Þjóðviljinn - 24.02.1979, Qupperneq 2
2 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. febrúar 1979
Af fullkomnum
Mér hef ur verið sagt að það sé Edgar Alan
Poe, sem fann upp sakamálasöguna. Hvort
sem það er nú rétt eða ekki, er eitt víst, fáar
tegundir bókmennta hafa átt jafn gífurlegum
vinsældum að fanga og sakamálasögur og
svonefndar leynilögreglusögur.
Eitthvert unaðslegasta tómstundagaman
sem um getur er að sitja með sveittan skall-
ann yf ir bók eftir Agötu Christie og reyna að
komast til botns í því hver haf i drepið hvern,
hvar og hvers vegna, áður en höfundur segir
frá því á síðustu síðum doðrantsins.
Fyrst er framinn ,,fullkominn glæpur" og
svo kemur sjeníið Poirot eða einhver ámóta,
leysir gátuna og afhjúpar hinn seka með
bravúr.
Einhvern tímann rakst ég á þá kenningu
i fræðiriti að kríminólógar (glæpafræðingar)
væru á síðari árum farnir að hallast að þeirri
skoðun að f ullkomleiki glæpa yxi í öf ugu hlut-
falli við fullkomleika leynilögreglumanna,
þannig að þvi f ullkomnari sem leynilöggan er,
þeim mun ófullkomnari verða glæpirnir.
Hér á landi teljast það því undur og stór-
merki ef framinn er „fullkominn glæpur",
enda gerist það sárasjaldan á ári hverju.
Fullkomnustu glæpir sem framdir eru, eru
að mati sérfræðinga lögverndaðir glæpir, en
sá hluti fyrirbrigðisins er svo umfangsmikill
að ekki eru tök á að gera honum nein skil hér.
glæpum
Ég mun því halda mig við fullkomna ólög-
verndaða glæpi.
Einhvern tímann á árunum var brotist inn á
skrifstof u einhvers staðar úti á landi, lamirn-
ar logsoðnar af peningaskápnum og innihald
skápsins síðan hirt. Hér var um að ræða svo
fullkominn glæp að fenginn var sérfræðingur
frá Scotland Yard til að upplýsa málið. Eftir
umfangsmiklar rannsóknir kom það í Ijós að
ekki hefði verið hægt að sjóða lamirnar af
skápnum, nema opna hann fyrst og þá var
málið orðið það f lókið að það var — að ég held
— látið niður falla. Að minnsta kosti hef ég
ekki heyrt um það síðan.
Um daginn var svo framir.n glæpur, sem
virðist í fljótu bragði vera algerlega fullkom-
inn. Að minnsta kosti hefur ekkert heyrst um
málið í nærri mánuð.
Þetta var þegar maður í hettuúlpu, angandi
af Oldspæs lét drauma núverandi og fyrrver-
andi póstmeistara rætast með því að „beita
hörðu" og láta greipar sópa um fjármuni í
vörslu pósthússins.
Nú er lögreglan búin að vera að garfa í
þessu máli i hartnær mánuðog hef ur heyrst að
hringurinn sé farinn að þrengjast. Eftirfar-
andi er Ijóst:
Innbrotsþjófurinn var ókunnugur staðhátt-
um í Sandgerði. Hann hafði setið að sumbli
alla nóttina. Og þaðsem þyngsterá metunum:
Hann var sexhentur og beitti hörðu fimlega.
Hið siðastnefnda er svo óvenjulegt að lög-
reglan hefur gert gangskör að því að hafa
uppá öllum þeim sem vitað er um hériendis
sem beita hörðu fimlega, eru sexhentir,
ókunnir staðháttum í Sandgerði og drekka
Óldspæs á nóttunni.
Það að maðurinn hafi verið ókunnugur í
Sandgerði markar lögreglan af því að
ræstíngakraftur pósthússins sá hann vera að
kíkja fyrir horn daginn áður,og það er Ijóst að
menn kíkja ekki fyrir horn, nema þeir viti ekki
hvað er handan við það. Ljóst er að maðurinn
hafði setið að sumbli alla nóttina og drukkið
Óldspæs. Eins og veðrið var þennan morgun
hefði lyktin af rakspíra verið fokin út í veður
og vind. Lyktin var útúr honum. Með því að
fara yfir athafnir mannsins þarna á pósthús-
inu má Ijóst vera að hann var sexhentur. Með
fyrstu hendinni tók hann í hurðarhúninn, með
annarri slökkti hann Ijósið, í þriðju hendinni
hélt hann á vasaljósinu, með f jórðu hendinni
handfjatlaði hann „ókennilegan, harðan
hlut", með fimmtu hendinni tæmdi hann svo
peningakassann,en með sjöttu hendinni gerði
hann sig skiljanlegan, klóraði sér o.s.frv.
Nú hefur sterkur grunur fallið á amerískan
hárgreiðslumeistara á vellinum,en hann hef ur
viðurnefnið„sexhenti", Jói sexhenti (Joesex-
maniac). Maður þessi er grunaður þar sem
hann er einn af fáum suður með sjó, sem hef-
ur aðgang að Óldspæs og þó ekki síður vegna
viðurnefnisins.
Þess verður því væntanlega ekki langt að
bíða að ráðgátan um sexhenta sprittistann
verði leyst.
Og auðvitað má alltaf nota gömlu góðu að-
ferðina sem Hjálmar lýsir svo snilldarlega:
Ef magnast glæpagrunurinn,
gerast löggur kátar.
Þær setja bara einhvern inn
sem endanlega játar.
