áhrifamanna i flokknum kom upp sú kenning, aö ættu Islendingar meirihluta i stóriöjufyrirtækjunum á móti erlendu auöhringunum og fyrir- tækin lytu Islenskum lögum I hvivetna, þá væri allt i lagi og meir aö segja æskilegt aö stofna til sHks félagsskapar viö er- lenda auöhringi i islesku at- vinnulifi. Fjölmargir Alþýöu- bandalagsmenn snerust önd- verðir gegn þessum sjónarmiö- um. Viö héldum þvi fram, aö I fyrsta lagi væri stóriöja slður en svo æskilegur hlutur, og bentum á ýmsan þann háska fyrir okkar fámennu þjóö, sem hún heföi óhjákvæmilega i för meö sér auk þess sem viö bentum á aö Islendinga ræki þvi betur eng- inn nauður til aö stofna sér út i slik ævintýri. I ööru lagi héldum viö þvi fram, aö meirihlutaeignaraöild Islendinga skipti hér ósköp litlu máli, bætti litiöúrskák. Þaurök færöum viö fyrir þvi, aö hinir erlendu auðhringar kæmu hing- aö i þeim tilgangi einum aö græöa og græöa sem mest, auö- vitaö á kostnaö Islendinga, og flytja gróðann úr landi. Þeir myndu þvi aldrei, ef þeir settust hér að, láta samninga viö Islendinga þrengja aö sinni gróöa- og yfirráöaaðstööu. Þetta siöasta atriöi hefir nú sannast áþreifanlega og óum- deilanlega siöustu daga, og vik ég betur aö þvi siöar, enda voru þeir atburöir tilefni þess aö ég rifjaöi upp þessar deilur innan Alþýöubandalagsins. En þær deilur fengu þvi betur farsælan endi. A flokksþingi 1976 var end- anlega mörkuö stefna I orku- málum og þá um leiö stóriöju- málum, og rökstudd meö heilli bók, sem bar heitiö Islensk orkustefna. Bók þessa ber ekki minnst aö þakka Hjörleifi Gutt- ormssyni liffræöingi frá Nes- kaupstaö. Þetta varö til þess, sem er ómetanlegt, aö þegar Alþingisamþykkti, illuheilli, aö ganga I kompanl viö norska auöhringinn og byggja járn- blendiverksmiöjuna i Hvalfiröi, þá stóö Alþýöubandalagiö á þingi óskipt gegn þeirri sam- þykkt. Þess skal minnst i sambandi viö afgreiösiu málmblendi- flokkanna þriggja á Alþingi á þvi máli, en þeir flokkar eru óþreytandi aö úthrópa ást sina á lýöræöi og mannréttindum, aö þá sýndu þeir I verki hvaö þeir meina meö þvi hræsniskjaftæöi, þegar þeir neituöu Borgfiröing- um sunnan Skarösheiöar um þaö lýöræöi og þau mannrétt- indi, aö ákveöa þaö meö leyni- legriatkvæöagreiösluhvort þeir vildu hýsa stóriöjuskrýmsliö i Hvalfiröi i sinu byggöarlagi. Kurnugir töldu nefnilega aö 90% þeirra myndu segja nei viö þvi. En vikjum nú aö deginum I dag. Þegar þaö endanlega réöist á siöasta hausti, aö Alþ.b.l. yröi aöili aö rikisstjórn,skal ég játa, aö þegar allt kæmi til alls fannst mér misráöiö af flokkn- um aö ganga til þeirrar stjórn- arsamvinnu eins og alljt var i pottinn búiö. Ýmsar ástæöur íágu til þessarar afstööu minnar, sem hér veröa ekki raktar, en eftir nokkurra mán- aöa setu þessarar rikisstjórnar er ég enn sama sinnis. Einn ljós punktur var þó i þess ari stjórnarmyndun frá minu sjónarmiöi, nefnilega sá, aö Hjörleifur Guttormsson líffræö- ingur og náttúruverndarmaöur settist á stól iönaöarmálaráö- herra. Ég treysti honum til aö halda þeirri stefnu i orku- og stóriðjumálum, sem til heilla yröu fyrir land og lýö, öfugt viö stóriöjubrölt og öngþveiti orku- mála eftir kokkabök borgara- flokkanna, en i fullu samræmi viö stefnu Alþ. b.l. i orku ogstór- iöjumálum, sem hann átti drjúgan þátt i aö marka, svo sem fyrr er getiö. Ekkert hefir komiö fram sem rýrir traust til hans I þvi starfi, hitt er meira vafamál hvort hlaupastrákar krata á Alþingi undir fjarstýr- ingu Gylfa Þ. gefa honum