Flosi
Skólamála-
fundur í MH
Bæði rótgróin og ný-
stofnuð félög róttækra
nemenda i framhalds-
skólunum á Stór-Reykja-
víkursvæðinu hafa
undanfarið haldið fjöl-
marga fróðlega fundi
sem miða að því að ræða
ýmis þjóðfélagsmál útfrá
nokkuð öðru sjónarhorni
en almennt er í kennslu-
bókum. Mörg félaganna
hafa notfært sér boð um
efni og leiðbeinendur frá
Æskulýðsnefnd Alþýðu-
bandalagsins. Sem dæmi
má taka fund sem Rót-
tæka félagiö i Mennta-
skólanum við Harmahlíð
hélt á dögunum með
Herði Bergmann náms-
stjóra, um skólann og
stjórnun hans.
Fundinn sátu aö meöaltali um
20 manns, nægilega fátt til aö
allir gætu viöraö skoöanir slnar
og þó nógu fjölmennt til aö hægt
væriaöhafa a.m.k. ööru hverju
stjórn á umræöuefninu.
Um ýmislegt var fjallaö á
fundinum sem óvist er aö
nemendur hafi almennt velt
fyrirsér. Hvaöa aöilar eru þaö
t.d. sem hafa mest áhrif á
stjórnun skólanna og þ.á m. á-
kveöa hvaö nemendur skuli
gera? Hverju ráöa nemendur
um nám og félagslíf? Hvernig
speglast viöhorf ráöandi þjóö-
félagsafla I starfi skólanna?
Hvert er hlutverk skólans?
Hvenær á aö hefja sérhæfingu
námsins? Til hvers eru Dróf? Af
hverju hafa danskir skólanem-
endur miklu meira valfrelsi
varöandi námsefni og próf en
Islenskir? Hver er afstaöa só-
sialista til áfangakerfisins? Er
raunhæft aö ætla nemendaráö-
um skólanna aö koma fram sem
fulltrúi nemenda I öllum málum
gagnvart skólayfirvöldum?
Vita foreldrar eitthvaö um þaö
sem gerist i skólanum? Hver
ættu áhrif' þeirra aö vera?
Hvaöa þýöingu hefur þaö aö les£
punkta úr þýskum bókmenntum
á framhaldsskólastiginu?
Hverju mundu lög um sam-
ræmdan framhaldsskóla
breyta? Og svo framvegis, og
svo framvegis.
Enginástæöa er til aö tíunda
hér hvaöa skoöanir fundarmenn
höföu á einstökum þessara at-
riöa og fleirum sem bar á
góma. Ljóst er aö skólinn er til
þess ætlaöur aö innræta nem-
endum sjónarmiö ráöandi þjóö-
félagsafla og nemendur og for-
eldrar eru almennt lítt spurö
um viöhorf þeirra. Vinnuaö-
feröirnar sem almennastar eru i
skólunum, eru einna helst sam-
bærilegar við geöveikrahæli;
nemendum er ætlaö aö skipta
um áhugaefni á 40 minútna
fresti í staö þess aö vinna aö þvi
sem þeir hafa áhuga á hverju
sinni. 1 grunnskólanum er
félagslifi nemenda haldiö i
járngreipum og jafnvel i hinum
frjálslyndustu framhaldsskól-
um uröu stofnanir félaga vinstri
sinnaöra nemenda tilefni ýmis-
konar taugatitrings.
Róttæku félögin vilja auka
frelsi og víösýni nemenda. Skól-
inn hefur brugöist þvl hlutverki
sinu aö varpa ljósi á málin frá
öllum sjónarhornum. Þvl hljóta
samtök nemenda sjálfra aö
koma til. óó.
Guömundur
örn
ólafur
Hjalti
Höröur
Þröstur
Fræðslufundur í
framhaldsskólum
Eins og kunnugt er hafa aö und-
anförnu veriö haldnir I fram-
haldsskólum á Stór-Reykjavlk-
ursvæöinu fundir á vegum rót-
tækra og málfundafélaga skól-
anna. Eftirtaldir fundir hafa
veriö haldnir: 1 menntaskólan-
um viö Hamrahliö hafa veriö
haldnir tveir fundir. Fyrri fund-
urinn sem haldinn var á vegum
Þjóömálafélags MH var kynn-
ing á marxisma sem Guömund-
ur Ólafsson menntaskólakenn-
ari sá um. Seinni fundurinn var
haldinn á vegum Róttæka fé-
lagsins, meö Heröi Bergmann
námsstjóra, þéssa fundar er
sérstaklega getiö annars staöar
á siöunni.
1 fjölbrautaskólanum Flens-
borg hafa veriö haldnir tveir
fundir á vegum Röðuls, félags
vinstri sinnaöra framhalds-
skólanema I Hafnarfiröi. Fyrri
fundurinn fjallaöi um andstæð-
ur auövaldsþjóöfélagsins.
Þröstur Olafsson hagfræöingur
haföi framsögu. Seinni fundur-
inn fjallaöium sögu sósiallskrar
hreyfingar á Islandi. Framsögu
haföi Hjalti Kristgerisson hag-
fræöingur.
I fjölbrautaskólanum I Breiö-
holti hefur félag sósialista I
skólanum boöaö til tveggja
funda. Sá fyrri var kynning á
marxisma, sem Guömundur
ólafeson menntaskólakennari
sá um. A slöari fundinum fjall-
aöi Ólafur R. Einarsson sagn-
fræöingur um sögu sóslaliskrar
hreyfingar á íslandi. I mennta-
skólanum I Reykjavik hefur
veriö haldinn einn fundur á veg-
um Framtiöarinnar, málfúnda-
félags skólans. Þar kynnti Orn
ólafsson menntaskólakennari
marxismann. Fleiri fundir
veröa i framhaldsskólunum, og
verður þeirra getiö á þessari
föstu siöu Æskulýösnefndar Al-
þýöubandalagsins sem birtist
hér í blaöinu hálfsmánaðarlega.