setugriö I ráöherrastólnum þaö lengi, aö árangur náist. Hjör- leifuráeftir aö reka sigá marg- an vegginn áöur lýkur, og hefir þegar fengiö aö kenna á þvi. 1 sambandi viö efnahagsráöstaf- anir rikisstjórnarinnar komst stjórnin aö þeirri niöurstööu, aö nauösynlegt væri aö hægja á framkvæmdum á Grundar- tanga, og meðal annars aö fresta uppsetningu siöari ofns verksmiöjunnar um sex til niu mánuöi.Fyrir siöasakir er þessi ákvöröun rikisstjórnarinnar send stjórn Járnblendifélgasins til umsagnar, þvi auövitaö taldi rikisstjórnin sig geta ráöiö þessu i krafti meirihlutaeignar- aöildar aö fyrirtækinu. Fyrir fá- um kvöldumer svo skýrt frá þvi I útvarpinu, aö rikisstjórnin komi ekki þessum þætti sinum i efnahagsráöstöfunum fram. Og hvers vegna ekki? Þaö er er- lendi auöhringurinn, Elkem Spilgerverket, sá sem á minni part i fyrirtækinu, sem segir NEI! Þaöneistendur.Fyrir þvi neii veröur rikisstjórn islenska lýöveldisins aö beygja sig skil- yröislaust. Þvilik niöurlæging! Þvilik auömýking! Og hvernig má þetta nú ske? Var ekki tryggilega um alla hnúta búiö fyrir Islands hönd? Eftir að Alþingi samþykkti eins- konar rammasamning viö auö- hringinn, þá tekur embættis- mannaklika viö. Sú klika gerir viöbótarsamning viö Elkem, sem tryggir auöhringnum al- gjört neitunarvald I málefnum þessa fyrirtækis. Helst mátti á útvarpsfréttinni skilja, aö Iön- aöarráöuneytiö heföi ekki haft hugmynd um tilvist þessa viö- bótarsamnings, og væri þaö ekki nema eftir öðru i þessu máli. Innsti koppurinn i búri Járnbiendifélagsins er nú kall- aöur til vitnisburöar I útvarpinu um samning þennan. Hann kveöur samninginn hafa veriö nauösynlegan, eölilegan og sanngjarnan, enda sé hann full- komlega innan marka þess rammasamnings er Alþingi samþykkti á sinum tima. Og þaö sem er þó aöalatriöiö: El- kem heföi aldrei komiö hingaö, nema fá þá tryggingu sem þvi er gefin með samningi þessum! Þar meö er þaö á hreinu hver valdiö hefur, hvers skuli vera rikiö, mátturinn og dýröin aö ei- lifu. Amen. Þar meö er þaö einnig á hreinu hverjir höfðu rétt fyrir sér á sinum tima, þeir sem töldu meirihlutaeign Is- lendinga I stóriöjufyrirtækjum i kompanii viö erlenda auöhringa slika gulltryggingu ab öllu væri óhætt á þeirri ævintýrabraut, eða viö hinir sem töldum slika kenningu fals eitt og tál. Það er sem sagt komið á daginn, aö meöan Elkem-verksmiöjan i Hvalfirði er enn á byggingar- stigi, þá telur auöhringurinn þegar timabært aö heröa snör- una aö hálsi Islendinga. Hvaö mun þá slöar veröa? Og hverjir halda menn að réöu Islandi i dag, ef draumur Eykonsog ann- arra stóriðjuofsatrúarmanna um 20 álbræðslur væri oröinn aö veruleika? Þaö er ömurleg tilhugsun, aö þegar aðstandendur Járn- blendiverksmiðjunnar, Islensk- ir og norskir, gera ferö sina i Hvalfjörð innan tiöar til aö sleikja karið af þessu afkvæmi sinu fullsköpuöu, þá veröi iön- aðarráöherrann okkar, Hjör- leifur Guttormsson, haföur meö i för og látinn i nafni sins em- bættis halda viöeigandi ræöu- stúf og styöja á hnapp aö tilvis- un norskra iöjuhölda og Jóns Sigurðssonar (ekki Forseta) og setja stóriðjuskrýmslið I gang. Þar meö væri iðnaöarráöherra Alþýöubandalagsins geröur aö einskonar guöföður ófreskjunn- ar. Ég unni Hjörleifi Guttorms- syni betra hlutskiptis. Ég heföi sömuleiðis seint kosiö Alþýöu- bandalaginu slika auömýkingu. En enginn má sköpum renna. Eöa hvaö? StarriiGaröi Helgislepja og vondir barnatímar BARNAVINUR hringdi og kvaöst æfur yfir því uppá- tæki sjónvarpsins aö fela börnum umsjón með Helgistundinni á sunnu- dagskvöldum. — Þaö er algjör misskilningur — sagöi hann — að börnum landsins sé geröur einhver greiöi meö þvi aö einn úr hópi þeirra sé dubbaöur upp i fulloröinsföt og hann látinn þylja skrifaða ræöu um aö foreldrar eigi aö láta skira börnin sin. Þetta var einsog aug- lýsing fyrir prestastéttina. Og sjónvarpiö ætti heldur aö sjá sóma sinn I þvi aö sýna börnum betra efni á þeim tlmum sem þeim eru ætlaöir. Éghef auðvitað ekkert á móti þvi aö börn fái aö koma i sjónvarpiö á „fulloröins- timum” og segja okkur si'nar meiningar um hlutina — en þessi helgislepja á bara ekki viö. Og þaö er algjört lágmark að börnin fái þó aö semja ræðurnar sjálf. Og úr þvi ég minntist á blessaö „barnaefniö” væriekkiúr vegi aö spyrja hvort menn séu yfirleitt ánægöir meö aö börnum sé sýndur annar eins óþverri og framhaldsmyndaflokkurinn Gull- grafararnir sem hefur dunið yfir landsins börn undanfarna miö- vikudaga. Þar snýst allt um fylleri og áflog, manndráp og peninga. Þaö er nóg af sliku á fulloröinstimunum, þótt barna- timarnir séu ekki undirlagöir lika. örn hringdi og haföi þetta til rjúpnamáia aö leggja, en þau eru mikil eiiíföarmál meö þjóöinni eins og kunnugt er. — Mér dettur i hug hvort ekki er hægt aö bjarga rjúpnamálum meö þvi aö setja upp sérstakt bú frá lesendum og rækta þar rjúpur i stórum stil og slátra eftir þvi sem áhugi manna og matarlyst fyrir hátiöar segir til um. Mætti þá skapast nokkur friöur i blööum fyrir rjúpnaskrifum og samviskuhrellingum og öörum áhyggjum væri af mörgum létt. Lausn rjúpnamála Nú er lag Nokkrar undanfarnar vikur hafa birst I dagblöðum greinar frá nemendum framhaldsskól- anna þar sem bent er á þaö mis- rétti sem tiökast I skólunum þar sem nemendum er gert aö greiöa laun sumra starfsmanna skól- anna þ.e. starfsfólks I mötu- neytum skólanna. Krafa nem- enda er aö allir starfsmenn skól- anna séu launaöir af opinberri hálfu, enda beinlinis fáránlegt aö nemendur greiöi laun þessa fólks þegar almennt er gert ráö fyrir þvi aö samfélagiö standi undir öðrum launakostnaöi viö skólana. Eöa hversvegna greiöa nem- endur ekki lika laun kennara og ræstingarfólks meö skólagjöldum sinum einsog tiökast sumsstaöar erlendis? Nú er lag fyrir yfirvöld aö sýna hug sinn til þessa réttlætismáls nemenda. I bæjarstjórn Hafnar- fjaröar er þessa dagana til umfjöllunar fjárhagsáætlun bæjarins en I tillögum fyrir hana finnst enn sem komið er ekki staf- krókur um mötuneyti nemenda i Flensborgarskóla. I Flensborgar- skóla er meira aö segja svo illa búiö aö þessum málum aö þar er ekkert mötuneyti þótt nemendur séu almennt i skólanum frá kl. 9 á morgnana og til kl. 4 á daginn. Hinsvegar er þar ágætt kennara- mötuneyti og hafa nemendur farið fram á viö bæjarstjórn Háfnarfjarðar aö þeir fái annaöhvort aðgang aö þvi mötu- neyti (sem væri vel fram- kvæmanlegt) eöa fá sitt eigiö sem væri þó mun óhagkvæmara þar sem þá yröu rekin tvö mötuneyti i skólanum. Einnig er sjálfsagt aö starfsmaöur þessa mötuneytis yröi launaöur af opinberum aöilum á sama hátt og starfs- maöur núv. kennaramötuneytis. Nemendur munu fylgjast meö framgangi þessa máls og hvetur Landssamband mennta- og fjöl- brautaskólanema bæjarstjórn Hafnarfjaröar til aö afgreiöa þetta mál á jákvæöan hátt þannig aö nemendum veröi gert auöveld- ara aö fá hollan og næringarrikan mat á hinum langa skólatima sinum. Framkvæmdastjórn L.M.F.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.